Vísir - 03.08.1911, Page 2
94
V í S I R
»Jeg kom hingað (til Chicago)
meö fáa aura í vasanum, til þess
að leita mjeratvinnu og eftir nokkra
daga komstjegað hjá járningamanni
er Martindale hjet og er nú nýlát-
inn. Jeg var hjá honum í 10 ár
og járnaði marga hesta. Meðal
annara kom til okkar maður sem
átti fallega og dýra hesta og leit
hann sjálfur eftir meðan verið var
að járna. Jeg fjekk við það tæki-
færi til að kynnast honum og hann
var svo ánægður með járninguna
að hann sagðist aldrei láta annan
en mig járna hesta sína. Er hann
kom síðar og stóða hjá, er jeg járn-
aði hesta hans, sagði hann: »Jimmy,
því hætturðu ekki þessu starfi og tekur
eitthvað annað fyrir?« Jeg hló og
sagði að jeg kynni ekkert annaði
»So«, sagði hann; »en efjeg veitti
þjer stöðu við bankann minn, mynd-
irðu þá þyggja hana?« — Það var
óvænt gleði. Næsta dag fór jegur
járningafötunum og fylgdi kunningja
mínum. Það var John A. King,
þáverandi bankastjóri Fort Dearborn-
baka, sem gerði mig að fjármála*
manni. Honum gleymi jeg ekki
mína æfidaga«.
Sex mánuði var Jimmy að læra
og fjekk síðan sjálfstæða stöðu. Nú
er hann miljónaeigandi og forseti
Chicago kauphallar, sem áður segir.
PRENTSMIÐJA DAVIDS ÖSTLUNDS
Raddir
almeimings.
Fríkirkjuveg'urinn.
Jón Jónsson skrifar í Vísir ný-
lega um Fríkirkjuveginn, sem er
eitt af loftbyggingum bæarstjórnar-
innar, Jón hallar að mjer finst óþarf-
lega mikið á núverandi heilbrigðis-
fulltrúa, fyrir eftirlitsleysi með hrein-
læti á þessu fyrirhugaða vegi. Jeg
hefi áreiðanlega fregn um að borg-
arstjóri hafi beðið lögregluþjóna
bæarins einn eða fleiri að hafa gát
á nefndu svæði og er það vel við |
eigandi jeg veit líka að í þessu
hefur verið argast, en lítinn árangur
borið eins og Jón máske (?) hefur
rekið sig á í fleiri tilfellum. En
að saka núverandi fulltrúa fyrir þetta
að minsta kosti að öllu leyti, íinst
mjer rangt, enda á hann í höggi
við nógu margar forarvilpur og
saurdalla fyrir því.
Hvað stíflunni í læknum við kem-
ur, hefur núverandi fulltrúi að vísu
rækt þá skyldu að nokkru, en notað
sömu aðferð sem fyrirrennari hans,
og við Jón erum víst báðir sam-
mála um að aðferð þessi sje úrelt
og vona jeg, að um hana verði
breytt, hið bráðasta.
Jóni er meinilla við auglýsingar .
þær, sem fulltrúin hefur látið líma
upp í götunum og telur þær
árangurslausar, en má jeg spyrja:
Er ekki margt það, sem gjört er
einu og öðru til lagfæringar, oft
árangurslítið ? og á þess vegna að
gefa öllu lausan tauminn? Jeg tel
auglýsingar þessar bera þess ljósan
vott, að fulltrúinn viljigjöra það sem
í hans valdi stendur til þessað knýja
fólkið til hlýðni við heilbrigðissam-
þyktina, þótt það svo beri minni
árangur en vera bæri vegna óhlýðni
hlutaðeiganda og er ekki unt með
rjettu að saka hann fyrir.
Línur þessar eru aðallega skrif-
aðar í þeim tilgangi að mótmæla
því að fyrverandi fulltrúi hafi á þann
veg eytt óhroða þeim sem fólk
kastar á einn eða annan stað í
bænum, að láta moka yfir það í
þeirri heimskulegu trú að það væri
til heilnæmis og sparnaðar fyrir bæ-
inn. Slíkt er venja húsdýra, en
ekki læknis og allra sýst J. H. Svo
mikið þekki jeg hann.
Jóh. Jóhannesson.
Bankarnir halcLa
þjóðhátíð.
Mjer þykir bankarnir vera farnir
að vera »þjóðlegir«. Þeir eru báðir
lokaðir í dag og auglýsa á hurð-
inni, að það sje af því, að nú sje
2. ágúst.
Engum öðrum dettur í hug að
halda upp á þennan dag í þetta
skifti. Almenningur er að vinnu
sinni og hjer er ekki neitt um að
vera,
Þetta tiltæki bankanna er því all-
skringilegt — að fara nú að loka
upp úr þurru á virkum degi, ein-
mitt þegar póstskip eru að fara hjeð-
an, bæði til útlanda og í aðra lands-
fjórðunga og því mörgum sjerstök
nauðsyn á að geta rekið erindi í
bönkunum.
En hjerna fyrrum, þegar haldin
var þjóðhátíð 2. ágúst, og enginn
maður sinti öðru en gleðskap og
skemtan, þá þurfti mestu eftirgangs-
muni til þess að fá bönkunum lok-
að.
Stafar þetta af því, að það sje
»fast prináp€ bankanna að haga
sjer þvert á móti því, sem viðskifta-
mönnum þeirra er hagkvæmt og
geðþekt?
P. t. Rvík 2. ágúst 1911.
Jón af Skaganum.
Lífsábyrgðarfjelagið
KRÖNAN
í Stokkhólmi
er besta og ódýrasta lífsábyrgðarfjelagið
á Norðurlöndum.
Tekur börn og fullorðna í Iffsábyrgð
sfna og iðgjöldin 1 slnni til 4 sinnum á
ári, eftir því, sem hverjum er hægast að
greiða þau.
Tryggið líf yðar og gjörið það f lífs-
ábýrgðarfjeginu KRÓNAN.
Umboðsmaður í Reykjavík
Siffurborff lónsdóttir