Vísir - 08.12.1913, Blaðsíða 4
V I S 1 R
á hælum stigamannanna í nokkra
daga og loks rekíst á foringjann j
og þrjá menn lians í fjailskaröi
nokkru, fjærri aöalflokknum.
»Þar varð hvorki skothríð nje
gauragangur,* sagði hann. »ieg
gekk bara aftan að honum Juan
og snjeri báða handleggina hans úr
liði í axlarliðnum með ofuilitlu
átaki og setti hann á bak.«
»En hvað varð svo um hina
þrjá?« var spurt.
»Beinin þeirra hvítna þar í skarð- í
inu með tímanum«, sagði hann.
E n d i r.
Violantao
(Framhald af Cymbelínu.)
---- Frh.
Greifinn hringdi. ítalski þjónn-
inn gókti vín að skipun hans og
bauð hertoganum vínglas og dýr-
indis vindil. Þá hertoginn það.
Greifinn hlustaði á sögu hertog-
ans með athygli mikilli, sendi við
og við reykjarstrokur út í loftið og
horfði í gaupnir sjer mjög hugsi.
Hertoginn virti hann vandlega fyrir
sjer.
Antonio Rubeoli var hár maður
vexti, á að giska þrííugur. Hann
hafði allmikið hársvart, og var svart-
brýnn, svart skegg á efri vör og topp
á höku, — hár var hrokkið lítið eitt
í vanga og því skift upp af vinstri
augabrún, fór það vel og var auð-
sjeð, að hár og skegg var vel hirt.
Ennið var lágt fremur, augun smá
og tindrandi og hvörfluðu einkenni-
lega og er hann leit upp, var sem
þau hyrfu undir augnabrúnirnar og
yrðu köld og starandi. Yfirieitt var
hann fríður maður sýnum. Hann
var prúðbúinn, ,í Ijósleitum fötum
með svart hálsbindi og glampaði á
stóran grænan stein í bindinu. Hann '
var mjög dökkur á hörund sem títt
er um Suðurlandabúa.
Þegar Alphonse hertogi hafði lok-
ið sögu sinni, rjeri hann um stund
þegjandi ífram á stólnum og mælíi
svo:
»Það hryggir mig mjög, göfugi
hertogi, að yður og húsi yðar skyldi
bera þessi sorg að höndum. Mun
hjer vera úr vöndu að ráða, væri lík-
legasf að hjer væri um bófafjelag að
ræða,er rænt hefði jarlsdótturinni, til
þess að láta föður hennar leysa hana
út með fje, — því hann er sagður
auðugur mjög,« bætti hann við og
horfði íbyggnislega í augu hertog-
ans.
»Satt er það, Forthclyde jarl er
auðugur að landeignum og lausafje,
en frekar hendir slíkt í föðurlandi
yðar, en hjer í vorri friðsömu Parísar-
borg, að auðugum og göfugum
meyjum sje rænt til fjár. Þar eru
fjelög mörg, er hafa slíka glæpi
með höndum, til dæmis Camorra-
fjelagið.«
Antonio greifi klóraði sjer bak
við eyraö, stóð upp og gekk að
glugganum. Frh.
Dómnefndin telur eftirtalda 5
botna besta, og svo líka að gæðum,
að hún leggur til að verðíaununum
verði skift milli þeirra.
142 botnar voru sendir og er
því fjarupphæðiri kr. 35,50 eða
kr. 7,10 í hvern stað.
Stormur ærir. Kólna klær.
Kvíðir bærinn. Vetur hlær.
Frostid særir. Fýkur snœr.
Freyðir sœrinn. Enginn rœr.
E.-f.
Þykknar snœrinn. þrymur sœr.
Þorna fœrin. Enginn rœr.
P.
Frostið sœrir. Fýkur snœr,
Fjöllin krœrast. Rýkur sœr.
Gunnar Sigurðsson.
Inni’ er fœrið. Enginn rœr.
Ólmast sœrinn. Fýkur snœr.
Jónas Jónsson.
Frostið sœrir. Feigðin slœr.
