Vísir - 22.11.1913, Blaðsíða 2
V I 5 í R
?
I dag.
5. vika vetrar.
Háflóö kl. 12,14’ árd.
A morgun:
Aftnœli.
Frú Kr. Lovísa ísleifsdóttir.
Jón Jensson, yfírdómari.
Magnús Hjaltesíeð, úrsmiður.
svefnherbergi. í stærri húsunum
er þar að auki ein stofa niðri og
4 svefnherbergi uppi. Auk garða
í kring um liúsin hafa menn
fjelagsmatjurtagarða utan bæarins
með vatnsleiðslu og öllum tækjum,
og gefa þeir af sier góðar auka-
tekjur fyrir verkafólkið. Gö'turnar
eru með trjám meðfram og húsin
snotur og breytileg útlits.
Hafa menn fyrir satt að þessir
bæir hafi gjört rriikið í Englandi
og^jafnvel víðar tii þess, að beina
athyglinni að því hvað verksmiðju-
eigendur geta gjört fyrir fólk sitt
til þess að skapa því þægindi.
Tveir af útbæum Lundúnaborgar,
sem stofnaðir hafa verið núna eftir
aldamótin, Ealing og Hampstead,
hafa verið byggðir með líku móti,
þótt húsin sjeu þar þjettari vegna
þess að Iandið er þar dýrara.
Þótt þetta byggingarfyrirkomulage
eigi einkum við í mjög smáum bæ-
um, þá væri vel ef byggingarnefnd
Reykjavíkur tæki það til hliðsjönar,
því að sjálfsögðu má margt af því
læra. Hjer eru líka dreifð hús, en
bilið á mílli þeirra viða svo fram-
úrskarandi eyðilegt og ljótt, er stafar
af oflitlu eftirliti og stefnuleysi í
byggingaraðferðinni. Það verður að
fara að hefjast handa til að gjöra
höfuðstað vorn vistlegri.
Firð-kvikmyndir.
Próf. dr A. Korn í Berlinni heit-
ir sá, sem fundið hefur upp að
gera firð-Ijósmyndir með rafvjela-
tækjum. Hann hefur nýiega, án mik-
illar fyrirhafnar endurbætt aðferð
sína svo, að hann getur í töluvert
miklum fjarska tekið kvikmyndir. í
timariti því, er heitir »Das Lichtbild-
Theater« skýrir Max Brúckner í
Leipzig frá tilraunum próf. Korns
í þessu efni. Samkvæmt því getur
Korn tekið kvikmyndir, og það
heilan flokk, í fiarlægð, sem svarar
til biisins inilli Berlínar og Parísar-
borgar. Korn ætlar sjer, að því er
»Frankfurter Zeitung« segir, þéssu
næst að fá tekið myndir með síma,
frá Norðurálfu til Vesturheims.
Beinar samgöngur milli
lííoregs og Síbiríu.
Mjög má telja það markverða
frjett, að gufuskipið „Correct"
með Friðþjóf Nansen innan skips,
sje nú (22, sept.) að nálgast aftur
Noreg eftir góða för úr Noregi
austur í fljótið Jenissei í Síbiríu
og vestur aftur. Hjer er um at-
burð að ræða, sem geysileg áhrif
hefur á verslun og viðskifti.
Gufuskipið „Correct" var hlaðið
vörum frá fjelagi, sem heitir
„Sibirian Steamship, Manufac-
turing and Trading Company“
og hefur aðalbækistöðu sína í
Kristjaníu. Er fjelag þetta stofnað
með norsku, rússnesku og ensku
fje. Einn forstöðumanna þessa
fjelags, sá er Whist heitir, hefur
farið svofeldum orðum um gagn-
semi og áhrif þessa leiðangurs í
norsku blaði einu:
Mörg gufuskip hafa áður farið
förina yfir kariska hafið inn t
mynni Jenissei-fljóts; en þessi
för er hin fyrsta, sem farin hefur
verið reglulega í kaupskaparskyni.
