Vísir - 07.03.1913, Blaðsíða 2
v f S 1 R
ntw■1 —I.1WIwwBÉW .1 ...
MURJii-TnKX'T.gaugyr ’.m.i,-nx«r'
Hringið upp ,NYHOFF.
Sími 237,
Fljót afgreiðsla.
Gyinbelína
Tiin fagra-
Skáldsaga
eftir
Charles Qarvice.
Frh.
— Bellmaire jarl var mjög hugs-
andi á heimleiðinni í ljettivagn-
inum sfnum. Hann hafði tekið
ákvörðun sína. Fegurð Cymbe-
línu hafði tekið hann hershönd-
um. Honum var sem hann sæi
hana núna í tunglsljósinu, hann
hlustaði á mjúka róminn hennar
í anda, hljómmikinn og hreim-
fagran. Já hann skyldi fá henn-
ar og það þó hann yrði að kom-
ast upp á tr.illi hennar og God-
reys. Ungfrú Marion var her-
togadóttir; en honum stóð geigur
af kulda hennar og þótta. Hann
hafði ekki sjeð hana viðkvæma
og logandi af innra eldi eins og
Godfrey, — því ella hefði hann
ef til litið nana öðrum augum.
En sem sagt, ungfrú Marion var
honum engan veginn geðfeld.
Hann unni Cymbelínu og heit-
strengdi að fá hennar. Aftur
brá henni fyrir í huga hans, hræði-
legu ógnþrungnu óskinni um að
Godfrey værí dauður, eins og
ískyggilegu leiftri, og hann lamdi
hestinn áfram á báða bóga.
»Hvað gengur á?c spurði God-
frey og við málróm hans hrökk
jarlinn við og náfölnaði. Hann
hafði nærri því gleymt því að
Godfrey sat hjá honum, — svo
var hann sokkinn niður í hugs-
anir sínar.
»Bikkjan hnaut!* sagði hann.
»Jeg varð þess ekki varU
»En svo varnú samt. Jeg skal
fakaí taumana!« Og afturlumbr-
aði hann á hestinum.
»Ef þú heldur svona áfram,
er hesturinn vís til að fara sjer
að voða, — það er bara reið-
beisli við hann,« sagði Godfrey
rólega.
»Uss! jeg hef stjórn á hon-
um!« sagði Bellmaire. »En hvað
þú getur verið rólegur! Þú segir
ekkert?« bætti hann óþolinmóð-
lega við.
»Jeg vildi ekki trufla hugsanir
þínar, vinur minn, — þú varst
svo hugsi. Um hvað varstu að
hugsa?«
*JeS? — Je8 var að hugsaum
Marion. Það er nú stúlka, sem
vert er um að tala, Godfrey! Þar
er nú fyrirmynd handa Iista-
manni. Má jeg annars ekki óska
þjer til hamingju, kunningi, með
sigrinum ?«
»Hvaða sigri ?« spurði Godfrey
þurlega.
»Uss, látu ekki svona ólfk-
indalega! Það duldist svo sem
engum, að þú gengur ekkert
smáræði í augun á þessari hefð-
armey!«
»Það er vitleysa!« sagði God-
frey og skifti litum af gremju.
»Uss, vertu nú ekki að því
arna! Það er sólskær sannleik-
ur! Heldurðu elcki að jeg hafi
haft gætur á þjer?«
»Gætur á mjerl* át Godfrey
kuldalega eftir. »Hvaða tilefni
var til þess?«
»Nú, jæja, — jeg hafði ekki
vörð á þjer, en jeg tók eftir því,
hvað hún tók vel við þjer, ertu
annars alveg metnaðarlaus, God-
frey? Væri það ekki nógu ákjós-
anlegt að vera kvæntur hertoga-
dóttur?«
Godfrey l.eit á hann. Hann var
rjóður í framan og augun leiftr-
uðu.
»Þú ert að fara með bull, núna
að minsta kosti!« ságði hann
rólegur.
»Já, jeg veit nú ekki! Lakara
gætir þú hrept. Sko, hún mundi
greiða fyrir þjer á listabrautinni.
