Vísir


Vísir - 04.11.1912, Qupperneq 1

Vísir - 04.11.1912, Qupperneq 1
441 9 Ostar bestir og ódýrastir i verslun Einars Árnasonar. Föí og Fátaefns síí!»S“neste úrval. Föt saumuð og afgieidd 12-14 tímum Hvergi ódýrari en í ,DAG.SSRÚ N£. Sísni 142. j \ Kemur venjul.út alla dagariema laugard, I 25 blöð frá 25. okt. kosta: A skrifst.50a. I Skrifstofa í Pósthússtræti 14A. Venju- Langbestí augl.staður í bænum. Auel Afgr.í suðurenda á Hótel ísl. ll-3og4-6, j Send út um land 60 au. — Einst. blöö 3 a. lega opin kl. 2—4 og 6—S . sje skilað fyrir kl.3 daginn fy;ir birtine,, Mánud. 4. nóv. 1912. Háflóð kl. 1,26' árd. og kl. 1,57'síðd. Háfjara hjer um bil 6 st. 12' síðar. Afmœli. Frú Jóhanna Rokstad. Guðm. Árnason, næturvörður. Haraldur Árnason, kaupmaður. Jón Sveinsson, trjesmíðameistari. Fyrirlestrar á Háskólanum. Dr. Á. H. Bjarnason: Heim- spékissaga kl. 7-8. (Söguviðburðir: 1812: Fæddur ítalska skáldið Aleardo Aleardi greifi.) Á morgun: Póstáœtlun. Austri fer til Kaupmannahafnar. Veðrátta í dag. Loftvog r O -C X! C > Veðurlag Vestm.e. 758,8 4,9 A 4 Alsk. Rvík. 757,7 3,7 A 1 Alsk. ísaf. 759,4 2,3 0 Heiðsk. Akureyri 760,7 9,5 0 Ljettsk. Grímsst. 723,7 13,5 0 Heiðsk Seyðisf. 761,5 15,0 0 Heiðsk. Þórshöfn 760,9 3,7 0 Regn Skýringar. N—norð-eða norðan, A —aust-eða austan, S—suð- eða sunnan, V-—vest- eða vestan. Vindhæö er talin í stigum þann- ig: 0—logn,l—andvari, 2—kul, 3— gola, 4—kaldi, 5—stinningsgola, 6— stinningskaldi,7—snarpur vindur,8— hvassviðri,9—stormur,10—rok, 11 — ofsaveður, 12—fárviðri. Kuldi táknaöur með skáletri. ) Ur bænura, Alþýðufræðsla stúdentafjelags- ins hófst í gær með fyririestri Dr. Helga Pjeturss um íslendingasögur. Hann var ágæt hugvekja og vel sóttur að maklegleikum. Sigurður Slembir, skáld, er staddur hjer í bænum þessa daga. Fjalla-Eyvindur var leikinn í gærkveldi. Er það fyrsti leikur leik- fjelagsins á þessum vetri. An ars staðar á Norðurlöndum byrjahaust- leikarnir 1. sept. D/iunið eftir uppboðinu í Bárubúð. Byrjar kl. 4 í dag, Bandaríkjakosningarnar fara fram í dag. Eins og kunnugt er. eru þessir í kjöri: W. H. Taft, forseti, Dr. Woodraw Wilson, Theodore Roosevelt exforseti. í landi risa og dverga/ --- Frh. Það sem aðal - athyglin snjerist um í þessari ferð, voru hin miklu eldfjöll vestast í nýlen'díinni, þar sem 'ekki er enn búið að ákveða nákvæmlega takmörk hennar við landeignir Breta og Belga. — Oöt- zin greifi er sá fyrsti, sem fór um þennan stórkostlega eldfjallaklasafyr- ir 15 árum. Þau ná sum 4000 metra hæð, rýkur úr þeim og dun- ar niðri í þeim við og við, svo að ibúarnir í kring hafa borið fyrir þeim ótta blandna virðingu. Jarð- fræðingur hertogans frá Mechlen borg, Dr. Kirschstein, hefur farið upp á þau nærri öll og getað rann- sakað þau nánar fyrstur manna. Því að aldrei hefur nein rannsóknarferð áður komið á þessar slóðir, sem hefur haft slíkum gögnum til að dreifa, bæði til þess að geta dvalið svo iengi í Iandinu og til þess að geta komið eins í verk fyrirætlunum sínum, eins og þessi leiðangur. Við lok ársins 1907 rannsakaði Dr. Kirschstein því næst vestasta klas- ann af þessum eldfjöllum, er voru þá að smágjósa; en þar fyrir utan er það, sem kallað er eftir Iegu sinni miðklasi og austurklasi. Þessi risavöxnu