Vísir - 13.06.1913, Page 1
637
2
m
k
i
§a
i
^4-r-í-ba beslir ódýrascr
ÖTQ P i verslun
^ ^vvX PinctrQ Árno
Einars Árnasonar.
æ583mæ®S53S5SSS{«&^æJ!5®S8B88S@8SS8B8«®œí
m
m
§
i
i
i
M
Stimpla og
Bnnsiglismerki
útvegar afgr.
Vísis.
Sýnishorn
liggjaframmi.
>sí
m
1
Kemur út alla virka daga. — Simi 400.
Afgr.í Hafnarstræti 20, kl. il-3og4-7.
25 biöð frá 12. júní kosta á afgr.50 aura. Skrifstofa í Hafnarstræti 20. Venju-
Send út um land 60 au — Einst. blöð 3 au. lega opin kl. 2—4. Sími 400.
Langbesti augl.staður í bænum. Augl.
sje skilað fyrir kl.3 daginn fytir birtingu
Föstud. 13. júní 1913.
Háflóð kl.l 2,12árd. og k!.12,53‘síðd.
Afmæli.
Árni Árnason, söðlasm.
Árni Jóhannsson, bankaritari.
Guðni. E. J. Guðmundsson, bryggu-
smiður.
Veðrátta í dag.
> U—i . o £ a ‘xO C3 Æ T3 C > 'OD u* =5 tO <u >
Vestme. 755,3! 5,6 s 8 Regn
Rvík. 753,5 7,0 SA 2 Regn
ísaf. ,754,3 5,7 A 6 Regn
Akureyri 755,9 6,8 S 4 Skýað
Grímsst. 721,0 4,5 SSA 3 Skýað
Seyðisf. 75 7,Ó 8,3 SSV 3 Skýað
Þórshöfn 764,6 i 8,4 I VSV 3 Skýað j
N —norð- eða norðan,A—aust-eða
austan, S—suð- eða sunnan, V—vest-
eða vestan.
Vindhæð er talin í stigum þann-
■g ;0—logn,l—andvari,2—kul, 3—
goia, 4—kaldi, 5—stinningsgola, 6—
síinningskaldi,7—snarpur vindur,8—
hvas3viðri,9 stormur.l 0—rok, 11 —
ofsaveður, 12—fárviðri.
Skáleturstölur í hita merkja frost.
Líkkktlirnor viðurkendu, ódýru.fást
LUtVhiðllJl íldl ávalt tilbúnar á Hverfis-
• otu 6,—Sími 93.—HELQI og EINAR.
K. F. U. M.
Kl. 8x/2 Væringjaæfing.
— ■— Fóiboltasvæði, w7z«íz(fjöl-
mennið).
Vísir kemur út aftur kl. 4 í
dag með frásögn af viðburðun-
uni i gær.
\
Ur bænum.
í gærkveldi.
Eftir fundarboði þingmanna
Reykjavíkur var haldinn borgara-
fundur í gærkveldi kl. 9 í Barna-
skólagarðinum. Kom þar saman
fjölmenni svo mikið, að varla
hefur meira verið hjer saman-
komið fyr.
Fundarstjóri var kosinn Magn-
ús Einarsson dýralæknir, en hann
nefndi sjer skrifara Ólaf Bjöms-
son ritstjóra og Björn Pálsson
ritstjóra.
Fyrstur tók til máls Lárus H.
Bjarnason prófessor, þá mælti
Jón dócent Jónsson; enn talaði
Bjarni Jónsson frá Vogi, Árni
sagnfræðingur Pálsson og Árni
Árnason. Var borin upp svo-
hljóðandi tillaga LárusarH.Bjarna-
sonar:
Fundurinn mótmælir eindreg-
ið hervaids tiltektiun «Fáikans«
á Reykjavíkurhöfn í morgun,
sem bæði ólögmætum og óþol-
andj.
Var hún samþykt með upp-
rjettum höndum manngrúans,
en er leitað var mótatkvæða,
voru engin til.
