Vísir - 19.03.1913, Blaðsíða 1
563
3
t bestir usj ódýrastir
i verslun
Einars Árnasonar.
símtalshljóðaukinn — er nauðsyn- •
; legur hverjuni símanotanda. Fæst að- |
| i: eins hjá Ol. O. Éyjólfssyni, Austurstr.3. ;
Kemur venjui.út alla daga nema laugard.
Afgr.í Hafnarstræti 20. kl. ll-3og4-S.
25!]hlöð frál7 mars kosta áafgr,50 aura. Skrifstofa í Hafnarstræti 20. Venju- Langbesti augl.staður i bænum. Auj?1.
Send út úm I; nd 60 au.— Einst. blöð 3 au lega opin kl. 2—4. Sími 400. sje skilað fyrir kl.3 daginn fyiir birtingu.
Miðvikud. 19 mars 1913.
Háflóð kl.3,6‘árd.og kl.3,32‘síðd.
Háfjara hjerumbil ó st. 12‘síðar.
Afmœli:
Frú Steinunn Hjartardóttir.
A morgura:
Póstáœtlun :
fngólfur kemur frá Garði.
Veðrátta í dag.
Lottvog X < Vindhraði bX) JZ i— O <L> >
Vestme. 734,4 U A 8 He ðsk.
Rvík. 735,2 4,5 A 4 Heiðsk.
ísat. 741,9 3,3 A 7 Skýað
Akureyri 741,6 7,6 0 Alsk.
Grímsst. 705,2 7,5 A 2 Alsk.
Seyðisf. 740,6 4,8 0 Hríð
Þórsltöfn 733,0 1,5 A 7 Alsk.
N—norð- eða norðan,A — aust- eða
austan, S—suð- eða sunnan, V—vest-
eða vestan.
Vindhæð er talin í stigum þann-
ig : 0—logn.l—andvari,2—kul, 3—
gola, 4—kaldi, 5—stinningsgola, 6—
siinningskaldi,7—snarpur vindur.8 —
hvassviðri,9 stormur,10—rok, 11 —
ofsaveður, 12—fárviðri.
Frost táknað nieð skáletri.
pSHT’ Vísir kemur út á morg-
un. Auglýsingar komi sem allra
fyrst.
Á HVERFISGÖTU 4 D.
er mikið.úrval af allskonar fatnaði,
svo sem kjólar og kápur handa
kvennfólki og börnum. Einnig
drengjaföt og barnablúsur.
Ennfrenmr skyrtur og náttkjólar
og feiknin öll af morgunkjólum
og svuntum, auk ýmislegs annars.
Saumaskapur er vel af hendi leyst-
ur, enda innlendur.
i3 Steinunn Briem.
\ aj tan&v
Hlaðafli á Eyrarbakka; var
þaðan róið alment í gær og komu
allir bátarnir að drekkhlaðnir.
Ur bænum
Útgefandi »Vísis« hefur verið
veikur nokkra daga og er enu. Er
því Júlíus Halldórsson læknir tit-
stjóri blaðsins á meðan.
Ólafur Björnsson og Sigurður
Hjörleifsson.
Eins og áður er kunnugt, var
Sigurði ritstj. Hjörleitssyni sagt upp
starfi sínu við ritstjórn »fsafoldar«
frá 1. þ. m. Stefndi liann Ólafi ritstj.
Björnssyni fyrir samningsrof, og
kom það mál fyrir sáttanefnd í gær.
Stóð sáttaumleitunin í tvo tíma, og
var síðan frestað til næsta þriðju-
dags. — Verður hún víst lengsta
sátlatilraun, er fram hefur farið á
landinu, þó ekki standi hún iengur,
en næsta þriðjudag.
Póstar fara norður og vestur
árla morguns laugardaginn fyrir
páska. Póststofau er opin Skírdag
Símskeyti.
Londo.i, 18. mars kl. 8’JO síðd.
Georg Grikkja konungur myríur.
