Vísir - 13.12.1913, Síða 2
V í S I R
fá ekki betri gjafir, en hinar ágætu mynda-
bækur ogsögubækur með myndum frá
Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar.
I dag:
Fullt tungl. — 8. vika vetrar.
A morgun:
Aftnœli.
Halldóra Mattíasdóttir, kénnslu-
kona.
Frú Hólmfríður, Björnsdóttir.
Ingibjörg H. Bjarnason, skólastýra.
Frú Lovísa Ásmundsson.
Axel Larsen, veggfóðrari.
Fr. Nathan, kaupmaður.
Hrómundur Jósepsson, skipstj.
Pví er framleiðslan takmörkuð, en þótt
hún ykist, væri engin hætta á ferð-
um, því aö ekki þarf að kvíða því
að ofmikið sje framleitt af þeirri
vöru.
Eftir að baðmullinn hefur verið
tínd af fræinu, má af því gera
olíu, en þaö sem þá er eftir, er
gott skepnufóður og vegur jafnvel
á við hey. Frh.
Ofsaveður f Noregi
og Svíþjóð.
Aftaka fellibylur hefur geisað
um mánaðamótin á vesturströnd
Noregs allri, og hafa mörg slys
orðið af á sjó og landi. í Bergen
drukknuðu 5 menn, er voru að
róa út f gufuskip á höfninni.
f Stenkjœr eyðilögðust götur og
vegir af vatnagangi, og víða
tepptust allar járnbrautarferðir.
Járnbrautir liggja undir vatni
og hleðslur undan þeim og brýr
hafa sópast burtu. í Þrándheim
hefur fjöldi húsa hrunið og sög-
unarmylnur þar í nánd jafnast
við jörðu. Nálega hver einasta
sfmalína slitnaði í ósköpum þess-
um. Á Skáni gerði og flóð og
fádæma storm, svo vindhraðinn
var 50 mílur á klukkustund. í
Norður- og Mið-Svíþjóð hafa
orðið stórskemmdir á húsum og
mannvirkjum af stormi og vatna-
gangi.
Flóð í St. Pjetursborg.
Ofsaveður af hafi var 3Ö. f. m.
til 2. þ. m. á Rússlandi. Hljóp
svo mikill vöxtur í Nevu, að þeg-
ar síðast frjettist (2. þ. m.), var
hækkað í ánni um 6V2 fet og
allir Iægri hlutar Pjetursborgar
voru undir vatni. Fallbyssuskot
dundu f sífellu frá Pjeturs- og
Páls-virkjunum til þess að vara
borgarbúa við að láta sig flæða.
Palladómar.
--- Frh.
5. Skúli Thoroddsen,
þingmaöur Norður-ísfirðinga,
(f. 6. jan. 1859).
Hann hefur nú á 15 þingum setiö,
1891 fyrir Eyfirðinga, 1893—1902
fyrir fsafjarðarsýslu (áður en henni
væri skift í tvö kjördæmi) og 1903—
1913 fyrir Norður-ísfirðinga.
Skúli er rúmlega meðalmaður á
vöxt, manna gildastur, ekki skjót-
legur á fæti, limaður vel og stilli-
legur í framgangi. Yfirlitum er hann
bjartur, Ijós á hár og skegg, enni-
mikill og gerist nú sköllóttur,
brúnamikill, söðulnefjaður nokkuð,
þykkleitur mjög, augun ekki stór,
dökk og djúp, og svo er hann
svipmikill, að kenna munu hann
flestir, ef litið hafa einu sinni. Á
ljetta skeiði æfinnar þótti hann einkar
fríður maður og fjörlegur, en nú
er hann öldurmannlegur mjög
ásýndum og þó ekki ellilegur um
aldur fram.
Sk. Th. er einna þjóðkunnastur
þeirra manna, er nú sátu á þingi.
Heldur margt til þess. Hann hefur
verið blaðamaður í 27 vetur og
þann tíma reift öll stærri þjóðmál
vor, staöið þar á öndverðum meið
um allt það, -er hann hefur hugaö
til nytsemdar vera, og hefur lengst
um þótt á ýmsa lund miklu skifta,
að vita tillögur hans til málanna.
Hefur hann alla jafna lagst djúpt í
málin, enda tillögur hans lengstum
byggðar á fullum skilningi og minna
á froðu- og fleipuryrðum. Átti hann
á öndverðri blaðamannsæfi sinni í
sumum þeim skærum, er þjóð-
ræmdar urðu. Þótti þá það allt sjást
hjá honum í senn, að hann væri
fullhugi, framkvæmdamaður, þjóð-
rækinn kappsmaður og sæist lítt
fyrir, við hvern sem um var að
eiga, og jafnrjettismaöur meiri en
margur annar, þá er til allrar al-
þýðu kom og lífskjara hennar. En
ekki hefur blaðamennska Sk. Th.
alla stund þótt ljettfær og listfeng.
