Vísir - 17.10.1911, Blaðsíða 2

Vísir - 17.10.1911, Blaðsíða 2
V i S I R 66 5^evwL Jlxvdevssoxv 6í i V klæðskeri tur á, hornið á Hótel ísland, Hann hefnr mikið úrval af nýmóðins fatatani og vetrarfrakkaefnnm og yfir höfuð alt, sem að fatnaði lýtur, af bestu tegund og verðið afar sanngjarnt. vmr mr komið og skoðiði ~m ~wm var það opinberlega tilkynt öllum stórveldunum. Ensk og þýsk blöð tóku þá þegar til að skamma ítali og köll- uðu þetta svívirðile.ga íánsferð sem stórveldin ættu ekki að þola. ítalir báru því aftur við að þeir hefðu verið nauðbeygðir, þar sem ítölsk- um þegnum í Tripciis hefði Iengi verið voði búinn og að á hinn bóginn væri ekki hægt að treysta neinum samningum við Tyrki. Daginn eftir voru öll blöð Norð- urálfunnar hlaðin með lýsingunni á blóðbaðinu í Tripolis og hinni miklu skotdembu er ítölk skip Ijetu rigna yfir bæinn. En sannleikurinn var sá, að alt símasamband var eyðilagt. Og þetta voru lygaskeyti og getgátur og nú er það sannað að ítalir skutu ekki á bæinn fyr en lítilsháttar 3. þ. m. er þeir tóku bæinn viðnámslítið. Penna dag (30. f m) urðu ráð- herrarnir í Konstantínópel að segja af sjer. Forsætisráðherrann kom og fjell á knje fyrir soldáni og bað um lausn og hinir fóru að dæmi hans. Soldán var reiður mjög og sagði að slík úrþvætti vildi hann ekki augum líta framar og er þeim öll- um stefnt fyrir herrjettnema einum, það er herraálaráðherrann. Hann er í náð hjá soldáni og fær að halda sínu embætti. Þenna dag rjeðist hertoginn af Abruzzo, með nokkrum herskipum er hann ræður yfir, á 2 torpedo- báta tyrkneska fyrir utan Prevesa en það er flotastöð Tyrkja við landamæri Orikklands á vestur- 1 ströndinni og sökti hann þeim báð- um. Út af þessu tiltæki urðu marg- ir stjórnmálamenn í Norðurálfu upp- næ.rir og töldu að ítölum mætti ekki haldast uppi að færa ófriðinn inn í Norðurálfuna, en ítalir sögð- ust hafa þurft að verja kaupför sín<! fyrir bátum þessum. Nú bárust stöðugt símskeyti frá Konstantin- ópel um að ítalir hefðu skotið á Prevesa, sett her þaráland o. s. frv., en það reyndust altlygaskeyti, gjörð til þess að æsa menn upp á móti ítölum. Um leið og Tyrkir báru þessar sögur út leituðu þeir stuðnings stórveldanna til friðar umleitunar og þar á meðal Bandaríkjanna í Vesturheimi, en stórveldin neituðu að skifta sjer nokkuð af málunum, og mun alt hafa verið undirbúið áður. Þó lofaði Pýskalands keisari að reyna að miðla málum, en Ítalía yrði þó að fá Tripolis undir öllum kringumstæðum. Tyrkjaher sá, sem í Tripolis var, fór þegar úr borginni er tekið var að skjóta á hana og hefst nú við í fjöllum þar suður af. Má búast við smá árásum af þeirra hendi við og við. ítalir sendu um fyrri helgi 40 þúsundir hermanna yfir til Tripolis. Peir hafa náð af Tyrkjum flutn- ingaskipi er á voru 200 hermenn. Aftur hafa Tyrkir getað sökt fyrir ítölum einum torpedo bát. Tripolis 29. sept. 1911 (aðkveldi). — Borgin býst við skothríðinni á hverri stundu, og þó að líklegt sje að hún verði eyðilögð í dag, hafa menn þó sofið rólega í nótt. Ljós voru tendruð í öllum tyrk- neskum bænahúsum, í hermanna- skálunum og hinum litlu, hvítu íbúðarhúsum borgarinnar. Menn hafa hjer fregnir af því, að Tyrkir áttu að hafa svarað síð- asta boði ítala í nótt og frjettarit- arar Norðurálfublaðanna stóðu í gærkveldi úti á veggsvölum gisti- húsanna og ræddu um hvernig herskipin myndu haga árásinni um leið og þeir virtu fyrir sjer ljósin á ítalska flotanum sem lá mílufjórð- ung undan landi. Um miðnætti hófum vjer glösin og drukkum skálina: »Lifi Ítalía«, og í þeirri svipan voru ljósin á ftalska flotanum slökt. í morgun er jeg sat hjá ítalska ræöismanninum, kom munkur inn til okkar og hvíslaði einhverju að honum og gekk hann samstundis út. Munkurinn sagði mjer þá í trúnaði að hann hefði sjeð ofan úr kirkju turni að torpedobátur kom inn á höfnina og þaut jeg þá líka út til þess að sjá hvað um væri að vera. Það var torpedobáturinn Gari- baldino, :em sigldi inn með hvítum fá ra, og lagöist við hliðina á tyrk- neskum kanónubát. Úti fyrir Iáu fjórir ítalskir bryndrekar í röð og I albúnir til að hefja atlögu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.