Vísir - 23.09.1913, Síða 1

Vísir - 23.09.1913, Síða 1
6 741 Ostar bestir ug ódýrastir í verslun Einars Árnasonar. \s\ S’timpla og Innsiglismerki útvegar afgr. í; Vísis. I Sýnishorn liggja frammt. Kepiur út alla daga. — Sími 400. Afgr.i Hafnarstræti 20, kl. 11-3 og 4-6. 25 blöð (frá 18.sept.) kosta á afgr, 50 aura Send út um land 60 au.—Einst. blöð 3 au. Skrifstofa i Hafnarstræti 20. (uppi), opin ki. 12-3. Sími 400, Langbesti augl.staður í bænum. Augl, sje skilað fyrirkl. 6 daginn fyrir birtingu Þriðjud. 23. sept. 1913. Jafndœgur - hanst byrjar. Háfióðk'. 10,14‘árd.og U1.10,57‘ síðd. Afmœli. Frú Anna Bjarnasen. Frú Rannveig Ólafsdóttir. Lauritz Jörgensen, málari. Jóhannes St. Stefánsson, versl.m. Sigurður Kristjánsson, bakari. Þorsteinn Þorsteinsson, slátrari. 9 A morgun: Póstdœtlun. Ingólfur kemur frá Borgarnesi. Norðan-og Vestan póstar koma. Hafnarfjarðarpóstur kemur og fer. Álftanesspóstur kemur og fer. Bíó Biografteater Reykjavíkur 22., 23. 24. og 25. sept. : Dóttir ölgerðarmannsins Sjónleikur í 2 þáttum leikinn af leikurum við Konungl. leikhúsið í K.höfn. Átakaniegur viðburður. Ekkert tilsparaö við útbúuaöiun a leiksviöinu. Heræfingar Dana Aukamynd. Ikklstur fást venjulega tilbúnar á Hverfisg. 6. Fegurð, verð og gæði undir dómi almennings. — Sími 93. — Helgi Helgason. Fallegustu líkkisturnar fást | hjá mjer—altaf nægar birgð- Í ir fyrirliggjandi — ennfr. lik- klæði (einnig úr silki) og lík- jf kistu8kraut. Eyvindur Árnason. ú 8 ÚR BÆNUM. § i Sterling er að koma frá Búð- um kl. 12. »Bifreiðarfjelag Reyjavíkur*. Svo heitir fjelag sem stofnað var lijer í bæ föstudagskvöldið síðastl. Það ætlar að hefja bifreiðarferðir að vori komandi með allt að 10 bifreiðum. Hús ætlar það að byggja sjer. Hefur þar skrifstofu og auð- vitað símasamband. Þeir Sveinn Oddsson og Jón Sigmundsson bif- reiöarmenn eru í fjelagi þessu og veröa starfsmenn þess, en stjórn fjelagsins er Axel Tulinius fyrv. sýslumaður, Pjetur Otinnarsson hó- telstjóri og Sveinn Björnsson lög- maöur. Þetta er myndarlega af stað farið og horfir til verulegra framfara. Setjaravjelar munu í ráði að komi hingað í bæinn í haust og vetur tvær eöa þrjár. Vjelar þessar setja hver á við 4—6 prentara (setj- ara) og verður þá með þessu auk- inn mjög starfskraftur til prentunar ög prentun þá heldur lækkuð í verði. uðböðum, Heimkomsn frá útlöndum leyfi jeg mjer að til- kynna heiðruðum viðskiftavinum minum og almenningi, að jeg hefi nú aftur opn2ð höfuðlækinga- og hárvinnustofu mína, á Bókhlöðu- stíg 9, eftir að jeg hefi í utanför minni fullkomnað bekkingu mína á meðaia-höf- andliisböðum, hiruppseiningu og háriiU húningi o. s. frv. Skal þess get- ;ð, að jeg legg nú sem áður, sjer- staka stund á höfuðlœkningar. Virðingarfyllst Earólína Þorkelsson. Uppþot á Laugavegi. Aðfara- nótt sunnudagsins höfðu nokkrir menn hávaða allmikinn á Lauga- veginum. Næturverðirnír tveir komu þar að og báðu'þá að liafa hægt um sig, en hinir brugðust illa við því og lenti í handalögmáli. Voru sett járn á tvo óróaseggina og þeir færðir í varðhald. Næturverðirnir kærðu 5 eða 6 af mönnum þeim, er óspekíunum ullu og voru þeir yfirheyrðir í gær. Eru tveir dæmdir í 80 og 70 kr. sekt (ef stjórnarráð- iö skipar ekki sakamálsrannsókn á hendur þeiin) en hiuir eru ódæmd- ir enn. Fimtánhundraðasti fundur G. T. stúkunnar »Verðandi« er í kvöld. Til hátíðabrigðis kemur framkvæmda- nefnd stórstúkunnar á fundinn, en ungfrú Guðrún Indriðadóttir og »Fóstbræður« skemta. Ðrekkið Egilsmjöð og Malt- extrakt írá innlendu ölgerðinni »Agli Skallagrímssyni«. Ölið mælir með sjer sjálft. Sími 390. ^FRnTLðNDUMVy^ Ejóskaðaábyrgðir. Lloyds sjóskaðaábyrgð.irfjelag í Lundúnum hefur greitt ábyrgðargjöld 300 þús. krónur að meðaltali dag hvern sjö » fyrstu mánuði árs þessa