Vísir - 22.03.1912, Síða 1
258
2
Kemur venjulegaút kl.2 síðdegis sunnud- 25 blöð frá 21.mars kosta:Áskrifst.50a.
Þriðjud., miðvikud.jfimtud. og föslud. Send út um landóO au.— Einst. blöð 3 a.
Afgr. í suðurenda á Hotel Island 1 -3 og5-7
Óskað að fá augl. sem tímanlegast.
Fösíud. 22. mars 1912.
Sól í hádegisstað kl. 12,35'
Háflóð 7,25‘ árd. og kl. 7,47‘ síðd.
Háfjara um 6 t. 12 mín. síðar.
Afmœli:
Frú Lára Pálsdcttir.
Frú Sigríður Þorláksdóttir.
Frú Svanborg Orímsdóttir.
Á morgun:
Hafnarfjarðarpóstur kemur og fer.
Ingólfur kemur frá Borgarnesi.
Afmœli:
Frú Karólína Þorkelsson.
Páll Steimgrímsson, póstafgreiðslum.
Hjálpræðisherinn.
Musiksamkoma í kvcld kl.
8V2. Hornaflokkurinn spilar.
'yxí
Suður himsskautið. Langt
er siðan tilraunir voru fyrst gerðar
til þess að komast að suðurheims-
skautinu. Skulu hjer taldar þær
ferðir, er frægastar hafa farnar verið
þangað suður í höfin:
Árið 1773 komst enskur maður
er Cook hjet, suður fyrir heim-
skautsbauginn.
1820 komst Bellingshausen,
rússneskur maður af þýskum ættum,
á 69 breiddarst. 52 mín.
1823 komst Weddell suður á
74 brst. 15 mín. Við hann er
kent Weddells-haf.
1842 náði Ross suður á 78
breiddarst. Hann fann eldfjallið
Erebus og Victoria-land. Við
hann er kent Ross-haf.
1898 var leiðangurinn frá Belgíu
sem Hróaldur Ámundason tók þátt í.
1900 fanst segulskautið á suður-
hveli.
1903 fór Dr. Bruce suður í höf,
sú för var ger af Skotlandi.
1901—4 var kapteinn Scott í
landkönnunarferð í suðuríshafi og
gerði margar nýjar rannsóknir.
9. jan. 1909 komst Shackleton
á 88 brst. 23 og átti ekki eftir nema
100 enkar mílur til heimskautsins.
Stórfeld vatnsveita í
New-York. Borgin vexstórum
árlega og verður líklega innan fárra
ára stærsta borg heimsins. Vatns-
eyðsla vex að sama skapi sem mann-
mergðin og því var byrjað á stór
feldri vatnsveitu til borgarinnar árið
1905. Er gert ráð fyrir að verkinu
verði lokið að ári. Vatuið er tekið
upp í Cats-KillA)ö\\um tvöhundruð
rastir frá borginni. (Það er fjórum
sinnum lengra en á ÞingvöII). Búist
er við, að verkið muni kosta nær
einn milljard franka, eða alt að því i
eins og Panamaskurðurinn.
Vatnsrásin liggur undir Hudsons-
fljðtinu 335 stikur fyrir neðan vatns-
mál og þarf hálfa miljón punda af
»dýnamiti« til sprenginga. Nær 20
þúsundir manna vinna að vatns-
veitunni. Á einum stað, þar sem
niest þurfti að grafa, hefur bygst
þorp með 7000 íbúum Þar eru
skólar, kirkjur, sjúkrahús, gildaskálar
og kvikmyndahús. Þar er og sjálf-
stæð bæarstjórn.
Kvenrjettinda-
uppþot
í Lundúnum.
EígnaspjöII og róstur.
Konur settar i varðhald fyrir
samsæri.
í upphafi þessa mánaðar gerðu
kvenrjettindakonurnar í Lundúnum
meira uppot þar í borginni en dæmi
eru til áður og hafa þær þó oft
illa látið.
Forstöðukonur uppþotsins höfðu
skipað fyrir um atlögurnar og hóf-
ust þær föstudaginn 1. þ. m.
Mrs. Pankhurst hjetsú er fremst
var í flokki og einna mest hafði
stuðlað að óeirðunum. Á svip-
stundu ruddust svarrarnir um öll
helstu strætin í Westend og brutu
rúður í sama mund í öllum hús- j
um á Strön d, Haymarket, Bond-
street, Regentstreet, og víðar.
Allir búðargluggar voru brotnir.
Hvergi var eftirskilin lieil rúða þar
sem óhemjurnar náðu til. Sumar
höfðu harnra, sem þær lömdu með,
aðrar 'nöfðu járn eða grjót í hand-
töskum sínum og slöngdu því í
rúðurnar. Eftir drykklanga stund
höfðu þær eyðilagt 90 þúsund króna
virði.
Lögreglan brá skjótt viðogvarp-
aði þenna dag 124 rúðubrjótum í
fangelsi.
Daginn eftir var frú Pankhurst
og margar aðrar dæmdar í tveggja
mánaða hegningarvinnu; sumar
sluppu með vægri dóm.
Sunnudaginn 3. mars gerðukon-
ur þær uppþot, er fangaðar höfðu
verið. Þær hömuðust með óhljóð-
um í fangelsis garðinum og brutu
rúðurnar í klefum sínum. — Sama
daginn fleygði kona nokkur logandi
körfu með trjespónum og olíuflösku
inn á aðal-pósthúsið. Þegar körf-
unni var kastað út, varpaði snótin
múrsteini inn um pósthúsgluggann.
Á mánudaginn 4. mars hófust
róstur á ný. Voru rúður enn brotn-
ar í ýmsum strætum, jafnvel í þing-
húsinu og bústöðum ráðgjafanna.
Víða leutu konur í áflog við lög-
regluna og urðu margar handtekn-
ar. Sumar dæmdar í tveggja mán-
aða hegningarvinnu. Einkuni var
uppþot um kveldið í Hvíthöll og
á Partiament-square. — British Mu-
seum og konunglegi háskólinn og
margar aðrar stofnanir voru lok-
aðar bæði þann dag og næstu daga.
Var engu líkara en borgin væri í
hers-höndum. Þenna dag námu
skemdir 20 þúsundum króna og
nær 200 konur voru settar inn.
Á þriðjudagskveldið (5. þ. m.)
rjeðst flokkur lögregluliðs inn i
skrifstofu kvenrjettindafjelagsins f
Clements-gistihöll á Strönd, tók þar
höndum Pethick Lawrence hjónin
og fleiri forsprakka sakaða um sam-
særi, rannsökuðu hýbýlin og lögðu
löghald á brjef og skjöl fjelagsins.
Lögreglan var þrjár klukkustund-
ir að rannsaka skrifstofur fjelagsins,
frá ld. 10 til kl. 1 um nóttina, hafði
með sjer nokkrar körfur af skjöl-
um, læsti síðan skrifstofunum og
setti innsigli fyrir.
Daginn eftir var hafin ákæra á
fyrr greind hjón, ennfremur frú