Vísir - 22.02.1914, Side 1

Vísir - 22.02.1914, Side 1
9VS V6 \/íd 8* er elsta— besta — út- V 1 ö B I breiddasta og ódýrasta dagblaðið á íslandi. « Vísir er blaðið þitt. Hann áttu að kaupa fyrst og fremst. Kemur út alla daga. Sími 400. Afgr. í Austurstr. 14. kl. 11 árd.til 8 síðd. Kostar 60 au. um mánuðinn. Kr. 1,80 ársfj. Kr. 7,00 árið (380-400 tbl.). Skrifstofa í Áusturstræti 14. (uppi), opin kl. 12—3 Sími 400. Langbesti augl.staður i bænum. Augl. sje skilað fyrir kl. 6 daginn fyrir birtingu. Sunnud. 22. febr. 1914. Háfl. kl. 4,0' árd. og k!. 4,19’ síðd. Á morgun Afmœli : Frú Ant;a Adólfsdóttir. Ungfrú Dóra Þórha'Isdóitir. Eyólfur Björnsson, vjelstjóri. Póstáœtlun: Hafnarfjarðarpóstur kemur og fer. Biografteater Reykjavíkur Hjartakvalir. Sjónleikur úr daglega lífinu í 2 þáttum. , Hin dygga Lucy Agætur franskur gamanleikur. tkkistur fást venjulega tilbúnar á Hverfisg. 6. Fegurð, verð og gæði undir dómi aimeunings. — Sími 93. — Holgi Helgason. Trúlofunar- hrÍnga smíðar BjörnSímonarson. Vallarstr.4.Símil53 s&w&\$ve\t\ frá Sendisveinaskrifstofunni. Simi 444. Cigarettuverksmiðjan A. G. Cousis & Co., Cairo & Nlalta, býr til heimsins bestu egyptsku og tyrknesku sígarettur. Þær eru seldar um víða veröld, Þýskalandskeisari reykir þær og Noregskonungur. Engar aörar sí- garettur er leyft að selja í Tunis og Japan. Þær fást í Levis tóbaksverslun. ^ÍSíTfcía m við Bergstaðastræti kJ E IVACl. I í a 0g Qrundarstíg : Samkoma í kveid kl. 61!,. Aiiir velkomuir. D. Östlund. f Betel í kvöld, kl. 6l/2. Efni: Hin sjö innsigli. (Opinberunarb. 6. kap.) Alvarlegir og frœðandi viðburðir birtir í hinu spámannlega orði. Ailir velkomnir. Myndir sýndar fyrirlestrinum til skýringar. O. J. Oisen. Magdeborgar-Brunabótafjelag. | Aðalumboðsmenn á íslandi: É O. Johnson & Kaaber. 1 Magniís Sigurðsson Yfirrjettarmálaflutningsmaður. Kirkjustr. 8. Venjul. heima kl. 10-11 Æfiníýri á gönguför eftir C. Hostrup, sunr.udagskveid kl. S (líklega í síðasia sinn). Aðgöngumiðar fást í Iðnó. m ARNI EIRIKSSON, AUSTURSTÆTI 6. Bæarins besta verslun með: Vefnaðarvörur til alls konar fatasaums og hannyrða. Prjónavörur. Nærföt fyrir unga og gamla. Sokkaplögg, vettlingar og peysur. Hrenlæíisvörur, flest, sem þarf til þvotta og ræstingar. Giysvarningur. Beikföng og smámunir, hentugir til gjafa, og fjölda margt fleira Ú R BÆNUM Á Vífilstaðahæli hefur nú um tvo mánuði dvalið Reykvíkingur einn mjög þungt haldinn. Heima á hann konu veika og tvö börn, 2 Og 4 ára. Hann er verkamaður eignalaus og geta má nærri.hvernig heimilisástæðurnar eru. Góðir bæarbúar eru beðnir að liðsinna honum og fjölskyldunni. Vísir vill taka á móti gjöfunum. Skúli fógeti kom af fiski í fyrra kvöld og hafði aflað um 30 þús. Var skipstjóri veikur af hettusótt og fer annar í hans stað út með skipið [Kristján Kristjáns- son]. White Frear, breskur botn- vörpungur frá Hull, kom í gær með meiddan mann (handlama). Hjörtur Hjartarson lauk laga- prófi við Háskólann nýlega. Hlaut 1072/g stig. |! viestra. J Hlutakaup Vestur-íslendinga í Eimskipafjelaginu voru komin kr. 154 700,00 22. f. m. Hans Sveinsson, tannaflrauna- maður úr Reykjavík, hefur dval- ið rúmlega