Vísir - 10.03.1914, Síða 2
V I S 1 R
Góðar og ódýrar
matvörur
í Versluninni Hlíf.
Dýr ástarbrjef
Þau eru ekki send á hverjum
degi ástarbrjef, sem kosta 14 000
krðnur!
Ung stúlka í K.alkútta á Indlandi
fjekk nýlega ástarbrjef, er að dómi
breskra blaða sýndi frekar gáfusnilli
gullsmiðsins en unnusta hennar.
Það var þunn gullplata og á henni
hjartamynduð silfurplata, en í hjart-
að var greypt stutt og snotur kveðja
í demöntum, er raðað var í bók-
stafi.
Alþekkt tónskáld sendi unnustu
sinni, skömmu áður en hann lagði
afstaðí hijómleikaferð, ekki færri en
12 ástarbrjef. Hvert þeirra kcstaði
600 krónur. Það voru hljómfögur
ástarorð og hljómfagurt innilegt lag
sett við þau. En handrit þessi
voru fagurlega gulli rituð og dýr-
msetar litmyndir dregnar umhverfis
orð og lag. Gylliniskrautið og
myndirnar eru eftir japanskan lista-
mann, er einnig hafði skreytt öskju
þá, er brjefin voru send í.
Einn ástúðlegi yngismaðurinn
vann hjarta og hönd ástmeyar sinnar
með einkennilegu ástarbrjefi. Hann
Ijet gera hjartamyndaða kniplinga-
kraga,og voruknipluð í þá hjartnæm
ástarorð, svo fíngerð sem kongu-
lóar vefur væri. Her kniplingakonan
fjekk 400 krónur fyrir verkið, og
taska, ofin gullvír og silki, til að
geyma í kragana, kostaði 150 krónur.
þetta sendi hann svo allt í öskju
afardýrri og gerðri af mikilli Iist.
Eins og að líkindum ræður, gat
stúlkan ekki staðist svo dýrmœta ást
og tók piltinum feginshendi. Slík
brjef eru eitthvað áhrifameiri en þessi
hversdags-ástarbrjef á rauðum og
bláum blómsturpappír í rósa um-
slögnm, vættum í Iituðum vínanda!
Finnland lýst f herkvíum.
Dauðadómur kveðlnn upp
yflr sjáifstæðl Flnna.
Hinn 24. f. m. fluttu norsk blöð
þá fregn frá Pjetursborg, að svo
fremi sem þing Finna trássaðist við
tilskipanir keisarans og hjeldi áfram
mótþróa gegn Rússastjórn með
þögninni, eins og áður til febrúar-
loka, væri að fullu afráðið að leysa
þingið upp og senda 2 skotliða-
herdeildir og 2 kósakkahersveitir til
Finnlands. í aprfllok á svo að setja
þar heilan her á Iand og Iýsa land-
ið f herkvíum og láta rússneskan
her hafa þar fast aðsetur. Er það
haft að yfirskini, að þetta sjeu var-
úðarreglur gegn væntanlegum óeirð-
um í Iandinu, en er auðvitað áfram-
hald aukinna rússneskra hervarna á
suöurströndum Finnlands til varnar
gegn Þjóðverjum, ef til kemur, jafn-
framt sem það er kúgunaráframhaid-
ið viö Finna. Þegar landið verður
lýst í herkvíum, verður finnska lög-
reglan sett af og rússneskt lögreglulið
sett í í staðinn.
Frá Vilhjálmi Sfefánssyni
norðurfara hefur enska blaðið »DaiIy
Chronide* fengið skeyti, ritað á
Herschel-ey 15. jan. þ. á. Þaðan
var það flutt á sleða ttl Dawson
Söngvarnir úr Ljenharði fógeta
eftir ÁRNA THORSTEINSSON
eru komnir út og fást hjá öllutn bóksölum bæarins.
Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar.
Fyrir sjómenn
allskonar rúmteppi með stórum afslætti. Einnig sjómannadýnur,'vandaðar
og ódýrar hjá
Jónatan porsteinssyni,
Laugaveg 31.
Fortepiano.
Vöruhúsið hefur einkasölu á
fortepíanóum frá
Sören Jensen,
píanóverksmiðju í Kaupm.höfn.
Til sýnis í
Vöruhúsinu-
l/' o forv [Efni til að varna
I\ds SU« steinmyndun í
——......... gufukötlum. Er
uppl. í vatninu
í hæfilegu hlut-
falli.]
Ætíð tll í
Vöruhúsinu.
PflST* Nauðsynlegt hverju gufu-
skipi.
7
A Laugavegi 5.
Vindlar Slw,
VindUagar,
Munntóbak (Nobels).
