Vísir - 09.02.1914, Side 1
9QQ
^D\s\r
Vísir er blaðið þitt.
Hann áttu að kaupa fyrst og fremst.
Kemur út alla daga. Sími 400.
Agr. í Hafnarstr. 20. kl. 11 árd.til 8 síðd.
Kostar 60 au. um mánuðinn.
Einst. blöð3au.
Skrifstofa í Hafnarstræti 20. (uppi),
opin kl. 12—3, • . Sími 400.
Langbestí augl.staður í bænum. Augl.
sje skilað fyrir kl. 6 daginn fyrir birtíngu.
Mánud. 9. febr. 1914.
Háfl. kl.4,34‘ árd. og kl. 4,53’ síðd.
Á morgun
Afmœli :
Frú María Ólafsdóttir.
Frú Ragnhildur Pjetursdóttir.
Frú Kristín Pálsdóttir.
Ungfrú Rannveig þorvarðard.
Ámundi Ámundason, fiskimatsm.
Póstáætlun:
Ingólfur fer til Borgarness.
Botnía kemur frá útlöndum.
Veðrátta í dag.
Loftvog X -< 6 a V- 12 -a c > Veðurlag
Vm.e. 741,0 0,4 0 Ljettsk.
R.vík 745,2 0,5 NNA 4 Skýað
ísaf. 750,4 3,6 NA 1 Alsk.
Akure. Gr.st. 744,6 0,3 NNA 4 Hríð
Seyðisf. 739,2 0,4 0 Hríð
þórsh. 739,3 1,8 V 2 Alsk.
munið eftir tilraunakosningunni á
Hverfisgötu 3C kl.5—8 í dag.
OíA I BiografteaterlOíA
OIO | Reykjavíkurj D10
sri
Sjónleikur í 2 þáttum frá »Vita-
scope« í Berlín.
Aðalhlutverkið leikur
Hanni Weisse.
H
Hjer með tilkynnist, að
konan mín elskuleg, Helga
Halldórsdóttir, andaðist að
heimili sínu, Holtsgötu 9.,
31. janúar. Jarðarförin er
ákveðinfimmtudagl2. þ. m.
fráheimilihinnarlátnu. Hús-
kveðjan byrjar kl. 11 l/2 f. h.
Eftir ósk hinnar látnu verð-
ur ekki tekið við krönsum.
Ingim. Þórðarson.
Cigarettuverksmiðjan
A. G. Cousis & Co., Cairo &
Malta, býr tii heimsins bestu
egyptsku og tyrknesku sígarettur.
Þær eru seldar um víða veröld.
Þýskalandskeisari reykir þær og
Noregskonungur. Engar aðrar sí-
garettur er leyft að selja íTunis
og Japan. Þær fást í
Levis tóbaksverslun.
Málskostnaður falli niður fyrir báð-
um rjettum.
Ljenharður fógeti var sýndur
í gærkveldi í síðasta sinni á þess-
um vetri. Var leikhúsið íroðfullt, og
fylgdu menn auðsjáanlega leiknum
með mikilli athygli. Tókst leikurinn
yfir höfuð vel, og var til muna
betur leikið en fyrsta kveldið. Sjer-
staklega skal bent á að bæði í 1.
og 3. þætti var leikurinn bæði
kvildegri, eðlilegri og betri en áður.
Jíot\8 sewd\s\Jo\w
frá
Sendisveinaskrifstofunni.
Simi 444.
Þegar djöfullinn
heimsókti okkur.
0 R BÆRtJMH
Yfirrjettardómur. Nú samstund-
|s var uppkveðinn yfirrjettardómur
í málinu: Krabbe verkfræðingur
gegn bæarstjórninni. Vann Krabbe
málið, en krafa hans færð niður
úr 3 000 kr., sem undirrjettur
hafði dæmt honum, í 1 500 kr.
með rentum frá 17. okt. 1912.