fjöll virðast vera frem- ur ung í jarðmyndunarsögunni, þau hafa stígið upp á milli Kiwuvatn- sins og Albert Eðvarðsvatnsins, sem einhverntíma hafa náð saman, og skilið vötnin sundur. Jarðeldakraft- urinn á þessum stöðvum er heldur ekki undir lok liðinn. Hann gjörir einlægt vart við sig hjer og þarog hleður upp gígi og keilumynduð cld- vörp. Niragongo, sem Oötzen greifi gekk upp á og þá var með gosi, er nú sloknað út. Enn á botni gígsins, sem er umkringduraf 150 metra háum veggjum eru enn þá báðar gjárnar, sem gusu áður ösku og hraunflóði. Stærsti gígurinn mun þó vera í NamlageraV]d\\\nu. Er hann 1750 metra að þvermáli en 5 kílóm- etra ummáls efra. Við rætur þess fjalls er fjöldiafnýjumsmágígum,semgefa frá sjer vatnsgufu og kolsýru. Það lítur helst út fyrir að þessi eldfjalla- klasi hafi bygt sig upp frá austri til vesturs, með því að vesturfjöllin eru enn að gjósa, en hin eystri eru slokknuð út að því er virðist. I Kíwúvatnið rann seinasta hraunflóð árið 1904. Kringum eldfjallasvæð- ið er frjósamt land einsog víða er, þar sem ýms gosefni leysast sund- ur. Þar er þorp við þorp svo Iangt sem akuryrkjan nær til, en ofar taka við blómlegir skógar, þar sem Bat- wadvergarnir slungnu drýgja ódáð- ir sínar. Það er sama hvort mað- ur fer að þeim körlum með vináttu eða hörku — að svo miklu leyti sem um slíkt er að tala, því þeir sjást mjög sjaldan — þeir verða ein- lægt sjálfum sjer líkir, tortryggnir, óvinveittir og þjófóttir. Á vestursvæði og miðsvæði eld- fjallaflákans var mest af Bambus- skógi, en annars var frumskógur einkum ofantil og er erfitt aðkom- ast gegnum kjarrið á milli trjánna. Leópardar, bufflar og fílar flakka oft upp fyrir skógartakmörkin, sem lggja í 2500 til 2800 metra hæð. Þessar skepnur eru á ferð upp í 4000 metra hæð. En annars eru til hærri fjöll, svo sem hið fagra Karíssimbi sem má heita konungur eldfjallaflákans, það er 4500 fet að hæð. Jafnvel innan um hinar háu bungur Virunga - fjallanna þá gnæf- ir Karissímbí eins og konungur upp úr höfðingjahóp. Oft er það þeg- ar skýunum, sem oftast hvíla yfir þessum eldfjallatindum, ljettir af. að þeir sjást ífærðir heklu af nýjum snjó, sem fer afbragðs vel undir geislum miðjarðarsólarinnar. Frh. Ferðamolar eftir Sigurbjörn Á. Oíslason. ----- Frh. Sódóma og Slglufjörður. »Jeg skil varla að það hafi ver- ið mikið verra í Sódóma og Gó- morra, en verið hefur í sumar á Siglufirði*, sagði Scheen sjómanna- prestur frá Noregi við mig fyrir nokkrum árum. Hann brá sjer þá hingað suður til að biðja stjórnar- ráðið um meiri löggæslu þar nyrðra. Það var árið áður en sjerstakur lögreglustjóri var seítur sumarlangt á Siglufirði. — Og þá baðaði Bakk- us í rósum þar nyrðra. Norskir sjómenn fullyrtu við mig það sum- ar, að hægt væri að fá vín til sölu »í hverju húsi á SiglufirðD, og þegar jeg sagði að það væri ósatt, sögðu þeir eitthvað á þá leið, að það væri ekki að marka, þótt jeg vissi ekki unr það, — það væru Norðmennirnir, sem væru látnir sitja fyrir að drekka og borga. — Jeg hugði að þessar öfgar væru af því sprottnar. að þeir blönduðu saman »sumstaðar« og »alstaðar«, eins og sumum hættir til. En var varð jeg þess, að tortrygnin var æði mikil að því er víndrykkju snertir. — Borgari nokkur á Siglufirði, sem jeg hafði aldrei heimsótt fyr, bauð mjer að borða með sjer kveldverð seint um kveld, er jeg var að bíða tækifæris hjá honum að komast fram í strandferðaskip,. sem jeg var farþegi á. Þegar við vorum að fara inn í borðstofuna, kom öldruð kona á móti okkur, móðir húsráð- anda, og ámælti honum með þung- um orðum, »að vera nú að koma með útlending til að drekka með sjer, þegar kominn væri háttatími.