Vísir - 13.06.1913, Blaðsíða 2
V í S i !>'
ærasMsaftMSis jrgctww.iUHM*. i:vte. ssaanme**
(meðan verið væri að byggja cf-
an ágrandanjyfirgripsminna en síð
ar mundi verða, þá hefði hún kom-
ið sjer saman um (að undantekn-
um Tr. Gunnarssyni), að fela
bæarverkfræðingnum eftirlitið
fyrst um sinn til næsta nýárs
gegn 500 kr. launum, til þess
að hann með þeim gæti borgað
aðstoðarrnanni, er hann þyrfti
við eftirlitið, og skyldu þær þá
greiðast samkvæmt reikningi.
Tr. Gunnarsson sagðist kann-
ast við það, að hann væri á
móti þeirri tillögu hafnarnefnar-
innar, að fela Ben. Jónassyni
eftirlitið með hafnarbyggingunni,
og að hann væri það vegna
þess, að hann treysti ekki Ben.
Jónassyni öðrum fremur til þess,
að hafa eftirlitið á hendi úr
þvf að það ætti að vera sjer-
launað starf með alt að 1000 kr.
(Sv. B. sagði að það væri há-
mark). Tr. Gunnarsson *kvað
það jafnan venjuna, að þá þannig
löguð ákvæði væru gerð, að
reikningarnir færu heldur upp
fyrir strykið, en að þeir væru
lægri, en takmarkið leyfði. Eins
sagði liann, að sjer findist rangt,
að láfa bæarverkfræðinginn fá
launaviðbót fyrir þennan starfa,
þar hann mætti taka sjer að-
stoöarmenn við störf sín upp á
bæarins kostnað, þá honum
þóknaðist, en það virtist svo
sem sumum mönnum í bæar-
stjórninni findist aldrei nóg aus-
ið af fje í þennan bæarverk-
fræðing, hann hefði núna í
laun 2 700 kr. og eftir næsta ný-
ár ættu þau að verða 3000 kr.,
1000 kr. hefði hann þar að auki
leyfi til að ráða sjer hjálpar-
mann fyrir samkvæmt reikningi,
og nú ætti að láta hann hafa
500 kr. til þess að ganga nokkr-
um sinnum vesfur á Granda, til
að líta þar eftir hafnarvinnunni.
í vetur hafði bæði borgar-
stjóri og aðrir á bæarstjórn-
arfundum farið mörgum orðum
um það, hve bæarverkfræðing-
urinn hefði mikið að starfa og
verið að telja það upp — og
eftir því hefði hann ,sannarlega
í nógu mörg horn að líta, þótt
hann gæfi sig ekki við eftirliti
á hafnarbyggingunni, og það væri
því síður nauðsyn á að fela
honum þaðstarf,semhægt væri að
fá annan verkfræðing til þess að
taka eftirlitið að sjer fyrir jafn-
vel lægri borgun fyrst um sinn,
verkfræðing, er hann (Tr. G.
vonaðist til að bæarstjórnin
hefði ekki neitt út á að setja,
svo sem Knútur Zimsen. Við
hann kvaðst ræðumaður hafa
talað og spurt hann um það hvort
hann mundi fáanlegur til þess
að taka að sjer eftirlitið hina
næstu 12 mánuði fyrir 500 kr.
og hafi K. Z. tjáð sjer, að hann
mundi ganga að því. Þess vegna
gæti nú bæarstjórnin sparað sjer
500 kr. með því að fela K. Z.
• eftirlitið næstkomandi 12 mán-
uði. Sagðist því leggja það til
að hann yrði kosinn, sem eftir-
litsmaður með hafnarbygging-
unni, en ekki| Ben. Jónasson.
Með joví að jeg fer utan,
verðnr Kauphöllin lokuð
fyrst um sinn,
Rvík. 12. júní 1913.
Þór. B. G-nðmundsson.
TÆKIFÆRISKAUP.
Nokkur ný orgel frá viðmkendum verksmiðjum til sölu með
innkaupsverði að viðbættum flutningskostnaði, hjá
G. EERÍKSS. Hafnarstr. 20.
V. B K.
Cachemiresjöl
svört, einfold og tvöföld, og mislit einföld komu nú með
-Síerling*
Verð og gæði alkunn.
*>íeifslutv*\n JSyóvw *)Cúst\át\ssot\.
Ræðumaður sagðist einnig hafa
talað við Ásgeir Sigurðsson, er
væri í hafnarnefnd, um þetta, og
væri hann sjer sammála. K. Z.
væri hjer á fundinum og gæti
hann sjálfur skýrt frá því, hvort
ekki væri rjett haft eftir samtal
við hann. ______ Frh.
Cymhelína
hin fagra.
Skáldsaga
eftir Charles Garvice.
----- Frh.
»Ekki minstu vitundU sagði jarl;
hann vildi ekki fara frekar út í þá
sálma.
»Nei, jeg um það! Hvað ætti
það líka að þýða? Þetta var svo
sem ekki mikið, hvort sem var, móti
öllum þeim miljónum yðar, vinur
minn góður! Æ, Bellmaire minn!
Verið þjer henni góður! Hún er
elskuleg, góð stúlka. Blessaðir —,
verið þjer góður við hana!«
»Já, því lofa jeg yður!« sagði
jarl og fjekk ákafan hjartslátt. — Var
karlinn orðinn vitlaus eða hafði
Cymbelínu þegar snúist hugur?
