Vísir - 25.10.1912, Síða 1
433
I
Ostar
bestir og ódýrastir
i verslun
Einars Árnasonar.
Föt og Fataefm
úrval. Föt sauniuð og afgie.dd á_ 12-14 tínium
Hvergi ódýrari en í ,DACiMHRÚN‘. Simi 142.
Kemur venjui út alla daga nema laugard.' 25 blöð frá 26 okt. Icosta: Á skrifst.50a. I Skrifstofa í Pósthússtræti 14A.
Afgr.í suðurenda á Hótel ísl. H-3og4-6. Send út um land 60 au. — Einst. blöð 3 a. | lega opin kl. 2—4 og 6—S .
Venju
Langbesti augl síaður í bænum. Augf
sje skilað fyrir k..3 daginn fyiir birtingu
Föstud. 25. okt. 1912.
Síðasti suniardagur.
Háflóð kl. 4,35‘ árd. og kl.4,50‘ siðd.
Háfjara hjer um bil 6 st. 12' síðar
Afmœli.
Hannes S. Blöndal, bankaritari.
Á morgun;
Fyrsti vetrardardagur. — Fullt tungl.
úormánuður byrjar.
Afmœli.
Frú Þórunn Pálsdóttir.
Ari Þórðarson, búfræðingur.
Hans Hannesson, póstur.
Jónas Jónasson, lögregluþjónn.
Póstar.
Ingólfur kemur frá Straumfirð: og
Borgarnesi.
Hafnarfjarðarpóstur kemur og fer.
Fyrirlestrar á Háskólanum.
Dr. B. M. Ólsen: Bókmentasaga ís-
lendinga (rúnir) kl. 5-6.
Dócent Jón Jónsson: Saga íslands,
kl. 7—8.
Veðrátta í dag.
bfl
O
ii
o
Vestm.e. í7 33,8' 7,4jANA
Rvík.
ísaf.
Í755.3
i762,0i
Akureyri|762.2
Grímsst. 728,0i
Seyðisf. |762,7
Þórshöfn'756,0
8,0
6,7
6,0
í,9|
5,2: A
8,5i A
SA
A
NV
A
Skýað
Skýað
Alsk.
Skýað
Skýað
Regn
Alsk.
Skýringar.
N—norð- eða norðan, A —aust-eða
austan, S—suð- eða sunnan, V—vest-
eða vestan.
Vindhæð er talin í stigum þann-
ig: 0—logn,l—andvari,2—kul, 3 —
gola, 4—kaldi, 5—stiuningsgola, 6 —
stinningskaidi,7—snarpur vindur,8—
hvassviðri,9—stormur,10—rok, 11 —
ofsaveður. 12— fárviðri.
Kuldi táknaöur með skáletri.
Lílflíi<ttnrnar viðurkendu, ódýru, fást
UUtMðlUl Udl ávait tilbúnar á Hverfis-
gotu 6.—Sími 93.—HELGI og EINAR.
*$xí útlótvduw.
Ófriðurinn.
Nýjar fregnir.
Tyrkir reka Svartfell-
inga á flótta’Fog fella sex
hundruð manna.
Barist öllum megin á
landamærum Tyrklands
og sambandsríkjanna.
London, 17, ókt. 1912.
Svartfellingar höfðu náð undir
sig vígstöðvum öllum eða flestum
á leiðinni til Skutari, (eins og áð-
ur hefir verið sagt frá) og þóttust
hafa borgina í hendi sjer. — En
sú von brást, því að Tyrkir urðu
fyrri til að koma þangað nægum
liðsafla til varnar.
Það er símað frá Miklagarði, að •
Ftindur í ,.Fram”
laugard. 26. þ. m. á venjulegum stað kl. 8'/.2 síðd.
Lárus H. Bjarnason alþm. talar.
SKTJG-GrAMTKDIE
SÝNIR
HR. MAGNÚS ÓLAFSSON
LJÓSM YNDARI
í
SAMKOMUSAL HJÁLPRÆÐISHERSINS
Föstudaginn 25. okt. kl. 872 síðd.
Aðgangur 25 au. Allir velkomnir.
Ágóðinn fer til íbúðar handa hjúkrunarforingjanum.
hinn 16. þ. m. hafi verið barist
allan daginn við landamærin og að
kveldi hafi Tyrkir rekið Svartfellinga
á flótta inn fyrir landamæri þeirra
og felt af þeim 600 manna.
Þettað gerðistþarsein heitir lýrania.
Náðu Tyrkir þar 8 fallbyssum og
allmiklu öðru herfangi. Um sömu
mundir biðu Svartfellingar lægra
hiut við Kakora Mora. Urðu þeir
að hopa undan inn fyrir landamæri
og ráku Tyrkir flóttann. Enn víðar
hefur þeim lent saman og hafa Tyrkir
náð af Svartfellingum hæðunum við
Slovaglava og Velikaglava.
Við landamæri Serbíu stóð orusta
allan fyrra miðvikudag, 14. þ. m.,
og morgunin eftir hófst skothríðin
af nýu.
Sömu dagana rjeðust Búlgarar á
tyrkneska hersveit nálægt Iandamær-
um og varð hinn harðasti bardagi,
en ókunnugt er um atburði og úr-
slit í þeirri viðureign.
