Vísir - 02.06.1913, Blaðsíða 2
hennar á bekk með hinum bestu
leikkonum, sem jeg hef sjeð, og jeg
hef sjeð margar góðar.
En Quðrún Indriðadóttir er nieira
en leikari. Hún er sá leikfróðasti
kvennmaður, sem jeg hefi kynst. Hún
er allstaðar heima í heimi leikenda.
Hún er kunnug flestum meiri hát!-
ar leikjum menningarlandanna, og
fylgist ágætlega vel með tímanum í
þeim efnum. Hún þekkir alla merka
leikara, danska, enska, norska, franska
og ameríkanska að nafni, og veit
hvers konar leikarar þeir eru, hvaða
hlutverk láta þeim best ogfyrir hvaða
leik þeir hafa orðið frægastir.
Maude Adams, Viola Allen, John
Drew, Robert Mantell, Nat Good-
win og Lillian Russell eru henni
gagnkunnugar persónur, þó hún
hafi sjeð þær fæstar. Hún hefur
lesið um þær grandgæfilega og veit
uppa sína tíu fingur frægðarsögur
þeirra.
Guðrún Indriðadóttir er því leik-
kona í orðsins fylsta skilningi. Hún
er lista-leikari og þekkir leikheiminn.
Þess vegna er það að henni fylgja
nú hugheilar óskir Vestur-íslendinga
um langt og frægt skeið á lista-
brautinni.
G. Tr. i.
Minnisvarði
Jóns Signrðssonar.
Væntanleg mun bráðum skilagrein
í prentuðum ritling yfir samskotin 1
og meðferð þeirra. AIIs námu sam-
skotin um 23 þús. kr., af því ICR/2
þús. frá löndum vestra og tæp 12
þús. hjer heima, 849 kr. frá Höfn.
Gefendur í Vesturheimi rúml. 6 þús.,
hjer heima um 16 þús., sein taldir
eru, en munu vera fleiri. Afgangur
er nú hátt á 2. þús. En eftir er
kostnaður við ritlinginn og þurfi
að girða hólinn um standmyndina.
Ekki þurfti að taka neitt á eldra
samskotafjenu, væntanl. um 5 þús.
kr., sem þeir hafa hönd yfir, er enn
lifa frá nefndinni 1880, þeir Tryggvi
bankastjóri Gunnarsson og prófessor
B. M. Olsen.
(Nýtt Kirkjublað, 15 júní.)
»
Ur bænum.
Sveinn V. Sveinsson, stud.
med. & chir., andaðist í fyrri nótt.
Hann var greindur og einkarvel
látinn piltur og mikil eftirsjón
að honum, Var byrjaður að taka
embættispróf.
Drekkið Egilsmjöð og Malt-
extraktfrá innlendu Ölgerðinni «Aglí
Skallagrímssyni«. Ölið mælir með
sjer sjálft. Sími 390.
A. Heusier prófessor, háskóla-
kennari í Berlín, kom með Botníu
í gær; er hann mikill fslandsvin-
ur og talar mjög skýrt og vel
íslensku. Hann ætlar að dvelja
hjer næstu 3 mánuði, og er gott
að fagna slíkum gestum.
Botnía kom í gær um hádegi
og með henni freklega 120 manns.
Voru uni 50 manns á fyrsta far-
rúmi og 70 á öðru. Meðal annara
komu Claessen skrifstofustjóri, bróðir
landfjehirðis, yfirdómslögmaður E.
Classen, verkfræðingur Jón Þorláks-
son Lefoli stórkaupmaður, Ólafur
Árnason kaupmaður, Friðrik Jóns-
son kaupin.JónasKristjánsson Iæknir,
Fransl Coockson, enskur verkfr.,
ungfrú Helga Torlacius, tveir tiski-
fræðitigar J. C. Selous og Heatley
Noble, stúdentarnir Ólafur Thors,
O. Tryggvi, Halldór Þorsteinsson
og Hjeðinn Valdemarsson, tveir synir
Guðm.Jakobssonarogsynir P.J.Thor-
steinssonar. FráVestmanneyum komn
Jón Laxdal kaupmaður rneí) frú,
P. J. Thorsteinsson kaupmaður og
Eyvindur Arnason snikkari.