Þegar jeg nú sest niður til þess
að færa í letur einn hinn stórfeld-
asta viðburð, sem yfir höfuð virð-
ist geta komið fyrir nokkurn mann,
geng jeg ekki að því gruflandi, að
margir muni segja þegar í upp-
hafi og áður en þeir hafa nokkuð
kynnt sjer málavexti og mögUleika
til þess að satt sje frá sagt, að þeir
segi þá umsvifalaust að saga mín
sje ekki sönn. Jeg mun þó reyna
að skýra svo nákvæmlega frá til-
drögunum til þessa atburðar og frá
atburðinum sjálfum, að menn hugsi
sig tvisvar um áður þeir neita að
satt sje, enda eru tveir menn vitni
að því, sem fram fór, og væru til
með að staðfesla þessa frásögn með
eiði eða Ieggja við drengskap sinn
að sönn sje.
Það er líka svo margt í náttúr-
unnar ríki, sem menn skilja ekki,
og geta þó ekki móti mælt að til
sje. Við höfum nýlega heyrt vitnis-
burði margra mætra manna og þar
með prestvígðra um það, sem fram
hefur komið við þá og kallað er
af völdum dauðra manna, að ekki
er til neins að berja lengur höfð-
inu við steininn með blákaldri neit
un. Jeg fyrir mitt leyti trúði alls
ekki á tilveru djöfulsins, er þessi
sýn bar fyrir mig, en þar fyrir get
jeg ekki á neinn hátt efast um, að
jeg hafi í raun og veru sjeð það,
sem jeg þóttist sjá, enda urðu fleiri
skilningarvit mín en augun vör við
tilveru þess, sem jeg sá og við
báðir,
Það var komið fram á þorrann,
árið 1896. Snjór var mikill á jörðu
og hörku frost úti. Við vorum tveir
skólapiltar sambýlismenn í litlu her-
bergi niðri í Miðbænum í Reykja-
vík. Fjelagi minn var nokkuð kvef-
aður og olli það honum allmik-
illar áhyggju, því að næsta kvöld
átti hann að vera í boði hjá heldri
fjölskyldu í bænum. þar var gjaf-
vaxta dóttir og fríð sýnum og var
honum næsta hugleikið að geta i
komið þar sem best fram. Hann
var söngmaður nokkur og mátti
búast við, liann myndi nokkuð
þurfa að nota sína góðu rödd í
gleðinni og glaumnum og því var
nú íllt í efni, er hann var nokkuð
hás.
Hjer var úr nokkuð vöndu að
ráða, og vildi jeg fyrir hvern mun
geta orðið vini mínum að liði í
þessu efni. Datt mjer þá í hug
gamalt þjóðráð, en það var að fá
sjer heitt og sterkt Wisky-toddý, og
voru þetta raunar engir neyðarkost-
ir, því báðum þótti allgott í staup-
inu,
Efni voru ekki mikil fyrir hendi,
en lánstraustið var allgott og feng-
uiii við því lánaða 1 flösku af
Wisky hjá góöum kaupmanni og
1 pd. af púðursykri. Þegar heim
kom með varninginn, lögðum við
vel í ofninn og hituðum á honum
vatn og svo var sest að drykkju.
Vinur minn fjekk ósviklnn bróður-
partinn úr flöskunni, enda var það
hann, sem átti að læknast og jeg
beinlínis neyddi því seinasta ofan
í liann. Mjer var líka bæði annt
um að lækning mín hrifi og svo
var máske dálítill hrekkur í og
með. Jæja, lionum varð nú ekki
meint af inntökunni og þegar litið
er einnig til þess, að þetta var í
síðasta sinn, sem áfengur dropi
kom inn fyrir hans varir, verður
ekki sagt, að inntakan hafi verið
of mikil. Enda stóð heimsóknin að
minnsta kosti ekki í beinu sam-
bandi við hana.
Þegar vi höföum lokið úr flösk-
unni, bættum við vel áofninn,byrgð-
um gluggann, sem best við gátum,
svo norðanbylurinn næddi ekk* eins
inn á okkur. Háttuðum og siökt-
um ljósið, breiddum vel yfir okkur
og sofnuðum von bráðar.
