Vísir - 29.06.1912, Side 3

Vísir - 29.06.1912, Side 3
V l S I R 103 Lítið í gluggana hjá Jóni Zoega. i i i iii - -- --» i i mmm Jltxva }t\Ma£S0xvav valiava. ^ós^ússtvæU jl, ev Ut sötu txveð mVó^ aó^m sVvt- xxvátum xvú ^e$av. Eitstj. vísar á, ^vaSum fara allir, sem þurfa að fá skó eða aðgerð, beint til 3<t. ^ .}<taUtvvesexvs fundið geril, er hann nefnir glyko- bacter, og kemur gerillinn því til leiðar ef honum er komið inn með kartöflum, að mikið af sykri fer óleyst niður í ristilinn. Tilraunir hafa verið gerðar á rottum og mönnum, og er mælt að tekist hafi að eyða eiturefnum þessuni að mikl- um mun. Auðvitað er ekki hægt að dæma um að svo komnu, hvort minkun efnanna hefur tilætlaðan árangur, þann er fyr var sagt. Danir líta á málin. Grein sú, er hjer fer á eftir, er tekin úr »Politiken«‘, 7. júní þ. á. íslenska kolaeinokunin. Hætta búin íslenskri kaup- mannastjett. Nú er sagt með vissu, að erlenda verslunarfjelagið, er veita skuli einka- rjett á kolasöla á íslandi, sje skotskt verslunarhús. Er formaður þess meðstjórnandi í skotsk-íslensku verslunarfjelagi, sem hefir útibú víðsvegar á fslandi. Er mælt, að svo sje til ætlað, að skotska versl- unarhúsið kaupi viðskifti og vörur verslunarfjelags þessa, ef nokkuð verður úr kolaeinokuninni. Fyrir einhverju hinu stærsta útibúi þessa skotsk-ísl. fjelags, sem er f Hafnar- firði stendur Aug. Ffygenring kaup- maður, er var eini kaupmaðurinn í fjármálanefndinni og alt til þessa hefur verið konungkjörinn alþingis- maður. Ef þetta er rjett hermt, er auð- vitað auðsætt, að Flygenring hafi litið öðrum augum á kolaeinokun ina en nálega allir aðrir ísl. kauþ- menn. En þá er líka ljóst, hver hættaallri íslensku verslunarstjettinni getur staðið af þessari vörueinokun einni í valdi erlends og auðugs vetslunarfjelags. Því að vísu segir í 6. gr. kolaeinokunarfrumv., að kolaverðið sem einkaleyfishafi selur við erlendum skipum, skuli vera hið sama fyrir öll þau skip, er kol t.ika ;i sömu höfn, En þessu er boniúiis bætt við: »nema sjerstak- nr samningur sje gjörður um kola- sölu fyrir ákveðinn tíma«, og þá getur einokunarfjelag, sem líka rek- ur venjulega versiun víðsvegar á íslandi, gefið þeim skipum afslátt með sjerstökum samningi, er kaupa aðrar vörur hjá fjelaginu og með því dauðrotað alla aðra íslenska verslunarsamkeppni. Því er ekki að furða, þótt íslenska verslunar- stjettin hafi hafið öflug andmæli gegn þessum nýju einokunar fyrir- ætlunum, sem auðveldlega geta orðið fjárhagslegri sjálfstæði íslands engu síður hættulegar en gamla illræmda einokunarverslunin. SktWinifred. Ensk skólasaga eftir F. W. Farrar. ---- Frh. 30. kapituli. Gömul andlit og ný. Tvö ár eru liðin, lesari góður, frá því er við fylgdum vinum okkar í skólann og til þess er við sjáum þá aftur. Margt hefur nú á dagana drifið þessi árin. Við skulum þá staldra ögn við og litast um. Fyrst hittum við Walter og Power. Hærri eru þeir orðnir og karlmannlegri en að öðru leyti eru þeir lítið breyttir. Walter er altaf sami viðfeldni drengurinn, dökkhærður, bláeygður, beinvax- inn og sviphreinn. Power er sama göfuga ljúfmennið og áður En báðir hafa þeir þroskast að visku, — þeim hefur aukist þrek og eru þess albúnir að mæta áhyggjum lífsins og sorgum, sem síðar kunna að leggja stein á götu þeirra. En Kenrick, um hann er öðru máli að gegna. Því fer fjarri að hann hafi breyst til batnaðar. Óskammfeilnin og hjegómagirnin skín út úr honum og háðbrosið leikur um varir hans. Sko, hvað hann heilsar kennaranum virðu- lega! Power heilsar hann, en gengur úr vegi fyrir Walter. Ekki líst okkur á drengina, sem hann gengur með. Þeir eru letingjar, heimskingjar og lubbaefni. Ken-

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.