Vísir - 12.07.1911, Side 1
92
Kemurvenjulegaút kl. 11 árdegis sunnud.
þrjðjud., rniðvd., fitniud. og föstud.
25 blöðin frá 25. júní. kosta: Á skrifst. 50 a.
Send út um landóO au. — Einst.blöð 3 a.
Afgr. á horninu á Hotel Island 1-3 og 5-7.
Óskað að fá augl. semtínianlegast.
Miðvikud. 12. Júlí 1911.
Sól í hádegisstað kl. 12,33‘.
Háfióð kl. 5,45‘ árd. og ki. 6,14‘síðd.
Háfjara kl. 12,ó‘ síðd.
Afrnæli.
Frú Guðrún Árnason.
Póstar á rrtorgun:
Flóra norðan um land frá Noregi.
Þingvallavagn kemur.
Veðráíta í dag.
Loftvog £ '< Vindhraði Veðurlag
Reykjavík 767,5 4-11,0 SA 6 Alsk.
Isafjörður 763,9 -t-15,6 sv 4 Skýað
Blöndtiós 765,2 4-17,1 s 1 Skýað
Akureyri 765,9 -f21,0 SSA 5 Móða
Grímsst. 734.0 -+-18,5 S 2 Skýað
Seyðisfj. 767,7 -1-22,0 VNV 2 Alsk.
Þórshöfn 774,1 + 16,8 0 Ljettsk.
Skýringar:
* N = norð- eða norðan, A = aust- eða
austan, S = suð- eða sunnán, V = vest-
eða vestan.
Vindhæð er talin í stigum þannig:
0 = Iogn, 1 = andvari, 2 = kul, 3 =
go!a, 4 = kaldi, 5 = stinningsgola, 6=
stinningskaldi, 7 = snarpur vindur, 8 =
hvassviðri, 9 = stormur, 10 = rok, 11 =
ofsaveður, 12 = fárviðri.
íþróttamótið við Þjórs-
árbrú.
Það var haldið sunnudaginn var
eins og til stóð en veður var hið
versta, steypiregn mestan hluta dags
og stormur. Af íþróttum varð ekki
nema 100 stikna hiaupið og glím- i
ur.
Áður mótið byrjaði hjelt sjera
Ólafur Magnússon í Arnarbæli guð-
þjónustu.
Að henni lokinni setti formaður
hátíðarnefndarinnar Guðlögur Þórð-
arson frá Króktúni hátíðina. Þá
var íþróttavöllursunnleudinga vígð-
ur og lijelt víxluræðu Björgvin sýslu-
maður Vigfússon. Nú var 100 stikna
hlaupið þreytt og varð fremstur
Guðm. Ásmundsson trá Apavatni
(Á) þá Ágúst Eyólfsson frá Hvammi
(R.) og KetiII Gíslason frá Reykja-
koti (Á.) og hlutu þeir verðlaun (1.
2. og 3.) Þrír aðrir tóku og þátt
í hlaupinu.
Nú hjelt Guðm. Björnsson land-
læknir ræðu fyrir rninni íslands en
Sigurður Vigfússon frá Brúnum for-
stöðunefndarmaður talaði fyrir minni
hjeraðanna.
Kl. 8 voru glímur í Konungs-
skálanum og kepptu 7. Glímt var
um silfurskjöld þann, er Haraldur
Einarsson hlaut í fyrra og fylgir
honum nafnbótin »GIímukonungur
suðurlanrsundirlendis. Hann hlaut
nú Bjarni Bjarnason frá Auðsholti.
Dansað var um kveldið. -— Um
900 manns sóttu mótið. Aðgangur
kostaði 30 og 25 aura.
J
Ur bænum.
Skemtiferðaskipið kom loks í
morgun, tafðist 1 dag vegna þoku.
Ferðafólkið kom í land laust fyrir 9.
Vegna Þjóðverjanna verður sam-
söngur í Bárubúð kl. 4 og veðreið-
ar á Melunum kl. Glímur
úti á skipi kl. 9. — Það fer aftur
í nótt.
Gefin saman: Guðm. læknir
Þorsteinsson og ym. Margrjet Krist-
ín Lárusdóttir af Seyðisfirði, 3. þ.
m. — Þau fóru með Austra daginn
eftir.
Magnús Knútur Sigurðsson bóndi
frá Seljalandi og ym. Sigrún ísleif
Þorsteinsdóttir, 4.
Árni Eyólfsson Byron trollara-
skipstjóri og yrn. Ingibjörg Pálína
Stefánsdóttir. (Pálssonar skipstjóra), 7.
Eyólfur Björnsson kaupm. í Kefla-
vík og ym. Guðríður Einarsdóttir
s. st, 8.
Dánir: Ekkjan Þuríður Eyólfs-
dóttir frá Garðhúsum (Rvk.) 82
ára. f 5.
Halldór Jónsson, tómthúsmaður
Spítalastíg 4. f 4.
Jörðuð í gær, ekkja Þóra Krist-
jánsdóttir Hverfisg. 4. Húnvarekki
tengdamóðir Garðars kaupm. Gísla-
sonar svo sem stóð í Vísi, heldur
er kona G. uppeldisdóttir hennar.
BH lltl lili pig AFGREIÐSLA jg
h|f klæðaverksmiðjunnar iðunn gij
verður, frá 15. júlí og framvegis, opin frá kl. 7 f. m. til kl. 6 e. m. dag 1111
ii hvern, nema laugardaga, þá opin frá kl. 7 f. m. til kl. 5 e. m. . llllljll
wm Reykjavík 11. júlí 1911.
Hli pr. pr. h|f KLÆÐAVERKSMIÐJAN IÐUNN pl
ii ÍÍÍÍBÍ Snorri Jóhannsson. li