Vísir - 27.04.1913, Blaðsíða 1
503
8
bestir ódýrasrir
i verslun
Einars Árnasonar.
Fæðingardagar.
Besta afmælisgjöfin, fæst á afgreiðslu
Vísis.
Kemur venjul.út alla daga nema laugard. 25 blöð frá 18. apríl kosta á afgr.50 aura Skrifstofa í Hafnarstræti 20. Venju- j Langbesti augl.staður i bænum. Aupl.
Afgr.í Hafnarstræti 20. kl. ll-3og4-8. Send út um land 60 au.— EinsL blöð 3 au’ lega opin kl. 2—4. Sínii 400. j sje skilað fyrir kl.3 daginn fyiir birtingu.
Sunnud. 27. aprtl 1913.
Háflóðki,10,8‘árd. og ki. 10,41' síðd.
Háfjara hjerumbil 6 st. 12‘ síðar.
Afmœli;
Jón Jónasson, útvegsbóndi.
Á morgun:
Póstácetlun.
Botnía kemur frá útlöndum.
J&lfcUttjijwtestttt:
\ $z\áL
í kveld kl. 7 síðd.
Efni: Sáttmáli góðrar sam-
visku við guð. Hver erhann?
Hvenær og hvernig er hann
gerður?
Allir velkomnir.
O. J. Olsen.
1. Söfnuður S. d. adventista:
Samkomu- 0*p^^^,við Grund-
húsið arstíg.
Opinberar samkomur á sunnu-
dögum kl. öVst síðd.
Allir velkomnir. O. Östund.
Drekkið
Egilsmjöð og Maltextrakt frá
innlendu
ölgerðinni
„Agii Skallagrímssyni“.
ÖHð mælir með sjer sjálft.
Sírni 390.
taudx.
Heklugos.
Fyrstu frjettir.
Eyrarbakka, föstud. kl. 4. 1
Kiukkan 3 í nótt varð vart hjer
við jarðskjálfta, hann var þó svo
hægur að ekki fjellu munir af hyll-
uni, síðar um nóttina komu hier 3
aðrir kippir, allir fremur hægir.
Uppi í sýslu var stöðugur hrist-
ingur frá kl. 3 til 6 í morgun, en
þó fremur hægur. Þegar birti í morg-
un sást gufumökkur mikill fyrir
framan og austan Heklu og stóð
hann beint í loft upp. Ætla menn
að eldurinn sje í lægð mikilli, rjett
norðaustur af fjallinu. Þar er alt
fult af snjó og hefur hann bráðnað
og runnið í eldhafið.
Engar dunur eða dynkir hafa
heyrst, en fjallið er nú hulið þoku,
svo ekki sjest til mökksins.
Tveir eldar.
Eyrarbakka, föstud. kl. 8 síðd.
Nú sjest glögt porðaustur til
Heklu og eru eldarnir tveir. Sá,
sem nú er kominn f/am, er miklu
fjær. Mökkurinn þaðan er afar
stórfeldur og svartur. Hinn mökk-
urinn er og farinn að dökkna. Þessi
nýi mökkur er í beinni átt til Vatna-
jökuls, en mun þó vera miklu nær,
því frá Vestmannaeyum bera mekk-
irnir saman (þ. e. sjest ekki nema
einn mökkur.)
jarðskjálftakippir hafa verið nokkr-
ir hjer og nú einnig miklir dynkir
heyrast. Nú ætla menn að þessi
nýi eldur sje í Valahnjúk. Hekla
er nú orðiri dimmblá, þó er það
ekki af því að snjórinn á henni sje
bráðnaður, heldur niun reykur hafa
lagst um hana. Ekki er enn eld-
litur á lofti.
jarðskjálftinn var svo mikili í
nótt á Rangárvöllum, að fólk flýði
úr bæunum og lá úti í tjöldum.
Frá efstu bæum við Heklu hefur
ekki frjest enrt.
Á Ægisíðu sást aska á vatni í
dag.
Stórfelí eidsvæði.
Eyrarbakka, laugard.
í gærkveldi sáust eldarnir mjög
vel — háir og stórir eldstólpar og
einkar fagrir ásýndum.
Nú mátti sjá að eldarnir, sent nær
eru, eru tveir, má fullyrða að ann-
ar þeirra sje í Krakatindi, sem gaus
1878.
Þeir, sem fjær eru. eru aftur mjög
margir og virðast vera á mílu breiöu
svæði.
Svo virtist, sem Hekla sjalf væri
farin að loga, en það sjest elcki
1 glögt. Snjórinn bráðnar óðum af
henni og er hún nú auð efst.
Dunur og dynkir heyrast við og
við, sem fallbyssuskot. Jarskjálfta-
kippir eru og við og við, en hægir.
Víða hjer eystra svaf fólk í föt-
um í nótt og margir í tjöldum.
Mikil brennisteinsfýla er nú í
Ioftinu, en ekki hefur veruiega orð-
ið vart við ösku.
Vestmanneyingar ætla að einn
eldurinn sje í Torfajökli. En víst
er um að eldsvæðið er mjög stórt.
Jarðsprunga.
Efra-Hvoli, laugard.kveld.
Jeg var staddur í Hvammi und-
ir Eyafjöllum nóttina milli 24. og 25.
Frá því kl. 3 og til fram um miðj-
an morgun töldum við þar um 20
kippi. Harðastur var kippurinn kl. 5.
— Unt það leyti sá Vigfús bóndi.
á Brúnum í V. Eyafjailahr. koma
ttpp mökk mikinn norð-austan við
Heldii.
