Vísir - 31.07.1912, Blaðsíða 1

Vísir - 31.07.1912, Blaðsíða 1
2 359 fást ' Kartöflur vöruhosinu Austurstræti 10. "Olsu Föt og Fataefni s7aSumes°tI iírval. Föt saumuö og afgreidd á_ 12-14 tímum. Hvergi ódýrari en í ,DAGSBRÚ N‘. Sími 142. Kemur venjulega út kl. 12alla virkadaga. Afgr.í suðurenda á Hótel Isl. ll1/,,-3og5-7 25 blöð frá 30. júlí kosta: Á skrifst.50a. Send ut um landóO au. — Einst. blöð 3 a. Skrifstofa í Pcsthússtræti 14A. Venju- lega opin kl. 8—10, 2—4 og 6—8. Langbesti augl.staður í bænum. Aúgl. sjeskilað fyrir I<1.3 daginn fyiir birtingu. Miðvd. 31. júlí 1912. Háflóð kl.6,45‘ árd. og kl. 6,58‘ síðd. Háfjara hjer um bil 6 st. 12‘ síðar. Afmœli. Frú Ólöf Björnsdóttir. P. J. Torfason kaupm. Á morgun. Póstar. Póstvagn fer til Þingvalla. Ingólfur til og frá Borgarnesi Ceres fer til útlanda. Veðrátta í dag. Loftvog £ < Vindhraði bJO C3 3 1Z 3 >o > Vestm.e. 1759,8 5,1(NNV 5 Skýað Rvík. 761,1 4,6 N 6 Skýað; ísaf. 764,9 4,5 0 Skýað Akureyri 7Ó2,2 3,0 NNV 3 Skýað Grímsst. 726,0 0,2 N 2 Hrfð Seyðisf. 760,9 4,3 N 2 Skýað Þórshöfn 750,4 8,5 ! NA 6 Alsk. Skýringar. N—norð-eða norðan, A—aust-eða austan, S—suð- eða sunnan, V—vest- eða vestan, Vindhæð er talin í stigum þann- ig: 0—logn,J—andvari,2—kul, 3— gola, 4—kaldi, 5—stinningsgola, 6— ( stinningskaldi,7—snarpur vindur,8— hvassviðri,9—stormur,10—rok, 11 — ofsaveður, 12 —fárviðri. Ulrlmtlirnsir viðurkendu, ódýru, fást UlhhlöUll Udl ávalt tilbúnar á Hverfis- götu ó.—Sími 93.—HELGl og EINAR, Frá alþingi. Til Jóliamis Sigurjónssonar skálds. Sungið í samsæti með honum í Reykjavík hinn 30. júlí 1912. Heill að sumbli, góði gestur, göfugt skal þjer signa full! Yngri skálda æðsti prestur, andans ber þú vígslugull! Sje jeg höfga hringa drjúpa, heiðbrim ljóss, af kjörgrip þeim, skfna’ um sonu dalsins djúpa, dagbrún lyfta’ um norðurheim. Vel sje þjer, sem eldraun eigi ungur ljest á móð þinn fá, stýrðir móti stjörnu’ og degi stoltur, frjáls um reiðan sjá. Heill sje þjer, sem heilum knerri, hugsjón tryggur, stýrir beint, storkar kaldri kólgu hverri, krappann oft þótt hafir reynt, Hjer skal svarra, hjer skal freyða hrosta brim um kera lá, — skáldi lof í ljóði greiða, ljúfar þakkir vinum frá! Hald svo fram sem för er hafin frægðar vonum nýum glæst, — lista dísar Ijósarm vafinn lif þú sæll og fljúg sem hæst! Guðm. Guðmundsson. Dagskrá alþingis í dag. N. d. (kl. 12). 1. Eftirlit með þilskipum og vjela- skipum; 2. umr. 2. Samþyktir um ófriðun og eyð- ing sels úr veiðiám 2. umr. 3. Stækkun verslunarlóðar á Flat- eyri á Önundarfirði; 2. umr. 4. Sala á eggjum eftir þyngd;2. umr. 5. Prestsmötugjald til Grundar- kirkju í Eyjafirði; 2. umr. 6. Breyting á lögum nr. 34, 16. nóv 1907 um skipun læknis- hjeraða o. fl. (Eyjafjallahjerað) 1. umr. 7. Hagfræðisskýrslur um tóbaks- innflutning árið 1913; 2. umr. 8. Till. til þingsályktunar um simalínuna frá ísafirði til Pat- reksfjarðar hvernig ræða skuli. E. d. {kl. 1.) 1. Frumvarp til laga um vatns- veitu á Sauðárkróki; 2. umr. Frumvarp til laga um viðauka við lög frá 11. nóvbr. 1899 nr. 26, um verslun og veitingar áfengra drykkja á íslandi. (Eftir 2. umr. í n. d.) 1. gr. Ekkert fjelag manna má hafa um hönd í fjelagsskap neinar áfengis- veitingar sín í niilli, nje nokkur áfengisnautn fara fram í föstum fje- lagsherbergjum, nema fjelagið fái til þess sjerstakt leyfi lögreglustjóra. 