Vísir - 10.07.1912, Side 2
26
V I S I R
IHNMMMM
:us TIL SÖLU
siórt og mjög vel vandað við fjölfarna götu
í miðbænum, með gasleiðslu og flelri þæg-
indum og leigist einkar vel,er til sölu—helst
\ skiftum fyrir jörð í Mýra eða Borgar-
fjarðarsýslu.
Ritstj. vísar á.
STEAM TRAWLERS
FOR SALE.
Folio 1109 — 139 feet — Built 1906, Lloyds Triple Engines 67
H. H. P. 10 Knots on easy-consumption.
Folio 1103 — 130 feet — Built 1911 Lloyds Triple Engines
75 R. H. P 10 Knots on 6 Tons — Whaleback.
Folio 1078 — 130 feet — Built 1904 Lloyds Triple Engines
70 R. H. P. — ÍO1/^ Knots on 6 Tons—Whaleback Moderate prlce.
Folio 1063 —120 feet—Built End 1901 Lloyds Triple Engines.
In 1908 the Engines were taken out of the Trawler and thoroughly
overhauled—also present Boiler fitted in, at a total cost of 2000 P. Sterl.—
Large much new 1905 — Acetylene Gas 2750 P. Sterl.
Folio 1073 — 100 feet Built of Iron 1891 to Lloyds. C. S. C.
Engines 45 R. H. P. New Boiler fitted End of 1909 for 120 lbs
N. P. new much 1911 New Tail End Shaft 1909 Moderate price. For
further details plans etc. apply to Sharp Brothers. Baltic Cham-
bers Newcastle-on-Tyne. Brokers for the Salespurchase of all kinds
Fishing Vessels. Cables ”Speedy“ Newcastle-on-Tyne — Scotts Code.
Sóíat
\)3tt\í\^$vxvc\av
gegn flestum hættum fyrir lægst gjald.
ós\> o’Saáts^^v'S *.
The British Dominion Insurance Co., London,
gefur kost á vátryggingu húsa og lausafjár (verslunarvara og
húsgagna) með óvanalega góðum kjörum.
S\ós^á3aát)^x^5*.
Mannheim Insurance Co. Mannheim,
býður ódýra vátryggingu á sjó.
The ScottishMetreopolitan Insurance Co. Edinburg,
tekst á hendur lífsábyrgð með óvanalega góðum og fjölbreyttum kjörum.
Nú ættu engir lengur að draga að vátryggja
gegn flestum hættum fyrir lægst gjald.
Frekari upplýsingar fást hjá umboðsmönnum ofannefndra
vátryggingafjelaga,
G. Gíslason & Hay Ltd.
Reykjavík.
Auður Sorðurálfunnar.
Hann er eftir nýustu hagskýrsl-
um þegar alt er talið, lönd oglaus-
ir aurar, 940 miljarðar marka —
(1 miljarður er þúsund miljónir;
1 mark er 89 aur.) — Af því er
höfuðstóll í umsetningu 208 miljarð-
ar mk.; er það tvöfalt við það sem
var árið 1871 og þrefalt meira en
1848. Auður einstakra landa skift-
ist þannig:
England 236 miljarð. mk.
Frakkland 197 —
Þýskaland 160,8 —
Rússland 128 —
Asturríki 80,2 —
ftaiía 64 —
Belgía 20 —
Holland 17,6 —
Höfuðstóll í umsetningu skiftist
þannig:
England 84,8 miljarð. mk.
Frakkland 52 —
Þýskaland 29,6 —
Rússland 11,2 —
Austurríki 8 —
Belgía 5,6 —
Hollarid 4,8 -
En sje farið að reikna út hvað
kemur í hlut hverff einstaklings af
þjóðareigninni í föstu fje og Iausu
breytast hlutföllin talsvert. Að með-
altali á
Englendingurinn 5920 mk.
Frakkinn 5200 -
Hollendingurinn 3680 -
Belginn 3120 -
Þjóðverjinn 3120 -
Austurríkismaður. 2000 -
ítalinn 2000 -
Rússinn 1200 -
Enn þá meira breytast þó hlut-
föllin þegar meðaleign höfuðstóls
í umferð er tekin á sama hátt, þá
verður peningaeign hvers einstakl-
ings þannig:
Englendingurinn 2120 mk.
Frakkinn 1360 -
Hollendingurinn 1000 -
Belginn 856 -
Þjóðverjinn 480 -
Austurríkism. 180 -
ítalinn 180 -
Rússinn 108 -
Eftir »W. auf
Piestasteínan í
Reykjavík,
Niðurl.
