Vísir - 06.01.1914, Side 4
V 1 S l R
»Frá hverjum er þetta?« spurði
hún nokkuð fljótmælt.
»Það er frá stúlku,« sagði jeg
brosandi, eins og hjer væri ekki um
neitt alvariegt að ræða.
»Hvaöa stú!ku?«
»Æ, góða mín, er þjer ekki sama
frá hvaða stúlku það er,« sagði jeg,
og nú fór af nijer brosið. »Það
tar brjefspjald frá kunningjakonu
minní í umslaginu.«
»Þú lofar mjer líklega að sjá það,«
sagði konan mín og var dálítið
óþolinmóð.
»Elsku kona, vertu nú ekki að
þessari vitleysu, þú hefur ekkert að
gera með að sjá það. Jeg held líka,
að þú hafir sjeð það áður,«
»Áður, nei,« sagði konan og
hrisli höfuðið, hún fór að virða
fyrir sjer skriftina á umslaginu og
mjer stóð ekki á sama, ef hún
skyldi þekkja hana. En hún var
engu nær, kastaði umslaginu á
borðið og bað með enn meiri á-
kefð um að fá að sjá brjefspjaldið.
Litla dóttir okkar opnaði nú
stofuhurðina og gægðist fram.
»Pabbi og mamma komið þið nú
fljótt áður en súkkulaðið verður
kalt.«
Jeg gekk fram að hurðinni.
»Bíddu, anginn minn, við komum
strax og svo Ijet jeg aftur hurðina
og snjeri lyklinum. Það var engin
ástæða að láta heimilisfólkið og
gestina komast með nefið í það,
sem var að gerast milli okkar
hjónanna.
»Heyrðu, jeg vil nú bara strax
fá «ð sjá spjaldið, — þú skammast
þín ekki að ætla að fara á bak við
konuna þína á sjálfa jólanóttina.*
Jeg komst í stökustu vandræði
og fór að klóra mjer í höfðinu,
og þetta hafði þau áhrif á kouuna
mína að hún komst í æst skap. •
»Nei, kona góð, jeg skal vera
hreinskilinn við þig og segja þjer
alveg eins og er, en þú mátt þá
ekki verða vond,«
Konan þagði og starði í augu
mjer.
»Jeg þekkti þessa stúlku áður en
við giftumst, við vorum bestu
kunningjar«; — jeg sá að það var
ekki til neins að draga þessa játn-
ingu lengur.
»Hún heimsótti mig oft, og jeg
hana stundum — við vorum eigin-
lega trúlofuð — jeg sat stundum
undir henni — og kysti hana«---------.
Jeg kom mjer varla til að líta upp
á konuna mína eftir þennan lestur,
en samt skotraöi jeg til hennar
augunum. Hún stóð sem dauða-
dæmd fyrir framan mig, hvessti á
mig augun og beit á varirnar, allt
blóð var runnið úr kinnum hennar
°g jeg sá að þessi leikur mátti
ekki standa lengur.
Telpan okkar var komin aftur í
hurðina og hamaðist í handfanginu
og litli strákurinn var líka kominn
og barði nú af öllum kröflum með
litlu hnefunum í hurðina. Þau
heimtuðu að við kæmum. Fólkið
var þagnað inni, hefur eflaust farið
að undrast um fjærveru okkar og
að jeg skildi afloka hurðinni. Jeg
gat ekki sinnt þessu neinu, nú varð
jeg að ljuka mínu máli sem fyrst.
»Þessi stúlka hefur allt af elskað
mig síðan þ<« — kcnan steinþagði
— »og jeg — jeg elska hana lika,
— eins mikið og — og — þig.«
Jeg stundi við, þarna var jáinirigin
komin, jeg þreyf niður í brjóstvasa
minn, að ná þessu óttalega brjef-
spjaldi, því nú var ekki annað
eftir en sýna veslings konunni það
og taka afleiðingunum.
Síðasta kertið á jólatrjenu 'brann
út og nú iogaði aðeins á einum
lampa, það var þó vel iesljóst.
Ef öll brjefspjöldin, sem komu
í jólapóstinum um daginn, hafa
komið af stað annari eins geðshrær-
ingu og þetta spjald — jeg segi
það aftur, — þá hefði borginni
verið brugöið. Krakkarnir ólmuðust
sem mest, blessuð börnin, sem
enga hugmynd hafa um, hvenær þau
missa foreldra sína.