Pá var borinn upp viðaukatil-
laga Bjarna Jónssonar frá Vogi,
svohljóðandi:
Fundurinn telur sjáifsagt, að
hjereftir \eið’ eiriungis ísi.
fáni dreginn á stöng hjer í bæn-
um og væntir þess, að svo
verði um land ailt.
Var sú tillaga samþykt á sama
liátt í einu hljóði.
Ólafur ristjóri Björnsson stakk
þá upp á, að gengið væri til
minnisvarða Jóns Sigurðssonar
og sungin þar ættjarðarkvæði, og
hjelt svo mannsöfnuðurinn þang-
að og var þá kominn þar lúðra-
flokkurinn »Harpa«, er spilaði
nokkur lög. Var þar hrópað fer-
falt húrra fyrir ísland, fyrir ís-
lenska fánann og fyrir minning
Jóns Sigurðssonar.
Eftir það fór fjöldi fólks út á
Skansinn og varð hann alþakinn
mönnum, og þar sungin ætt-
jarðarljóð, en að því búnu skild-
ust menn.
Vísir kemur út kl. 4 í dag
með nánari frjettir.
Vorblóm seldi »Hringur« hjer
á götum í gær, bláar sóleyar
með hvítri miðju, í tilefni af við-
burðum dagsins. Varð salan
álitleg.
Biðjið kaupmann yðar
um pálmasmjörl
Botnía fór í gærkveldi til út-
landa. Meðal farþega voru kona og
tvær dætur Th. Thorsteinssonar kaup-
manns, kona Björns doktors Bjarna-
sonar, Kreyns kaupmaður f Ham-
borg og 4 Englendingar.
Drekkið Egilsmjöð og Malt-
extrakt frá innlendu Ölgerðinni «Agli
Skallagrímssyni«. Ölið mælir með
sjer sjálft. Sími 390.
Skálholt fór í gærmorgun suður
og ausfur um land. Meða! nm 50
farþegja voru Benediktalþingismaður
Sveinsson, Andrjes augnlæknir Fjeld
sted, Jón verkfræðingur Þorláksson,
Eggert bóndi Briem, Þórarinn B.
kauphallarstjóri Guðmundsson, Carl
umboðssali Guðmundsson og Sig-
hvatur bankastjóri Bjarnason.
i nnri-T ir i mr i rr i-n ■■ ir in n nm i — mu i w rmrr-—* 1■——■—i
Af því að ýmsir hafa verið að
bera mjer á brýn, að jeg væri höf-
undur að greininni »Snubbótt ferð«
í »Vísir« í gær, vildi jeg mega biðja
»Vísir« að geta þess, að jeg hafi
ekki þá grein ritað.
Ritað 12.-6. 1913
Árni Árnason.
Akureyri, fimtudag.
Þingmálafimdur
að GrurEtá.
í gær var haldinn þingmála-
fundur að Grund í Eyafirði og
voru þar samankomnir um 70
kjósendur. Pingmenn sýslunnar
voru þar báðir.
Höfuðsamþyktir voru:
Aðflutningsbannslögin sjeu
afnumin þegar. Samþ. með
40 : 20.
Sambandsmálinu sje ekki
hreyft á næsta þingi. Samþ.
í einu hljóði.
Ráðherra var hlyntur afnámi
aðflutningsbannslaganna. Skýrði
frá 34 stjórnarfrumvörpum í ár.
ísafirði, fimtudag.
Stórslúkuþingið.
Stórstúkuþingið hófst í gær
með guðsþjónustu hjer í kirkj-
unni. Sigtryggur Guðlaugsson
prjedikaði.
Tuttugu og fimm fulltrúar
mættir og ýmsir stórstúkumenn
fleri væntanlegir. Helmingur full-
trúanna er frá Reykjavík.
ísfirðingar höfðu góðan undir-
búning og hjeldu 9. þ. m. stór-
stúkunni samsæti.
