Vísir - 23.09.1913, Page 2

Vísir - 23.09.1913, Page 2
V í S 1 R lækur, > SHlfeSÉsK innlendar og erlendar, PAPPÍR og RITFÖNG kaupi menn i BÓKAVERSLUN SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR Lækjargötu 2. GÖLFDÚEAR I (Linoleum) og VAXDÚKAR á borð og gólf er nýkomið í afarstóru úrvali Einnig vaxdúkar til að fóðra með herbergi og m. m. fi. Jafnstórt úrval af Linoleum og vaxdúkum hefur aldrei sjest hjer áður o$ \)öv\x^œS‘v zx \xp\x Jónatan Þorstelnsson. Laugaveg 31. Nýkomið í "Kolasand: Leirtau, af ymsu tagi og fag- urt á að líta, og óvanalega ódýrt, eins og fyrrum. Sjerstaklega má nefna : Bollapör úr leir og postulíni, sum þeirra kosta aðeins 12aura, Rjómastell, logagylt, Tepotta, Mjólkurkönnur, Kökudiska, Súkkulaðekönnur, Díska, djúpa og grunna, frá 12 til Q aura, Blómsturpotta, GIös af ýmsri gerð, og ótal margt fleira, Lítið því inn f Kolasundi, áður en þjer kaupið annarstaðar. Þjer komist hvergi að betri kjörum. ElOurinn. Kvæðaflokkur efíir Þor8tein Erlingsson. 122 bl*. 8vo. Reykjavík MCMXIII. ísafoldar- prentsmiðja. Þetta er fyrra hefti kvæðabálks þess hins mikla um Ragnheiði Brynjólfsdóttur, byskups, og ástir þeirra Daða, er fyrstu kvæðin birtust úr í Eimreiðinni fyrir mörg- um árum. »Vísir« hefur ekki rúm til þess að rita ítarlega um kvæði þessi enda munu fiógir aðrir verða til þess, er betur kunna skil á slíku. Sjálfsagt verða skiftar skoðanir um Iífsskoðanir og kenningar þær, er Ijóð þessi geyma, — um þær geta og eiga lögskipaðir útverðir kirkju og kristindóms og and- stæðingar þeirra að skifast orð- um á. Hjer verður aðeins litið á listargildi ljóðanna og í heimi Iistarinnar á engin flokkapólitík kirkju- nje stjórnmála-manna nje siðafrömuða heima. Skáldið er frjálst að hugsjónum sfnum og skoðunum og ber ábyrgð á því, hver áhrif þeirra verða með þjóð- inni, er það kveður við. Formfegurðin á Ijóðum þess- um er eins og vant er um höf þeirra, látlaus og yndisleg. Orða- valið fallegt, málið hreint og ekki verið að krækja í grafgötur og útúrdúra eftir torskildum úrelt- um samtíningi sjaldgæfra orða, engin fordild, ekkert fálm eftir nýyrðum, engin skollareipa-flækja norðan frá Sandi eða vankantað- ir, vafaþungir kljásteinar vestan frá Klettafjöllum. Málið og ljóð- j hreimurinn líður ljett og þegl- lega eins og lindirnar austur á fæðingarstöðvum skáldsins og einatt með þungum undirstraum, eins og /vAarkarfljót í meginvexti. Hjer er mælt látlausu og óbrotnu sveitamáli eins og það er best talað enn í dag. Þó er því sfst að neita, að sum orðatiltæki finnast í Ijóðunum, er skemma listnautnina, — eru flekkir á fallega skildinum skáldsins. Sem dæmi skal nefna erindið efst á bls. 47, er bæði vegna efnis og þó einkum orðavals hefði mátt missa sig. Að vísu eru orðin og myndin, sem þar er brugðið upp fyrir augum lesandans, rammíslertsk, en jafnógeðfelt er erindið fyrir því og á ekki heima í fögru ljóði. En þessir flekkir eru hverfandi í samanburði við allt hitt sem er fagurskyggt og skírt listargull. Svipir manna í Ijóðunum eru glöggir og skírir, hvort sem menn- irnir tala sjálfir eða þeim er lýst. Náttúrulýsingar fáorðar, en glitra hjer og hvar eins og fallegir stein- ar í dýrri umgerð. Lengi hafa menn »Eiðsins« með óþreyu beðið og ekki minnkar þráin eftir áframhaldinu við lestur þessa fyrri hluta hans. Prentun er góð og pappír í bókinni þolanlegur. Q. Q. Massage læknir Guðm. Pjetursson. Heima kl. 6—7 e. m Spííalastíg 9. (niðri). Sími 394. t Island á kvonnaþinginu.1; Mjer fellur mjög illa að hafa orðið að sjá grein eftir frú Palline Bagger í heiðruðu blaði yðar, um kvennaþingið og ísland. í fyrsta lagi af því, að í grein- inni kemur fram mjög mitóll mis- skilningur. Reyndar sagði mrs. Catt í þingsetningarræðu sinni, að ferða- kostnaður íslensku fulltrúanna hefði verið greiddur af póstfjenu, af því engir aörir peningar