Vísir - 02.12.1913, Qupperneq 4
V I S I R
henni, en hennar. Konur lifa ekki
nema einu sinni, og er þá íllt að
meina þeim að njóta fegurðar sinn-
ar sem þeim sjálfum gott þykir.
En Hetena þessi er dauð fyrir löngu
Og hvíli hún í friðí, ef henni verð-
ur hvíldar auðið. En nú er svo
að sjá sem Akkúr sje allur á brott
og faðir minn liggi sjúkur mjög.
Hvað á jeg nú að gera? Á jegað
fara aftur heim til hans?« Frh.
í&»a\s\m\t\n.
Þeir, sem kynnu aö vilja láta
breyta eða leiðrjetta nöfn sín í tal-
símaskránni fyrir 1914, geri við-
vart nú þegar.
Forberg.
Limlesting lifandi dýra
f þarfir vísindanna.
Á Englandi hefur á síðustu ár-
um kveðið allmjög að mótspyrnu
gegn limlestingu lifandi dýra.
Dýravinur alkunnur þar í landi,
ungfrú Lind of Hageby, lenti í
málaferlum fyrir að hafa með
heitingum út peninga sjer til
handa. í því máli hafa komið
fram fjölmargar vitnaleiðslur og
skýrslur um gagnsemi og rjett-
mæti tilrauna á lifandi dýrum í
þarfir læknisfræðinnar. Hafa þeir
vitnisburðir fallið bæði með og
móti. í síðastliðnum ágústmánuði
var haldið læknaþing mikið í
Lundúnum. þar var samþykkt
ályktun, sem leggur áherslu á
þessar tilraunir og telur þær
nauðsynlegar vísindunum, í þágu
alls mannkynsins.
Nú nýlega hefur innanríkis-
stjórnin enska sent út skýrslu,
sem sýnir hve margar voru og
hvílíkar þær tilraunir, sem gerð-
ar voru árið 1912 á Bretlandi
hinu mikla og írlandi. þessar
skýrslur eru byggðar á leyfis-
brjefum þeim, er ráðaneytið
hefur veitt.
Alls voru leyfisbjrefin 598, þar
af voru þó 151 ekki notuð.
Samtals voru gerðar 83599 til-
raunir, og er það 11 604 tilraun-
um færra en 1911. Rúmar 5 000 af
öllum tilraununum töldust vera
meiri háttar og alvarlegar tilraun-
ir, og þar af voru aftur 2 803
þess eðlis, að samkvæmt ákvörð-
un laganna skyldu dýrin vera
svæfð, eða líflátin, svo framar-
lega sem líkur væru til þess, að
að sársaukinn hjeldist eftir svæf-
inguna.
það er tilskilið, að allir skurð-
ir fari svo fram, að lækna megi
sár dýranna án kvala fyrir þau,
að svo miklu leyti, sem við verð-
ur komið. Ella sjeu dýrin drep-
in. þess er enn getið í skýrsl-
unni, að sjaldgæft sje að dýrin
finni til kvala eftir að sárin sjeu
gróin; jafnvel þótt mikilsverð
lífFæri sjeu tekin burt, t. d. part-
ar úr heilanum, finni dýrin ekki
til sársauka.
Tilraunir þær, sem svæfing var
ekki samfara, voru nálega allar
lútandi að því, að spýta inn í
dýrin hinum og þessum efnum,
en yfirleitt varð mjög lítill árang-
ur að því. Ekki færri en 24 870
allra tilraunanna lutu að rannsókn-
um á átumeini, og var mest
þeirra tilrauna gert á músum.
12 000 tilraunanna hnigu að því,
að rannsaka og framleiða serum
(barnaveikismeðal) og kúabólu-
efni.
£awds\us
slærsta og besta
w
SvUW
er g>
Einars Arnasonar.
Sími 49.
Aðalstræti 8.
####
I
LAFÖTIN
hefi jeg nú margbreytí efni,
t. d. lO feg. af bláu Cheváoi þar á meðal .Yacht Club‘
og margskortar mislit efni.
Ulsterefni, frakkaefni, kjólfataefni, mjög gcð.
Ennfremur: Kápuefni, Plyss O. fl.
Komið sem fyrst!
Guðm. Bjarnason,
Aðalstræti 8.
----^---
Cymtjelína
tan fagra.
---- Frh.
»Hann er í fangelsi, sakaður um
þjófnað og ofbeldi,& sagði Brad-
worthy lögmaður og ljet ekki frek-
ari úrlausnir þeirra mála í Ijós.
Godfrey þagði um stund. Hann
var að rifja upp fyrir sjer voðalegu
atvikin, er við höfðu borið seinustu
í vikurnar og nafn hans Slade minnti
að sjálfsögðu á.
»Við höfum hann í gæsluvarð-
haldi, herra, þangað til þjer verð-
ið svo hress, að þjer getið tekið
mál hans fyrir,« sagði lögmaður.
