Vísir - 02.08.1912, Blaðsíða 1

Vísir - 02.08.1912, Blaðsíða 1
361 4 fást í Kartöfiur vöauHúsitiu Austnrstræti 10. Föt og Fataefni siaáufu?meS°tf úrval. Föt sauimiö og afgreidd a 12-14 tínnun. Hvergi ódýrari en í ,DAGSBRÚN'. Simi 142. Kemur venjulega út kl. 12alla virkadaga. 25 blöð frá 30 júlí kosta: Á skrifst.SOa. Afgr.í suðureuda á Hótei ísl. 1 ll/2-3og5-7 Send út um landóO au. — Einst. blöð 3 a. Föstud. 2. ágúst 1912. Háflóð kl.7,46‘ árd. og kl. 7,52‘ síðd. Háfjara hjer uin bil 6 st. 12‘ síðar. Afmœli. Frú Marta María Einarsson Einar J. Pálsson, trjes niður Hans Hoffmann, verslunarm. O. M. Hansen, hattari. Á morgun. Póstar. Austri fer í strandferð. Ingólfur fei til Garðs og kemur aftur. Varanger fer til Breiðafjarðar Póstvagn fer til Þingvalla. Perwie kemur úr strandferð. Hafnarfjarðarpóstur kemur og fer. Veðrátta í dag. Loftvog £ '< Vindhraði Veðurluag Vestm.e. 755,4 5,3 N 4 Hálfsk. Rvík. 755;7 7,5 N 7 Alsk. ísaf. 758,5 2,5 N 6 Alsk. Akureyri 753,5 1,5 NNV 3 Regn Grímsst. 718,0 1,0 N 1 Alsk. Seyðisf. 752,0 3,8: SSV 2 Alsk. Þórshöfn 751,5 5,5|NNV 1 Skýað Skýrínga/. N—norð- eða norðan, A aust- eða austan, S—suð- eða sunnan, V—vest- eða vestan, Vindhæð er talin í stigum þann- ig: 0—Iogn,l—andvari, 2—kul, 3— gola, 4—kaldi, 5—stinningsgola, 6 — stinningskaldi,7—snarpur vindur,8— hvassviðri,9—stormur.l 0—rok, 11 — ofsaveður, 12— fárviðri. Líkkisturnar viðurkendu, ódýru, fást ávalt tilbúnaráHverfis- götu 6.—Simi 93.—HELGl og EINAR, * Ur bænum. Þjóðhátið eða þjóðminningar- dagur er ekki haldinn hjer í dag svo sem vani var orðinn eitt skeið. Stúdentafjelagið vildi ekki hafa forgöngu þess máls Iengur og aðrir hafa ekki orðið til að taka það upp. Ekki er eftirsjón í hátíðinni að þessu sinni, þar sem veður er kalt og hráslagalegt. Einu hátíðabrigðin í borginni eru þau að >íslands Falk« liggur hjer (kominn frá Orænlandi) og Stjórnaráðið flaggar þá, en báðir bankarnir vandlega lokaðir. Pourquoi pas heitir frakkneskt íshafsrannsókiiar- skip er lijer hefur legið á höfninni nokkra daga. Skip þetta á Dr. J. Charcot læknir í París sonur hins heimsfræga Iæknis Jean Martin Charcot (f. 1825 d. 1893) er best heíur skrifað um taugasjúkdóma (dáleiðslu o.fl.) Dr. Charcot yngri er vísindamað- ur mikiil, þó hann hafi ekki náð frægð föður síns. Var hann tvö ár (1909 og ’IO) á skipi sínu í suðuríshafinu til rannsókna og var mikill árangur af ferð hans. Með- al annars tók hann þar hálft fimta hundrað Ijósmynda. Nú hefur hann verið í norður- íshafinu í vor við rannsóknir og er för þessi styrkt af stjórn Frakka. Hefur hann nú nteð sjer 15 skip- stjóraefni, þeirra er taka ætla að sjer langferðir. Svo eru þar og nokkr- ir vísindamenn. »P. p.« kont við á jan Mayen, eynni hjer norðausfur í íshafinu 500 rastir undan Langanesi. Þar iiefur frakkneska stjórnin hús með vista- , forða og eldsneyti handa skip- brotsmönnum. En er þeir DrChar- cot komu þar, var allur þessi forði á burlu. Menn voru engir þar á eynni en 3 leiði Norðmanna fundu þeir þar. — Norðmenn veiða þar sel á vor- in á mörgum skipum. — Nú er »Pourquoi pas« á heim- leið, þeir brugðu sjer hingað inn að gamni sínu og tóku nokkrar myndir hjer af landi og lífi. Eaddir almennings. Verslunarmál á alþingi 1912. ---- Nl. Þau smáatriði í n.d. frv. sem jeg hef