Vísir - 22.02.1914, Blaðsíða 4
V I s l R
tkki !ært að kveikja upp eid ítilóð-
um.
Einhver hinn undarlegasti siður
þessara náttúrubarna er sá, að þeir
gefa börn sín óðara hverjum þeim,
er biður um þau. Þeirrar bænar
synja þeir aldrei og það er venja
þar. Um föður eða móður-ást er
þar e'kki að ræða, að því er sjeð
verður. Þess vegna er þar eltki um
eiginlegan frændskap að ræða í sjer-
stökutn ættliðum. Hver er öðrum
skyldur vegna þessara sífeldu barna-
skifta, og meinbuga-hjónabönd af
versta tagi eru þar auðvilað alltíð
vegna þess.
Andamanar eru aldrei í essinu
sínu, nema þegar þeir eru að veið-
um; þeim líður ílla, hvað sem
þeir gera annað. Á því strandar
líka sjerhver tilraun til þess að siða
þá. Þótt Andamandrengur sje tek-
inn að heiman frá öllum sínum og
iátin vera árum saman í menning-
arlöndum, verður hann alveg jafn
villtur og dýrslegur eftir sem áður,
er hann kemur heim aftur tii ey-
anna, og getur eiginlega engan
þroska tekið til frambúðar.
Herlæknir nokkur breskur í Blair-
höfn tók einusinni8aragamlanAtida-
mandreng meðsjertilA!n/7gv?0//,kenndi
honum aðlesa,vk ifa og reiknD,birma-
mál og ensku, hafði hann sem þjón
sinn um tíma, og svo var hann
allmörg ár matreiðslumaður og
flautuleikari á bresku gufuskipi og
var kallaður Jósef.
Þegar hann var tvítugur, var
hann sendur heim aítur fyrir þjófn-
að. Þar fleygði hann óðara Norður-
álfufötum sínum og öllu siðmenn-
i»jjarsniði, — það var sem farg
Ijetti af honum, og hann hljóp á
skóga með örvar og boga til ætt-
ingja sinna aftur. Engin sigmenning-
aríæki, engin vellíðan gat yfirbugað
villumennskueöli hans.
Meðalæfi Andatnana er talin í
mesta lagi 22 ár, en eins og fyr
varsagt, verðurþessekki langtað bíða,
að þjóðflokkur þessi líði undir Iok.
alvtvewtvvn^sj
>
Atveislurnar.
Sjaldgæft er að nýar hugmyndir
4yðji sjertil rúms á skömmum (íma,
og koniist alveg fyrirhafnarlaust
í framkvæmd. En þó hefur samt
ein merkileg hugmynd fest rætur
hjá Reykjavíkur-búum, náð tölu-
verðri útbreiíslu og koinist mót-
spyrnulaust í framkvæmd á seinni
árum. Það er hugmyndin um fjórð-
ungssamsætin svokölluðu. Heimilis-
föstum mönnum hjer í Reykjavík,
fæddum í einhverjum fjórðungum
landsins, er hóað samað kringum
matarborð í því skyni að fá sjer
almennilega máltíð.
Einhverjum hefur dottið í hug
það ráð í fyrstunni að sameina
hugi manna með því að stofna til
þessara átveisla. Og eflaust er mat-
urinn besta undirstaðan hjá mörg-
um undir samtökum og fjelags-
skap, því, að sögn, er maturinn
mannsins megin, Hugmynd þessi
hefur líka náð svo mikilli hylli
meðal innfæddra bæarmanna hjer,
að þeir eru farnir sumir hverjir, að
hafa það í hljóðskrafi, hvort þeir
ætlu nú ekki líka að fá sjer í sam-
einingu einn glaðan snæðingsdag,
eins og hinir. Og sennilegt er að
þessar kostulegu snæöingsveislur
breiðisl út um lattdið, og að hver
sýsla og hreppur haldi sitt sameig-
inlega át, einu sinni á ári, innan
sinna takmarka.