Gríski sendiherrann í London hefur rjett í þessu fengið
einkasímskeyti, sem segir, að Grikkja konungur hafi verið myrt-
ur í Saloníki eftir miðjan dag. Morðinginn handsamaður.
(Central News).
[Georg konungur I. var næst-elsti sonur Kristjáns IX., konungs vors,
fæddur 1845; í föðurgarði hjet hann Vilhjálmur. Hann var kjörinn til
konungs á Grikklandi 1863, giftist 1867 prinsessu Olgu Konstantínovna.
Þau eignuðust 7 börn, 5 syni og 2 dætur, og heitir elsti sonurinn
Konstantín.
Undir stjórn Georgs konungs hefur Grikkland tvívegis fengið all-
mikla landauka, íóna-eyarnar 1863 og Þessalíu ásamt hluta af Epírus
1881. En Grikkir, sem lengstnm hafa verið óróaseggir miklir, voru enn
eigi ánægðir, og er Kríteyingar 1908 vildu sameinast Grikkjum, en
Georg og stjórn lians vildu lítil afskipti af hafa, braust óánægjan út Ijós-
um logum, og 1909 gjörði herinn samblástur (undir forustu Zorbas
ofursfa) og hefur síðan verið all-óeyrðarsamt á Grikklandi.
Hann var þjóðhöfðingi góður og vinsæll og er þetta hið versta
verk og Grikkjum sjálfsagt í stór skaða].
og Föstudaginn langa kl. 10—: 12
árd.
Þessi skip komu í gær:
Skúli fógeti, botuvörpungur,
með 50—60,000 fiskjar.
Bragi botnvörpungur, með 35
þús.
2 enskir botnvörpungar, annar
með 600 — 700 kitty.
Rouquail, franskur botnvörpung-
ur.
4
Knuut Skaalrean, kolaskip til
Björns Guðmundssonar.
Great Admiral, botnvörpungur,
skipst. Þórarinn Olgeirsson, með
yfir 20 þús.
Freir, botnvörpungur, skipstjóri
Guðm. Bjarnason, með 10 þús.
í nótt kom:
Snorri goði, botnvörpungur,
skipstj. Páll Mattíasson, nreð 25 þús.
lngólfur kom f nótt austan frá
Þorlákshöfn, þar sem átti að skila
saltfarmi. Gæftir voru illar og komust
ekki nema tveir bátsfarmar í land.
Tefst Ingólfur við að losa sig við
leifarnar, og því tvísýnt hvort suður
kemst í dag eða ekki.
Bergenhus var á Sauðarkróki í
gær.
Síðasta mannslát
frá Titanic.
Archibald Qracie ofursti
látinn. Meðal farþega á Titanic
var ameríkanskur hermálarithöfund-
ur, Archibald Gracie ofursti. Hon-
um varð bjargað, en endurminningar
hinnar hryllilegu nætur fylgdu hon-
um sem skuggi.
Hann tók sig því til að rita bók,
er heita átti »Sannleikurinn um
ófarir Titanics.* Hann kom sjer því
í frjettasamband við alla þá, er hann
gat náð í af þeim, sem eftirlifðu,
og eins við skipstjóra af skipum
þeim, er í námunda höfðu verið.
Hann ællaði sjer að gleyma
minningunum á þennan hátt, en
það varð honum ofraun. Þegar
hann var að enda við handritið
hrópaði hann alt í einu: »Það
verða allir að fá rúm, allir menn í
bátana.« Hann var orðinn albrjálað-
ur. Að þrem dögum liðnum dó
hann.
Útgáfu bókar hans er beðið með
mikilli óþreyu á Bretlaudi og í
Vesturheimi.
Er svo sagt, að hún flytji ýmsar
einkennilegar fregnir frá skiprekan-
um, er áður sjeu ókunnar.