nefnt er auðvitað enginn vandi að laga ef betur mætti fara, en þá er eftir að vita, hversu mikið fylgi frumvarpið, eða þessi aðferð til þess að fá peninga í landssjóð, hefur í þinginu. Um það er mjer ekki kunnugt, enfullyrða íná, að andróður verði þar talsverður ef nokkuð er að marka ummæli »Svörtu bókar- innar« (nefndarálit milliþinganefnd arinnar) því þar er mjög lagst á móti slíkri löggjöf. seni hjer er efnt til. Þeim til fróðleiks, sem .ekki hafa Iesið nefndarálitið er rjett að birta hjer nokkrar línur úrbókinni: »Eins og kunnugt er hafa komið fram tillögur um > það, að útvega landssjóði allan tekjuauka, sem hann þarfnast, með allsherjargjaldi á verslun landsins. . . . Slík löggjöf er auð- gerð og fljótsamin, og þarf eigi mikinn undirbúning. Alþingi hefur þó eigi getað felt sig við að grípa til þessara úrræða, enda er þess eigi að dyljast, að það mætti furðu gegna að eigi skuli áður hafa verið tekið til svo einfalds ráðs tii þessaö fylla fjehirslur ríkjanna, ef ekki hefðu verið verulegar veilur í þessu Kolumbusar- egginu.— Hjerskal ekki farið útí það, að gera grein fyrir hinum miklu ogmörguókostum þessarafljótaskrift- arleiða. . . . í stuttu máli sagt, hefur almennur faktúrutollur í fylsta mæli sameinaða alla þá ókosti, sem erti þess valdandi, að verðtollur . . . er til- tölulega svo afarlítið notaður í nú- tíðar tolllöggjöf rnentaþjóðanna....« (21. bls.) Undir þetta hefur hr. H. H. skrifað í nefndatálitinu og Skrifstofa í Pcsthússtræti 14A. Venju- lega opin kl. 8—10, 2—4 og 6—8. .svo ætlist þingið.til þess að hann ráðleggi konungi að ítaðfesta um- rædd lög. Þessi ummæli ná ekki síður til E. d. frv. sem þeir sjera Jens, sjera Sig. St. og St. St. bera fram til iaga um íh'gjald af verslun og viðskiít- um við útlönd, etida eru þessi frum- vörpsvo svipuð, að eigi getur verið að ræða um að þau verði bæði af- greidd frá þinginu. Eftir þéssu e.d. frv. eiga kaup- menn að borga í landssjóð Yg—2°/0 af verði aðtluttrar vöru. Þeir sem ekki eru kaupmenn greiði sama gjald af innkaupsverði -|- 10 %. Skýrslum til afnota við útreikning gjaldsins skuiu hlutaðeigendur skila tveim mánuðum eftir árslok og á þá að greiða gjaldið allt í einu. Þetta ákvæði nær jafnt til verslana sem einstakra manna. Hver maður hlýtur að sjá, hversu illt fyrirkomu- Iag þetta er. Ferðamenn og lands- hornamenn geta flutt inn ýmiskon- varning snemma á árinu og verið farnir veg allrar veraldar í febrúar- lok næsta ár á eftír. Hver borgar þáfyrir hrafninn ? Auk þessgetur ver- ið ntikil áhætta að láta gjaldið safnast fyrir hjá gjaldendum ailt árið þótt eigi fari þeir úr laudi eða ■ flytjist búferlum. Eftirlit með lögum þess- um hlýtur líka að verða mjög tor- veit. Hingað kemur frá útlöndum svo tugum þúsunda skiftir af póst- pökkurn jat'nt ti! barna sem örvasa gamalmenna. Hvernig getur lög- reglustjóri liaft uppi á þeim öllum allt að 14 mánuðum síðar? Póst- húsin gæti ekki aðstoðað við þetta, jafnvel þótt landsjóður vildi borga til þess 10—20 þúsundir kr. á ári, því að það er bannað í 24. grein póstlaganna frá 16. nóv. 1907. Eins og nefnt var í fyrri greininni um þessi frumvörp ætlast e.d. írv. ekki til þess að nýirskattarsjelagðir á kaffi uje sykur. Þetta mælist efiaust vel fyrir. Þó er reyndar ekki nánara að orði komist