Vísir - 05.01.1913, Blaðsíða 1

Vísir - 05.01.1913, Blaðsíða 1
500 15 Föí og Fataefni. iiíSSRleS úr'/al. Föt saumuð og afgreidd á 12-14 tíniuvn. Hvergi ódýrari en í ,OAGSBRÚN‘. Sími 142. ivemur venjul.út alla daga nema laugar Algi.í Haínarstræti 20. kl. Il-3og4o. 25 bloö frá 20. des. kosta A skrifst.50 au. Send út um land 60 au — Einst. blöð 3 a Skrifstoía i Hafnarstræti 20. Venju- lega opin kl. 2—4. Sí t 400. au^i______ _________... __^ sjeskilað fyrir kl.3 daginn fvrir biríingu Sunnud. 5. jan- 1913. — Hálft þúsundið i dag. — Háflóð kl. 3,58“ árd. og 4,21‘síðd. j Háfjara hjerumbil 6 st. 12‘síðar. j 1 Afrnceli. ) Siggeir Torfason, kaujrm., 50 ára. Þorst. Sigurðsson, skósm., 40 ára. Vilh. Bernhöft, tannlæknir. Veðrátta í dag. Loftvog Hiti Vindhraðilí bo rc ic <D > Vestme. 736,6: 1,5 0 Skýað Rvík. 735,7' 1,5 0 Alsk. ísaf. 739,4: 0,8 A 4 Skýað Akureyri 737,5 0,5 N 4 Alsk. Grímsst. 704,5 3,2 NNV 2 Hríð Seyðisf. 735,1 4,3 SV 3 Alsk. Þórshöfn 743,2 5,2 ! i vsv j 6 1 Regn N—norð- eða noi ðan. A - aust- eða austan, S—suð-eða sunnan, V—vest eða vestan. Vindhæð er talin í stigum þann- ig :0—logn.l—andvari,2—kul, 3— gola, 4—kaldi, 5—stinningsgola, 6 — stinningskaldi,7—snarpur vindur 8 — hvas: /iðri,9 stormur,10—rok, 11 — ofsaveður, 12-~fárviðri. Frost táknað með skáiejri. j dag 5. jan. byrjar fyrirlestra- flokkur um spádómana í Dan- íelsbók og Opinberunarbókinni. — Þessir spádómar segja nákvæmlega frá hvar vjer erum staddir í heims- sögunni. Fyrirlestrunum til skýringar verða sýndar myndir af hinum ýmsu jar- teiknum (Symboler), sem nefnd eru í þessunr bókum. Allir velkomnir O. J. Olsen J&xwavn&a er í ár frá 5.-12. jan. — Samkoma í Sílóam við Grundarsiíg í dag kl. 6V2 síðd. — Allir velk'omnir, dn tillits til trúflokka. Framfarafjelagið heldur fund í Iðnadarmannahúsínu uppi á lofti, sunnudaginn 5. janúar kl. 6. e. h. Bjarni Jónsson segir sögu. munið eftir fundiuum í Lr. F. K. R. á fimtudaginn kemur. Fjölmennið ! S t j ó r n i n. Líkkistur og líkklæði er best að kaupa í verksmi j nni Laufásveg 2. hjá EYVINDI ÁRNASYNl. Teppi lánuð ókeypis í kirkiuna. ---cJVrtll UlUUIIdl dl IVCIliy »ötu ó.—Simt 93.—HELGl og EINAR. yxí 4Uöt\dwm Morð í Kaupmannahöfn. Hlð hryllilegasta, sem þar hefur verið framið síðan Philipsens- morðið. --- NL Það er frá Vinding að segja, a§ þann dag, sem morðið var framið, var hann snemma á fótum og var einn þeirra er stóðu á götunni fyrir framan hús hins niyrta (lögreglu þjónar heftu aðgang að húsinu) og var með þeim áköfustu að ná í frjettir af morðinu. Talaði hann mjög um, hve hryllilegt það væri og aumkvaði ekkjuna og skyldmenni hins látna. Altaf var hann að skjótasttil lögregluþjónana og spyrja, hvort frú Koch væri ekki komin af lögreglustöðinni, en svo var ekki. Síðast kom hann kl. 2, og er hún var enn ókomin, hefur hon- uin víst þótt grunsöm vera hennar þar og fundist vissast að hypja sig. Síðan hafði enginn sjeð liann. Nú var lögregla alls landsins í uppnámi og lögregluþjónar sendir af stað, og á þriðja degi hafðist upp á pilti f Skelsör. Hafði hann þá látið raka sig vendilega. gekk með blá gleraugu og var í íslenskri peysu, að sagt er. Hann hafði tekið herbergi þar á leigu og voru nú tveir efldir lögregluþjónar sendir inn til hans. Hann var heinia, og þeir tóku upp ljósmynd, sem þeir höfðu og báru saman, en fanst maður svo ólíkur, að þeir voru í þann veginn að kveöja og biðja afsökunar, fr annar stakk þó upþ á því til vara, hvort honum væri ekki sama, þó hann kæmi með þeini á lögreglustöðina. — Velkomið, og svo löbbuðu þeir allir af stað og halarófa af götudrengjuni á eftir. En er þeir voru komnir rjett að lögreglustöðinni. vatt morðinginn sjer að þeiin svo hart, að þeir voru nærri fallnir um koll. Hann