Jeg rjjti konunni brjefspjaldið
og hún lók v'ð því með skjálfandi
hendi. —En nú fjekk hún loks málið.
»Var það þetta brjefspjald?«
Hún þreif umslagið og skoðaði
aftur skriftina á því. Hún hugsaði
sig um, og allt í einu var sem ljós
rynni upp fyrir henni.
»Já, nú man jeg það. Jeg hafði
svo mikið að gera í gær, að jeg
Ijet hana Helgu skrifa utaná fyrir
mig.«
— Brjefiö var frá engri annari
en konunni minni. Stefán.
I LÆKNAR |
iGuðm.Björnssonl
landlæknir. §
S Amtmannsstíg 1. Sími 18. $
fe Viötalstími: kl 10—11 og 7—8.23
28 /
Ol. Gunnarsson
lækntr.
Lækjargötu 12A (uppi).
Liða- og bein-sjúkdómar
(Orthopædisk Kirurgi)
Massage, Mekanotherapi.
Heima 10—12. Sími 434.
Massage-læknir
Guðm. Pjetursson.
Heima kl. 6—7 e. m.
Spítaíastíg 9. (niðri). Sími 394
M. Magnús,
læknir og sjerfræðingur
í húðsjúkdómum.
Viötalstírni 11 — 1 og ö1/2—8.
Sími 410. rkjuslræti 12
F A .
VERSLUN ÁMUNDA ÁRNASONAR
— HverfisgöJu —
selur nú um tíma ágæta kæfu með lægra verði en almennt gerist.
£%tids\tvs
stærsta og besta
er
Einars Árnasonar.
Aðalstræti 8.
SíO
DAILY MAIL
— vikublað —
*)3v?ftesxvasU fvevxxvsvxvs.
V
Ö&^xasta fvevxxvsvxvs.
, *
Utbreiddast allra erlendra blaða á Islandi.
s
ENT beint frá London til áskrifenda hjer.
Tefst ekki hjá milliliðum.
Kostar í 12 mánuðirað með-
töldum burðareyri að eins kr.
4,75
7 mm
3staxvds-a5$xev5slatv Vefeux t)v5 póxvVuxvuxtv.
Þorvaldur Pálsson
læknir,
sjerfræðingur i meitingarsjúkdómum.
Laugaveg 18.
Viðtalstími kl. 10--11 árd.
Talsímar: 334 og 178.
M-----------------------i
/v; Pórður Thoroddsen
fv. hjeraðslæknir. SK
fev) Túngöíu 12. Sími 129. |||
(g'j Viðtalstími kl. 1—3. ‘
SE_____________________25T
Kína
lífs-elixír
fæst hjá
Jtvc. JS\axxva$oxv.
eru oftast til fyrirliggjandi hjá
Birni Símonarsyni gullsmið,
Vállarstræti 4.
Magdeborgar-Brunabótafjelag.
Aðalumboðsmenn á íslandi:
O. Johnson & Kaaber.
KAUPSKAPUR
Rúmstæði meö madressu er til
sölu nú þegar eða 14. maí. Afgr. v.á.
Járnsmiðaskrúfstykki óskast til
kaups. Afgr. v. á.
2 »Dömudragtir« fyrir grímu-
ball til sölu á Hverfisg. 2 B.
Ferðaföt og karlmannskjólföt til
sölu með góðu verði. Afgr. v. á.
VINNA
Stúlka óskast á barnlaust heimili
nú þegar. Uppl. á Bjargarstíg 3 uppi.
Magnús Sigurðsson
Yfirrjettarmálaflutningsmaður.
Kirkjustræti 8.
Venjulega heima kl. 10 —11.
^$$exA tlaessexv
Yfirrjettarmálaflutningsmaður,
Pósthússtrætí 17.
Venjulegaheima kl. 10—II og4—5
Talsími 16.
Útgefandi
Einar Gunnsrsson,cand. phii.
KENNSLA
Kennslu í Frakknesku veitir
Adolf Guðmundsson, Vesturg. 14.
(í Fjelagsbakaríinu). Heima frá 4—6
síðdegis.
TAPAЗFUNDIÐ.
Þú, sem tókst hamarinn síðastl.
aðfangadag jóla. hjá mótorbátnum
fyrir neðan Iðunni, gerðu svo vel
og skilaðu honum að húsinu 69
við Laugaveg, að öðrum kosti verða
drengirnir, sem horfðu á þig, látnir
segja lögreghmni til þín._____
Prentsm. Östlunds.