»Það er auðvitað, aö vjer, sem
þekkjum öll íllverk hans, vildum
gjarnan senda hann í tukthúsið, en«
— hann brosti og var ásökunar
og óánægjublær í brosinu —, »við
erum hræddir um, að yður lítist
annan veg á það mál.«
»Já,« sagði Godfrey rólegur.
»Hvenær verður hann látinn laus?«
»Nú, — á morgun, ef þá er
dómþingsdagur,* svaraði Iögmaður
hálf önugur.
»Þá er best að sleppa honum,«
sagði Godfrey. »Það er að segja,
— jeg læt sakir niður falla gegn
honum, fyrir mitt leyti.«
»Enginn annar hefur ákæru á
hendur honum,« mælti hertoginn.
»Sieppið honum þá!« sagði God-
frey ennfremur, »og segið honum,
Bradworlhy, að ef hann samþykkir
að fara úr landi, skal jeg ætla hon-
um lífeyri nægan til viðurværis
meðan hann dvelur utan.«
»Ja so!« urgaði í lögmanni og
nú var hann allóhýr í bragði. »Er
það ekki undarlega svipað því, sem
verið sje að veita verðlaun fyrir
illmennsku og glæpsemi? Ef hver
bófinn í þessu landi, fengi lífeyri í
stað betrunarhúsvinnu, þá yrði gamla
England okkar ekki eftirsóknarverð-
ur dvalarstaður fyrir heiðarlegi fólk,
Forthclyde lávarður!«
Godfrey lagði hönd sína á hand-
legg gamla mannsins.
»Jeg gæti ekki refsað honuni án
þess að róta upp í því liðna, sem
jeg vil að sje grafið niður í bruna-
rústum Bellmaire-hallarinnar, Brad-
worthy!« sagði liann hátíðlega.
»Nú, jæja! Látum liann þá fara!
Jeg hugga mig bara við eitt!« sagði
gamli maðurinn og hóf glas sitt á
loft.
»Hvað er það Bradworthy?«
spurði hertoginn.
»Sannfæring mín um það er, að
komist hann ekki í tukthúsið á Eng-
Iandi, þá komist hann í það ein-
hversstaðar annarsstaðar. Slíkir menn
sem Slade brenna sig allt af álög-
unum og fara ekki fjær fangelsun-
um til langframa, en flugan frá
Ijósinu.«
Palmín
Og
Klaret
fæst í
Liverpool
K, F. U. M.
Kl. 8V2 Biblíulestur.
Á morgun:
Kl. 5 Væringjaæfing (skotæfing)
uppi í K. F. U. M.
— 6 Öll Y— D mceti. (Allir
drengir 10 — 14 ára.
— 7 Söngæfing hjá Þröstunum.
— 8l/2 Samvera í U—D.
kaupskapurQ
Karlmannsstígvjel til sölu,
mjög ódýrt. Til sýnis á afgr.
»Vísis.«
Silfurstakkabelti og nýr upp-
hlutur er til sölu á Laufásveg 20.
Lampar, borð, bækur, myndir
í römmum, kíkir, frakkar og föt
með gjafverði. Laugaveg 22
(steinh-)
Nokkrir pt. af mjólk til sölu
handa fastakaupendum, Berg-
staðastíg 33.
Til sölu
búðarlampi, gúttaperkastígvjel og
25 kr. mynd. Alt með hálvirði.
Afgr. v. á.
gg)TAPAÐ-FUNPIÐ(g3)
Peningabudda töpuð. Skilist
á afgr. »Vísis«.
Kvenhúfa, með hólk og skúf
hefur fundist. Vitja má í búð
G. Ólsen.
gHÚSNÆPl'Íq
2 herbergi með húsgögnum
eru til leigu í Vesturbænum 1.
des. Afgr. v. á.
Lítið herbergi með eða án
húsgagna til leigu nú þegar.
Uppl. á Bergstaðastíg 21.
Gott herbergi til leigu nú
þegar á Stýrimannastíg 10 handa
reglusömum einhleypum manni.
L E 1 G A
Orgel Afgr. v. gott óskast til á. leigu.
Ö V 1 N N A &
Saumavjelar og talvjelar tekn-
ar til aðgerðar á Laugaveg 46 B.
g Piltur uin tvítugt óskar í ^
œ næsta mánuði atvinnu við J
g skriftir, afhendingarstörf e. þ.
g . u. I. Ágæt meðmæli.
Uppl. á afgr. Vísis.
Undirrituð tekur að sjer að
straua hálslín, sömuleiðis kjóla
og undirföt, og veitir tilsögn í
strauningu. Grettisgötu 56 B.
Jarþrúður Bjarnadóttir.
Það var orð og aö sönnu,
Útgefandi
því sex mánuðum síðar varð Slade í Einar Gunnarsson, cand. phil.
tukthúslimur í New-York. Frh. | Östlundsprentsmiðja.