Vísir - 07.06.1913, Blaðsíða 4
VI 5 I R
íEkkert, íierra minn! Jeg bið
afsökunar! Nei, Bellmaire jarl
hefur ekki kotnið hjer.«
»Rjett í þessu var drepið á dyr
og Bobby Plovers kom inn.
»Ó, herra Brandon; herra góður!«
hrópaði hann með andköfum.
■•Vfirforinginn! herra! — hann er
að deyja!«
Godfrey þaut upp og greip hatt
sinn.
»Segðu mjer þetta betur og vertu
samferða, Bobby!« sagði hann. Þeir
fóru og Bobby átti fult í fangi að
fylgja honum eftir, en hann sagði
frá því, er við hafði borið.
Godfrey varp öndinni. Hann
hafði þá verið upp á hæðinm,
meðan unnusta hans hafði hent
þessi sorg!
»Og ungfrú Cymbelína — sendi
hún þig til mín?«
»Nei, herra minn! — hún sagði
ekki eitt einasta orð. En jeg hjelt
að yður þætti betra að vita þetta
og fór undir eins. Jeg hef setið
fyrir yður, en við fórumst ein-
hvernveginn á mis.«
»í>ú ert góður drengur!« sagði
Godfrey og gaf honum skiiding.
»Er Cymbelína alein hjá föður
sínum?«
»Nei, Bradworthy lögmaður og
læknir eru þar líka, og sömuleiðis
Bellmaire jarl!«
Godfrey var einhvernveginn ógeð-
fellt, að jarlinn skyldi vera þar.
»t>ú þarft ekki að fylgja mjer,
Bobby! Snúðu við og segðu mad-
dömu Slade, að jeg komi ekki aft-
ur í dag til að borða miðdegis-
verð.«
Nú var hann kominn að Hjá-
leigunni og flýtti sjer inn um hlið-
ið. Fólkið var nú farið, sem safn-
ast hafði þar saman. En Slade var
þar einn á reiki og ráfaði burt,
þegar hann sá Godfrey. Godfrey
hringdi ekki, en gekk rakleiðis inn.
Þar var óvenju hljótt og hann beið
um stund í fordyrinu, þangað til
stúlka kom úr eldhúsinu.
»Gerið svo vel að segja ung-
frú Cymbelínu, að jeg sje kominn!«
sagði hann. Hann spurði ekki '
einu sinni að því, hvernig North \
hði. Hugur hans var allur hjá
Cymbelínu.
Stúlkan, s°m þekkti hann og
geðjaðist vel að honum, eins og
öðru fólki þar í húsinu, brosti
raunalega og fór upp á ioft.
Stundarbiðin varð löng og God-
frey fór inn í dagstofuna og stik-
aði óþolinmóður fram og aftur
um gólfið. Svo kom stúlkan loks
inn og hann sá, að hún hafði saman-
brotinn miða í hendinni. Hann tók
við honum og reif hann úr brot-
unum. Á honum var þettað ritað:
»Faðir minn hefur fengið með-
vitund; en er enn í hættu. Jeg get
ekki farið frá honum. Þökk fyrir ,
heimsóknina!«
Það var eins og skvett væri á
hann köldu vatni. Svo kalt var .
brjefið. Ekkert hlýtt orð! Ekkert ;
nafn, ekki svo mikið sem nafnið
hennar undir! Kaldara skeyti hafði
hún ekki getað sent allsendis
ökendum og óviðkomandi manni.
Hann fann þetta ekki til fullnustu
í fyrstu, meðan hann var inni í
stofunni, en hann kendi þess því
tyrirl
iiaida þau
; og Mrs. Cox
sunnudagskveldið 8. júni kl. 8,15 í Verslunarskólanum
(Vesturgötu 10).
Allir vslkomnir óksypís.
Húsbændur í Fríkirkjunni, sem
hafa blinda menn eða mál- eða
heyrnar-lausa á heimili sínu, gjöri
Eríkirkjuprestinum aövart sern fyrst.
meir þegar hann var íarinn út. —
»Segið ungfrú Cymbelínu, að það
gleðji mig mjög, að föður liennar
líði betur, og segið henni líka, að
jeg komi seinna. — Hvernig líður
henni?« bætti iiann við.
Stúlkan var með grátstafinn í
kverkunum og átti bágt með að tala.
»'Ó, veslings, veslings Lína!« sagði
hún. »Guð minn góður, Godfrey!
Þjer munduð ekki þekkja hana. Hún
er gerbreytt. Þarna er hún náföl
eins og líkneski. Þetta hlýtur að
hafa fengið voðalega á hana, —
já, fregnin sjálf, því þegar hún kom
inn og áður en hún sá húsbónd-
ann, var hún föl og bleik sern dauð-
inn.«
Godfrey varð óttasleginn og hún
tók eftir því.
»Þjer verðið að vera rólegur,
Godfrey,« sagði hún. »Ungfrú
Cymbelína nær sier aftur! jeg skal
líta eftir henni.«
Frh.
Ódýr syknr
r fæst í verslun
Asgríms
Eyþórssotiar
Austurstræti 18.
Sími 316.
Ratin.
til söiu. Semjið við
9
Ágætt brent og malað
KAFFI
fæst í verslunn
Asgrfms Eyþórssonar
Austurstræti 18. Sími 316.
rganne
Yfirrjettardó mar.
28. apríl 1913.
Rjettvísin gegn Vilhjálmi Chr.
Hákonarsyni. Málið var höfðað
gegn ákærða fyrir sviksamlegt at-
hæfi í sambandi við eldsvoðaábyrgð.
Dórtiur.