I hverju samsæti fyrir sig, sem
fjórðungarnir lialda, mun vera jetin
upphæð, er nemur 5—600 kr. á
kveldi einu sinni ári, og það bara
í aukagctu. Eflaust væri fje þéssu
betur varið með því að stofna sjóð,
í því skyrii, að styrkja efnilega menn
úr fjórðungum þeim, sem um er
að ræða, til einhverra verklegra
framkvæinda, sem miða að sannri
menningu og þjóðþrifum, eða til
að verðlautta menn fyrir nytsöm
störf, unnin í þarfir lands og þjóð-
ar.
Ef árlegar snæðingsveislur yrðu
haldnar, eins og nú er til þeirra
stofnað af mönnum hjer í bæ úr
ýmsum fjórðungum landsins, hin
næstu 10—12 ár, mundu þátt-tak
endur úr hverjum fjórðungi fyrir
sig vera búnir að eyða 6—7000
kr. í slíkan matarfagnað, en yrðu
þó að þeim tíma liðnum jafn soltn-
ir og þeir byrjuðu. Álitlegur sjóður
væri fje þetta, ef sparað væri, og
eitthvað gagn mætti með því
vinna.
Svo að jeg snúi mjer til Norð-
lendinga, sjerstaklega þeirra, sem
fyrir Norðlendingamótinu standa,
þá ættu þeir nú að ríða á vaðið
og bjóðast til að taka á móli nor$-
Ienskum samskotum í staðinn fyaSr
að safna nöfnum þe:rra, sem æ©a
sjer að sækja samsætið, og stofna
Norðlendingasjóð í staðinn fyrir
Norðlendinga-át.
Vilji menn sýna ræktarsemi ætt-
hjeruðum sínum, og minnast þeirra,
þá held jeg að miklu heppilegra
sje að gera það á þennan hátt, en
með átveislum, og matarsálmum,
sem þeim er jafnan samfara. Og
ánægjule.;t ætti það að vera hverj-
um Norðlendingi hjer í bæ, að vera^
sjer þess meðvitandi, að hafa lag
sinn skerf, þó lítill væri, til að
styrkja einhvern efnilegan ungan
mann úr sínum fjórðungi til ein-
hvers þess, er landinu yrði til sóma.
Norðlendingur.
Buffet
brúkað óskast.
Afgr. v. á.
og
iil sölu.
}ík. jS\attvasow,
Útgefandi
Einar Gunnarsson, cand. phil.
1 Östluds-p rentsmiðja.
Stimpla
eiga þessir á afgreiðslu Vísis:
Haraldur Guðmundsson.
Marteinn Einarsson.
Kristján Snorrason.
Gísli Benediktsson.
B. Blöndal.
Eiríkur Filipusson.
Davíð Ólafsson.
þorvarður Guðmundsson.
Stefán Sandholt.
Guðbjörn þorleifsson.
Jóhann Ásmundsson.
V. S. Línberg.
Guðm. þórðarson.
Ágúst Magnússon.
Einar Jónsson.
Lárus Björnsson.
Sig. Einarsson.
Sigurður Arngrímsson.
Bjarni Stefánsson.
Eiríkur Björnsson.
Teitur Sigurðsson.
Tryggvi Guðmundsson.
Eiríkur Ögmundsson.
. Árni Magnússon.
Símon Pjetursson.
Páll þorbjörnsson.
þeirra sje vitjað hið bráðasta.
Kaffi-og matsöluhúsið,
Laugav. 33,
selur eins og að undan-
förnu heitan mat allan dag-
inn, smurt brauð, kaffi,
súkkulaði, öl, limonade og fl.
HÚSNÆÐI
Hár og bjartur kjallari, 7 x 13
al. við miðbæinn, er til leigu. Afgr.
v. á.
2 herbergi og hálft eldhús er
íil leigu frá 1. mars næstk. Að-
gangur að þvottahúsi oggeymslu.
