Vísir - 05.01.1912, Síða 1
206
25
VISIB
Kemur venjulegaút kl.2 síðdegis sunnud- Þriðjud., miðvikud., limtud. og föstud. '25 blöðin frá 3. des. kosta: Áskrifst. 50 a. : Send út um land60 au. — Einst. blöð 3 a. Afgr. í suðurenda á Hotel Island 1 -3 og5-7. Óskað að fá augl. sem tímanlegast.
Föstud. 5. jan. 1912. Sól í hádegsstað kl. 12,33, Úr bænum. Tækifærisverð
Háfjara er um 6 stundum 12 niín.
eftir háflóð.
Afrnælí í dag:
Siggeir Torfason, kaupmaður
Vilhelm Bernhöft, tannlæknir
Þorsteinn Sigurðsson, skósmiður.
Á morgun.
Skúli Thoroddsen, ritstjóri
Frú Efemía Waage
J. W. Chr. Mortensen, rakari.
Veörátta S dag.
Loftvog Hiti *s Vindhraði Veðurlag
Revkiavík 750 9 - 0,8 0 Ljettsk.
Isafjörður 755.5 — 0.5 N A 7 Alsk.
Akureyri 754,3 — 5.8 V 2 Hálfsk.
Grímsst. 719,0 —12,5 0 Skýað
Seyðisfj. 754,9 — 0,5 ANA 3 Hríð
Þorshfön 747,5 2,2 j 5 ISkýað
Vestm.e. 767,0 +-1,3 A 1 5 iHalfsk.
Skýrfngar:
N = norð- eða norðan, A = aust- eða
austan, S = suð- eða sunnan, V = vest-
eða vestan.
Vindhæð er talin í stigum þannig':
0 =, logn, 1 = andvari, 2 = kul, 3=
gola 4 = kaldi, 5 = stinningsgola, 6=
stinningskaldi, 7 = snarpur vindur, 8=
hvassviðri, 9 —storinur, 10= rok, 11 =
ofsaveður, 12 — fárviöri.
Su5sV\ótvustu ösíímcP;
samkomuhúsinu »SÍLÓAM« við
Grundarstíg á sunnudagskveldum
kl. 6V2- Allir velkomnir.
Vísir 1912
Kanur út venjulega 5 sinnurn í
viku. Einstök blöð kosta venjulega
3 au. 25 blöð (5 vikur) kosta: tekin
á afgreiðslunni 50 aur. send út um
land 60 au. og til útlanda 75 au.
(eða 20 cts). Árgangurinn (minst
260 blöð) kostar innanbœar 5 kr. út
um land 6 kr. erlendis 7,50 kr. (eða
2 dali). Utsölumenn fá sölulaun.
Auglýsingar kosta 50 au. centi-
meter (lástiká) dálksbreiddar. Mik-
inn afsláttfá þcir sem mikið auglýsa.
í fjarveru minni — um mánaðar-
tíma — gefur Júl. læknir Halldórsson
út Vísir. 2. 1. »12.
Einar Ounnarsson.
Þorvaldi lækni Pálssyni er
vikið frá um stundarsakir. Hann
sigldi í sumar og hafði leyfi til
þess að vera burtu þar til í sept.
f. á. en er ókominn enn, þráttfyrir
að símað hafði verið til hans, að
koma aftur.
Riddari. 3agt er að Háskólaráð-
ið hafi mælt með Ben. S. Þórar-
inssyni kapm. til þess að verðaridd-
ari af Dannebrog, sem viðurkenn-
ing fyrir hina miklu gjöf hans til
háskólans, er hann var, stofnaður.
Frjest hefur nú með »Modesta«,
að konungur hafi sæmt hann ridd-
arakrossinum, og er hann eigi síð-
ur vel að honum kominn, en marg-
ir aðrir, því hann er góður og
nýtur drengur og ættarjarðarvinur
mikill, sem ann framförum og
mentun.
Hann varð fyrstur manna til
þess að sæma Háskólann hinn ný-
stofnaða og hafa fáir strykað feitara
stryk nje þarfara, því sæmilegast er
að Iappa nú upp á Háskólann fyrst
hann er kominn á á annað borð,
svo hann verði landinu til sæmdar.
Vísir óskar til lukku með kross-
inn.
Kolaskip kom 31. des. f. á til
Duus-verslnnarinnar.
Vakn’ngasamkoma í kveld kl.
8V2 ísamkomusal Hjálpræðishersins.
SKULDIR.
Vjer mælustum fastlega eftir að
allir borgi skuldir sínar hjá oss hið
allra bráðasta, þareð vjer frá 1 jan.
1012 að telja, lánum ekkert.
Rvík 2. janúar 1812
pv. "\)\fl\Tl$\Xt
Cavt £ávussov\.
á ýmsri matvöru eíc.
svo sem Haframjöl, Rúg-
mjöl, Hveiti, Sago, Mais,
Cacao, Kaffi, Sápum,
Margarine Pálmafeiti o.
fl. o. fl.
Víkingur
Laugaveg 5.
Raddir
almennings.
Staðfestingar-
neitun.
Herra ritstjóri.
Sökum þess, að jeg hef orðið
þess var, að sumir hjer í bæ og
meðal annara hr. O. J. Olsen, halda
að jeg sje upphafsmaður að frjetta-
greininni í Vísi 28. des. síðastl. um
neitun á kgl. staðfestingu handa hr.
Olsen sem forstöðumanni s. d. ad-
ventistasafnaðarins í Rvík., þá skal
jeg hjer með lýsa því yfir, eins og
yður, hr. rit-.tj., er kunnugt, að jeg
hef alls ekki komið þessari frjett
í Vísi, nje vissi jeg neitt um að
hún mundi koma, hefði alls ekki
talað við ritstjórann um málið; jeg
vissi alls ekki af henni áður en
hdr. kom í Vísi.
Jeg ræð auðvitað engu um efni
Vísis.
Að öðru leyti er mjer kunnugt
um það,að fregnin er sönn: Olsen
þessi hefur sótt um kgl. staðfestingu
í des. 1911, en ekki fengið hana.
Rvík. 3. jan. 1912.
Davíð Östluud.
Fregnin er ekki eftir hr. Östlund.
Ritstj.