Vísir - 08.12.1913, Blaðsíða 1

Vísir - 08.12.1913, Blaðsíða 1
824 Vísir erelsta— besta og út- breiddasta dagblaðið á íslandi. Kemur út alla daga. — Sími 400. Agr í Hafnarstr. 20. kl. 11 árd.til 8 síðd. 25 blöð (frá 25. nóv,) kosta á afgr. 50 au_ Send út um land 60 au.—Einst.blöð 3 au Skrifstofa í Hafnarstræti 20. (uppi), opin kl. 12—3; Sími 400. Langbestí augl.staður íbænurn. Augl. sje skilað fyrir kl. 6 daging fyrir birtingu. Mánud. 8. des. 1913. Biografteater Reykjavíkur Nýtt prógram í kvöld. Sjáið götuauglýsingamar. FRAMKVÆMDANEFND STÓRSTÚKUNNAR heimsækir st. Hlín f kvöld. Hlínverjar eru beðnir að fjölmenna. K. F. U. M. Kl. 61/., Væringjaæfing. Allir mœti• f Hjer með tilkynnist vin- um og vandamönnum, að jarðarför míns ástkæra eiginmanns Porsteinsjóns- sonar, fer fram miðviku- daginn 10. þ. m. frá heimili hins látna, Ping- holtsstræti 8. Húskveðjan byrjar kl. IU/2 f- h. Reykjavík 8. des. — ’13 Ingibjörg Ouðmundsdóttir. Jarðarför Sigurbjargar Árnadóttur fer fram þriðju- daginn 9. þ. m. Hefst kl. IU/2 frá Grjótagötu 12. Ifkklstur fást venjulega tubunar á Hverfisg. 6. Fegurð, verð og gæði undir dómi almennings. — Sími 93. — Helgi Helgason. NOTIÐ S E N D I S VE I N frá Sendisveinaskrifstofunni. Sfml 444. Komið f dag til Fríkirkjuprestsins með krónuna eða tíeyringinn til jólaglaðnings fátækum. Gjöfum tii fátækra safna dóm- kirkjuprestarnir nú eins og vaut er og biðja þeir fólk að senda sjer þær beint. Sjera Friðrik kom til Winni- peg á föstudaginn var. Hafði ferð- in öll gengið ágætlega. Gefin saman í gær Hjörtur Friðriksson snikkari og ym. Jörgine Katrine Nielsen. S. d. Jón ísleifsson verkfræðingur og ym. Jóhanna Lovísa Pálmadóttir. Dáin er á Landakotsspítala á ' föstudaginn Júlíana Jónsdóttir frá i Háakoti í Fljótshlíð. ! Póstskipaferðir eru frá hinu ! Sameinaða hingaö til Iands 28 á | næsta ári; fer Ceres 9 af þeim, \ Vesta 7 ferðir, Botnía 9 ferðir og ! aukaskip 3 ferðir. — Fyrst kemur 1 Ceres 19. jan. (frá Kbh. 10. ogLeith 14.), fer til Vestfjarða 23.—28. og út 31. jan. Næst kemur Vesta kring um land 7. febr. (frá Kbli. 20. jan., Leith 24., Ak. 1. febr.), en fer út 10. febr. Þá kemur Botnía 10. febr. (frá Kbh. 1., Leith 5.) og fer 16. (um Seyðisfjörð). Fyrsta ferð norð- ur uui land er 26. júní (Vesta). í kolageymsluskipi Chouillou urðu vökumennirn'V varir við reyk í nótt, og eru þeir hræddir um að eldur muni vera kominn í kolin og búið að biðja »Geir« um aðstoð. Enskur línuveiðari kom hing- að inn í gærkveldi. Hafði hann fengið ósjö mikinn. Tók einn mann út, en skolaði inn aftur og dó hann skömmu síðar. Nýja Bíó er nú búið að út- vega sjer skemtilegustu kvik- myndina sem til er, til þess að koma fólki í reglulegt jólaskap. Hún heitir: Gættu Amalíu — en ekki meira. Er leikin af frakk- neskum leikendum eftir hinum frægaskrípaleikGeorges Fegdeans með sama nafni og er í 3 þátt- um. Sjerhver, sem vill fá sjer góðan og heilnæman hlátur.verð- ur að fara og sjá myndina. Orðum verður ekki komið að leiknum. Aðalhlutverkin leika I mlle Alice Tender og mr. Marcel | Simon. Pó mikið hafi kostað að ná í þessa dýrmætu mynd, er þó ekki |hækkaður inngangs eyririnn. 