Reyktóbak (fjöldi tegunda.)
Neftóbak (skorið),
allt þekkt fyrir að vera besta og
ódýrasta í bænum.
y.evwes
Njálsgötu 26.,
selur fyrst um sinn:
Kaffi ágætt 0,78 pd.
Export 0,48 —
Cacao gott 1,10 —
Lítíð fyrst inn,
þegar á fatnaðí eða vefnaðarvöru þurfið
að halda,
Ásg. G. Gunnlaugsson & Co.
Austurstrætí 1,
Tennur
eru tilbúnar og settar inn, bæði
heilir tanngarðar og einstakar
tennur.
á Laugavegi 31, uppi.
Tennur dregnar út af lækni
daglega ki. 11 —12 með eða án
deyfingar.
Viðtalstími kl. 10—5 síðdegis.
Sophie Bjarnason.
Heilbaunir
Haframjöl
Hrísgrjón
Rúsínur
Hveiti gott
Ótal tegundir af Kexi.
0,14 —
0,15 —
0,15 —
0,28 —
0,12 —
Stúfasirts 1,40 —
Sykur ódýrart enn ann-
arsstaðar.
nýkotnin í verslun
Amunda Arnasonar.
±
City, og símað þaðan til London.
Vilhjálmur hefur haft ýrnsar fregnir
af eskimóum um skip sitt Karluk,
er gera mögulegt að skipið hafi
komist í höfn við Bank-eyju. En
ekki leggur Vilhjálmur mikið upp
á því. Vilhjálmur komst til Collison
Point 14. des. síðastl.; fann hann
þar skonnorturnar »AIaska« og
»Mary Sachs® og leið öllu vel.
Því næst hitti hann heill á húfi skip
syðri leiðangursins undir forustu
Andersons, þau »Belvedere« og
íPolar Bear«. Voru þau frosin inni
í ís, en ekki í neinni hættu til vors,
en þá er þeim ekki ugglaust, er
ísinn brýtur upp og rekur.
Vilhjálmur kveðst vera að búa
sig undir sleðaför mikla yfirísinn á
Beaufort vatni fram með 143.hádegis-
baug. Hann ætlar að hafa 3 sleða
og 18 hunda fyrir og vistir til 2
mánaða. Þar hefur aldrei skip farið
lengra en 40 enskar mílur frá strönd-
inni og fer hann því um algerlega
ókunn svæði.
Sprenging f dynamltverk-
smiðju Nobels
í Olasgow varð afarmikil 21. f.
m. Orsakir eru ókunnar en aðal-
lega varð sprengingin af menelit-
tundri. Hús brunnu, 8 menn biðu
bana og svo varð hristingurinn
mikill, að allir gluggar brotnuöu
þar í grend og jafnvel í næstu
bæjum. 6000 pd. af tundurefni
voru í verksmjðjuhúsi því, er spreng-
ingin varð fyrst í, en aðalspreng-
ingarnar voru 2. Þetta er hin mesta
menelitsprenging er orðiö hefur í
heimi.
Palladómar.
---- Frh.
Sagt hefur verið um Stgr. J., að
það leyndi sjer ekki á þingi að
hann væri konungkjörinn eða stjórn-
kjörinn, og má vera að þetta sje
nokkuð af glettni mælt. Menn hafa
líklega stutt þetta við það, að hann
hefur allt af fylgt að málum þeirri
stjórn, er kvaddi hann til þingsetu.
En ekki væri það allskostar rjett,
að ota því fram, að hann hafi á
knjábeð legið fyrir þeirri stjórn, er
að völdum sat frá því á miðju
þingi 1909 og fram eftir þingi
1911. Það mundi heldur nær sanni
að segja, að hann andæfði þeirri
stjórn, eftir því sem honum þótti
efni standa til og samboðið vera
»stjett hans og standi«.
Heimastjórnarmaður hefur Stgr.
J. allt af verið, frá því er hann
kom á þing, og mun hafa verið
talinn allóskeikull um þá stefnu,
enda mikils metinn í sínum flokki.
Fyrir því var hann líka einn þeirra
manna, er Heimastjórnarflokkurinn
valdi, til þess aö skipa milliríkja-
nefndina 1907. Það verður heldur
ekki að því fnndið, hversu hann
hafi rekið erindi Uppkastsmanna.
Stgr. J. skipar nú Sambands-
flokkinn, svo sem aðrir Heima-
stjórnarmenn, þeir er ekki skárust
úr leik á síðasta þingi. Mun hann
til alls góðs búinn að vinna með
þeim flokki og foringja hans, og
þótti það koma fram á þingi síð-
ast. Þá voru uppi usm mál, er