Vísir - 02.03.1914, Side 4
V í S l R
herra greifi, að vcrrda gcsti 'sína
og vini og bjarga þeim úr hættn,
— iirífa ungar stúlkur, sakliusar
og óspiltar, úr greipum skálka ög
bófa!«
»Nei, ekki í sjálfu sjer, — en
hver er sjáifum sjer næstur, og að
fara að gera sig hlægilegan með
því að leita uppi manneskju, sem
tnginn veit hvort er lífs eða liðin,
það er ekki góð byrjun á opin-
berri starfsemi stjórnmálamanns!«
»P>að er svo að sjá sem skoðun
yðar hafi h'ka verið ráðandi hjá
stjdrnarvöldum vorum, því jeg hef
þegar verið dæmdur óhæfur til þess
að fá stöðu þá í sendisveitinni frakk-
nesku hjer, er mjer hafði verið heit-
ið!«
Antonio Rubeoli brá hvergi. Hann
brosti bara og mælti;
»Ja, svo! Þarna sjáið þjer þegar,
herra minn, — það eru fleiri sömu
skoðunar og jeg! Nú en þetta get-
ur al!t lagast, ef þjer hættið þessu
braski og látið stelpuna eiga sig.«
»SteIpu! Stelpu! Ungfrú Forth-
clyde stelpa? Má jeg biðja yður,
herra greifi, að gæta orða yðar?«
sagði René og spratt upp rjóður í
framan.
»Hægan! hægan! Jeg bið af-
sökunar, — jeg ætlaði ekki að móðga
yður. Oerið svo vel og setjist á
stólinn þarna! Jeg bið yður mikil-
lega fyrirgefningar!«
René de Vancour settist aftur.
Frh.
Hvað lersgi?
----- N1.
Þetta er of Iengi búið að drag-
ast. — En einhverntíma verður að
byrja, — annars verður höfuðstað-
urinn til aðhláturs um allt land. Jú,
en svo er nú barnaskólinn okkar.
Nákunnugir menn kenna mjer, að
blessuð börnin sjeu látin sitja við
bæði í skólanum og í heimahúsum
að reikna þetta 20—30 dæmi í röð
í hverri aðferð með tunnum, kút-
um, pottum og pelum, eða mílum,
föðmum, álnum, fetum, þumlung-
um og línum, eða skippundum,
lýsipundum, pundum og lóðum —
En hvað á annað eins að þýða? Er
það af einhverri ofurást á sdauðu
málunum«, að reikningskennarar
barnaskólans eru að þreyta börnin
og eyða tímanum með öðru eins
góðgæti? Þeir gætu því eins vel
kennt þeim nokkur laínesk beyg-
ingardæmi eða gríska stafrófið, —
já, — ef þeir kynnu það sjálfir.
Enginn þarf að segja mjer, að
þessir kennarar kunni ekki sjálfir
að nota metramálið. Þeir eru sagð-
ir vera munnlega að kenna það
börnunum, — með miklum erfiðis-
munum þó, þar sem reikningsbók-
in er með tómar tunnur og annað
þesskonar, — fremst í hverri að-
ferð, og loks kemur með 8—12
metramálsdæmi síðast í aðferðun-
um, þegar börnin eru búin að
»pæla í gegnum* 20—40 dæmi úr
gamla málinu — og þau flest al-
veg óþörf. Vitanlega verður börn-
unum tamast að nota þau nöfnin,
sem oftast eru nefnd í dæmunum,
Skemnitisamkomu með bögglauppboði
ætlar
„H v í í a b a n d i ð«
að halda mánudaginn 2. mars kl. 8V2 síðd. í K. F. U. M.
[Skernmi verður meö:
einsöng (fröken Herdís Matlhíasdóitir), upplestri, samspili og fleiru.
Inngangur kostar 25 aura fyrir fuliorðna og 10 au. fyrir börn.
Ágóðanum verður varið til að styrkja nauðstadda sjúka konu.
Fjelagsfólk og aðrir, sem vilja styrkja fyrirtækið með bögglagjöfum,
eru beðnir að senda þá fyrir kl.4 á mánudaginn^í hús K. F. U. M.
NEFNDIN.
Camembert-Kaiserkáse
Kronenkáse - Brie
og Ostastangir
nýkomið í verslun
Einars Árnasonar.
Sími 49.
Til leigu.
Fiskverkunarreiturinn í Austurkoti er til leigu nú þegar, ásamt öllum
nauðsynlegum áhöldum og nógum fiski eftir því sem leigutakanda hentar.
Semja ber við Jón Hannesson, Austurkoti.
og önnur nauðsynjavara, vönduð og ódýrust, í verslun
Asgrfms Eyþórssonar.
Sími 316. Austurstræti 18.
HÚSNÆÐI
2 góð herbergi til leigu með
eða án húsgagna, fást nú strax.
Hjörtur Fjeldsíed. Sími 81.
2—3 herbergi fyrir einhleypa
fást til leigu frá 14. maí til 1.
okt. Afgr. v. á.