« — Mjer þólti þessar aðvaranir alt of skemtilegar til þess að jeg vildi blanda mjer í þær, einkum þar sem húsráðanda varð orðfall fyrst í stað; — hann var nýbúinn að tjá mjer vináttu sína við templarafjelagið. — En samt fór svo, að gamla konan, sem sat inni, meðan við mötuð- umst og heyrði því samtal okkar, þakkaði mjér komuna og óskaði, að jeg kæmi þar sem oftast. Jeg hef komið nokkrum sinnum síðar á Siglufjörð og sjeð þar svona sitt af liverju, eins og við er að búast, en aldrei hefur verið þar jafn rólegt og í sumar. Enda fjekk nú Siglufjörður alt annan vitnisburð en fyr, bæði hjá norsku trúbojSunum og öðrum kunnugum. • l , ... \ *■ ' t?v Norskir trúbóðar. Sjómanna-innri-missíónin norska hefur sjö sumur sent þangað rosk- inn trúboða, er Apeland lieitir og býr annars búi síttu nálægt Hauga- súndi í Noregi. í hitt eð fyrra sendi hún tvo ungá metin í hans :.stáð, en þeir þóttu ekki géta unnið eins vel viröíngu sjómannanna. Enda var Scheen prestur ekki á Siglufirði það sumar, en hanu hefur verið þar 5 súmur, studdur til þess af sjó- manna-missíön Norðmanna í er- lenduin hafnarbæum. Þeir Scheen og Apeland hafa unnið saman eins og bræður. Hafa þeir lestrarstofu sjómanna í barna- skóla SiglfirðingBí Hún er opin frá kl. 4 e. m., og stutt guðræknisstund er þar á hverju kveldi fyrir þá, sem ó.ska, Þeir Apeland og sjera Scheen skiftust á um að gæta stofunnar og vitja skipanna. Á hverjum sunnu- degi halda þeir síðdegismessu á norsku í kirkjuniú og er þá jafnan húsfyllir. Jeg liefi einusinni tekið þátt í þeirri messugjörð með þeim, og þótti bæði nýstárlegt og ánægju- l^gt að heyra þá tvo eða þrjá roskna skipstjóra flytja bænir úr kórdyrum. Norsku trúboðunum liggur mjög hlýlegt orð tií sóknar- prestsins, sjera Bjarna Þorsteinssonar, og annara hlutaðeigenda fyrir vel- vild þeirra ineð kirkju- og skóia- lánið. Öilum kunnugum kemur saman um, að þessir norsku trúboðar sjeu þarfir menn á Siglufirði. »Hann sjera Scheen er á við 10 lögreglu- þjóna«, sagði einhver um hann fyrir nokkru, — hvað sem um það er, þá er áreiðaulcgt að áhrif þeirra á sjómennina á Siglufirði fara vax- andi. Frh. Á ferð í sveit Eftir ívar. — Frh. Jeg hristi þettað mók af mjer og reyndi að eyða frekara umtali um það, en fjelagar mínir hlógu dátt. Sólsett var niðri í sveitinni, en enn- þá lýsti hún fjallatindana í austri. Við fórum að ríða greitt og liugs- uðum brátt um ekkert annað en að ná fyrir háttatíma að Hlíð, því þang- að var'ferðinni heitið. Oddur bóndi stóð úti, þegar við þeystum í hlaðið og bauö liann okkur velkomna og ljet okkur þegar fara inn í stofú. — Oddur karlinn var g'óðkunningi minn, liann verslaði mikið hjá okkur og jeg kyntist honum við verslun- ina. Það var vaninn, þegar Oddur Ijet sjá sig í búðinni, þá langaðí

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.