hefðu verið fyrir hendi. En hvernig Mrs. Catt hefurfeng- ið þennan fáránlega skilning á þessu máli, sem er algerlega tekinn úr lausu lofti, það get jeg ekki sagt. En það er áreiðanlegt að ekkerí sögðu íslensku fulltrúarnir, sem gat gefið henni minstu átyllu til að halda þetta. Auðvitað er ísland lítið land, en svo mikil fjarstæða gæti þar aldrei komið fyrir. Peningarnir voru veittir af íslensku stjórninni, og teknir af landssjóði íslands. Mrs. Catt tók líka aftur þessa sögu- sögn sína, og skrifleg Ieiðrjetting var send til blaöamannaskrifstofunn- ar (við kvennaþingið). Þá vildi jeg líka mega leiðrjetta útdrátt þann úr ræðu minni, sem stendur í greininni. Þegar menn lesa þessa grein, þá hlýtur þeim áreiðanlega að finnast, að jeg hafi ætlað mjer að sverta Danmörku í augum heimsins. En það var fjarri því að vera tilgangur minn. En þeg- ‘) Grein þessa hefur frú Bríet Bjarn- hjeðinsdóttir (Ásinundsson) sent Vísi til upptöku. Mun hún þýdd úr »Ber- lloske Tldendec. ar jeg átti að tala á fundi, fyrir ungu fólki í Budapest, þar sem kvennaþingsfulltrúarnir áttu alls ekki að vera við staddir, þá ákvað jeg að segja eitthvað frá íslenska æsku- lýðnum; og af því jeg vissi að meiri hluti áheyrenda mir.na þekkti naumast nafnið á ættjörðu minni, þá sagði jeg þeim fyrst, í svo stuttu máli sem unnt var, fáeina aðaldrætti úr sögu íslands. Og þá gat jeg ekki komist hjá því að nefna Dani. En það var aðeins lauslega og öld- ungis sögulega rjett, en ekki eins og í frásögn hins danska íregnrit- ara. Jeg hef líklega æsku minnar vegna, sem hún leggur svo mikla áherslu á, ekki gleymt ennþá sögu þjóðar minnar. Þá talaði jeg t. d. heidur ekki um Eirík Rauða, af því jeg vissi mjög vel að það var Grænland, en ekki ísland, sem hanu fann. Ekki minnt- ist jeg heldur á hvernig íbúarnir á »hinni litlu, sfoltu klettaeyu«, (sem reyndar er meira en 2x/2 stærri en Danmörk) voru yfirunnir af Dön- um, af þeirri einföldu ástæðu, að íslendingar hafa aldrei átt í ófriði við aðrar þjóðir, en þar á móti gengu þeir af frjálsum vilja í sam- band við Noreg 1262, og þegar Margrjet drottning erfði kórónu Noregs, þá fylgdi ísland með. Þá á jeg einnig að hafa sagt að Danir hafi sett vora bestu menn í fangelsi. En þetta er líka misskiln- ingur. Þegar jeg gat um þær hörm- ungar, sem dunið hefðu yfir fsland, þá nefndi jeg einokunarverslunina, sem ekki flutti nægilegar matvörur til landsins, svo að fólk dó þús- undum saman af hungri, þegar harð- 'æri var vegna hafíss, eða eldgosa. Menn voru þá neyddir til að versla við vissa kaupmenn og ef þeir gerðu það ekki, þá voru þeir settir í fangelsi, og þeim hegnt. — Ekki hefi jeg heldur sagt að íslending- um hafi smá farið fram, síðan 1874. Allir, sem nokkuð þekkja til á ís- landi, hljóta að hafa sjeð og kann- ast við hinar miklu framfarir, sem síðan hafa þar orðið í öllum grein- um. Hvað frú Bagger á við með hin- um torskildu orðum sínum að það »sje nógu fróðlegt að vita hvernig íslendingar komi fram fyrir Dan- merkur hönd (repræsentere Danmark) á alþjóðaþingum, það skil jeg ekki. íslensku fulltrúarnir voru ekki full- ’trúar fyrir danskar kvenrjettindakon- ur. ísland er sjerstakur meðlimur f alþjóða kosningarjettar-sambandi kvenna, sem meö lögum sínum hef- ur samþykkt, að hvert það land skuli teljast sjálfstætt, og megi tak- ast upp í sambandið, sem geti veitt konum sínum kosningarrjett. Ennþá einu sinni skal jeg taka það fram, að jeg minntist aöeins lauslega á Dani, og það var mjög lítill hluti af ræðu minni, sem að- allcga var um æskulýð íslands. Jeg vona nú að þessi grein mín komi frú Bagger til að skilja það betur að menn ættu helst ekki að fórna sannsögulegum viðburðum á allari skáldskaparins. Laufey Ásmundsson. Út af þessum misskilningi skal jeg geta þess, að hann var sprott-

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.