Vísir - 22.05.1912, Síða 2

Vísir - 22.05.1912, Síða 2
V I s I R ____ Næstur tók til máls Ásgeir kon- súll Sigurðsson, var hann frum- varpinu hlyntur, en lýsti jafnframt yfir því, að á þVí væru ýmsir gall- ar. Honum var andmælt í fylsta máta af Thor Jensen. Enntöluðu: Þórður Bjarnason, Jes Zimsen, Thor Jensen og fundarstjóri. Jes Zim- sen bar fram þessa viðaukatillögu við tillögu Thor Jensen: »Mótmælin afgreiðist af Kaup- »mannaráðinu, sem úrslit almenns »kaupmanna- og útgerðarmanna »fundar.« Tillaga Thor Jensens var sam- þykt í einu hljóði. Viðaukatillaga Jes Zimsans var feld með 7 atkv. gegn 4. (Fjöldinn allur fundarmanna greiddi þar ekki atkv.) Þá bar Thor Jensen upp svohljóðandi tillögu: »Fundurinn heimilar fundar- »stjóra að síma fundarályktun »þessa til „Ritzaus Bureau“ og var sú tillaga samþykt í einu hljóði. Fleira var ekki gert. Fundi slitið. B. H. Bjarnasoti. Kflrl Nikulásson. SápuYersktnin Sif’ Laugaveg 19 selum ýmsar tegundir af Ilmvöt®um með 30°|0 afslœtti til loka þessa mánaðar. fcesUv 09 ód^va^Uv \ Versl. Einars Arnasonar. Líkkistur og líkklæði er best að kaupa í verksmiöjunni á Laufásveg 2 hjá EYVINDl ÁRNASYNI. Teppi lánuð ókeypis í kirkjuna. Nærföt best og ódýrust í VÖRUHUSINU, Austurstræti 10. ^xáWrIrasSíe,S«13(C.^.3<tattWesens. Einkennilegir siðir. Fyrir nokkrum árum var breskur liðsforingi, Boyd Alexander að nafni, myrtur af svertingum í Mið- Afríku. Unnusta hans, hugrökk og táp- mikil stúlka, er Olive Macleod heitir, fór nokkru síðar 4000 mílur vegar, undir leiðsögu og vernd nokkurra hermanna, að leita grafar liðsfor- ingans, og bar margt undarlegt og markvert fyrir ungfrúna á þeirri ferð. Skrifar hún ferðasögu sína í eitt af aðaltímaritum Breta, og kennir þar margra grasa. Meðal annars segir ungfrúin frá giftingarsiðum hjá nokkrum þjóð- flokkum í Mið-Afríku. Hjá einum slíkum þjóðflokki sem stendur með þeim fremstu að menn- ingu, er sá siður fyrirskipaður, að brúðurin rjett fyrir brúðkaupið er færð í hóp vinstúlkna sinna og spegill settur fyrir framan hana. Síðan eiga vinstúlkurnar að dæma um útlit hennar og er það skylda þeirra aö lasta og svívirða hina ungu brúður á allar lundir, og bregst það aldrei, að þær geri það ósvik- ið. En öllum þessum háðungar- orðum verður brúðurin að taka með jafnaðargeði, og láta hvergi sjá, að sjer sje misboðið. En ekki þar með búiö: Standist hún þenn- an hreinsunareld, bíður henni ann- ar enn verri. Er hún nú tekin af hinum sömu vinstúlkum sín- um og lamin með svipum, uns blóðið rennur í lækjum niður eftir endilöngum líkama hennar. Hafi hún staðist þessa háðuglegu og grimdarfullu refsingu, án þess að mögla, er það dómur kvennanna, að hún sje hæf til að giftast, og verði auðsvip og góð eiginkona drotnara síns og eiginmanns. Standist hún aftur á móti ekki þessa eldraun, er hún rekin með háðung heim til foreldranna aftur og er höfð í hinni mestu fyrirlitningu, þar til að við seinni tilraunir að hún stenst mátið. Fjölkvæni viðgengst alstaöar hjá þessum svertingjaflokkum. Ungfrú Macloed hitti á ferð sinni einn svertingjahöfðingja, sem tók henni með virktum. Og er hún spurði, hve margar konur hann ætti, sagði hann þær vera milli 200 og 250 — var ekki á því hreina,karl- sauðurinn, hve margar þær væru. Leyfði hann ungfrúnni, að taka myndir af þeim öllum, tveim- ur og tveimur í senn, og kom þá upp úr kafinu, að konur haqs voru 246, en dætur því nær full- þroskaðar voru 90 talsins. Svuntutau sjerlega fagrir litir nýkomið f Austurstræti 1 s9* 9* Í|uiiiiltttigsson & fo. Það vakti hina mestu undrun og gremju hjá konum höfðingjans, að hann — þessi mikli maður — stje niður af hesti sínum og heilsaði ungfrú Macloed með handabandi. Slíku höfðu vesalings konurnar hans aldrei átt að venjast og aldrei sjeð hann heilsa nokkurri kvenlegri veru með handabandi áður. Varð kur mikill í hópi þeirra út af þessu, en höfðinginn kallaði óðar í þræla sína, er hann varð þess var, og skipaði þeim að lemja konurnar með svip- um. Mótþróa gat hann ekki þolað, og síst af konum sínum. Ungfrú Macloed bað þeim vægðar, en karl sat við sinn keip, og konunum var refsað. Að giftast prinsessum er aftur á móti ekkert sældarbrauð fyrir karl- mennina. Eru það þeir, sem þá verða að vera hlýönir og auðsveip-

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.