2. gr. Engin áfengisnautn má eiga sjer stað í veitingahúsum, sem ekki hafa áfengisveitingaleyfi, hvorki á veitinga- stöðum, þar er látin er í tje gisting nje í öðrum veitingahúsum, svo sem ! í kaffisöluhúsum eða öðrum slíkum j eða í veitingatjöldum, — í þeim | herbergjum, er veitingar fara fram i\ j 3. gr. | Brot gegn 1. gr. varða sektum i 20—1000 króna eða einföldu fang- ! elsi alt að 3 mánaða. Nú brýtur fjelag með föstu skipu- lagi gegn fyrirmælum 1. gr. og varðar þá eftir þessari (3.) gr. bæði stjórn fjelagsins og þá þjónustu- menn fjelagsins, er taka þátt í veit- ingunum, eða, ef um áfengisnautn aðeins er að ræða, þá ráðendur, er eigi hindra hana. — Annars fer um ábyrgð fyrir brot gegn lögum þess- um eftir venjulegum reglum. Auk þess er lögreglustjóra heimilt að banna, með lögregluvaldi ef þarf, samkomur fjelaga, er að staðaldri hafa vetingar eða áfengisdrykkju í herbergjum sínum, eða oftar en tvisvar hafa sætt sektum fyrir brot gegn 1. gr. þessara laga. 4. gr, Brot gegn annari gr. varða sekt- um 10 — 500 kr. Auk þess skal sá, er veitingar hetur um hönd á slíkum veitinga- stað, og brotlegur hefur orðið tvisvar, hafa fyrirgert rjetti sínum til veit- inga. 5. gr. Sektir þær, er um ræðir í lögum þessum, renna í sjóð sveitarfjelags þess, þar er brotið er framið. 6. gr, Með mál eftir Iögum þessum skal farið með sem almenn lögreglu- mál. 7. gr. Lög þessi- öðlast þegar gildi. Eaddir almeimings. Yerslunarmál á alþing-i 1912. í þinginu eru komin fram tvö frumvörp, sitt í hvorri deild, næsta tilgangslík, en nokkuð mismunandi að formi, um nýar álögur á versl- un og viðskifti íslendinga. Þótt Vísir hafi getið frumvarpa þessara, þá vildi jeg þó fá að segja um þau nokkur orð. Neðri deildar frumvarp þeirra L. H. B., Pjeturs á Gautlöndum og Stefáns í Fagraskógi, fer fram á að borgaðir sje í landssjóð 3 a hundraði af allskonar vöru hverju nafni sem nefnist, sem flytst til ís- lands frá öðrum Iöndum. Má þetta heita sama sem c. 5 au. tollhækkun á hvert kíló af kaffi, og getur hver kunnugur rent grun í, hversu til- takanlega þung byrði það er á allri alþýðu manna, ekki hvað síst sjó- mönnumog daglaunamönnum. Efri- deildarfrumvarpið er þó það skárra að það vill ekki Ieggja nýar álög- ur á kaffi nje sykur. Eins og áður er sagt, ná lögin til alls varnings, sem hingað flyst, og þá auðvitað t. d. til skipa. Lík- Iega eru þó ekki skip sem koma hingað snöggva ferð álitin innflutt vara, en gjaldið hlýtur að ná bæði til fiskiskipa sem útlendingar eru sagðir að láta skrásetja hjer, og botnvörpunganna sem Iandsmenn kaupa frá útlöndum. Nú kostar góð- ur botnvörpungur alt að 150 þús. króna, og fær þá iandssjóður 4500 kr. að minsta kosti, þegar skipiðer keypt, og þar að auki líklega sama gjald er það kemur úr sölu- og hreinsunar-ferðum frá Englandi, en sh'kar ferðir fara botuvörpungarnir þrásinnis, segjum fimm sinnum á ári: afgjaldið þá 25 þús. krónur árlega. Eins hlýtur þetta gjald að ná til sendinga sem einstakir menn kunna að fá frá útlöndum. Það vill auð- vitað þrásinnis til, að menn fá ým- iskonar gjafir frá útlöndum, ekki síst í pósti, og er þá eðlilega verð þeirra sjaldnast nefnt, sem skiljan- legt er, og verður viðtakanda alls ekki gefin sök á því. Það sjer því hver maður, hversu heimskulegt það er, að láta viðtakanda sæta alt að 1000 króna sektum og jafnvel að gera upptækt það sem sent er. Þessi refsiákvæði ná líka til þeirra sem vörur fá án þess faktúra fylgi. Hugsum okkur að seljandi í út- löndum vanræki að senda faktúr- una, eða hún tapist í pósti eða tefjist, sem getur hent; hvaða sann- girni er það þá að kyrsetja vörur, sem oft getur komið sjer bagalega fyrir fjesýslumenn, og vörurnar þar að auki legið undir stórskemdum? Og ofan á þetta má svo saklaus viðtakandinn eiga von á 1000 kr. sekt, og jafnve! að landssjóður hirði reiturnar, Hingað koma þrásinnis útlendir ferðamenn og hafa með sjer ýmis- konar útbúnað, sem þeim er bráð- nauðsynlegur til ferðalaga hjer um land. Ekki kæmi mjer það á óvart þótt menn þessir ætti ekki hægt með að sýna innkaupsrcikninga fyrir öllum flutningi sínum. Liggur þá í augum uppi að lögin ætlast til að farangur þeirra sje kyrsettur og get- ur ferðinni oft þar með verið lokið. Niðurl. Kaupmaður.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.