Við miðbæinn. Afgr. v. á.
3—4 herbergi og eldhús er
til leigu 14. maí. Afgr. v. á.
Rúmgott og bjart hefbergi
með húsgögnum og forstofu-
inngangi er til leigu nú þegar.
Afgr. v. á.
1 herbergi með húsgögnum
óskast til leigu nú þegar í mið-
eða vestur-bæ handa einhleypum
verslunarmanni. Afgr. v. á.
2—3 herbergi og eidhús ná-
lægt miðbænum óskast til leigu nú
þegar eða frá 1. maí. Afgr. v. á.
2 herbergi með húsgögnum
til leigu nú þegar í húsi Hans
Hoffmanns, Túngötu 46.
Gott herbergi, helst
nreð ofni í, óskast til leigu nú
þegar til 14. maí eða lengur. Helst
við Laugaveg. Uppl. á Laugaveg
23 niðri, Jónína Jónsdóttir.
Góð og ódýr stór íbúð eða
minni íbúðir eru til leigu frá 14.
maí til 1. okt. Afgr. v. á.
2 stórar stofur, hentugar fyrir
skrifstofur eða einhleypa, eru til
leigu 14. maí í Þingholtsstræti
25 (uppi).
Skémmtilegt herbergi með for-
stofuinngangi í nýu húsi við
Skólavörðustig er til leigu 14. maí.
Afgr. v. á.
tímanlega.
Óskaðlegt mönnum og húsdýrum.
Söluskrifstofa: Ny Östergade 2.
Stúlka óskast í vist nú þegar.
Uppl. á Njálsgötu 42.
Gramalt gert nýtt.
Allskonar viðgerðir á orgelum og
Öðrum hljóðfærum hjá
Markúsi þorsteinssyni.
Frakkastíg 9.
3 stúlkur óskast nú á gott
heimili á Norðurlandi, helst í árs-
vist. Hátt kaup. Uppl. á Lauga-
veg 21. (niðri).
Stúlka óskast í vist nú þegar.
Gott kaup. Afgr. v. á.
Háislfn
fæst strauað á Hverfisgötu 26 B.
uppi. Fljótt og vel af hendi Ieyst.
Vinnumaður duglegur og
reglusamur óskast á gott heimili
á Norðurlandi.
TAPAЗFUNDIÐ
Silfurarmband týndist h. 15.
þ. m. á leiðinni af Laufásvegi nið-
ur í leikhús (Iðnó) eða i því.
Finnandi beðinn að skila því á
Laufásveg 45.
KAUPSKAPUR
Barnasleði óskast til kaups.
Laufásveg 45.
Grímubúningur afarvandaður,
á meðalmann, er til sölu fyrir lít-
ið verð. Afgr. v. á.
Grímubúningar, saumaðir eftir
pöntun, seljast eða leigjast út. Efnið
í búningunum er atlasksilki, flauel,
tarletan, gyllt bönd, pallíettur o.
m. m. fl. Grettisg. 2 (uppi).
Mótorvje!, nærri ný, 6 hesta,
er til sölu með tækifærisverði.
Björn Guðmundsson, Vesturg. 50.
Bolludagsvendir fástí Tjarnar-
götu 8.
Dýralækningabók lil söiu. Afgr.
v. á.
Hyrna íslensk til sölu. Sýnd á
afgr. »Vísis«.
Skrifborð óskast til kaups. Afgr.
v. á.
Trjestólar nokkrir óskast til
kaups. Afgr. v. á.
Fæðingardagar innb. og óinnb.
eru til sölu á afgr. »Vísis«.
Lagasafnið V og VI bindi er
til sölu. Afgr. v. á.
Hörpuhefti sölu. Afgr. v. á
Legubekkur (dívan) óskast til
leigu nú þegar. Afgr. v. á.
Gott orgel óskast til leigu.
Hverfisgötu 32.