ár í Winnipeg. Rjett fyrir jólin fór hann vestur til Seattle og ætlar þaðan til Eyaálf- unnar. Samferða honum er Carl Anderson, er með honum fór vestur. í Gimli er nýkosinn borgar- stjóri íslenskur og tveir íslend- ingar í bæarstjórn, af þremur. Œ' Staifóettu Akureyri í gær. Verksiniðju mikla er verið að setja hjer á stofn, sem á að búa til síldartunnur. Eru aðalmenn hennar Björn Líndal, Ragnar Ólafsson, Pálmi Pálmason, og Ottó Tulinius, Áætlað er að verksmiðjan muni kosta 60 þús. krónur. Minningarguðsþjónusta um Hallgrim Pjetursson verður hald- in hjer á morgun. Síra Matthías Jochumsson stígur í stólinn og heldur tveggja stunda fyrirlestur, en Geir víxlubiskup syngur fyrir altarinu kvæði Matthíasar um Hallgrím. •f* Rannveig Espólín, dóttir sr. Hákonar Espólín, andaðist ný- lega hjá tengdasyni sínum Birni kaupmanni Gunnarssyni á Kljá- strönd. Hún var 82 ára að aldri. Tíðin hjer hefur verið mjög stirð undanfarið. Fannkyngi svo mikið áð varla er fært um jörðina. Ingólfur Gíslason, læknir á Vopnafirði, býður sig fram til þings í Norður-Múlasýslu. Hall- dór Stefansson í Hamborg hefur tekið framboð sitt aftur. ísafirði í gær. Norðanstormur er hjer nú og ?e\v, sem taka vilja þátt í Fjelagsskap í því augnamiði, að fá prófessor Harald Nieisson til þess að halda guðsþjónustur í Fríkirkjunni ann- anhvorn sunnudag síðdegis, eru beðnir að rita nöfn sín og heim- ili á lista í Bókaverslun ísafold- ar eða hjá Halldóri Þórðarsyni bókbindara, Laugavegi 4, fyrir næstu mánaðamót. Allir vita að vjelskorna neftóbakið hjá Levi er best. IW4 a FfiÁ OTLÖNDPM Stfel nefur aldrei á sló, Spákerling lýsir vígi. Cadiou, verksmiðjueigandií Brest hvarf nýlega, og litlu síðar var meðeigandi hans, Louis Pierre, 31 árs gatnall, tekinn fastur, grunaður um að hafa myrt hann. Morðið komst þannig upp: Bróðir hans, ljet frænda sinn leita frjetta hjá spá- kerlingu um hvarf hans. Hún kvað Cadiou hafa verið myrtan af háum, dökkleitum, skeggjuðum manni, rúmlega þrítugum, sem hafði falið líkið í pytti í skógi skammt frá verksmiðjunni og mokað mold yfir. Líksins var leitað þar og reyndist þetta hárrjett. Lýsing morðingjans og fleira bar grun á Pierre, en hann kvaðst saklaus. Er hann nú í gæsluvarðhaldi. »Varið ykkur á glóbjaria hárinu, piltar.« Þessi orð segir merkur dómari í Vesturheimi að grafa bæri á skjöld, er sjerhverri stúlku væri gert að skyldu með lögum að bera í bak og fyrir, eins og götudrengir bera auglýsingar. Hann kveðst byggja þessa tillögu sína á reynslunni um embætlistíð sína. Hermann L. Roth, merkur breskur lögfræðingur, kveðst vera alveg samdóma dómaranum um þetta álit hans, — fórust hon- um svo orð við blaðamann, er leit- aði álits hans um ummæli dóm- arans: »Þegar hjónaskilnaðar er leitaö, eru konurnar í 90 tilfellum af 100 með glóbjart hár. Ljóshærðar konur eru hjegómagjarnar. Ljóshærðar konur eru hverflyndar. Ljóshærðar konur unna engum nema sjálfum sjer. Þær tæia til daðurs og egna til áieitni. Glóbjarta hárið er vöru- merk] Ijettúðarsnótanna. Þær eru ræningjar hjartarósemi og sálarfriðar. Þær eru örlaganornir mannfjeiags- ins.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.