Miljónamálið í Belgm
Sagt er að Belgfa muni verða
undir í máli því, sem staðið hefur
milli ríkisins og dætra Leopolds
sáluga Belgja konungs út af 60
miljónum franka, sem konunsur
hafði átt í svonefndri Koborg-
stofnun. Dómurinn fellur ekki fyr
en 2. apríl, en það er álitið víst,
að þannig fari, því málfærslumað-
ur ríkisins hefur lýst yfir því.
Lovísa prinsessa, dóttir Leopolds, t
er ógurlega skuldug, og bíða nú
skuldheimtumenn hennar með mik-
illi áhyggju fullra úrslita í þessu
máli.
I
Frakkar og Bretar treysta
vinskap sinn. Nýlega fór Winston
Churchill flotamálaráðherra Breta til
fundar við Baudin, er fer með
sömu mál fyrir hönd Frakka. Hitt-
ust þeir í Toulon. Var þar fagnað-
ur mikill út á orustuskipinu Vol-
taire. Mælti hver fyrir minni hins,
þjóðhöfðingja hans og flota.
II. Söfnuður S. d. adventista:
Samkomu- O ;™ við Grund-
húsið arstíg.
Guðsþjónustur Skírdag og Langa-
frjádag, báða dagana kl. 61]2 síðd.
Allir velkomnir. D. Östlund.
Skotæfingar voru gerðar á flotan-
um, og rómaði Churchill þær
mjög.
Austur-As^utfjelagið
danska hefur nýlega birt ársreikn-
ing sinn fyrir siðastliðið ár. Tekjur
þess hafa verið 15 miljónir og 800
þúsund krónur, en hreinn ágóði 5
miliónir 112,000 þús. krónur. Hlut-
hafar fengu 8 % af lúutum sínum,
en stórfje var lagt í varasjóð
og til frádráttar fyrir fyrn-
ingar og tjón. Þessu fjelagi ,er
talið best stjórnað í Danmörku, og
hefur það mikil viðskifti í öllum
heimsálfum, en þó mest í Asíu.
Það hefur nú 10 stór Diesel-
mótorskip í byggingu.
Fiskifrysiing. Ný að-
ferð. 5agt er að ný aðferð sje
fundin upp ul þess að frysta fisk,
er taki mikið fram hinum eldri.
Fiskurinn er frystur bráðlifandi,
þegar hann kemur úr sjónum, er
hann svo þýddur upp, þegar hann
kemur þangað, setn hann á að fara,
lifnar hann þá við, en er fljótlega
drepinn. Þykir riskurinn miklu betri
rneð þessari aðferð, eins og nærri
má geta.
Vjelar allmiklar þurfa við að-
ferð þessa, sem fundið hefur Otte-
sen fiskifræðingur í Thisted. Er
mikill undirbúningur í Danmörk til
þess að hagnýta uppgötvun þessa.
Kvennrjettindakonur á
Englandi.
í London gekk sú saga snemma
í mánuðinum, að hinar ensku kvenn-
rjettindakonur hafi gert tilraun til
þess, að nema á brott, Lloyd George
ráðherra og halda honum að gisli
til þess, er þeim yrði veittur kosn-
ingarjettur. Tilraunin mishepnaðist
fyrir árvekni lögreglu þeirrar, er
ráðherrann hefur sjer til gæslu.
Kvennrjettindakonur gera hvorki
að játa eða neita orðróm þessum.—
Svo setn áður hefur verið frá
sagt var form. kvennrjettindakvenna
á Englandi, frú Pankhurst, sett í
• fangejsi fyrir að hafa 'tekið á sig
ábyrgð á sprengingunni á húsi
Lloyd George, en skömmu síðar
látin laus gegn veði.
Nú hefur það sannast fyrir rjetti,
; að hún hefur sjálf undirbúið vjel-
ræði þetta, og fengið einhverja ó-
þekta þursa til að framkvæma það.
Ekki vildi frú Pankhurst lofa
því, að hegða sjer siðsamlega meðan
stæði á máli hennar, var hún þá
aftur sett inn í fangelsið í Guild-
ford.
Málsóknin gegn henni byrjar í
maí.