Þá er Sk. Th. kom á þing, mátti
þar gerla kenna alla þá eiginleika,
er nú voru taldir, og þar með eðli
brautryðjandans og forystumanns-
ins. Gekk hann og þar í sveit, er
fyrir voru fullhugar þingsins, og
þótti alþýðu manna og fleirum,
er ekki voru honum öndverðir,
það þingbót. Gerðist hann um-
far.gsmikill, hlífðist hvergi við and-
stæðinga sína, sótti mál vor fastog
ekki síður sín, svo vart varð milli
sjeð þar til yfir Iauk málum hans,
svo sem löngu er ljóst. Sveif og
hvergi hjá honum um fulltingi viö
sjálfstæðiskröfur vorar, þær er þá
voru uppi, og þótti sem þar mundu
þeir menn, er þar stóðu að málun-
um, eiga sjer foringjaefni, er við
missti þeirra, sem fóru þá með for-
ystuna. Fór hjer og saman hjá
honum geiglaust málafylgi, starf-
semi og mælska, sú er í sjer faldi
rökfærslu og skýring málanna,
byggða á athygli og framsýni all-
oftast. Er það mál margra, að
gerst megi kenna Sk. Th. á þing-
ræðum hans. Þar sje hann allur.
Mun það og sönnu næst.
Lítt Iagðist Sk. Th. á hugi við
Valtýskuna, er hún var fyrst á þing
borin, enda fór þá ómjúkt á ineð
honum og þeim blaðamönnum, er
henni voru mest fylgjandi. Var
senna sú sleitulaus, og ljek á tveim
tungum, hvort framar væri sókn en
vörn. Gerðist og margt það í, utan
þings og innan, er nú skiftir ekki
máli. Það þóttu því mikil tíðindi,
ótrúleg og ógóð sumum, er það
varð, að Sk. Th. gekk undir merki
Valtýskunnar [í öllu verulegu, og
fjell í faðma við fjendur sína, þá
er hjer stóðu að málinu. Varð hann
nú ein meginstoð Valtýinga og
síðan Þjóðræðismanna. Frh.
Violanta.
(Framhald af Cymbelínu.)
---- Frh.
»í Rue de Rivoli nr. 176, —
gömlu húsi allfallegu.«
»Ætli það sje ekki sjálfsagt, að
jeg heimsæki sem fyrst þennan
ókunna »vin minn?« Mjer þætti
gaman að sjá, hvort þetta er ein-
hver vinur minn eða kunningi frá
Neapel, er breytt hefur um nafn
eða — jeg hef gleymt svona hrap-
allega,* sagði René og hló að. »En
— segðu mjer, pabbi! Hvernig er
hún útlits, þessi horfna jarlsdóttir
frá Englandi? Jeg hef aldrei sjeð
hana og ekki heldur þessa Marion
hertogadóttur, vinkonu hennar, því
jeg var á Ítalíu, þegar þær komu.
— Já, það er annars best að jeg
aki til þessa blessaða greifa fyrst.«
»Jeg kem með þjer.«
»Gott! Þá getur þú sagt mjerfrá
þeim gestunum þínum á leiöinni.*
»Við setjumstj fyrst að snæðingi
og þá fær þú aö sjá Marion her-
togadóttur, svo jeg slepp við að
lýsa henni frekara. En ungfrú Forth-
clyde er allra yndislegasta stúlka, —■
hún var eitthvað um sjö — átta
ára telpa, þegar við dvöldum um
sumartíma hjá jarlinum föður henn-
ar. Þú hlýtur að muna eftir henni.<
René Ieit út í gluggann. »Jú,
bjarthærð, bláeyg telpa á stuttum
grænum kjól, — það mun hafa
verið, — jeg held mig rámi eitt-
hvað í það, — hún var víst snot-
ur en nokkuð snögg á lagið, minn-
ir mig.«
»Já, hún er tápmikil stúlka, þótt
ung sje, enda mun hún þurfa á
því að halda.
— Þeir settust nú að snæöingi.
Marion hertogadóttir var lasin og
borðaði ekki.
Að loknum snæðingi kom Ru-
f dolphe gamli ineð vagn hertogans
að dyrum. Frh.
Tobaks- og
Sælgætis-verslunin
á Laugaveg 5.
hefur nú fengið miklar birgðir af
vindlum og ióbakl.
Einnig allskonar
sælgæti,
Á v e x 11, nýja, kandíseraða
og í dósum.
Allt selt með lægsta verði
nú til J ó I a.
Gættu Amalíu — en kauptu hjá Hanson.
í hinni alþekktu Vefnaðarvöruverslun H. S. Hanson, Laugaveg 29,
eru nú með Botníu komið afarstórt úrval af allskonar vefnaðarvörum, þar á meðal feiknastórar birgðir af Silki misl., einl. og sv., í svuntuna
frá kr. 6,85, fjarska mikið af slifsura og slifsaefnum frá kr. 1,60, og þau bestu og fallegustu Sjöl, sem nokkurntíma hafa til landsins komið
fjöldi tegunda af hverri gerð, líka silkilangsjöl af mörgum sortum, Dömuklæöin alþekktu, Alklæði, Flauel, Flónel, Vaskekta-
tau, Vetrarhúfur og Hanskar og fl. fl.
Wmr Stór afsláttur gefinn af öllu til jóla, 1M
Skotsk fataefni, alull tvinnað, 27% afsláttur nú fyrst um sinn, 40% af dömuregnkápum meðan endast.
Notið tækifærið! H,S. Hanson, Laugaveg 29.