Vísir - 01.05.1912, Page 2
20
V í S 1 R
\\\ sölu.
Stór vjelarbátur (9'/2 smálest) með 8 hskr. Hoff-
mannsvjel, allur úr eik, fsest keyptur með góðum
söluskilmálum.
Ágætur sjóbátur.
Upplýsingar gefur J P. T. BRYDES VERSLUN,
Vestmanneyjum eða Reykjavík.
Stúlka getur fengið stöðu við eina af stærri vefnaðarvöruverslunum
bæarins — strax æða sem fyrst.
Umsóknir skriflegar merktar 101 sendist til ritstj. Vísis fyrir föstu-
dagskveld.
Á þriðjudaginn tilkynnist umsækjendum í Vísi að staðan sje veitt
svo að þeir, sem ekki gæti komið til greina, fái vitneskju um það.
syðst af um 50 eldfjöllum í Mið-
ameríku sem liggja í fjallhryggnum
er gengur eftir endilangri álfunni
Umhverfis fjallið var skóglendi
mikið og frjótt og uxu þar hita-
beltistrje, en þar er nú hraun og
aska. Landið í grend er vel ræktað
og er þar framleitt mikið af kaffi,
tóbaki og kakaó. Vaxa þar og
kokospálmar. kaktus og mahonitrje
íbúar stunda og mjög kikfjárrækt
og kolanámur eru Ciriquifjalli.
En í þessum bygðum er mjög
óholt hvítum mönpum og eru þeir
tiltölulega fáir þarna.
Mikil á rennur frá eldfjallinu suð-
vestur í Kyrrahaf og heitir hún
David, en á miðri leið hennar til
hafs liggur borgin David,* sem er
höfuðborg fylkisiná og er litlu minni
en Reykjavík.
Tvö þorp standa nær fjallinu
Bugaka að vestan og Calihea að
sunnan og eru um 1500 íbúar í
hvoru þorpinu.
í vetur hafa við og við fundist
jarðskjálftakippir í fjalli þessu og
kolanámurnar hrundu svo í febrúar
að hætt var að vinna þar. Vísir
hefur áður minst á eldsumbrot við
Panamacyðið, þar sem skurðgröft-
urinn stendur yfir, og mun vera
samband milli þessara eldstöðva
Cirique hefur ekki gosið að ráði
um Iangt skeið og ugðu menn ekki
að sjer.
En föstudagsmorguninn 5. f. m.
hrukku menn upp af fasta svefni,
þeir er bjuggu í nánd við fjallið.
Heyrðust þá drunur miklar frá fjall-
inu, en dökk móða huldi það,
jörðin titraði og eldslogar stóð upp
ur gígum þess, og áður menn
höfðu áttað sig var fjallið tekið að
gjósa ógurlega. Hrann spyttist út
af því á alla vegu og svart myrkur
skall á og sást ekki annað en log-
arnir úr fjallinu og eldingar, sem
flugu um loftið og bjarmi fráskóg-
inum, sem stóö í björtu báli.
Gosið varaði með Iitlum hvíld-
um í 15 klukkustundir og haföi
það þá eyðilagt afarstór svæði af
skógi og ræktuðu landi, en um
hálft fjórða þúsund manna er talið
að farist hafi á ýmsan hátt, þarmeð
flestir íbúa hinna tveggja þorpa,
er nefnd voru. En tugir þúsunda
af kvikfjenaði týndist.
Vöxtur mikill kom í Davið-á
og flóði hún lagt fram yfir bakka
sína og olli stórskemdum,einkum í
Davið-borg.
Eftir hið mikla gos hafa önnur
smærri gos orðiö, sem hafa þó
ekki valdið frekari skaða.
Framhald af frásögninni
um Titanicsiysið kemur
á morgun.
og fraustið á íslensku
löggjafastarfi.
Eftirfarandi smásögu segir
Eggert Briem frá Viðey í Ingólfi
á fimtudaginn (25.):
Fyrir 4 árum fann maður nokk-
ur að máli stjórn stórrar nið-
ursuðuverksmiðju erlendis og
skýrði henni frá verðlagi hjer á
fiski, laxi, kindaketi, rjúpum o. fl.
í því skyni að fá stjórnendurna
til þess að stofna hjer útibú,
þar eð þeir stæðu vel að vígi
að opna markað fyrir íslenskar
niðursuðuafurðir, með því að
þeirra firma væri þekt víða um
lönd. Stjórneudunum leist svo
vel á málið, að þeir sögðu komu-
manni, að hermdi hann rjett frá
væri ekki aðeins ástæða til fyrir
þá að setja hjer á stofn útibú,
heldur flytja aðalbækistöð sína
hingað, og kváðust þeir vilja
kynna sjer málið.
En er þeir höfðu rannsakað
það mjög grandgæfilega, tjáði
stjórnandi verksmiðjunnar þess-
um manni, að skýrsla hans hefði
reynst rjett í öllum atriðum, en
bobbi hefði komið í bátinn annar-
staðar frá. Á Islandi væri lög-
gjafarþing, er hjeti Alþingi, og ef
ráða mætti af framkomu undan-
farinna þinga, væri viðbúið að
óðar en niðursuðuverksmiðja
yrði sett á stofn, sem nokkur
veigur væri í, yrði lagt útflutn-
ingsgjald á afurðir hennar. Á-
byggilegkostnaðaráætlun yrði því