þau lönd, sem vjer höfum nú
náð í verslunarsamgöngur við oss,
ná yfir mikið svæði og eru mjög
auðug. En til þess að þau nái
þeim þroska, sem búast má við,
1 eftir auðæfum þeirra, þá verða
þau að ná betri samgöngum við
önnur lönd, en þau hafa haft
hingað til. Rússneskir bændur
flytja þúsundum saman árlega til
þessara landa. Jenissei-fijótinu
má jafna við Mississippi og Ama-
zon-fljót að stærð. Jenissei-fljót
er slyipgengt 3000 rastir í land
upp ekki að eins til Síbiríujárn-
brautarinnar, heldur enn lengra,
alla leið inn í Mongólalahd. þess
vegna koma kínverskar vörur
með skipinu aftur. Auk þessa
eru skipgengir skurðir grafnir úr
Jenissei í annað stórfljót í Síbiríu,
þáð er Ob heitir. Á bökkum
Jenissei-fljóts eru verslur.arbæir,
sem þykja eiga góða framtíð í
vændum; má þar til telja Turu-
chansk og Jenisseisk, og mikill
verslunarfloti fer um fljótið í
beinum samgöngum við Síbiríu-
járnbrautina.
Með samgöngum þeim, sem nú
eru hafnar á Jenissei, tekur ekki
lengri tíma en hjer um bil 10
daga eða svo, að sækja úr Há-
logalandi á síbirískan og kín-
verskan markað. Skipið „Cor-
rect“ fór 12. ágúst úr Hálogalandi,
og harði að flytja 1500 smálestir
af ýmsum varningi, þar á meðal
einnig norskri verslunarvöru.
þann 28. ágúst er skipið komið
í mynni Jenissei-fljóts. þar mætti
skipið öðrum leiðangri dráttar-
döllum og ljettisnekkjum, sem
kominn var úr upplöndum Síbiríu
og Mongólalandi með síbirískan
og kínverskan verslunarvarning
(1500 smálestir) alla leið fram í
fljótsmynni. Síðan var vörunum
skift og „Correct“ hlaðið inn-
lendum varningi. 10. sept. lagði
skipið af stað úr fljótsmynninu
aftur, og er þess nú vænst í dag
eða á morgun (22. eða 23. sept.)
í Hálogalandi. Samkvæmt þessu
hefur það tekið skipið 10 daga
eftir för þess úr Jenissei að
komast að landamærum Noregs.
Frh.
Eggerí Claessers
Yfirrjettarmálaflutningsmaður.,
Pósthússtnæti 17
Venjnlega heima kl 10—11 og 4—5 .
Talsími 16.
wmrnmmmmæmmsimimmz}®
g Magdeborgar-Brunabótafjelag. |
|| Aðalnmboðsmenn á Islandi: p
'■ |l O. Johnson & Kaaber. 1
fá ekki betri gjafir, en hinar ágætu mynda-
bækur og sögubækur með myndum frá
Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar.
marg-efiirspurðu. Af þeim koir.u nú
100 tylftir
iii
Jónatans Þorsteinssonar.
PEYSURNAR FRÆGU
og N ÆRFÖTI N eru nú iomin
í Austurstræti 1.
Ásg. G. Gunnlaugsson & Co.
£a\x<^a». b.
TÓBAKSBÚÐIN
býður sínum viðskiftamönnum stórt úrval afágsatum dönskum
og hollenskum vindlum, einnig vindlinga, rússneska,
tyrkneska, egyptska og enska.
Verðið er þekkt fyrir að veta hið lægsta í borginni á öllum
okkar vörum.
Allar vindlategundir okkar seljast svo vel, að við þurfum ekki
að auglýsa neinn sjerstakan vindil eða vindling.
Gjörið ekki kaup á vindluni eða öðrum tóbaksvörum, áður en
þið hafið skoðað tegundirnar
á Laugav. 5,
Minnispeningar
ágrafnir og leturgröftur á aðra hluti
ódýrast hjá
ióni Sigmundssyni
gullsmið, Laugaveg 8.
Munið eftir hinu afar ódýra
Súkkulaði, cacao og
ávöxtum í dósum,
sem alltaf eru nægar birgðir af og
aðeins fæst svo ódýrt
á Laugav. 5.
í s h ú s i ð
’ÍSBJÖRNINN’
við Tjörnina,
kaupir: Rjúpur háu verði;
selur: Dilkakjöt,
Heilagfiski.
S í m i 2 5 9.
bæarins—Templarasund
3 — svo þið getið
fengið myndirnar ykkar
í tæka tíð að gefa
þær í
Jólagjöf.
Myndatökutíminn er
kl. 11—2.
Ólafur Magnússon.
Jónas G-uðmundsson.
löggiltur gaslagninganiaður,
Laugaveg 33, sími 342.