hljóp yfir garða og girðingar sem vitlaus maður og komst til skógar. ,Nú var stefnt saman öllu lög- regluliði frá borgunum í kring og margir kornu frá Kaupmannahöfn. Voru menn vel vopnaðir og höfðu sporhunda og gengu svo í skóginn. Var hrópið : Lifandi eða dauður. En leitin varð árangurslaus. Maðurinn hafði stolið bát og leitað út á djúpið, en hungur og vosbúð þrengðu svo að, að haun lagði til lands í Korsör. Þar þekt- ist hann og var tekinn, Miklar líkur eru til, að maður þessi liafi fyr meir drepið tvær heitmeyar sínar á eitri, og margir glæpir aðrir eru lionum kendir, þó ekki hafi hann komist undir manna- hendur fyr en þetta. Eru þar með húsbrunar, svik, falsanir og innbrots- þjófnaðir. Sendiherra Bandaríkj- anna í London er nýdáinn. Mesta háflug, sem farið hefur verið til þessa, er þaö, sem frakkneskur maður að nafni Garr.os fór ll.f.m., en það var 5600 metra frá jörðu. Næst honum hefur kom- ist Legágneux, sem flaug 5450 metra upp i loftið 17. sept. í haust, eins og Vísir skýrði þá frá. Myikur karlmaður. A. von Humboldt og E Hiickel hafa áður sagt frá mylkum karlmönnum, en þeir.eru mjög fátíðir. Hefur það þvi vakið. rnikla eftirtekt manna, að í fyrra niánuði sýndi dr. Leppmannn á læknafundi í Beriín 21 ára gaml- an karlmann tneð svo stóra brjóst- kirtla, að hann getur gefið barni brjóst. Hann er andlega og líkam- lega að öllu leyti með fullu eðli. 9 Ur bæniim. Hafnarfjarðar-pó turinn fer hjeðan fyrst um sinn kl- 2 síðdegis, en ekki kl. 4 eins og áður. Póstáætlun Reyjavíkur er ekki komin út enn um þenna ársfjórð- ung. Það hefur ekki verið hægt að semja hana, af því að aðrar áætl- auir eru ekki komnar út allar. KAUPSKAPUR Kvengrímubúningar eru saum- aðir og leigðir út í Austurstræti 1. Lítið hús til sölu eða leigu. Uppl. j á Bergsta'astræú 43. stúkunnar Einingin nr. 14 verður miðvikudagskvöld. 8. þ. m. kl. 8l/2. Þeir, sem óska að gerast fjelagar hennar, geta fengið allar uþplýsing- ar hjá Árna Eiríkssyní, Borgþór Jósefssyni, Þorvarði Porvarðarsyni eða hverjum öðruni fjelaga hennar sem er. Allir velkomrtir. Lík fundið. í gær ntorgun kl. 9s/4 var maður að leita eftir rekaldi í fjörunni kring um bryggju Björns Kristjánssonar verslunar. Sá liann þá kvcnnmanns lík í fjörunni og var höfuð og brjóst inni í þarabrönninni. Hann kallaði á mann, er þar gekk fram hjá, og færðu þeir líkið upp á klappirnar. Hjeraðslæknirinn var svo kallaður til. Stúlkan var fyrir löngu stirðnuð, enda hefur skolasl í þaranutn fyrir nær tveim tímu**' er háflóð var. Margir komu þar að, er l'kið var, en enginn þekti það. Var þaö svo flutt í líkhús. Nokkru stðar vitnaðist, hver stúik- an var. Hún hjet Jónína Jónsdóttir frá Bergstaðastræti 29., um tvítug að aldri, ættuð frá Vælugerði í Flóa. Hún hafði farið frá móður sinni, er býr hjer í bænum, um kl. 9 kveldið áður, og - ráðgerði þá að fara i Bíó, en síðan hafði ekki frjetst af henni. í gærdag fanst brjef frá henni til moður sinnar, er hún haföi skrifað kveldið fyrir, þar sem hún segist ekki -geta litað lengur, en engum sje um að kenna. Fógeti hafði ákveðið, að líkiðyrði krufið, ef ske kynni, að um morð væri að ræða, en eftir að brjefið koni fram, muni óvíst, að það verði gert. Stúlka þessi var mjög hæglát og stilt, kom híngað í bæinn í haust og ætlaði að vera lijer við nám í I vetur, en þá brást henni, að hún féngi sumarkaup sitt og tók því það ráð að vinna hjer íyrir fæði og læra ensku á kveldskóla. Hefur ef til vill hugsað sjer að fara vestur úm haf. Munið eftir Tombólimni í Good-Tetnplaraiiúsinu í kvöld (5. jan.) kl. 8. v (Sjá götuauglýsingar). Auglýsingar komi fyrir kl. 3 dag- inn fyrir birtingu. Byrjið árið með Jjyí að versla í LIYEBPOOL.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.