Vísir - 18.06.1911, Side 1
77
21
Kemurvenjulegaút kl. 11 árdegis suiinud.
þrjðjud., miðvd., fimtud. og föstud.
| 25 blöðinfrá21. maí. kosta: Á skrifst .50a.
i Send út um land 60 au. — Einst. blöð 3 a.
Afgr. áhorninuáHotel Island 1-3 og 5-7.
Óskað að fá augl. sem tímanlegast.
Sunnud. 18. júní 1911.
Veðrátta í dag.
Reykjavik
Isafjörður
Blöndttós
Akureyri
Grímsst.
Seyðisfj.
Þórshöfn
Skýringar:
N = norð- eða norðan, A = aust- eða
austan, S = suð- eða sutinan, V = vest-
eða vestan.
Vindltæð er talin í stigum þannig:
0 = logn, 1 = andvari, 2 = kul, 3 =
gola, 4 = kaldi, 5 = stinningsgola, 6=
stinningskaldi, 7 = snarpur vindur, 8 =
hvassviðri, 9 = stormur, 10 = rok, 11 =
ofsaveður, 12 = fárviðri.
VZ.
Hátíðahöldin í gær urðu á þá
leið sem til var ætlast. Veður var
hið ákjósanlegasta sólskin og and-
vari mátulegur til að halda fánun-
um uppi.
í Mentaskólanum töluðu Steingrím-
ur rektor og Þorleifur H. Bjarnason
kennari. Þar var húsfyllir.
Iðnsýningin var opnuð kl. 10
og voru þar iðstaddir nokkuð á
annað hundrað nianns. Jón Hall-
dórson snikkari og Klemens land-
ritari hjeldu ræður.
Fyrir almenning var sýningin
opnuð kl. 12. Munirnir eru mjög
margir (talsvert á annað þúsund) og
einkar vandaðir margir og er jýn-
ingin hin prýðilegasta.
Háskólasetningin fór fram í
neðrideildarsal alþingis og var
þar troðfullt sem annarstaðar.
Ræður hjeldu landritari og B. M.
Ólsen, rektor skólans, en söng-
flokkur söng kvæði eftir Þorstein
Gíslason.
Skrúðgangan var tilkomumikil
þó ekki væri skipulagið sem best
og tóku þátt í henni 6—7000manns.
Margir kransar voru lagðir á leiði
bll
o
é
o
-1
756,8 4-11,0;
757,0-t- 9,2
757.5 4- 6.4
752.6 4-10,0
732.1 4-12,0
759,84 - 4,3
754,3 4 9,0
SV
N
ASA
_c
■a
c
tao
n
3
lO
'jSkýað
iSkýað
iLjettsk.
jHálfsk.
IHálfsk.
Ljettsk.
lAlsk.
Jóns Sigurðssonar þar á meðal frá
Landstjórninni, Bókmentafjelaginu,
Heimastjórnarfjelaginu og Ragnari
Lundborg í Karlskróna. Lúðrarnir
voru þeyttir í fararbroddi.
Ræða Jóns sagnfræðings 'ar
hin skörulegasta. Hún er prentuð
í ísafold og vísast þangað.
Lúðraflokkurinn spilaði á Austur-
velli en söngflokkur Sigfúsar Einars-
sonar söng af svölum Hotel Reykja- -
víkur.
Bókmentafjelagsfundurinn var
mjög vel sóttur og var fullskipað
í hátíðasal mentaskólans Forseti
(B. M. Ó.) mintist Jóns Sigurðs-
sonar, en á eftir var útbýtt fjelags-
bókum, 1, hefti af brjefum Jóns
Sigurðssonar 39 arkir á stærð með
nokkrum myndum og Skírni 13
arkir með myndum,
íþróttamótið hófst í gær kl. 5
á íþróttavellinum. Hjelt Þórhallur
biskup þar ræðu en síðan sýndu
stúlkur og piltar lekfimi. Fjöldi
manns sótti mótið, á að giska 3000
manns.
Samsæti voru haldin á Hotel
Reykjavík (borðað þar í þrem stof-
um) og í Goodtemplarahúsinu.
Aftur varð ekkert af samsæti í Iðno
svo sem til var ætlast áður.
Dans á "eftir. Borið var við
að dansa um kveldið suður á
íþróttavelli og var spilað á harm-
onikku undir. Gleðin var þó
skamvinn því tveir menn lentu í
handalögmáli og sleit þar með
dansinum.
1
Ur bænum.
Fánarnir í gær. Á höfninni
Iágu mörg skip og voru þau fánum
prýdd eftir föngum og fagurt yfir
að líta.
í borginni var hver fánastöng
notuð og fánar á stöngum út úr
gluggum. Voru taldir 137 íslensk-
ir fánar, 62 danskir og 17 annara
þjóða og fjelaga.
í skrúðgöngunni voru á þriðja
hundrað íslenskir fánar og 8 danskir
(flestir smáir).
Galdramaðurinn sýndi list sína
í gærkveldi. Ekki komst nema lítill
hluti þeirra, sem sjá vildu að í þetta
sinn og var húsið þó svo fullt, sem
frekast mátti vera og urðu nokkrir
óánægðir yfir þrengslunum. En
þegar Dr. Leo var farinn að fremja
i galdra sína komust allir í besta skap.
Hann sýndi hin mestu furðuverk og
ljet jafnan rannsaka hjá sjer verk-
færin sín, og ýmsir áhorfenda voru
kallaðir til að láta galdurinn koma
fram við þá. Hann ljet tvær dúf-
ur koma fram af einu þeyttu eggi,
hann ljet ósýnilega anda skrifa á
töflu, svo seni andavissumenn gera.
Kúlur ljet hann hverfa úr lokuðum
kassa, sem áhorfendur geymdu og
í glerkassa, sem stóð á leiksviðinu.
Vín gerði hann úr nokkrum grös-
um og gaf það áhorfendum.
Borðdans framdi hann með Ást-
valdi Gíslasyni, Einari Arnórssyni
og Knud Zimsen og gekk prýðilega.
Borðið hljóp með þá um allt
áhorfendasvæðið.
Andi materaliseraðist o. s. frv. o.
s. frv.
Listirnar voru mjög margar og
prýðisvel framdar, yrði eflaust sí-
feldur húsfyllir hjá honum þó hann
væri hjer heilan mánuð.
I gær var enginnSfangi í fanga-
húsinu og hefur það ekki !borið
við síðustu tuttugu árin.
Frímerkin gengu ekki upp að
fullu í gær, lítið þó eftir.
Búist við viðbót af þeim sömu
frímerkjum eftir-10 daga. •
Skipafrjettir.
E/s Sterling fór vestur í nótt
með fjölda farþegja, mest veislugestir.
Einar M. Jónsson yfirrjettarmálaflutn-
ingsmaður, fór til Stykkishólms.
La Savoie, botnvörpuskip frá
Boulogne hefur verið sektað fyrir
ólöglega veiði, var varpa þess boð-
in upp í gær kl. 4.