Vísir - 05.11.1911, Síða 1
Kernur venjulegaút kl.2 síðdegis sunnud-
þriðjud, miðvd., fimtud. og föstud.
Sunnud. 5. nóv. 1911.
Sól í hádegisstað kl. 12,12“
Háflóð kl. 4,10“ árd. og kl. 4,28 siðd.
Háfjarakl. 10,22 árd. og kl. 10,40síðd.
Afmæli í dag.
Arboe Clausen, málari
Björn Guðmunsson, kaupmaður
Hans Petersen, kaupmaður
Frú Sigríður Sighvatsdóttír.
Náttúrugripasafnið opið kl. I1 /.—2*/s.
Á morgun:
Ingólfur til Borgarness
Norðan og vestanpóstar fara.
Tannlækning ókeypis kl. 11 —12.
etvðiuvliomu
Fyrirlestur í samkomuhúsinu Siioam
við Grundarstíg í dag sunnudag kl.
6V2 síðd. Allirvelkomnir. ÖSTLUNO.
Olimpíuleikamir í
Stokkiiólmi 1912.
íljróttameim og íþróttavinir! Það
er eitt af þeim málefnum, sem nú
er kominn timi til að ræða um.
Getum við íslendingar tekið þátt í
þeim?
Hvernig getum við það?
Eru margir lijer svo færir, að
þeirgeti kept í Oiimpíuleikum heims-
ins? Hverja getum við sent og
hvað marga? Og í hverju geta
þeir kept? Hvernig getuni vjer afl
að fjár til fararinnar? Hvernigsem alt
fer megum við til að senda menn
til að sýna íslensku glímuna og
það mega ekki vera færri en 6
menn af öllu landinu, og það væri
mest gannn, ef þeir gætu gert eitt-
hvað fleira?
Hverir eiga að fara?
Allar þessar spurningar vil jeg
leggja fyrir þá er að þessu máli
vilja hlúa og beita sjer fyrir það
af alefli og skal jeg skýra málið
og svara þessum spurningum síðar
við tækifæri, hlutdrægnislaust. Öll-
um landsmönnum kemur þetta mál
við. Öllum fjelögum, sem vinna
25 blöðin frá 29. okt. kosta: Áskrifst.50a. Afgr. ísuðurendaáHotelIsland l-3og5-7
Send út 11111 landóO au.— Einst. blöð 3 a. Óskað að fá augl.sem tímanlegast.
ÁRNIEIRÍESSON
AUSTURSTRÆTI 6
NÝKOEVEIÐ: VetBingar (hanskar) úr skinni og u!l —
Nærfatnaður úr ull, fyrir alla— Nærfatnaður úr Ijer-
efti handa kvenfólki—Vetrarhúfur fyrir karlmenn—
Sokkar af öllum stærðum — og fjölda margt fleira.
vilja að heill og heiðri þjóðarinnar
ber að taka málið til meðferðar,
sjerstaklega ungmennafjelögum og
íþróttafjelögum landsins.
íslendingar munu, ef til kemur,
geta fengið að koma fram sem sjer-
stök þjóð við Ieikana, og væri þá
ekki óskemtilegt, að það yrðu 10—
12 nienn alls, en betra er að senda
6 góða en 12 slæma.
íþróttamenn! herðið upp hug-
ann og Iítið björtum augum í eld-
inn og herðið yklcur vel — æfið,
æfið, það bjargar öllu.
Sigurj. Pjetursson.
1
Ur bænum,
Símaslit eru nú afar mikil. Á
Smjörvatnsheiði hefur síminn legið
niðri marga daga. Hann er kubb-
aður á tveggja rasta svæði og marg-
ir staurar fallnir. í fyrradagreyndu
7 menn að setja upp staurana, en
þeir fjellu jafnharðan. Bíða þeir
nú eftir fyrsta tækifæri að lagfæra
símann. Síminn er og slitinn í
Húnavatnssýslu og ekki hægt að tala
til Blönduóss. Hann ereinnig sli -
inn milli Bitru og Síeingrím fjarðar
og því ekki hægt að ná sambandi
á Vestfirði.
Illkynjuð hálsbólga (Difteri)
hefur stungið sjer niður hjer og
hvar um bæinn, en er fremur væg.
Um víkingaöldina heldur Jón
docent Jónsson fyrirlestur í Háskól-
anum laugardagskveld kl. 7—8 í
gærkveldi átti hann viðtal við um-
sækjeidur að fyrirlestrunum og gáfu
sig fram öllu fleiri en fyrir kom-
ast í fyrirlestrarstofunni.
Aðstoðarskjalavörður er skip-
aður við Landskjalasafnið Hannes
Þorsteinsson, frv. ritstjóri, frál.jan-
úar næstkomandi. Áður hefur gegnt
því starfi Guðbrandur Jónsson, son-
ur Dr. Jóns Þorkelssonar.
Heilsufar í bænum er sem
stendur miður gott. Taugaveiki
hefur komið upp á nokkrum stöð-
um. Eins og áður hetur verið get-
ið liggja 13 manns á heimili Thor
Jensens 8 manns hafa legið í
Andersens liúsi Nr. 18 í Aðalstræti
(ekki hjá Reinh. Andersen) og þrír
hafa veikst í húsi á Laugavegi.
Yfirleitt er veikin væg eftir þvísem
læknar bæarins segja, og er nokkr-
um sjúklingum þegar fariðaðskána.
Hvaðar. veikin hefur komið í hús
þessi hefur enn ekki tekist að finna
þrátt fyrir stöðuga ransókn land-
læknis og hjeraðslæknis.
Búast tná við að veikin geri hjer
vart við sig á hverju hausti þar
sem fólk kemur hingað til bæarins
úr öllutn áttun, en taugaveiki er
oft svo væg að Iækniserekki vitjað
og í þessum tilfellum nú er veikin
að minsta kosti að nokkru leyti að-
komin.
Auglýsingar
er sjáfsagt að setja í Vísi
&
þær eiga að útbreiðast vel
þær eiga að útbreiðast fljótt
þær eiga að lesast almennt
Stimplar
pautaðir að kveldi, fást að morgni
á afgr. Vísis (þó ekki með upphafs
þ-i).