Vísir - 22.05.1912, Side 3
V í S 1 R
81
Atvinna!
Röskur og áreiðanlegur drengur
14—19 ára getur fengið atvinnu við
verslun nú þegar.
Eiginhandarumsókn, merkt
»DRENOUR*
sendist afgreiðslu Vísis.
ir, — rjett eins og konugarmarnir
undir vanalegum kringumstæðum.
Soldánninn i Bagirimi, einu af
smáríkjunum í Miðafríku, kýs ætíð
dætrum sínum eiginmenn. En vana-
lega flýr sá útvaldi ríkið og tekur
sjer bólfestu hjá öðrum þjóðflokk-
um, heldur en að mægjast soldán-
inum, því að sá bögguli fylgir
skammrifi, að með því að giftast
dóttur soldánsins verður hann aö
reka frá sjer allar þær konur, sem
hann hefur áður eignast; og það,
sem verst er, að skyldi soldánsdótt-
irin deya á undan honum, verður
hann að vera ókvæntur það sem
eftir er æfinnar.
Elsta dóttir soldánsins hefur þann
einkarjett, að mega sýna sig á hests-
baki fyrir almenningi; en sú næst-
elsta má ríða gegn um herinn á
herðum mannsins, og þykir mann-
garminum sjer lítill heiður með því
gjör.
Allar dætur soldánsins fá ogsjer-
stök einkarjettindi yfir mönnum
sínum. Allar eru þær húsráðendur
á heimilunum, en menn þeirra
undirtyllur.
Ein af dætrum þessa sóldáns
var af honum gefin ungum, auðug-
um manni til ekta. Eignir þessa
manns dró soldán strax undir sig,
Drengur
getur fengið atvinnu við afgreiðslu
blaðs hjer í bænum. Þarf að vera
vel skrifandi og röskur.
Eiginhandar tilboð sendist afgr.
Vísis í dag eða á morgun, merkt:
AFGREIÐSLA.
Yindlar og
Cigarettur
langbest að kaupa í
Breiðablik.
en veitti hinum hamingjusama brúð-
guma í staðinn sömu rjettindi og
hann væri giftur næstelstu dóttur-
inni, — nefnilega, að mega bera
konu sína á háhesti á mannamót.
Flestir aðrir svertingjahöfðingjar
hafa líka siði og soidáninn, hvað
hjónabandi dætra sinna viðkemur.
Einn höfðingi hefur innleitt þá
reglu, að allir bræður sínir skuli
missa annað augað; svo það gefur
ótvíræðilega til kynna, að hann sje
sjónskarpari en nokkur þeirra, sem
ætla má, að vilji hann úr valda-
sessinum.
Ýmsa aðra merkilega siði getur
ungfrú Macloed um í ferðasögu
sinni, en sem hjer yrði of langt að
minnast á. Heimskr.
Útgefandi
Einar Gunnarsson,cand. phil.
TJr ruslakista
Plausors.
Seinni messan í Dal.
Merkilegur viðburður úr kaupstaða-
lífinu frá 19. öld.
---- Frh.
»Heyr! Heyr! — Segðu okkur
meira Sveinn!« heyrðist úr öllum
áttum.
»Já, en hvar var jeg við, — jeg
er nú búinn að gleyma því«.
»Byrjaðu þáaftur á sögunni, því
kvenfólkið hefur heldur ekki heyrt
hana«.
»Jæja! það er þá best að byrja
á henni aftur«, sagði Sveinnogsvo
byrjaði hann aftur á sögunni. —
Nú er að segja frá prestinum.
Hann var fyrir löngu kominn
úr hempunni og búinn að hengja
hana á gamla snagann í horninu fyrir
innan Skattholið í stofunni, og þar
átti hún að hvíla sig til næstu helgar,
því það var náttúrlega sparihempan
sem ekki var snert nema á sunnu-
dögum. — Hann stóð innarlega í
bæjargöngunum og var að tala við
»maddömuna« sína.
»Heyrðu, gullið mitt,« sagði hann
»Ertu búin að gefa bændunum kaffi?«
»Nei, góði minn, jeg hef ekki
sjeð neinn síðan messan var úti,
ekki einu sinni hreppstjórann eða
hringjarann og því síður sóknar-
nefndina. Jeg skil ekkert í hvað
orðið hefur af þeim. Þeir eru þó
ekki vanir að Iáta kaffið bíða eftir
sjer á sunnudögunum«.
»Já, það segirðu satt, dúfan mín
Ætli þeir sjeu þá úti í kirkjuenn?«
spurði presturinn.
»Ekki veit jeg neitt um það, blóðið
mitt«, sagði hún, »en ólíklegt þykir
mjer að þeir sjeu þar. Jeg er nú
búin að bíða með kaffið í hálftíma
og nú er það orðið hálfkalt«.
»Það er þó ómögulegt, að allir
sjeu farnir. Jeg ætla að skreppa út
og gá að þeim, Iambið rnitt*.
»Já, gerðu það, Ijúfurinn minn,
og segðu þeim ef þú sjerð þá að
kaffið sje farið að kólna.«
»Jeg skal skila því, Ijósið mitt,«
og fór presturinn út síðan og skim-
aði í allar áttir, en sá engan mann.
Hann gekk út að kirkjunni og var
þá búið að læsa henni, en lykillinn
stóð í skránni. Hann dró lykilinn
úr hurðinni og stakk honum f vasa
Fyrir Hvítasunnu
er langbest að kaupa í verslun
BREIBABLIK
Talsími 168
aWs&otvat t\a\xðs\&ti\avötut,
svo sem; Kaffi, brent og malað, Brauð, fleiri tegundir, Cacao,
Chocolade fleiri tegundir.
= ALLT SENT SAMSTUNDIS HEIM, SEM PANTAÐ ER. =