Útbreiðslufundur var haldinn
10. þ. m. og var þar fjölmenni.
Sjö ræðumenn.
Indriði Einarsson stjórnar þing-
inu, þar sem stórtemplar er fjar-
verandi.
Aðalsfarfið er enn í nefndum.
Blíðviðri komið eftir kulda-
storma. Almenn ánægja.
Blaðfregnanefnd
ísafirði, fimtudag.
Guðmundur skáld
kvaddur.
Hjer var Guðmundi skáld Guð-
mundssyni haldið skilnaðarsam-
sæti, um leið og stórstúkuþing-
mönnum var fagnað. Voru
margar ræður fluttar houum. til
heiðurs og honum þakkað gott
starf og ánægjulega samvist á
ísafirði. Aðalræðan hjelt Helgi
Sveinsson bankastjóri.
ísafirði, fimtudag.
Isfirðingar sanrtaka.
Við frjettirnar frá Reykjavík er
hjer sem óðast verið að draga
upp íslenska fána, en furðu fáir
til. Talað um að sítna til ná-
lægra kaupstaða og skora á
menn að sýna nú lit.
Stórstúkan lætur sjer hvergi
bregða, hvað sem Eyfirðingar
segja um bannlögin.
Tíðindamaður.
Akureyri í dag.
Þingmálafundur
Eyfirðinga.
Búnir eru fundirnir á Grund
og Staðartungu. Á báðum sam-
þykt í einu hljóði að hreifa hvorki
við stjórnarskrármáli eða sanibands-
máii á næsta þinrj, og var ráð-
herra því eindregið fylgjandi.
Sömuleiðis samþykt á báðum
fundum með yfirgnæfandi at-
kvæðafjölda, að afnema bannlögin
nú þegar. Ráðherra var því og
fylgjandi.
Tillaj^a kom frá Stefáni Bergs-
syni á Þverá um að banna stjórn
Landsbankans og starfsmönnnm að
sitja á alþingi og virtist hún með
fyrstu hafa fylgi, en ráðherra
hamaðist gegn henni og tókflutn-
ingsmaður hana aftur.
Fundur á Hjalteyri í dag, í
Dalsvík á morgun.
Ur umræðum
bæarstjórnarinnar.
5. júní.
---- I rh.
Sveinn Björnsson kvaðst sjer
finnast varhugavert að ganga að
þessu tilboði, þar það væri
bundið við 5 ár, með óaðgengi-
legu skilyrði, svo sem því, að
Davidson ekki segði til, hvort
hann ætlaði að taka árnar á
leigu það og það árið, fyr en
31. mars, það gæti orðið til
þess, að árnar yrðu óleigðar ár
eftir ár. Það væri venja að
auglýsa veiðiár og vötn í des.-
br.mánuði, því þá væru menn
farriir að hugsa fyrir sumrinu og
því húnir að ákveða sig, jafnvel
löngu fyrir lok marsmánaðar.
Eins væri þetta tilboð lágt og
annað gæti komið hagfeldara og
betra. Svo væri reynandi að
auglýsa árnar hjá öðrum »firm-
um« í Englandi og Skotlandi
ásamt því, er venja liefði verið
að auglýsa þær hjá.
Um eftirlitsmann við hafnarbygg-
inguna. •
Sveinn Björnsson skýrði frá því,
að hafnarnefnd hefði haldið fund
með sjer, til þess að útnefna
eftirlitsmann við hafnarbygging-
una, sem gætfi þess fyrir bæar-
ins hönd, að samningar væru
haldnir og bygging hafnarinnar
væri gerð samkvæmt þeim.
Nefndinni hefði þótt heppi-
legast, að einhver þeirra verk-
fræðinganna, er að hafnarbygg-
ingar-samningunum unnu, sem
voru Krabbe, Ben. Jónasson og
Jón Þorláksson, væru fenginn
■ fyrir eftirlitsmenn.
i En þar nefndin hafi álitið, að
• eftirlitið yrði núna fyrst um sinn