Grikkjum og Tyrkjum lenti og
saman um sömu mundir. Varbarist
á mörgum stöðum í senn og hófst
ófriðurinn reyndar áður, en friðnum
væri sagt upp formlega. Síðan hafa
Tyrkir orðið til þess fyrri að lýsa
yfir ófriði, því að sum sambands-
ríkjanna munu hafa þóst varbúin
þegar til kom.
Grikkir hafa sent fáein herskip
að ströndum Tyrklands, en ekki hefur
komið þar til vopnaviðskifta.
Allir Tyrkir, er staddir voru á
Englandi, hafa haldið heim til sín,
þeir er herþjónustu áttu að gegna.
>
Ur bænum.
Gefin saman:
11. þ. m. Ólafur Hákon Hákonar-
son, sjómaður, Brekkustíg 14., og
ym. Snjófríður Magnúsdóttir, Hverf-
isgötu 22.
18. Sigursteindór Eiríksson og
ym. Sigrföur Jónsdóttir, Hverfisg. 22.
19. Björn Bjarnason skósm. og
ym. Þorbjörg Ásgrímsdóttir, Njáls-
götu 29.
19. Einar Pjetursson, trjesmiður,
,og ym. Kristín Jónsdóttir Ottesen,
Grettisg. 58.
Dánir:
17. þ. m. Ekkjufrú Sigþrúður
Friðriksdóttir, Hverfisg. 3A. 82 ára.
23. Jónas Jónasson, ekkjumaður,
Framnesv. 37. 73 ára.
24. Jón Jónsson, bóndi í Mels-
húsum. 54 ára.
16. Jónína Margrjet Guðbrands-
dóttir.
Lestrarsalur Landsbókasafnsins
hefur verið lokaður frá 23. þ. m.
j og verður það nokkra daga enn,
sökum viðgerðar.
Jón Laxdal, kaupmaður, hefur
brugðið sjer vestur um haf. Er
talið að hann fari þangað í stein-
olíusamninga-erindum fyrir Iand-
stjórnina.
Háskólanemendur
veturinn 1912—1913.
Guðfrœðisdeildin:
Ásgeir Ásgeirsson.
Friðrik Jónasson.
Hermann Hjartarson.
Jakob Kristinsson.
Jón Guðnason.
Jósef Jónsson.
Sigurður Sigurðsson.
Lagadeildin:
Andrjes Björnsson.
Eiríkur Einarsson.
Gunnar Sigurðsson.
Hjörtur Hjarlarson.
Jón Ásbjörnsson.
Jón B. Jónsson.
Jónas Stephensen.
Páll Bjarnason.
Páll E. Ólason.
Páll Pálmason.
Pjetur Magnússon.
Sigurður Sigurðsson.
Steindór Gunnlaugsson.
Þorsteinn Þorsteinsson.
Lœknadeíídin:
Árni B. P. Helgason.
Árni Gísbson.
Axel Böðvarsson.
Bjarni Snæbjörnsson.
Einar E, Hjörleifsson.
Guðmundur Ásmundsson.
Gunnlaugur Einarsson.
Halldór Hansen.
Halldór Kristinsson.
Helgi Skúlason.
Jóhannes A. Jóhannesson,
Jón Jóhannesson.
Jón Kristjílnsson.
Jón Ólafsson.
Jónas Jónasson.
Kristín Ólafsdóttir.
Magnús Björnsson.
Sveinn Valdimar Sveinsson.
Vilmundur Jónsson.
Þórhallur Jóhannesson.
Heimspekisdeildin:
David Guíbrandsen.
"Utan (atvdv
Bæarbrunar.
Á Skógsnesi í Gaulverjabæar-
hreppi í Flóa brann baðstofan að
morgni laugard. 12. þ. m. Bóndinn
þar er Jósep Jóhannesson, bróðir
Kjartans verslunarm. á Eyrarbakka.
Eldurinn kviknaði frá Iampa, sem
hafði verið settur of nálægt súð og
kviknaði þar í tfóði. Bygging var
nýleg á bænuai, brann baðstofan
með tveim áföstum skúrum, en inn-
anstokksmunum öllum var bjargað.
Gestir höfðu verið á bænum um
nóttina og höfðu lagt snemma af
stað, og því var kveikt á lampanum.
Á Höfðabrekku í Mýrdal brann
bærinn fyrir nokkru. Það var timb-
urhús nýlegt. Hafði kviknað frá
leirpípu er lá frá eldavjel. Mcst
mun hafa bjargast af munum.
Bóndinn þar er Loftur Jónsson,
bróðir Einars alþm. á Geldingalæk.
Ódýri
sykurinn,
sem koma á snemma í nóvember,
er nú allur upp-pantaður, en með
því að jeg keypti einnig lítilsháttar
'Pariís sem koma á seinna í
nóvember, þá tek jeg nú einnig á
móti pöntunum á því, þó aðeins í
nokkra daga; flýtið yður nú
og munið, að um leið og pantaö
er, þarf að borga 2 krónur fyrir
hver 50 pund.
Virðingarfylst.
Carl Lárusson.