30 ára afmæli Framfarafjelags Seltirninga var haldið á laugardagskvöldið í barnaskólahúsinu á Seltjarnarnesi. Var þar mikið á annað hundrað manns samankoin'ð, Seltirningar og gestir þeirra. E11 heiðursgestur var þar Ingjaldur hreppstjóri á Lamba- stöðum. Var hann einn af stofnendum fjelagsins. Skemmtun var hin besta á afmæli þessu, ræður margar, einsöngur, fjór- söngur og hópsöngur, Brynjólfur Þorláksson spilaði á orgel og margt var annað til skemmfunar. Af ræðumönnum má neína Einar Þórðarson kennara, fyrir minni fje- lagsins, og sjera Bjarna Jónsson, fyrir minni Seltjarnarness. Frú Curie sú, er ásaint manni sínum, Pierre Curie, fann radíum, er farin burt úr París og orðin háskólakennari í efnafræði í Varsjövu, fæðingarborg sinni. Hún hct'ur selt allan radíum- forða sinn til radíumsstofnunarinnar í London. Það voru alls 2 000 milligrömm og verðið var 2 500 000 kr. — Sagt er, að hún sje í þann veginn að giftast aftur. Hún heitir að meyarnafni Maria Sklodowska og er pólsk, 46 ára gömul. Hún fjekk Nóbelsverðlaunin ásamt manni sínum 1903, en hann dó af slys- förum 1906, og nokkru eftir dauða hans fjekk hún verðlaumn afturein. Hún er fyrsti frakkneski kvennpró- fessorinn. St6xtt5\n&\ |frá 3Æcx\feó. --- Nl. Orustan stóð yfir 30 klukknd-ustu ir og var barist hvíldarlaust allan tímann af dæmafáiri grimmd. Mjög var barist í návígi og vjelafallbyss- ur Villa hershöfðingja sópuðu dauð- um og særðum í múga af vígvell- inum; var þeim ekið fram á bryn- bifvögnum og skotin látin dynja án afláts. Villa tók þar 800 fanga og ljet ViIIa skjóta 40 þeirra, en hina nauðuga eða viljuga ganga í sitt liö. Allur stórskotaforði og mest allt stórskotalið Orezco’s fjell í hendur hans. Að lokinni orrust- unni hjelt Villa til Juarez og kvaðst þegar vilja haida með her sinn til Mexíkóborgar sjálfrar og setjaM imti hana. — Norðurálfumenn hafa hnapp ast saman og fengið svæði sjer til umráða í borginni; safna þeir þang- að forða og vopnum og búast til að verj.ist. Höfðu þeir náð í 1000 naut, 100 mjólkurkýr og 1500sauð- kindur og aðrar vistir, nægar þeim í margar vikur. Breski sendiherrann, Sir Linoel Corden, hefur skipað öllum bieskum þegnum þar að gefa upp nöfn sín við sendisveitina, og með því að Danir, sem þar eru, hafa engan sjerstakan sendiherra þar, hefur hann boðið þeim vern bresku sendisveitarinnar og boðið þeim að gefa einnig upp nöfn sín þar. Búist er við, að Villa verði tor- sótt leiðin til Mexíkóborgar frá Ju- arez, því það er alllangt. En hann er sagður garpur mikill og her hans ótrauður. Er mjög orð á þvi gert, hve írábærlega hann stjórni liði sínu og sje sjálfur ótrauður í öllum mannraunum. Grunar menn að sverfa muni að Huerta, þegar hann kemur með her sinn suður og sest um Mexíkóborg. Palladómar. ---- Frh. Voru þá lagasynjanir uppi, íhald, misskilningur og seinfærni stjórnar- innar, þrátt fyrir það, að vjeráttum því láni að fagna, að landshöfðingi sá, er var seinni hluta þingtímabils J. Ó. (1881 - 89) var hinn nýtasti maður. Sóttust því seint mál vor (stjórnarskrárbreytingin o. fl.), þau er óss voru kærust og mest varð- andi. Mun þetta auk annars hafa valdið því, að J. Ó. með öðrum mönnum tók upp Miðlunína svo nefndu 1889. Þótti hún ekki að eins stefnubreyting í mesta máta, heldur og afturhvarf á muir Iakari leiðir, en áður voru farnar í stjórn- arbótarmálinu. Miðlunin varð og óþokkuð og endingarlaus. fY A B1 Ö ; I kveld kl. 9-10i: Gættu Amalíu-— en ekki meira! Skemmtilegasti skrípaleikur í lifandi myndum, sem til er í víðri veröld. Er í 5 þáttum. þessa mynd vill allur bærinn sjá, því allir vilja hlæja. Aðal-kvennhlutverkið hefur MUT ALICE TENDER.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.