Vísir - 19.10.1911, Side 1

Vísir - 19.10.1911, Side 1
19 Keniur venjulegaút kl.2 síðdegis sunnud- þriðjud, miðvd., fimtud. og föstud. Fimiud. 19. okíóber 1911. Sól í hádegisstað kl. 12 13‘ Háflóð kl. 3,27‘ árd. og 3,45‘ síðd. Háfjara kl. 9,39‘ árd. og 9,57 síðd. Afmæli f dag. Þórdís Jónsdóttir, Ijósmóðir Sigurbjörn Sveinsson, kennari. Frí eyrna-, nef- og augnlækning, kl.2-3. Póstar á morgun: Kjósarpóstur og Sunnanpóstur fara. Ur bæiium, Brynjólfur Bjarnason hafði verið 25 ár kaupmaður í gær. Jacobsen kaupmaður í Khöfn ljest í fyrradag (eftir símskeyti). Hann var faðir Egils Jakobsens kaup- manns hjer í bænum. Þingmannaefni Gullbr. ogKjós- arsýslu eru að halda þingmálafundi víðsvegar í kjördæminu þessa dagana. Gestir í bænum. Meðal margra annara: sjera Gísli áMosfelli, Kon- ■ ráð Stefánsson í Bjarnarhöfn, Ólafur Ketilsson á Kalmanstjörn, Gestur á Hæli. Bæarfógetinn Jón Magnússon er að láta leggja grundvöll að nýu íbúðarh ísi við Hverfisgötu. Húsið verður úr steinsteypu. Fyrirlestrar B. M. Ólsensbyrja í háskólanum á þriðjudaginn kemur. Ceres fór áleiðis til útlanda í fyrrakvöldi, nokkuð á 9. dægur á eftir áætlan. Sjest því að hjer er ekki um neinn »Thoredall« að ræða. N. Um bannið í Maine hefur Templar sent út fregnmiða sem prent- aður er í Vísi í dag orðrjettur nema hvað leturbreytingum er sleft. Vísir gat um heimild sína (Politiken), er hann gat þessa máls um daginn. Nánari eftirgrenslun mun verða gerð símleiðina. Jón Hj. Sigurðsson settur hjeraðslæknir er til viðtals fyrir sjúklinga 2—3l/2 e. m. í Hafnarstræti 16 (uppi). 25 blöðinfrá24. sept.kosta:Áskrifst..50a. Afgr.ísuðurendaáHotellsland l-3og5-7 Send út um land 60 au. — Einst. blöð 3 a. Óskað að fá augl. sem tímanlegast. Raddir almennings. „Lítið lagar og lftið bagar.“ Það er ýmislegt fundið að póst- húsinu hjerna, og því miður ekki um skör fram, því mörgu er þar ábótavant. í þetta sinn ætla jeg nú samt að leiða hjá mjer að tala um, hve afar óþægilegt það er t. d. að pósthúsið skuli ekki vera opið allan daginn á virkum dögum, og ekki nema eina kl.-stund á helgum dögum. — Það fyrirkomulag er sjálfsagt 200 árum á eftir tímanum. — En sem sagt— Jeg ætla ekkert út í það að fara nú, þó auðvitað þyrfti helst að klifa á því í hverju blaði. — Það sem jeg í þetta sinn vildi minnast á er það, hvernig brjefin eru »stimpluð« lijer á pósthúsinu, og yfir höfuð á íslensknm póst- húsuni. Jeg minnist varla að hafa fengið svo brjef, að hægt hafi verið að lesa á því stimpilinn, sem á pósthúsinu hjer hefur verið á það settur. Það iítur nærri því svo út, ’sem póstmennirnir íslensku haldi, að það hafi alls enga þýðingu, hvort hægt sje að lesa pósthússtimpilinn eða ekki. — Það sje bara svona nokkurskonar lögboðin »gymnastik« fyrir þá, að hamast með stimpilinn gegnum brjefabunkana. En þessu er alls ekki þannigvarið. Þaðgetur einmitt oft haft mjög milda þýð- ingu, að pósthússtimpill á brjefi sje greinilegur, þannig að glögt megi á honum sjá bæði dagsetningu og staðarnafn. Erlendis er það meira að segja altítt, að brjef eru ekki dagsett öðruvísi, en að í þeim er vitnað til dagsetningarinnar á póst- stimplinum, enda er á erlendum brjefum undantekningalítið mjög glöggur póststimpill, og dagsetn- ingin nákvæm. Jeg vildi óska, að póstmennirnir okkar vildu taka þessar línur til at- hugunar, því þó um lítið virðist í fljótu bragði vera að ræða, hefur það þó sína þýðingu. Bái. Nýtt íslandsferða- skip. í 132 tbl. Vísis var getið um nýtt skip er Sameinaða Gufuskipa- fjelagið væri að láta byggja til ís- landsferða. Um það hefur frjettst þetta nánar síðan. Skipið er 270 fetaðlengd og 40 að breidd. Fyrsta farrými er ætlað 70 manns og sömuleiðis 2. farrými. Uppi á þilfari er mjög stór borð- salur, þar sem »Orkester« spilarvið máltíðir. En ágangþiljum er reykingasalur. Niðri er nýtysku baðhús. Frystilest er í skipinu þar sem hafa má alt að 7° frost. Skipið tekur 1000 smálestir og fer 13 mílur á vökunni. Skipinu fylgir mótorbátur, sem flytur farþegja í land þar sem ekki er legið við bryggjur. Vel er og sjeð fyrir skipsmönn- um. Hafa þeir rúmgóð herbergi og bað. Ætlast er til aðskipið hefji ferðir sínar fyrstu dagana í júní næstk. og tekur þá við ferðum Ceresar. Hið Sameinaða hefur nú alls 7 skip í smíðum. Magnús Sigurðsson Yfirrjettarmálaflutningsmaður Aðalstrœti 18 Venjulega heima kl. 10—11 árd. kl. 5—6 síðd. Talsími 124. Eggert Claessen yfirrjettarmálaflutningsmaður Pósthússtræti 17. Venjulega heima kl. 10—11 og 4—5. Talsími 16.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.