Hún mundi veita þjeraðgangað
heldra fólkinu. Það næði langt
til þess, að þú yrðir formaður
listaskólans. Þú veist að alt verð-
ur unnið með áhrifum verndar-
innar, það er að segja, verndar
þeirra voldugu. Og ef mjer skjöpl-
ast ekki, þá er ungfrú Marion
blátt áfram trylt af. —*
»Nú er nóg komið, Arnold!«
sagði Godfreyalvarlega og nefndi
hann ósjálfráttrjettunafni. »Heið-
urskonurskyldu ekki hafaífíflskap
armálum og þessi fíflskaparmál
eru ekki í samræmi við þá prúð-
mensku, sem þjer er venjuleg.«
Jarlinn varðsótrauðuraf vonsku,
en hló bara og sagði ísmeygi-
lega:
»Jeg bið afsökunar, gamli vin-
ur! En jeg sný ekki frá
því, — hún er ástúðleg stúlka,
sem hverjum manni hlýtur að
vera ástfálgin.«
»Ekkí mjer!« sagði Godfrey.
»Jeg dáist að henni og met hana
mikils, en svo er það ekki meira.
En hvað þú ert þreytulegur í
kvöld! Hefur þjer nokkuð and-
stætt borið að höndum?«
»Nei, svei mjerþá!« sagðijarl-
inn sárgramur við sjálfan sig af
því, að hafa ekki haft þann hem-
il á skapsmunum sínum að ekki
bæri á neinu.
Þeir reyktu þegjandi alla leið
heim til Godfreys.
Þegar Godfrey lauk upp hurð-
inni, fór Slade fram og út í garð-
inn. Frh.
Agætt |/ fæst í
brent og IV Í1TT| Kjallara-
malað * * versl.
Sími 316. Austurstræti 18-
QUAKER-OATS,
hið nafnfræga haframjöl i pökkum, hvergi ódýrara, en í
NÝHÖFN.
í versluninni Dagsbrán.
Munið eftir að Mn stendur
nú sem hæst.
20-50s
Allt á að seljast, komið því í tíma.
00* eru undrandi yfir því, hve
ótrúlega ódýr öll nauð-
synjavaraer íVersl.Hermes,Njálsg.26.
Guðm. Benjamínsson, Grettisg.
10. flytur fólk og flutning milli
R.víkur og Hafnarfj. Sími 149.
KAUPSKAPUR ***
bænum, fremur lítið, nýtur ágætlega
sólar, prýðilega vel hirt, — tilsölu nú
þegar og laust 1. maí, ef vill. Verð og
skilmálar mjög aðgengilegt. Afgr.v.á.
Barnavagn (tvíburavagn) óskast
til leigu nú þegar. Afgr. v á.
g^ TAPAD-FUNPIO ^
Karlmannshringur, með fullu
kvennmannsnafni í og ártali, er
fundinn í portinu á Hotel R.vík.
Rjettur eigandi vitji hans og borgi
auglýsingar.
L E I G U
V I N N A
Stúlka óskast í vist nú þegar.
Laugaveg 7.
Unglingur, hdst fermdur, ósk-
ast frá 14. myí til að vrra með
börn. Uppl. Vonarstr. 2. uppi.
Grímubúningur handa karl-
manni, mjög fagur, er til leigu
eða sölu. Afgr. v. á.
2 kvenngrímubúningar fyrir
kvennfólk eru til leigu. Afgr. v. á.
Kvenngrímubúningur gullfall-
egur er til leigu. Afgr. v. á.
1 herbergi n.eð liúsgögnum
óskast til leigu nú þegar lielst í
austur- eða miðbænum. Afgr. v. á.
1 stofa til leigu fyrir einhleypa
frá 14. maí. Afgr. v. á.
3—4 herbergja íbúð óskast frá
14. maí í eða nálægt miðbænum.
Afgr. v. á.
í Miðstræti 8 A. fæst til leigu
3—4 herbergja íbúð upp á lofti
og ein stór og góð stofa með eld-
húsi niðri.
3—4 herberg! með eldhúsi og
geymslu óskast 14. maí. Aígr.v.á.
Útgefandi:
Einar Gnnnarsson, cand.phil.
Östlunds-prentsmiflja,