Vísir - 08.04.1912, Page 1
269
13
Kemur venjulegaút kl.2 siðdegis sunnud-
Þriðjud., miðvikud. fimtud. og föstud.
25 blöð frá 21. mars kosta:Áskrifst.50a.
Send út um land 60 au. — Einst. blöð 3 a.
Afgr. í suðurenda á Hotel Island 1-3 og5-7
Oskað að fá augl. sem tímanlegast.
Mánud. 8. apríl 1912.
Annar í páskum.
Afmœli:
Jóhanres Nordal, ísliússtjóri.
Á morgun:
Ingólfur til og frá Garði.
Sterling til Breiðafjarðar.
Líkkisturnar
viðurkendu, ódýru, fást
ávalt tilbúnaráHverfis-
götu 6.—Sími 93.—HELGI og EINAR.
>
Ur bænum
»Borgir«, skáldsaga eftir Jr3n
Trausta (Guðm. Magnússon), koma
innan skamms út í danskri þýð-
ingu á kostnað Gyldendals bóka-
verslunar í Kaupmannahöfn. Þýð-
andi er frú Margrethe Löbner-Jör-
gensen í Askov. Áður er »Halla«
komin út á dörrsku, og danskar út-
gáfur af fleirum bókum Guðmundar
munu vera í undirbúningi.
Sterling kom í gærmorgun frá
útlöndum, hafði seinkað sökum
slæmra kola, sem það varð að not-
ast við. Með því kom Vernharður
Þorsteinsson stud. phil. snöggva
ferð, kaupmennirnir Egill Jacobsen,
Obenhaupt, Jón Arnesen (Eskifirði)
Vilh. Jensen (Eskif.) v. Winterfeld
þýskur ferðamaður (hefur áðurskrif-
að bók um náttúru íslands), Boockles
trollaiaeigandi úr Hafnarfirði, 2 gas-
menn þýskir, 2 rjómabúslýrur, Jós
efína Austfjörð og systir hennar,
Vestfjörð. Barn eitt dó í hafi.
Bergenhus, skip það, er Sam
einaða gufuskipafjelagið sendi í stað
»Ceres« kom í morgun.
Eggert Claessen
Yfirrjettarmálaflutnmgsmaður.
Pósthússtræti 17.
Venjulega heima kl. 10—11 4—5.
Talsími 16.
Magnús Sigurðsson
Yfirrjettarmálaflutningsmaður.
Aðalstrœíi 18
Venjulega heima kl. 10—11 árd.s.
kl. 5—6 síðd
Talsími 124.
Raddir
almennings.
Ad ventistar í Reykj avík.
Klagandans heyrðu sögu’ uni sinn,
siðan aðgæt hvað talar liinn,
segir hið alkunna, íslenska sálma-
skáld H. P.
Því, sem liefur verið skrifað um
s. d. adventistana í »Vísi« og öðr-
um blöðum hjer í bænum, mun
verða svarað grein fyrir grein, þeg-
ar formaðurinn fyrir Norðurlanda-
sambandinu, hr. J. C. Raft kemur
hingað í sumar eða í haust. Jeg
vil þess vegna biðja almenning um
að bíða og dæma ekki í þessu mál-
efni, fyr en hann hefur heyrt frá
báðum hliðum; og ef jeg hef lært
að þekkja íslendinga rjctt, svo munu
þeir gjöra það með ánægju.
Því, sem snertir mig persónu-
lega mun verðasvarað þá um leið;
því jeg vil ekki svara nokkru nú,
og að öðru sje ósvarað.
Ef þess vegna skyldu koma fleiri
svertandi greinir, þá verður því öllu
svarað seinna.
O. J. Olsen.
Jxí úUötvdum.
SpitsLergen.
Sumir halda, að Spitsbergen sje
sama landið, sem forfeðui vorir
kölluðu »Svalbarða við Hafsbotn.«
Aðrir ætla að Svalbarði eða Sval-
barð hafi verið á austanverðu Græn-
landi norðarlega. Landnámabók
telur fjögra dægra sigling frá Langa-
nesi til Svalbarða, og bendir það í
áttina til Spitsbergens eða Jan Mayn.
Er öllu líklegra, að Svalbarð sje
Spitsbergen, heldur en það hafi
verið á austurströnd Grænlands, enda
nefna íslendingaralla austurströndina
»Grænlands-óbygðir«. Segir Land-
námabók að dægursigling sje »til
óbygða í Grænlandi ór Kolbeinsey
norðr.«
Svalbarð þetta er nú að verða
þrætucpli nágranna vorra, eins og
»Vísir« hefur áður frá sagt, enda
er þar til nokkurs að slægjast, þótt
virðast megi, að landið liggi fyrir
norðan »landslög og rjett«.
Kolanámur hafa fundist þar nyrðra
og nokkur fjelög verið stofnuð til
þess að vinna þær, Öflugast er
fjelag það, er Vesturheimsmenn
hafa stofnað og heitir »The Arctic
Coal Company«. Þetta tjelag flutti
26 þúsundir smálesta af kolum frá
Svalbarði síðastliðið ár. Þetta árið
hefur fjelagið ákveðið að flytja þaðan
að minsta kosti 60 þúsundir smá-
lesta.
Fjelagið hefur hingað til mest
fengist við rannsóknir þar nyrðra.
Þar er við mörg vandræði að eiga;
ísalög eru svo mikil á vetrum, að
bryggjur haldast ekki við og hefur
fjelagið varið miklu fje til þess að
fá góða lending þar. Sigling er
oftast tept til landsins sakir ísa
nema eina fjóra mánuði, júlf til
október; á öðrum tímum ársverður
ekki konúst þagað nema endrum
og sinnum. Vitar eru engir nje
önnur siglingamerki; verða því
skipaferðir mjög torveldar oghættu-
legar þegar hausta tekur.
Svalbarðskol eru talinn betri en
ensk kol; brenna betur og gengur
minna úr þeim.
Norðmenn gera sjer far um að
helga sjer landið, Þeir hafa sett
þar loftskeytastöð, sem sendir dag-
lega veðurskeyti til Noregs ogjafn-
framt kosta þeir kapps um að mæla
strendur landsins og siglingaleiðir
og semja nákvæmt landabrjef eftir
þeim mælingum.
Á komandi sumri fer á annað
þúsund Norðmanna þangað til vinnu
við námurnar og starfa þeir fram
að veturnóttum.
J. C. Christensen var ný-
lega kosinn forseti í fólksþingi Dana
með 53 atkræðum; 50 greiddu ekki
atkvæði.