Vísir - 10.03.1912, Síða 4
72
V í 5 ! K
borgast þann 29 mai og þann 2
ágúst fá jeg til eignar og umráða
sjö hundruð þúsund Sterling-pund
sem faðir minn Ijet mjer eftir sig *
f-'rli.
Ur bænum
Samsöngvar.
Fjelagið 17. júní hefur haldið 3
samsöngva síðastl. daga, í síðasta
sinn í gærkvöldi, með lítið eitt
breyttri söngskrá. Meðal annars
sungu þeir þá Olav Trygvason«
hið nafnfræga lag við kvæði Björn-
sons eftir Reissiger.
Söngflokkurinn er undir stjórn
Sigfúsar Einarssonar, og eru þeir
fjelagar nítján auk hans. Eru þar
saman komnir allir bestu söngmenn
þessa bæar, má t. d. nefná Pjetur
Halldórsson og Einar Indriðason;
annars virðast þeir allir göðir söng-
menn og raddirnar hlj'íma mjög
vel saman. Þó er 1. ■enór einna
, lakastur, raddirnar ekki sc-m best
samsungnar. Nokkuð annar liijóm-
blær á rödd E. I. en hinna. í íag-
inu »Spinn, spinn eru þrir, sem
syngja aðalröddina. og er sepi einn
syngi. Mjög vel sunguþeir Undan
ur viigen«, þó voru það dálítil lýti
að einn af I. tenór ljet of mikiö
bera á »s«-unum siðast í lagiitu, er
veikast var sungið.
Reykvíkingar getá gjört miklar
kröfur ti! fjelágs þessa, því mann-
val er þar mikjð. Vonandi syngja
þeir enn i vetur. Pollux.
Um krstindóm og náttúru-
vísindi flutti Jón prófessor Helga-
son alþýðufyrírlestur síðastliðiun
sunnudag. Húsið fyltist af áheyr-
endum; mönnum mun hafa leikið
forvitni á að kynnast því hvernig
þetta annað höfuð kirkjunnar hjer
á landi skýrir nýu guðfræðina.
Auk alþýðufólksins hlýddu meira
og minna lærðir menn á fyrirlest-
urinn og þar á meðal hálærðir
heimspekingar, lögfræðingar, mál-
fræðingar, guðfræðingar og skáld.
Þar voru prófessor Ágúst Bjarna-
son, lögfræðingarnir Magnús Arn-
bjarnarson, Magnús Sigurðsson og
Björn Þórðarson, þar voru latínu-
skólakennararnir Pálmi Pálsson og
Bjarni Sæmundsson, borgarstjóri
Páll Einarss m, bankastjóri Tryggi
Gunnarsson, þar voru Ástvaldur
kandídat Gíslason, doktor Jón Þor-
kelsson og Einar skáld Hjörleifs-
son óneitanlega líka.
Sumir kinkuðu kolli, súmir hjeldu
um skallana þegar rætt var um hin
flóknustu viðfangsefni og sumir
hristu höfuðin. Prófessorinn fræddi
menn u'm niargt og þar á meðal það,
að Kristur hefði ekki getað haft vit
á svo mörgu því, sem nú er búið
að ráða fram úr.
Haraldur prófessor Níelsson var
iður búinn að fræða okkur Reyjt-
víkinga úm það, hvernig bækur
xíM. fax\x í kotunum setut
JSafcamB \ yoerjxs^ötu ötau?--
\u í öfc uu.
3esta eju\. <Jutt\>\^u$ö.
^táWfrlrXrð:rbaenR tH
»
Utsalan á, Laugav. 20
heldur áfram enn nokkra daga.
Kristín Sigurðardóttir.
gamlatestamentisins hefðu orðið heil■
ög rit Gvðinga, og nú ætlar J. H.
að segja qkkur í>dag frá kraftaverk-
unum og hvernig þau sjeu til orðin.
Fyririesturinn var ábeyrílega flutt-
ur og a? mikilli mælsku. Að honum
loknum gengu menn burt í þung-
um hugsunum út af nýju guðfræð-
inni, seni sjálfsagt verður ný, þang-
að til önnur nýrri kemur í staðinn.
Grímur Thomsen »trúði því að
ti! sje fleira en taka má á og sjá
og hevra. En hvert stefnir?
Haustmyrkur.
Um Decamerone og lífið í Flór-
ens á 14. öld talar prófessor Ágúst
í háskólafyrirlestrinum á morgun.
Áttfættur kálfur. Sá sem
myndin er af í dag, fæddist í Þýska-
landi núna um nýárið og þykir
mesta metfje. Hann hefur tvo lík-
ami nema eitt höfuð.
KAUPSKAPUR
Barnavagn fæst með tækifæris-
verði, Laufásv, 41
Eitt hlutabrjef f námufje-
lagi íslands er til sölu. Rit-
stjóri vfsar á seljanda.
Gufuketill
fyrir lyfjalýsislsbræðslu með öllum
útbúnaði og tveim »stimkars« fæst
ódýrt hjá
E. Morthens.
Tvær gufubræðslur
í besta fiskiplássinu á Suðurlandi
fást með öllum útbúnaði ásamt tun-
um og verkfærum hjá
E. Morthens,
Landafræði í vanskiium á Njáls-
götu 26.
ATVIIMNA (gg
Stúika þrííin og liúsvön óskast
á lítið heimili hjer í bæfrá 14. mai
Upplýsingar á Njálsgötu 26.
Útboð
á
húsbyggingu.
Bræðurnir Bookles í Hafnarfirði
ætla að láta byggja þar fiskþurkun-
arhús. Þeir sem vilja taka að sjer
bygginguna, komi á Hotel ísland á
morgun fyrir kl. 4 síðd. og sjái
uppdrátt af byggingunni og fái aðr-
ar upplysingar.
30 stúlkur
óskast til fiskvinnu í Móakoti. Menn
snúi sjer fimtudag og laugardag kl.
4—5 til
E. Morthens.
Óðinsgötu 1.
Stúlka sem vön er öllum hús-
verkum, getur fengið vist á barn-
lausu heimili frá 14. mai. Upp-
lýsingar gefur Hjörtur Hansson hjá
Bryde.
Búðarstúlka
óskast frá 1. eða 14. maí. Um-
sóknir merktar »Búðurstúlka« send-
ist i áfgr. Vísii fyrir 15. þ. m.