en svo. að »kaffi- baunir« skuli undanþegnar. Brennt og maiað kaffi, sem tekið er mjög að flytja tit landsins, á þá víst ekki að »sleppa« og þá líklega eigi heldur kaffibætir. Þetta er jafri ósanngjarnt eins og það er óþarflega frjálsiegt að undanskilja allan sykur gjaldinu svo sem þó er gert. Ætti það að vera meinlítið þótt gjald þettanæði t. d. ti! brjóstsykurs, konfekts og þvíumlíks svkuróþarfa. í þessu frumvarpi eru vörurnar Iíka nokkuð flokkaðar og hundraðs- gjaldið mismunan.ii' hátt. Á víst að iíta svo út sem ekki eigi að íþyngja sjómannastjettiuni nemasem minst, enda er það nú að verða iíska. Va°/o gjald a t- d. að leggja á segldúka, netjagarn. færi, atkeri, at- kerisfestar (hjer er víst átt við akkeri og akkerisfcstar) kaðla og \\sk\báta. Fiskis/t//? (botnvörpungar) eru aftur Langbesti augl.staður í bænum. Augl. sjesldlað fyrir kl.3daginn fyiir birtingn á móti ekki nefndir sjerstaklega og lenda þá í síðasta flokki og verður að gjalda af verði þeirra 2°/0. Það á og eflaust að gera lög þessi vinsæi meðal sjómanna, að á sjáfarafurðir er ekki lagt nema 17s% en 2°/0 á afurðir bænda. Það er ekki heldur svo lítið í munni að »með lögum þessum eru úr gildi numin lög um útflutningsglaid r.f fiski og lýsi ofl., nr. 16, 4. nóv. 1881«. Það sem sjómenn græða á þessum siciftum er þá það, að eftir lögunum frá 1881 greiöa þeir 32 au. af saltfisksskippundinu, en eftir frumvarpinu, þegar um stórfisk er að ræða, c. 1 kr. 20 aura, en til jafnaðar 50—60% meira en áður. Sumt er dálítið torskilið í lögum þessum.svo sem það, að eigi verður ótvírætt sjeð, hvort kaupmenn eigi að borga hundraðsgjaldið aí inn- kaupsverði eða. útsöluverði. Söm'u- leiðis er óskiljaniegt það ákvæði, að kaupmaður skuli gefa skýrslu um, hve mikið hann hafi selt af þeim (vörunum) og áður fyrirliggj- andi útlendum vörum á árinu.« Þetta bendir helst tii þess, aö gjald- ið sje miðað við sölu og þá auðvitað við söluverð. Nú kaupir kaupmaður dýran hlut frá út- löndum, t. d. botnvörpung, ogselur hann e k k i, heldur notar sjálfur. Er hann þá laus við 3000 kr. skatt í landssjóð, sem ekki-kaupmaður verður að greiða, sem skýit er tek- ið fram. Einfaldast ráð er þá auð- vitað að byrja á því, að kaupa sjer eilt 50 kr. borgarabrjef; með því geta menn losað sig við mikil út- gjöld, í þessu tilfelli sparað 2950 kr. eða allt að því. Ef annars á að skilja lögin svona, þá hlýtur það að vera talsverðum örðugleikum bundið fyrir kaupmann að sundurliða, »hvað hann hafi selt af áður fyrirliggjandi \örum á ár- inu«, því að iíklega eiga þó þessi lög ekki að ná til varnings, sein fluttur hefur verið inn áður cn þau ganga í gildi. Sakir væntanlegsrúmleysis verður víst að láta hjer staðar numið að sinni, þótt margt sje enn ósagt um þessi frumvörp. Kaupmaðnr. Frá alþingi. Dagskrá alþingis í dag. N. d. (kl. 12). 1. Verslun og veitingar áfengra drykkja. 3. umr. 2. Ófriðun og eyðing sels úr veiði- ám. 3. um. 3. Sala á eggjurn eftir þyngd. 4. Önnur skipun á æðstu umboðs- stjórn íslands. 2, umr. 5. Stækkun verslunarlóðar í Norð firði. 1. umr. E. d. (kl 1) 1. Kaup á Vestmanneya-síma. l.umr. 2. Veiði í Drangey. 1. umr. 3. Mótak. 1. umr. 4. Merking á kjöti. 1. um. 5. Þingfararkaup alþingismanna. 1. umr.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.