Vesturíslendingar þessir komu
með Botníu í gær: Sveinn Odds-
son og Jón Sigmundsson frá Canada,
Ásmundur Jóhannesson með konu
og þrjú börn, Guðm. Christie frá
frá Gimli með konu, Kristján Krist-
jánsson meö konu, Sigurður Sig-
urðsson og ungfrú Margrjet Bár-
dal.
Guðm. Sigurjónsson glíniu-
kappi kom með Botníu í gær.
Hefur hann verið erlendis um sjö
vikna tíma. og dvaldið þá mest í
Lundúnum. Hann leggur aftur af
sfað hjeðan með Botníu vestur og
ætlar að kenna sund á Reykja-
nesi urn mánaðartíma. Síðan fer
hann til Vesímannaeya og kennir
þar íþróttir (aðallega sund) í tvo
mánuði.
Mótorvagn vandaðan komu þeir
með hingað frá Vesturheimi Svei.nn
Oddsson óg Jón Sigmundsson og
ætla að reyna hann á vegunumim
hjer.
Dr. Helgi Pjeturss. hjelt anri-
an fyrirlestur sinn í gærkveldi í
Bárubúð um ibúa annara stjarna.
Voru áheyrendur helst til fáir — um
hundrað —, þar sem liann benti á
ýms fhugunarefni, svo sem honum
er lagið, og gat verið besta gagn að
fyrirlestrinum, eins þeim er ekki
trúa að aðrir hnettir sjeu bygðir
eða að samband hafi náðst til þeirra
vera.
Samsöng hjelt söngfjelagið 17.
júní í Bárubúð í gærkveldi og þótti
takast einkar vel. í söngsveitinni
eru 20 manns og eru þeir einkar
vel æfðir undir stjórn Sigfúsar Ein-
arssonar tónskálds. Tólf voru lögin
á skránni og var klappað mjög.
Húsfyllir var.
[ Ekki er alt gull,
sem glóir.
‘3
Skáldsaga
eftir Chartes Garvice.
.------ Frh.
sFlökkumennirnir voru hjer kveld-
áðurið en innbrotið var framið.
‘Viljið þjer lofa mjer að líta á
húfuna.«
Raymond skoðaði hana í krók
og kring. »Nú held jeg að jeg
geti hjálpað yður dálítið,« sagði hann
• svo« og sagði svo frá, hvernig
j hefði verið ráðist á hann fyrir
■ nokkru og stolið af honum úrinu
hans og festinni.
»Þetta er sannarlega mjög mikils-
vert,« sagði Fruser, þegar Raymond
hafði lokið sögu sinni.
»Getið þjer gefið mér lýsingu
af þessum manni.*
»Já« svaraði Raymond og gaf
honum nákvæma lýsingu af Ta- \
zoni. í
1 R
»Þakka yður fvrir* sagði Fruser |
nú vil !i jeg biðja yður, uni að ]
láta mig fá Ijettan vagn og fljótan
hest, því það er vfst best, að ná
í þetta fiökkufólk, áður en það
kemst of langt í burtu.«
»Það er alveg rjett hjá yður,«
svarani Raymond; »eg vona að
yður heppnist, sem fyrst að koma
bófunum í hendur rjettvísinnar, þjer
munuð fá fyrirhöfn yðar lauiiaða
að maklegleikum.f
Hann gaf nákvæmar gætur, að
Fruser um leið og hann sagði þetta
og áleit sig ekki lítið skarpskygn-
ari og hygnari, en þennan letilega
og daufgerða mann, sem alt af
leit út eins og hann væri hálf sof-
andi og aldrei virtist geta sofnað,
nema til hálfs. Einkum var hann
upp með sjer yfir hvað vel hann
hafði leikið á hann með því, að
vekja grun hans á flökkumannin-
um og einnig yfir því, hve fimlega
honum hafði tekist að afmá öll vegs-
ummerki úr fjárhirslunni, án þess
að koma nokkuð nærri sjálfur.
Ef hann hefði getað lesið hugs-
anir Iögregluþjónsins, hefði hon-
um að h'kindum ekki verið alveg
eins skaprótt.
21. kapítuli.
Eftir tveggja tíma hraða ferð náði
Fruser leynilögregluþjónn flökku-
mannavögnunum.
Hann steig niður úr vagni sín-
um, skipaði vagnstjóranum að standa
álengdar og gekk til flökkumann-
anna og spurði eftir foringja þeirra.