Biskup Þórhallur Bjarnarson lýsti
því og yfir að hann væri fríkirkju-
vinur sem fyr, enda þótt hann stöðu
sinnar vegna gæti ekki beitt sjer
fyrir í því máli. Hann taldi eðli-
legast að framkoma nýrra flokka
innan þjóðkirkjunnar flýtti fyrir að-
skilnaði. — »Þótt þjóðkirkja eigi
verið víð og umburðarlynd, — þá
þolist það ekki án takmarka til
lengdar.*
Guðfræöisprófessorarnir J. H. og
H. N. lýstu því yfir að þeir ætluðu
hvorki að Ieggja með nje móti að-
skilnaði á þessu stigi málsins, og
loks flutti Haraldur prófessor til-
Iögu, sem satnþykt var með 7 atkv.
móti 5, svohljóðandi:
»Prestastefnan lýsir yfir því að
hún sje ekki mótfallin aðskilnaði
ríkis og kirkju, komi það í ljós að það
sje alvarlegur vilji meiri hluta þjóð-
arinnar.«
Þá hreyfði biskup áskorunum, er
honum höfðu borist um að rjettast
mundi að taka legkaup upp aftur
— en það var felt með flestöllum
atkvæðum.
Þá skýrði Haraldur prófessor frá
störfum þeirra síra Magnúsar Helga-
sonarí tilefni af því sem sýnódus fól
þeim í fyrraað undirbúa nýar biblíu-
sögur. Sagði hann,aðverkinuviðG.T.
væri lokið. Hefðu þeir valið merk-
ustu trúarlegu, sögulegu og uppalandi
kafla ritningarinnar, og látið orðfæri
ritningarinnar haldast á þeim, ekki
lagt sjálfir til annað en fyrirsagnir.
Væri ætlun þeirra að þessi bók,
sem nefna mætti »barnabiblían«,
yrði lestrarbók í skólunum.
Þegar hjer var komið, var svo
li^'ð á kvöld að fundi var frestað '
til næsta dags.
Sunnudagsmorguninn kl. 9 var :
enn settur fundur og þá byrjað
með sáimasöng og bænagjörð, (síra
Fr. Fr.). Því næst flutti sjera Fr.
Friðriksson erindi utn Kristilegt fje-
lag ungra manna. Og sýndu fund-
armenn í verkinu að þeim hefði
vel geðjast að erindinu, því að þeir
færðu fjelaginu nál. 40kr.að gjöftil
að kaupa fyrir testamenti við biblíu-
lestra. — Var fundi síðan frestað til
kl. 5 síðdegis. En þá hjelt sjera
Bjarni Jónssop fyrirlestur í dómkirkj-
unni um ferminguna fyrir miklu .
fjölmer.ni. Líkaði mönnum það (
mjög vel, en slept er að segja frá
efni hans hjer, af því að nú er
hann prentaður í N. Kirkjublaðinu.
Að fyrirlestri loknum gengu prest-
arnir út í þinghús aftur og ræddu
um málið stundarkorn.
Biskup mælti að Jokum nokkur
hlýleg kveðjuorð og á eftir sungu
fundarmenn: Son Guðs ertu með
sanni. — — — —
»Þetta er einhver besta presta-
stefna, sem jeg hefi verið á,« sögðu
sumir fundarmenn, Og roskinn próf-
astur sagði: »í fyrra fór jeg heim
í þungu skapi, því þá vantaði ýmist
tíma eða menn til að andmæla nýju
guðfræðinni,— en nú fer jeg glaður
heimleiðis.<5 — — Hann mun liafa
litið svo á, eins og fleiri, að það
hafi ekki verið nein tilviljun að
guðfræðisprófessorarnir urðu tveir
einir til að halda uppi svörum fyr-
ir nýju guðfræðina gegn mótmæl-
um 7 ræðumanna,* eða þótt allir
fundarmenn hefðu tekið til mál$, þá
hefðu ekki þær hlutfallatölur breytst
neitt verulega.
Raunar heyrðu menn, að bæði
biskup og sjera Matthías voru með
nýju guðfræðinni en engan beinan
þátt tóku þeir í kappræðunum.
Vænt þótti og mörgum um að
alvarlegur trúarblær var á sunnu-
dagsfundunum.
Að gefnu tilefni er sjálfsagt að
bæta því við, að í annað sinn, sem
prófessor Jón Helgason tók til máls
á prestafundinum um nýu guðfræð-
*) Sjera Fr. Friðriksson andmælti ný-
guðfræðinni í fyrirlestri sínum, og má
því teljast með. Hinir voru sjera Bjarni
Jónsson, sjera Böðvar Bjarnason, sjera
Gísli Skúlason, sjera Guðm. Einarsson,
sjera Jóhann Þorkelsson og Sigurbjörn
Á. Gíslason. S. Á. G. j
Nærföt
hvergi betri en hjá
Reinh. Andersson
Horninu á Hotel Island.
Eggert Claessen
Yfirrjettarmálaflutningsmaður.
Pósthússtræti 17.
Venjulega heima kl. 10—11 4—5.
Talsími 16.