Vísir - 28.05.1911, Side 2
Skipafrjettir.
E/s Sterling koni til Leith 26.
E/s Botnia fór frá Kaupmanna-
höfn 26.
E/s Vestri komst út af Stein-
grímsfiði 26. Varígær áBlönduósi.
E/s Ceres fer á morgun kl. 6
til útlanda.
Prentvlllur eru í greininni >Úr
leikhúsinu« í síðasta Vísi: »eavning<
fyrir evening. »Hví hafa íslendingar
ekki fyrst« fyrir: »Hví hafa íslendingar
ekki fyr«.
*Jxí úttÖYvdum.
Norska þingið ákvað 15. þ.
að senda Þúsundára hátíðinni í
Rúðu, ávarv. íslenska þingið hefði
mátt gera hið sama.
Ráðherrann sendir efalaust sam-
fagnaðarskeyti.
Frá Baku eru þær frjettir sagð-
ar að miljónamæringur nokkur þar
hefur verið ræntur syni sínum 14
ára. Hann hefur nú fengið skeyti
frá ræningjaflokki þar í landi, um
að sonur hans verði látinn laus
gegn miljón Rubla gjaldi. Ekki
hefur frjettst hvort auðmaðurinn
metur meira, son sinn eða fjeið.
Krýningarhátíðin
f Lundúnum.
Hátíðahöldin í sambandi við krýn-
ingu Georgs konungs eru þegar
byrjuð.
12. þ. m. opnaði konungur sýn-
ingu í Krystalshöllinni. 14. kom
Þýskalandskeisari og 15. afhjúpaði
Georg konungur hiö mikla minning-
armark Viktoríu drotningar.
Næstu daga voru ýms minni
hátíðabrygði, en 18. var opnuð Krýn-
ingarsýningin og 19. var meiri
háttar hirðball. Þá var einnig opn-
uð stór sýning í Earls Court.
Nú voru haldnar nokkrar mót-
tökuhátíðir til heiðurs mikilsháttar
krýningargestum úr öllu breska
ríkinu, og á mánudaginn var hjelt
ráðaneytisforsetinn Asquith volduga
veislu.
Krýningin sjálf fer fram 22. næsta
mánaðar.
Andavissumenn hjeldumeð
sjer alsherjarfund fyrir Norðurlönd
í Kaupmannahöfn dagana 12.—14.
þ. m. og voru þar 300 andavissu-
menn saman komnir frá Svíþjóð
Noregi og Danmörku. Finnum hafði
einnig verið boðið til mótsins, en
þeir komu ekki. Ræður voru þar
haldnar margar og merkar, anda-
fundir og hátíðlegt borðhald, svo
sem vera ber við meiri háttar sam-
komur.
Tií Halldórs. '
Halldórr finnur að því að nota
tvöfaldan flibba við kjól. Rjett
mun það. En skyldi Halldórr aldrei
hafa dan.sað í »Smoking« með
hálsband, eða í »dipIomat« með
ditto, eða þá í jakka? Eða, ef
hann ekki dansar, skyldi hann
þá aldrei hafa reykt vindil úti á
götu eða inni í búðarholu, eða
borðað fisk með hnífnum, eða
stungið upp í sig skeiðarbrodd-
inum? Skyldi hann hafa komið
inn í alþingishúsið er þingfundur
stóð yfir og ekki tekið ofan, eins
og þeir gera í breska þinginu í
Lundúnum?
Annars er það gott hjá H. að
hnýta í rembing Dana »hjer
uppi«. Slíkt verður ekki ofgjört.
Tæplega er það þess vert að
springa af aðdáun, þótt hingað
komi einhverjir meðal-skussar og
sýni sig á leiksviði. Og þó er
sagt, að sumar ritstjóra-blöðrurnar
hjer, dana-elsku, hafi blöðrur í
lófunum nú um stundir.
Pollux.
Vorið iimandi.
Saga frá Kóreu
eftir óþektan höfund.
Frh.
í þessu vaknaði hann.
»Þjónninn hefur haft rjett fyrir
sjer«, hugsaði hann. Þessi unga
stúlka er mjög dyggðug og örðugt
verður að ná tali hennar, en sá verð-
ur gæfusamur, sem hennar fær, því
hún verður honum trygg. Skelfing
yrði jeg hamingjusamur ef jeg gæti
fengið hana fyrir konu.
Honum fanst nóttin ætla aldrei
að líða.
Það morgnaði og I-Toreng kall-
aði á þjón sinn.
»Jæja hefurðu þá fundið nokkur
ráð,?« sagði hann.
»Já, jeg hef hugsað um það og
þó það hafi verið örðugt, þá hef
jeg fundið það.
Jeg ætla að reyna að finna í þess-
um borgarhluta einhverja kerlingu
og láta hana fara til Tchoun-Hyang
og biðja hana um að ganga með
sjer í Conang-hoa-Iou.
»Og hvaö svo?« spurði I-Toreng.
»Svo«, sagði þjónninn, »farið þjer
í kvenmannsfötog hittið uugustúlk-
una þar.«
»Það ergott, sagði I-Toreng, »jeg
geri eins og þú Ieggur fyrir« en,
bætti þjónninn við, »jeg þarf að
láta kerlinguna fá peninga«. »Auð-
vitað,« sagði I-Toreng, »jeg skal
borga alt sem með þarf. Hve viltu
mikið? Seg þú aðeins til, jeg skal
láta þig fá það. — Hjerna hefurðu
40 þúsund poun* Taktu þá með
þjer. Þú getur eitt af því, sem þjer
líkar og skrifað upp það sem þú
borgar út«.
Þjónninn tók við fjenu, kvaddi og
fór burtu glaður í bragði og þegar
að leita uppi kerlingu. Þegarhann
hafði fundið hana sagði hann við
hana. »Jeg þarf að ná í þig, til
þess að homa á samfundum milli
I-Torengs óg Tchoun-Hyang.« Kona
þessi svaraði aö hún vildi reyna það
en að Tchoun-Hyang væri mey og
»ef foreldrar hennar kæmust að því
að jeg hefði afvegaleitt dóttur þeirra
get jeg búist við að þau hefndu sín
á mjer.«
»Vertu ekki hrædd við neitt*, sagði
þjónninn, »við skulum halda þessu
leyndu og foreldrarnir fá ekki að
vita það.«
»Jeg er til með að liðsinna þjer,
en hvernig á jeg að fara að?«
»Jeg skal segja þjer það. Þú
átt að fara til Tchoun-Hyang og
biðja hana um að fara með þjer
til Conang-hoa-lou.«
»En hvernig getur þá I-Toreng
náð tali hennar?«
»Jeg hef hugsað mjer að I-Toreng
fari í kvenmannsföt og fari í þeim
til Conang-hoa-lou og hitti hana
þar. Hvað þjer viðvíkur, þá verð-
ur þú að láta sem þú sjert að
hugsa um eitthvað annað og ganga
dálítið frá, svo þau hafi næði að
tala saman.«
»Við höfum það þá svo«, sagði
gamla konan, »en hvað fæ jeg
mikið fyrir þetta?«
»Eins mikið og þú vilt«, sagði
þjónninn.
»Það er svo ástatt, að fái for-
eldrarnir nokkurntíma að vita þetta,
þá verð jeg dæmd og það finst
mjer að jeg þurfi að fá velborgað.«
»Já, jeg veit það«, sagði þjónn-
inn, »en ef þú verður dæmd, þá
*) 1 poun er lcopar peningur sem
gildir lítið eitt meira en 1 eyrir