»Hann er ekki heima«, var svar-
að.
»Hvað er hann búinn að vera
lengi að heiman?« spnrði Fruser,
»Hvað varðar yður um það?«
spurði sá, sem fyrir svörum varð.
»Hver er að spyrja eftir Tazoni?*
sagði nú Marta gamla og staulaðist
út.
»Jeg er að spyrja eftir honum,
kona góð,« svaraði Fruser.
»Ef Raymond lávarður hefur sent
yður, þá skuluð þjer skila til hans
frá mjer, að jeg skuli finnna stúlk-
una aftur, þó að jeg þttrfi að slíta
hann sundttr til þess að láta hann
meðganga.«
»Jeg skil yður ekki,« svaraði Fru-
ser.
»Nú, ekki það; hvaða erindi eig-
ið þjer þá hingað?«
»Ef jeg á að seigja yður eins
og er, þá var framið innbrot hjá
Northbridge jarli í nótt, og í morg-
un fanst húfa foringja ykkar í fje-
hirzlunni.«
»Einmitt það,« svaraði Martha.
»Enn í nótt var Tazoni á leið til
Lundúna til þess að leita að stúlk-
unni, sem þorparinn stal í gær-
kveldi.«
»Það er eftir að sanna það,«
sagði Fruser kuldalega.
»Þjer ætlið líklega að sanna, að
Tasoni sje þjófurinn og láta svo
Raymond sleppa. En jeg skal Iáta
yður vita, að áður en lýkur, skal
jeg koma Raymond í hegningarhús-
ið. Þar á hann heima, og ef þjer
nú ekki snáfið burt undir eins, þá
skal jeg siga hundunum á yður.«
Fruser fór undireins, en vonaði,
að ef til vill mundi þessi gamla
kona seinna geta hjálpað honum l
við hið erfiða verk, sem hann nú
átti fyrir höndum.
»Það er annars einkennilegur
ungrir maður, þessi Raymond —
það er best að hafa gætur á hon-
um,« hugsaði Fruser með sjer; »það
væti ef til vi*l ekki svo vitlaust, að
kynna sjer dálítið æfiferil hans.«
Morguninn eftir fórhann til North-
bridge og gerði boð fyrir lávárð-
inn.
Raymond sýndist hann ennþá
letilegri en áður og styrktist enn bet-
ur í þeirri sannfæringu, að Fruser
væri einhver fákænasti maður, sem
hann hefði nokkru sinni komist í
kynni við, en hann vissi ekki, að
Fruser gaf mjög nákvæmar gætur
að hcnum. Frh.
| HEITUR MATUR |
h fæst allan daginn á Lauga-
jf veg 23. Einnig fæst brauð
p og smjör, margar tegundir
af öli og limcnade, kaffi,
sukkulade o. fl.
f\agsmuua
og notið ekki cement, nema þetta
skrásetta vörumerki
sje á umbúðunum.
Guðm. Benjamínsson, Grettisg.
10., ilytur fólk og flutning milli Rvíkur
og Hafnarfjarðar Sími 149.
<3amalt gert nýtt.
Allskonar aðgerðir á orgelum
og öðrum hljóðfærum. Margra
ára ábyrgð tekin á verkinu.
Markús Þorsteinsson, Frakkast.9.
_____yuttu.
Guðm. Pjetursson, massage-
læknir, er fluttur á Hverfisgötu 45.
(miðdyrnar.) Sími 394. Heima kl.
6—7 síðd.
KAUPSKAPUR
Áburð kauþir Laugarnesspítali.
Stúlka óskar eftir atvinnu mán
aðar tíma. Afgr. v. á.
Skrifstofustörf.
Vel mentaður kvennmaður, sem
æft hefur ritvjelaskrift og er fær
um að skrifa ensku og dönsku,
getur innan skamms fengið at-
vinnu hjer í bænum.
Eigin handar umsóknir óskast
sendar afgreiðslu blaðsins, merkt-
ar: »business«.
Fæði og húsnæði
fæst á Laugaveg 30. Hentugt
fyrir gesti, sem j<oma til bæarins
ogdvelja langa eða skamma
stund.
Útgefandi:
Einar Gunnarssou, cand. ph’l.
Östlunds-prent&miðja.