»Jeg, — jeg sagði yður það, að
hún myndi ekki veita yður afsvar!
Jeg sagði yður, að hún myndi gera
sitt til þess að gleðja gamla pabba
sinn, Bellmaire jarl! Jeg er blá-
skínandi fátækur, en jeg get nú
dáið rólegur, þegar jeg veit af
barninu mínu í yðar umsjá.«
Blóðið ólgaði og svall í æðum
jarlsins.
»Hve nær, — hve nær sagði
Cymbeiína yður, að hún hefði lof-
að að ganga að eiga mig?« spurði
hann.
»Einmitt núna, í dag! Hún sagði
að — að fjárhagslegt tjón gerði
jarlsfrúnni af Bellmaire ekki mikið
til,« sagði karl og sigurhrós var í
röddinni og auðsjeð á svip hans,
þótt sjúkur vseri.
Bellmaire jarl, varp þungt önd-
inni. Hann sá, hvernig í öllu lá.
Cymbelína ætlaði að giftast honuin
til þess að þóknast föður sínum,
til þess að bjarga við afglöpum
karls í fjárgeymslunni og framtíðar-
vonum hans um hana. Glampi kom
í augu hans og óstyrkur í hend-
urnar. Hann langaði til að þjóta
undir eins ofan og grípa hana í fang
sjer, finna að hann ætti hana, þreifa
á því, — kyssa fölvu, fallegu varirn-
ar hennar, sem hann hafði svo oft |
starað á mcð innilegri, sárri ástar-
þrá og ákafri ílöngun.
»Já herra foringi, Cymbelína sagði
alveg satt! Mjer fellur sárt yðar og
hennar vegna, að þið eruð orðin
eignalaus, en mjer er sama fyrir mitt
leyti. Það er Cymbelína ein og
ekkert annað, sem jeg kæri mig
utn.«
Karlinn reyndi að taka í hönd
hans og þrýsta hana innilega.
»Jeg er gæfumaður mikiil, Bell-
maire, þótt-jeg sje blásnauöur. Jeg —
jeg — fæ að hýrast í einhveju horn-
inu og horfa á hamingju ykkar
er ekki svo? — garnli karlinn fær
að vera í horninu hjá ykkur?«
»Jú, jú,!« sagði jarlinn mjög
Ijúfur í bragði. »Við Cymbelína
skulum sjá um yður. Þjer getið
búið hjá okkur á jarlssetrinu, nema
þjer kjósið heldur að að vera hjerna
í Koti, gamla kotinu yðar. Hættið
þjer bara að hugsa um þetta glat-
aða fje og þorparana, sem rændu
ykkur. Látið yður nú batna fljótt
og það er vissasti vegur til þess
að gleðja Cymbelínu!«
»Já, — Já — farið — þjer niður
til hennar, góði minn, farið fljótt
til hennar! Jeg — jeg held jeg
geti nú sofið. Mjer er hægra og
og þreytan er eittlivað að rjena.
Guði sje lof, henni, — henni er
óhætt — óhætt. Frh.
hafa nú með
„Sterl i n g”
fengið úrval af fallegum
Guðm. Benjamínsson, Grettisg.
10,, tlytur fótk og flutning niilli Rvíluir
og Hafnarfjarðar. Síini 149.
Leiðisgrindur ;•
um trö leiði iil ^
sölu, með eikar-
fótstykkjum. R.
v. á.
iSC
&
íá
m
!
ÍS
gt
&
m
&
ts
I
JJaaUl l\a^smu\\a
og notið ekki cement, nema þetta
skrásetta vörumerki
sje á umbúðunum.
| HEITUR MATUR |
|k fæst allan daginn á Lauga- ijí
veg 23. Einnig fæst brauð £f
p og smjör, margar tegundir ||
á af öli og iimonade, kaffi, t!
P sukkulade o. fl. 1
r 4» drekka allir þeir,
eUW er vilja fá góðan,
óskaðlegan og ódýran kaffi-
drykk. Fæst hjá Sveini
Jónssyni, Templarasundi
/. á aðeins 80 au. pundið.
V I N N A
Stúlka óskast um 3—4 vikna
tíma. Jóhanna Stefánsdóttir, Bakka
við Bakkastíg, gefur upplýsingar.
Fylgdarmaður, til aðstoðar útl.
eða innlendum ferðamönnum, óskar
eftir atvinnu í sumar. Afgr. v. á.
g§TAFAÐ-FUNDI©
Olíukápa fundin á þjóðvegiuum
austur. Eigandi vitji hennar í Banka-
stræti 7. í Reykjavík.
KAUPSKAPUR
Reiðföt fást til kaups með lágu
verði á Suðurgötu 13. uppi.
H Ú S N Æ Ð I
Stúlka, sem er úti að sauma á
daginn, getur komistað góðum kjör-
um með herbergi. Upplýsingar á
Kafé Ingclfur.
Þrifin og vönduð stúlka getur
fengið leigt lítið herbergi frá fyrsta
júlí til fyrsta október. Nánari upp-
lýsingar á Vesturgötu 29.
Úigefandi:
Einar Gunnarsson, caud. phil.
Ostlunds-prcntsniiðja.