V. Chr. Hákonarson á að sæta
2x5 daga fangelsi við vatn og
brauð, og greiða allan af málinu
leiðandi kostnað við undir- og
yfir-rjett.
5. maí 1913.
1. Kr. Linnet gegn Friðrík Svip-
mnndarsyni. Málið var risið út af
meðferð stefnda á veiðarfærum og
fiski, tiiheyrandi mótorbátunum
»Vestmanney« og »Gnoð«. Gesta-
rjetturinn sýknaði Friðrik Svip-
mundarson af kæru stefnanda. Máls-
kostnaður fjell niður.
Dómur.
Gestarjettardómurinn á óraskaður
að vera. Málskostnaður fyrir yfir-
dómi falii niður.
2. Landsbanki ísland gegn Jakob
Jónssyni fyrir hönd eigenda skips-
ins IHO. Bankinn hafði krafist fjár-
náms í fiskiskipinu »lHO«, en fó-
geti kveðið upp með úrskurði, að
fjárnám skyldi eigi gjört.
Dómur.
Hinum áfrýjaða úrskurði skal
óraskað. Málskostnaður fyrir yfir-
rjetti falli niður.
2—3 Ds. »Raiin óskasi
keypiar nú þegar.
Afgr. v. á.
Lögrjettu dauð og markíaus, en
ritstjórann Þorst. Gíslason í 100 kr.
sekt eða 20 daga fangelsi og 30 kr.
málskostnað.
Dómur.
Bæarþingsdómur á óraskaður að
vera. Áfrýandi Þorsteinn Oíslason
greiði stefnda B. Kristjánssyni banka-
stjóra í málskostnað fyrir yfirdómi
30 kr.
ódýrasí og best í verslun
Ásgríms Eyþárssonar
»
Austursíræti 18. — Sími 316.
V 1 £VS H A
Upp-
Stúlka getur fengið vist
sölum nú þegar.
Kaupakonu vantar á gott heim-
ili í Borgarfirði. Þurrar engiar
gott kaup. Semja má við Árna
kaupm. Eíríksson. Rvík, heist iyrir
8. júní.
3. Þorsteinn Gíslason gegn Birni
Kristjánssyni. Málið var risið út
afmeiðyrðumí 12.tb1.7.árg. Lögrj ettu.
Undirrjettur dæmdi flest ummæli
4 Þorsteinn Gíslason gegn Birni
Sigurðssyni. Málið var risið útaf
sömu grein í Lögrjettu og næsta
mál á undan. Bæjarþingsdómur
hinn sami og í því máli, yfirrjettar-
dómurinti sönutieiöis-
19. maí 1913.
1. Björn Líndal gegnjakob Björns-
syni íyrir hönd síldarútgerðarinnar
Melbo í Noregi. Málið var risið
út af ieigusamningi og út af því,
að Bj. Líndal ljet leggja löghald á
skipabryggju og síldarpalla til trygg-
ingar leigu af ióð. Undirrjettur
felldi kyrsetningargjörðina úr gildi,
sýknaði Jak. Björnsson af kröfum
I áfrýanda og dæmdi hann í 250 kr.
skaðabætur og 40 kr. málskostnað.
Dómur.
Hin áfrýaða kyrsetningargjörð skal
úr gildi feld og stefndi Jak. Björns-
son fyrir hönd síldarútgerðarinnar
Melbo í Noregi vera sýkn af kröf-
um áfrýanda, Bj. Líndals, í þessu
máli. í málskostnað fyrir undirrjetti
og yfirdómi greiði áfrýandi stefnda
60 kr.
2. Rjettvísin gegn Guðna Einars-
; syni. Með undirrjettardómi var
j ákærði Guðni Einarsson dæmdur
J fyrir innbrotsþjófnað í 1 árs betr-
unarhúsvinnu og greiða allan sakar-
kostnaðinn.
Dómur:
Ákærði Guðni Einarsson sæti
4x5 daga fangelsi við vatn og
brauð og greiði ailan af málinu
í hjeraði og fyrir yfirdómi löglega
leiðandi kostnað. Frh.
KAÖFSKAFUR
Peíitofon nýr til söiu ásamt nokkr-
um lögum. Afgr. v. á.
Hjólbörur litlar óskast til kaups.
Afgr. v. á.
Rósir útsprungnar|fást á Skóiav.-
stíg 6B.
Nýr lystivagn til söiu nú þegar.
Afgr. v. á.
Piano, 900 króna, iítið brúkað,
er til sölu fyrir hálfvirði sökum
burtfara. Afgr. v. á,_________
Resðföt
nýieg og góð eru tíi sölit á Berg-
staðastræti 19.
ÍTAPAÐ-FUNDI-Ð
15 kr. í umslagi hafa tapast fra
Hafnaríirði til Rvík., finnandi er beð-
inn að skila til ÁstríðarPjetursdóhur í
Lækjargötu 12 A.
2 herbergi eldhús og geymslu
pláss óskast til leigu 1. okt. Afgr.
v. á.
Bankaseðill fundinn. Laugv. 73.
H Ú S N Æ Ð I Q
Stofa mót sól óskast frá 1. júlí
n. k. Afgr. v. á.
3—5 herbergja íbúð óskast ti!
leigu helst sem fyrst á góðrnn stað
í bænum. Tilboð merkt »Ibuð«
sendist í lokuðu umslagi á skrif-
stofu Vísís.
íbúðarherbergi í kjallara til
leigu nú þegar á Lindarg. 43.
Herbergi mót sól óskast fra
1. júlí, helst nálægt miðbæ. Afgr.
v. á.______________________ _
~ Lítið herbergi
ineð húsgögnuin óskast til leigu
frá 11. þ. m. Afgr. v. á.