eða sam- tals 70 milljónir króna. Sjóræningjar í Marokko- Ekki er ugglaust að sigla fyrir ströndum Morokko sökum sjóræn- ingja. Er það einatt að þeir taka lítil seglskip og við og við allstór kaupskip. Svó bar og til 15. f. m., er spanskt briggskip, hlaðið vörum kom til Alhucema, eyar er Spán verjar eiga við Morokkoströnd. Um nóttina er menn voru í svefni komu víkingar á þrem skútum og rjeðu að kaupmönnum. Varð lítið um varnir og bundu þeir skipverja en tóku allan varninginn. Stýrimað- ur hafði sloþpið undan á sundi til lands. Voru send boð fallbyssubát, er lá þar ekki all-langt frá, en er hann kom, voru ræningjarnir farnir með herfang sitt. • Uppskeruhátíð Hjálpræðis- hersins í %«ötA M. 8' 2* t, en þó satt. Efni í Sikisvuntur fyrir sðeins 2.82 sða 0,75 alinln. Silkislifsi frá 1,00. Alit efiir þessu. Carl Lárusson. ... vm GOLFDUKAR (Linoleum) Afarmikið úrval nýkomið í verslunina EDINBORG. P.áít fyrir verðhækkun, vörutoll og aðra óáran, verða pp dúkar þessir seldir nokkru ódýrara, en áður hefur átt ip sjer stað. pp Þeir, sem þurfa að fá sjer á gólfin, ættu að koma ip sem fyrst, til að skoða þessa dúka. Heimssýningin sem halda á í San Francisco sum- arið 1915, fær ekki þá hluttöku annara þjóða, er ráð var fyrir gert. Bretar hafa þannig ákveðið að taka engan þátt í sýningunni, og er það Panama-þrætan, sem því veldur. Danir og Svíar hafa gert hið sama, og óvíst er, nema Þýskaland fylgi og þeirra dæmi. Frakkar og ítalir hafa aftur á móti lýst sig hluttak- endur í sýningunni og sömuleiðis Ástralía og flest öll Suður Ameríku lýðveldin. En niikið vantar þegar Breta vantar, og ekki síst, ef Þjóð- verjar væru þar ekki heldur. Allsherjarþing Esperantomanna er ákveðið að halda í Edinborg á Skotlandi 1915. Látinn vísindamaður og skáid. Dáinn er 2. þ. m. í Ábo á Finnlandi skordýrafræðingurinn mikli, dr. O. M. Reuter, fyrrum prófessor í dýrafræði við Hels- fors-háskóla 63 ára. Eftir hann liggja ekki færri en 500 bækur og ritlingar, er mikið þykir að í kveða fyrir vísindalega nákvæmni og varúð í staðhæfingum, eru þau alkunn víðsvegar um Evrópu. Auk þess var hann skáld og eru ekki færri en 5 ljóðsöfn til eftir hann. Myrtir vísindamenn. Nú er fullsannað að ameríski norðurfarinn Radford og fjelagi hans Street, hafi verið myrtir af Skrælingjum í norðurhöfum 5. júlí í fyrra. Þeir fjelagar voru í hafrannsóknum fyrir norðaf Ameríku. Ryskingar og manndráp urðu í Adrianopel 3. þ. m. milli tyrkneskra herforingja innbyrðis. Það var á hinni heilögu Bairam- hátíð. Enver Bey, Ung-Tyrkja- foringinn nafnkunni fjekk stór- sár, 5 biöu bana og 20 særðust. Vatnavextir á Spáni hafa verið geysimiklir, einkum í Santander, hefur þar verið 6 feta djúpt vatn á götum, vörur í búð- um eyðilagst og smærri kaup- menn orðið gjaldþrota allmargir. Lögreglan hafði nóg að gera að bjarga börnum úr flóðinu. Voðalegt óviijaverk. Ungur maður í Birmingham á Englandi, Arthur Ivens að nafni, bauð nokkrum vinum sínum heim til sín á fæðingardag sinn 10. þ. m. -— Systir hans ljek á slaghörpu fyrir gestina. Á meðan hún var að leika, sýndi hann nokkrum þeirra nýa skammbyssu, er hann hafði fengið í afmælisgjöf, en er minnst varði, reið af skot úr henni, hljóp í bakið á systur hans þar sem hún var að leika á hljóðfærið og hnje hún þegar niður og va^örend. Nærri má geta hvernig piltinum og gestunum hefur orðið við; enginn vissi af skoti í byssunni; pilturinn kom grátandi fyrir rjett, en var dæmd- ur sýkn af slysi þessu. Stjórnarbylting í San Domingo. Borgin Puerto Plata er þar í hers- höndum svo liætta er búin amerísk- um þegnum. Uppreistarmenn hafa hafið skothríð á borgina og er for- ingi þeirra Hector Velasquez, sá er einu sinni var um tíma forseti þjóð- veldisins.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.