»Jesús almáttugur drottinn!*
Gegn um svefninn heyrði jeg
þetta hrópað í skelfilegum angistar-
róm og í sama bili var jeg gripinn
heljar tökum, svo hold ætlaði frá
beini og jeg varð samstundis glað
vakandi. Það var vinur minn, sem
hafði gripið í mig af öllum lífs og
sálar kröftum.
»Djöfullinn«, hvíslaði hann nú.
Það var albjart í herberginu, enda
þótt niðdimm nótt væri og við
hefðum slökkt á Iampanum, sem
stóð á borðinu með kyrrum kjör-
um.
Mjer var fyrst litið til vinar míns,
sem hafði fengið þetta heljarafl, er
jeg vissi ekki til áður að hann ætti.
Augun ætluðu út úr höfðinu, svit-
inn rann af honum í Iækjum og
hann skalf og nötraði eins og hrísla
Jeg hef hugsað til þess á eftir,
að það var lán að hann skyldi
hvorki verða vitskertur eða þá að
minnsta kosti hvítur af hærum, eftir
svo afskaplega geðshræringu.
Hann starði fram til rúmgaflsins,
þaðan sem birtan virtist koma og jeg
leit í sömu átt, þegar orðinn sæmi-
lega skelkaður, og jeg sá — sömu
sjónina og hann.
Hann stóð þarna að sjá fast við
rúmgaflinn okkar, eldrauðflekkóttur
á litinn upp að húfubarði og fuku
gneistar út frá honum í allar áttir.
í herberginu var ofsa hiti og bruna-
lykt. Rúmgaflinn var svo brenn-
heitur að jeg varð að kippa að mjer
fótunum. Niðurh
BIIrÁ ÚTLÖNDUNlfl
BtB
Einkennilegar töiur.
í reikningi koma oft fram ein-
kennilegar talnaraðir; einkum á það
sjer stað við margföldun á öllum
tölunum 1—9 í röð. Lesendum
Vísis þykir eflaust mörgum gaman
að reikna og skal hjer því nefna
nokkur dæmi.
Þegartalan 987 654 321 er marg-
földuð með 45 verður útkoman
44 444 444 445. — Ef margföld-
unartölunni er snúið við og
123 456 789 er margfölduð með
45, verður útkoman jafn einkenni-
leg: 5 555555 505.
Ef nú tatan 123 456 789 er
margfölduð með 54 (stafirnir 4 og
5 skifta om sæti) kemur önnur ein-
kennileg útkoma,- 6 666 666 606.
Sje nú margföldunartalan eins og
í fyrsta dæminu 987 654 321 og
attur margfaldað með 54 verður
útkoman 53 333 333 334 — allir
tölustafirnir 3 nema fyrsti og síð-
asti, sem eru sömu stafirnir og í
margfaldaranum 54.
Sje ennfremur sama margföldun-
artala margfölduð með 27 (helm-
ingnum af 54) verður útkoman
26 666 666 667 —, allir tölustaf-
irnir 6, nema fyrsti og síðasti, sem
eru sömu stafirnir og í margfaldar-
anum: 27.
Ef nú 2*og 7 eru láfnir skifta
um sæti og sama margföldunartala
notuð, þá verður dæmið svoria:
98 7 654 321 x 72 og útkoman þá
71111111112 —, tala með sömu
einkennum og í næsta dæmi á
undan: allir tölustafirnir 1 nema sá
fyrsti og síðasti, sem eru sömú staf-
irnir og í margfaldaranum 72.
Jafn einkennileg verður útkoman
þegar þessir tölustafir, raðað á ýms-
an veg, eru margfaldaðir með 9
eða útkomu eínhverra einstakra tölu-
stafa, margfaldaðra, með 9.
Ef margföldunartalan t. d. er
12 345 679 (8 sleppt úr röðinni)
og margfaldað er með 63 sem er
= 7x9, lítur dæmið svo út:
12 345 679
________63
37 037 037
74 074 074
777 777 777