í gærkveldi var frá Miðey að sjá
eldstólpa um Heklu og samanhang-
andi eldglampa þar langt austur frá
með mörgum eldtungum, svo sem
væri þar jarðsprunga vnikil með
gígum.
Nú er að sjá biksvarta rák frá
rótum Heklu í áttina til Krakatinds
| og öll er Hekla rykug að austan.
Hjer er mikil lykt i lofti, áþekk
\ eins og þegar sjóðheitu járni er
í dýft í vatn. B.
Að ausian
hefur fretst um tvo skipreka, ann-
an á Sijettuleitisfjöru, en hinn í
Lóni. Það voru hvorttveggja
frakknesk fiskiskip, mannlaus og
brunnin öll ofan. Þykja þetta
mjög undarlegir rekar og hjá-
trúaðir menn ætla, að það bendi
til stórtíðindi (frá Heklu).
Af Akranesi.
Mótorbátar hjeðan nokkrir eru
að veiðum í Garðinum og Sattd-
gerði og hafa aflað 6—10 þúsund
af netafiski.
Róðrarbátar heimafyrir hafa mjög
•'tið aflað, enda ógæftir miklar.
Af Vatnsleysuströnd.
Dáinn er Itjer á sunnudaginn var
rnerkisbóndinn Ouðrnundur Ouð-
muudsson á Auðnum, eftir lang-
varandi legu. Var á áttræðisaldri.
Gildur bóndi og Vel fjáður. Jarðar-
förin fer fram 6. rnaí.
Úr Garðinum.
Aflalaust er nú orðið hjer og
í Leirunni.
Dingmálafundi halda þingmanns-
efnin þessa dagana ltjer unt slóðir.
F»ingmálafundur verður
haldinn í Hafnarfirði 30. þ. m.
kl. 6 síðd.
Skeiðará hlaupin,
Eyrarbakka, föstud.
Hlaup byrjaði í Skeiðará í fyrra-
dag. Var hraðboði sendur austur
til þess að stöðva póstinn. Sýslu-
maður var fyrir austan ána og kemst
ekki heim nema sjóveg til Reykja-
víkur. Aðal-hlaupið ekki orðið
enn.
Mótorskipið Hekla ferst.
Bolungarvík, föstud.
{ nótt strandaði hjer í ofsaroki,
mótorskipið Hekla frá Akureyri
Mönnum varð bjargað í land á sfð-
asta augnabliki.
Akureyrarfrjettir.
Akureyri, laugard.
Hólum hlekkist á. Á Kópa-
skeri í Þingeyarsýslu mistu Hólar
þrjú af fjórum skrúfublöðum sínum.
Mannslát. Nýdáinn er ifristján
bóndi fónsson á Ulfsbæ í Þingeyar-
sýslu. Fjörgamall og blindur í nolck-
ur ár. Góður bóndi meðan hann
naut sín fyrir elli.
Ökumannafjelag er hjer stofn
að og hefur það samið verðskrá.
60 aura um klukkutímann taka þeir
fyrir fólksft. kerru með 1 hesti fyrir.
Aflalaust er hjcr með öllu.
Samsöng mikinn hjeldu á sunnu-
daginn söngmeistarar vorir, þeir
Geir biskup Sæmundsson og lækn-
arnir þrír, Steingr. Mattíasson, Valde-
mar Stephensen og Sigurður Ein-
arsson, og urðu menn stórhrifnir.
lðnskólanum hjer var sagt upp
á sunnudaginn. Hafa þar verið 34
nemendur. Forstöðumaður skólans
er Adam Þorgrímsson. Hann fer
til Vesturheims í sumar.
Barnaskólabörn skemtu bæar-
búum hjer á sunnudaginn með leik-
fimissýningu, upplestri og söng.
Var verulega ánægjulegt að sjá og
heyra til þeirra.
Efrahvoli, laugard.
Jarðarför Kjartans
pröfasts
Einarssonar var í gær og þar
samankomið mikið fjölmenni —
frek 300.
Bátstapar.
Bolungarvík, fimtudag.
I ofsaveðri í dag fórst mótor-
bátur hjeðan úti á djúpi. Mann-
björg varð með naumindum. Ann-
an mótorbát rak hjer upp og
brotnaðí hann í spón. Átta mót-
orbátar hjeðan hleyptu inn til
ísafjarðar.
I Hnífsdal brotnuðu fjórir
mótorbátar.
Garða-prestakall-!
Eyafirði, laugard.
Sökum sundrungarinnar í söfn-
uðumGarða-prestakalls ætlar sjera
Þorsteinn Briem ekki að taka við
prestakallinu, og mun því verða
slegið upp aftur sem lausu.
Biðjið kaupmann yðar
um pálmasmjör!
y
Ur bænum.
Eldbjarma allmikinn sáu menn
hjer í gærkveldi í austri. Fór fjöldi
manns upp að Skólavörðu að skoða
hann þar.
Æfintýrið er leikið í síðasta sinn
í kvöld. Hefur verið hjer leikið alls
15 sinnum í vetur.
Jarðskjálftamælirinn liefur ver-
ið allórór, einkum í fyrramorgun og
sýndi stöðugan hristing eftir kl. 4
fram á niorgun. Sterkastir kippir
voru kl. 4,20’ og ld. 4,25’ í fyrra-
morgun.
La France, spítalaskipið kom í
gær. I gærkveldi rak það upp að
»Battaríinu« hjer, en skemdist ekki
til muna, og hafði sig sjálft út.
(Frarnhald á öftustu blaðsíðu.)