Vísir - 31.01.1912, Page 4
60
V 1 S 1 R
órjetf er, að þeir geta ekki fengið
þig til þess efþúsjáifur ekkivilt.
Segðu hreint og beint nei, og
stattu fast, sem hetja«.
Jeg neitaði því fyrst, enn þá
hótuðu þeir mjer að hræða mig
og þá vissu þeir að jeg vildi alt
til vinna*.
»Jeg ætla ekki að afsaka þig
Arthur minn«, sagði Walter »en
mjer þykir vænt um þig og vil
ekki vita að þú gerir það sem
ljótt er. Bið þú guð að gefa
þjer styrk, Arthur«.
Eden sagði ekkert, en horfði
á Walter.
»Heyrðu, Arthur, nú er verið
að hringja í skólanum og verð-
um við að fara heim - - en taktu
eftir því, að jeg óska þess að
vera vinur þinn. Jeg ætla að
reyna, eftir megni að bægja þess-
um ofsóknum frá þjer, og þú
skalt reyna að treysta vináttu
minni.
Pú skalt biðja guð að hjálpa
þjer Arthur minn og gefa þjer
hug«.
Eden horfði þakklátur á Walter;
hann var mjög sæll með sjálfum
sjer. Hann gat ekki komið upp
einu orði, en þrýsti hendi Walt-
ers og gengu þeir báðir þögulir,
heim á leið til skólans.
13. kapítuli.
Daubeny.
Jeg heid tæplega að nokkrum
manni líði betur, en þegar Ijettir
af honum stórri sorg. Pað er
vfst aö Walter leið vel, af því
hann var sjer þess meðvitandi,
að hr. Paton hafði fyrirgefið hon-
um. Hann sáað sjer mundi smá-
saman lánast að vinna bug á hinni
almennu óvild skólabræðra sinna,
með því hann reyndi hvað hann
gat til þess að vinna sjer álit og
frama í skólanum. — Ó, ham-
ingjusömu æskudagar!— Endur-
minning þeirra daga er oss til
undirbúnings og stuðnings í stríði
fullorðinsáranna.
Fyrir Walter var þessi tími lífs
hans ánægjuríkur ogminnisstæð-
ur. Honum var Ijett í skapi, og
það þegar hann vaknaði á morgn-
ana. Honum veitti Ijett að skila
lexíum sfnum, og hann fann mað
sjálfum sjer, að það var Paton
ánægja, hvað hann kunni vel.
Hann hló dátt að masinuíHend-
erson. Hann hjálpaði litla Eden
og fyrirhöfnin fanst honum að
fullu borguð, með því hann sá,
KJWarcnasr m’r.m.-.mran
Jóns Árnasonar, Vesturgötu 39.
hvað Eden var honum innilega
þakklátur.
Honum þótti mjög mikiðvarið
í leyfið, að mega sitja, nærhann
vildi, í stofu hr. Percivals. Par
hafði hann ágætt næð', og gat
því lært lexíur sínar, á miklu
styttri tíma en elia. Og þegar
eitthvað vandasamt kom fyrir.þá
naut hann þar aðstoðar kennara
síns eða pilta þeirra, er höfðu
sömu ívilnun og hann hjá hr.
Percival. Frh.
jUlav nauSs^u\a\)öv-
ev ems o$
a8 fcaupa h\í
Kaupið þið
Margarine
hjá
3ot\\ $ta^a8t\es\.
AG Æ T K Æ F A
40 aura pd., nýtt íslenskt
smjör 85 aura pd. hjá
Jóni frá Vaðnesi.
Frá útlöndum. (Frh .frá 1 .síðu.)
ítalir taka frakkneskt
skip.
Fyrir hálfum mánuði tók ítalskt
herskip póstskip frá Frakklandi, sem
var á leið til Túnis og flutti það
til hafnar í Sardiníu. Skipið hafði
á þiljum uppi flugvjel og óttuðust
ítalir, að hún mundi eiga að fara í
hendur Tyrkja í Tripolis. — Þessi
gripdeild mæltist þunglega fyrir í
Túnis, þótti mönnum ilt að láta
hefta póstflutninginn. Eftir langa
rekistefnu buðu Frakkar skipstjór-
anum að skila vjelinni í land, svo
að hann fengi að fara ferða sinna
með póstflutninginn. — En rjett
þegar þessi þræta var að verða
er/dkljáð tóku ítalirannað frakkneskt
skip og fluttu til sömu hafnar. Var
búist við, að Frakkar tæki verr á
því, er vegið var oftar en um sinn
í hinu sama knjerunn og virða til
fjandskapar. Var ekki sjeð fyrir
um úrslit málsins 21. þ. m. að
því er ensk blöð segja.
f Tripolis þykjast ftalir hafa
unnið sigur á Aröbum og Tyrkjum
nýlega; felt 400 menn í einum bar-
daga, en látið fáa sjálfir. Annars
ber þar fátt frásagnavert til tíðinda.
Östl unds-prentsm iðja.
L E I G A
2 herbergi í miðbænum til leigu
nú þegar. Ritstj. vísar á.
Barnavagn óskast til leigu. Afgr.
vísar á.
Grímudansbúningur fyrir karl-
maun til sölu hjá Reinh. Anderson.
Orgel til sölu fyrir hálfvirð1
Afgr. vísar á.
Orgel næstum því nýtt er til
sölu. Upplýsingar á Framnesveg 9.
Grímubúningur til sölu ásamt
grímu. Afgr. vísar á.
A T V I N N A
Pils fundið í Laugunum.
má að Sellandi.
Stúlka óskast í vist frá 14. maí
næstk. Gott kaup. Upplýsingar á
Frakkastíg 4.
Stúlka getur fengið að læra að
straua meö góðum kjörum. Afgr.
vísar á.
Sá sem tók regnhlífina í mis-
gripum, síðastl. laugardagskvöíd á
rakarastofu Árna Nikulássonar, geri
svo vel og skili henni á sama stað
og taki sína.
Peningabudda fundin. Berg-
staöastíg 31.
Grár hattur hefur tapnst milli
Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. Skil-
ist á afgr. Vísis.
Baukur merktur Eiiiar f>. liefur
tapast á götunum. Skilist á afgr.
Vísis gegn fundarlaunum.