Fýkur snœrinn. Rýkur sœr.
G. H.
er nú vel birg af matvörum, kaffi og sykri.
Vörurnar góðar og verðib það lægsta í bænum. Til
dæmis:
Kaffi óbrennt
Kaffi brennt
Sykur
Kakaó gott
pd. 80 aura
— 1,12 —
— frá 22 —
— 90 —
Jólatrje,
stór og smá, ódýrust í versl.
,Von/
Laugaveg 55.
Pantið í tíma.
Talsími 353.
Prjónavara.
Stærsta og ódýrasta úrval í
bænum kom með
síðustu skipum
í
Vefnaðarvöruverslunrna
á Laugavegi 5.
M. R A S M U S.
Útgefandi
Einar Gunnarsson, cand. phil,
Östlundsprentsm iðja.
Epli ágæt, pd. 25 aura
Perur — 50 —
Vínber — 50 —
Appelsfnur, st. 6 —
Laukur, pd. 12 —
Kartöflur, tunna 9 kr.
í versl.
Laugaveg 55.
Haframjöl „ Axa“— 15 —
Jólahveitið — 13
og allar aðrar vörur eftir þessu.
Sparið peninga yðar með því að versla
í „ V O N. “
Hringið upp talsíma 353 og pantið, og mun yður
^ þá samstundis verða sent það, sem um er beðið.
gjpppy.,?. y yapppppp? ftW c-vvvapt
Jólatrjesskraut,
Klemmur og
Kerti, stór og smá,
ódýrust sem annað í versl.
Von',
f *
Laugaveg 55.
(n
T3
_ mmZ C
S *o .S,
5 CÖ bD
E “ -
bJ3
cö
3^
.03 'p
<v
btO
bfl
O
'ed
E
CO
Bestu fatakaup á
Laugavegi 1.
Jón Hallgrímsson.
Lautenant A. M. Jóhannsson
flytur eriridí í samkomusal Hjálp-
ræðishersins í kveld. Efni.
Nýung nútímans.
Frí aðgangur.
Steinolía
er ódýrust í versl.
,Von‘,
Laugaveg 55.
Talsími 353.
Magnús Sigurðsson
Yfirrjettamálaflutningsmaður.
Kirkjustrœti 8.
Venjulega heima kl. 10—11.
par E L D U R !
Vátryggið í „General“.
Umboðsmaður
Sig. Thoroddsen.
Fríkirkjuveg 3.— Heima 3—5.
Sími 227.
tímanlega.
ítapað-fundið
Handtaska tapaðist í gærkvpldi
í Austurstræti. í henni var bud a
með nokkrum smápenigum í. Finn-
andi beðinn að skila henni gegn
fundarlaunum á afgr. Vísis.
Q kaupskapur Q
Dömuhattur til sölu með tæki-
færisverði. Til sýnis á afgr. Visis.
Buffet og matborð úr eik til sölu.
Hverfisg. 4B.
Dagtreyur og morgunkjólar,
fallegir og ódýrir, til sölu í Dok-
tórshúsi viö Vesturgötu,
es
V I N N A
Morgnnkjólar og telpukjólar
fást ódýrt saumaðir í Doktórshúsi
við Vesturgötu.
Saumavjelar og talvjelar tekn-
ar til aðgerðar á Laugaveg -16 B.
L E I G A
Orgel gott óskast til leigu.
Afgr. v. á.
) FÆÐ I - ÞJ Ó N U ST A j
Kaffi- og matsölu-húsið, Ing-
ólfsstræti 4, selur gott fæði og
húsnæði. Einnig heitan mat allan
daginn, ef þess er óskað.
Fæði og húsnæði fæst á Klapp-
arstíg ÍA.
Ágætur miðdegisverður og aðrar
máltíðir fást á Laugavegi 30A.
Þjónusta fæst. Uppl. á Lauga-
vegi 50B.
Mafiir Góður heitur
• maturafmörg-
um tegundum fæst allan dag-
inn á Laugaveg 23.
K Johnsen.