1—2 herbergi með sjerinn-
gangi, hentug fyrir einhleypa, eru
til leigu frá 14. maí n. k.; enn-
fremur fæði og þjónusta, ef
óskað er. Uppl. í Þingholts-
stræti 7 niðri.
1 stofa á Spítalasfíg 9 uppi
með húsgögnum og miðstöðvar-
hita fæst frá 1. mars n. k.; einn-
ig fæst fæði,
Trawlara-karl með konu og
barni óskar eftir 2—3 sólríkurr,
rúmgóðum herbergjum og eld-
húsi frá 14. maí. Tilboð merkt
»sjómaður* sendist afgreiðslu
blaðsins.
Góð herbergi fyrir einhleypa
er til leigu 14. maí n. k. í nýu
húsi. Afgr. v. á.
íbúð fyrir litla fjölskyldu ósk-
ast í eða nálægt Vesturbænum
írá 14. maí. Friðrik P. Welding,
Vesturgötu 23.
Gramalt gert nýtt.
Allskonar viðgerðir á orgelum og
öðrum hljóðfærum hjá
Markúsi þorsteinssyni.
Frakkaslíg 9.
Hálslín
fæst strauað á Hverfisgötu 26 B.
uppi. Fljótt og vel af hendi leyst.
KENNSLA
Reikningskennsla óskast. Til-
boð merkt »68« sendist afgr.
blaðsins.
en gleyma flestöll hinum, sem þeim
er kennt með sárfáum æfingum. —
— Svo verður þeim eftir 6 ára
skólavist lítið tamara að nota metra-
málið en miðaldra fólki, sem ekki
heyrði það nefnt í sínu ungdæmi.
Hvernig stendur á að reiknings-
kennararnir skuli láta þetta »dankast«
svona ár frá ári? Hvernig stendur
á að skólastjóri skuli ekki sjá um,
að notuð sje reikningsbók, sem
ekki hafi þennan fjölda af óþörf-
um dæmum úr úreltum »margs-
konartölum«? — Ef allar íslenskar
reikningsbækur eru með slíku marki
brenndar, — sem mjer þykir ótrú-
legt, — því sjer þá ekki hann eða
fræðslumálastjórinn um að ný bók
verði prentuð, þar sem alveg er
byggt á metramálinu, og eldra mál-
ið aðeins notað Iítið eitt til sam-
anburðar, fremur til; fróðleiks fyrir
greindustu börnin en sem skyldu-
dæmi handa öllum, bæði klaufun-
um og hinum?
Jeg nefni ekki skólanefndina í
þessu sambandi, því að hún kvað
vera saklaus af að skifta sjer af
»innri málum« barnaskólans, nema
þá helst frú Bríet, og jeg býst við
að henni sje annað betur lagið en
skilningur á þessu máli. — Hitt er
jeg sannfærður um, að kennarar,
skóiastjóri og fræðslumálastjóri skilja,
að þetta er æði öfugt kennslufyrir-
komulag, og því eiga þeir — þótt
þeir sjeu mestu sæmdarmenn —
aöfinningar skilið fyrir aö hafa látið
þetta ganga svona, — og munu
áreiðanlega fá þær meiri frá for-
eldrum barnaskóiabarna, ef þessu
verður ekki kippt í lag hið bráð-
asta, að minnsta kosti næsta liaust.
Metramálsvinur,
Glaesseu.
Yfrrjettarmálaflutningsmaður,
Pósthússtræti 17.
Venjulega heima kl. 10—11 og 4—6.
. Talsími j6.
Anatomischer Atlas eftir dr.
Carl Toldt, 4. hefti (E), hefur
tapast. Skilist gegn fundarl. til
Kristm. Guðjónssonar Grettis-
götu 11.
Karlmannsúr hefur fundist
neðarlega á Laugavegi. Vitja
má á Njálsgötu 30 A.
Útgefandi
Einar Gunnarsson, cand. phll.
KAUPSKAPUR
Hörpuhefti til sölu. Afgr. v. á.
Dráttarsleði nýr til sölu á
Hverfisgötu 33.
Jeg bið þann, er eiga kynni þýð-
ingu V. Rydbergs af GoethesFaust,
að gera svo vel að selja mjer
hana eða lána.
Sömuleiðis bið jeg þann, er
keypt hefur úr dánarbúi mínu
„Diintzer: Erklarungen zu
Goethes Faust,“ að gera svo vel
að lána mjer bókina.
Bjarni Jónsson frá Vogi.
Ung snemmbæra (átt 4 káifa),
í ágætu standi, mjólkandi (8—9
merkur í mál), og 300 -400 pd. af
töðu verður selt (hæstbjóðanda)
í Bjarnarborg n. k. miðvikudag (4.
mars) á hádegi.
Sigfús Sveinbjarnarson.
Flibbar, nærri nýir, á meðal-
mann, fást með óheyrðu gjaf-
verði. Afgr. v. á.
Barnavagn til sölu. Þing-
holtsstræti 33.
Skrifvjel
með íslensku letri, af ágætri gerð,
næstum ný, fæst með reglulegu
tækifærisverði. Afgr. v. á seijanda.
Östlunds-prentsmiðja.