Vísir - 11.03.1914, Blaðsíða 1
936
Vísir
erelsta— besta — út-
breiddasta og ódýrasta
dagblaðið á fslandi.
u
Vísir er blaðið þitt. I
Hann áttu að kaupa fyrst og fremst. |
Kemur út alla daga. Sími 400.
Afgr. í Austurstr. 14. kl. 1 lárd.til 8 siðd.
Kostar 60 au. um mánuðinn. Kr.?l,80
ársfj. Kr. 7,00 árið (380—400 tbl.).
Skrifstofa í Austurstræti 14. (uppi),
opin kl. 12—3, Sími 400.
Langbesti augf.staður i bænum. Augl.
sje skilað fyrir kl. 6 daginn fyrir birtingu.
Miðvikud. 11. mars 1914.
Háfl. kl. 4,55' árd.og kl. 5,8’ .síðd.
Á morgun
Afmœli:
Fru Kristín Guðmundsdóttir.
Sigríður Runólfsdóttir.
Ungfrú Kristjana Einarsdóttir.
Póstáœtlun:
Ingólfur til og frá Garði.
Veðrátta í dag.
Loftvog £ y< | vindhraði Veðurlag
Vm.e. 751,5 2,1 A 19 Regn
R.vík 749,3 0,5 A j7 Alsk.
ísaf. 754,4 5,2 0 Skýað
Akure. 754,4 10,6 0 Ljettsk.
Gr.st. 719,3 11,0 VNV 5 Heiðsk.
Seyðisf. 757,5 6,1 0 skýað
þórsh. 755,7 3,5 \ Skýað
N—norð- eða norðan,A —aust-eða
austan.S—suð- eða sunnan, V— vest-
eða vestan
Vindhæð er talin ístigumþann-
ig: 0—logn, 1 —andvari, 2—kul, 3 —
gola, 4—kaldi, 5—stinningsgola, 6—
stínnmgskaldi,7—snarpur vindur,8—
hvassviðri,9 — stormur, 10—rok,l 1 —
ofsaveður, 12—fárviðri.
Skáleturstölur í hita merkja frost.
Bíó
Biografteate
Reykjavíkurl
50
Vegir rjeitvísinnar.
Sjónleikur í 2 þáttum. Leikinn
af leikendum »Itala Film Co«.
Leynilögreglufillinn.
Ovenjulega skemmtileg dýramynd.
L. F. K R.
Fundur fimmtudag 12. mars
kl. 8Y2 síðd. á lesstofunni.
Fyrirlestur, upplestur o. fl.
Mætið stundvíslega.
Stjórnin.
§ fkttls*ur fást venjulega tilbúnar
á Hverfisg. 6. Fegurð, verð og
gæði undir dómi almennings. —
Sími 93. — Helgi Helgason.
Trúlofunar-
hrioga smíðar
BjörnSímonarson.
Vallarstr.4.Sími 153
set\&\sW\t\
frá
Sertdisveinaskrifsiofunni.
Sími 444.
| kirkjunni og fríkirkjunni í kveíd.
5 (Sr. Bjarni Jónsson í dómk.)
Borðeyri í gær.
Slys af snjóflóði.
Snjóflóð fjell nýlega skamml fyrir
ofan bæinn í Skrapatungu í Laxár-
dal í Húnavatnssýslu og urðu fyrir
því tveir drengir, er þar gengu til
rjúpna, annar 16 ára og hinn 13,
synir bóndans þar, Jóns Helgason-
ar. Eldri drengurinn hafði sig við
ílian leik úr flóðinu og komst heim
á bæinn með veikum burðum, all-
mikið skaddaður. Var þá þegar
brugðið við að leita hins drengsins.
Sá aðeins lítið eitt á handlegg hans
upp úr sjódyngjunni. Hann var
meðvitundarlaus er hann var graf-
inn upp og ílla útleikinn af meiðsl-
um. Læknir var þegar sóktur og
telur hann lítil líkindi, að hann muni
halda lífi.
þórarinn á Hjaltabakka er nú
tekinn að hressast (eftir legu síðan í
sumar), sendi hann hraðboða til
Hvammslangafundarins og tilkynnti,
að liann hjeldi þingmálafund að
Melstað 28. þ. m.
Sandi í gær.
Gott veður í dag og alnaennt
róið. Hlaðafli.
Borðeyri í gær.
þingmálafundinn á Hvamms-
tanga sóktu þingmannaefnin Guð-
mundur Ólafsson í Ási og Tryggvi
Bjarnason aiþm. og sýslurnaður
Björn Þórðarson. Sýslunefndar-
mennirnir voru þar aliir, þar sem
sýslunefndarfundur var ný afstaðinn
og nokkrir inenn úr þorpinu, en fáir
fjær, þar sem veður var íllt. Fund-
urinn stóð 3 tíma, byrjaði sýslu-
maður með freklega klukkutíma
ræðu, rakti hann þar sögu stjórn-
arskrárfrnmvarpsins. Engin ályktun
var tekin.
Hallgrímsmessa Pjeturssonar
var haldin á Blönduósi á sunnu-
daginn var (8. þ. m.), hafði ekki
orðið haldin fyrr vegpa íllviðris.
Ö R BÆNUM
Gefin saman í gær Erasmus
Gíslason, kaupmaður, og ym.
Rannveig Vilhjálmsdóttir.Grett-
isgötu 22 D.
S. d. Jón Ól. Porkelsson,
| Magnús Blöndahi, fyrv. *lþm,,
lýstiyfir á þingmálafundi í Hafnarfirði
í fyrrakveld, að hann byði sig
fram til þings fyrir Gullbr. og
Kjósarsýslu.
Sterling fór til útlanda í gær-
kveldi og allmargir farþegar ineð.
Þar á- meðal 6 vesturfarar. Var einn
þeirra Jón Guðnason, Vestur-íslend-
ingur, er lijer hefur dvalið 1 ár
eftir 20 ára veru vestra, og Daníel
Hjálmsson, vegavinnustjóri kynnisför
til bróður síns, sjera Pjeturs Hjálms-
sonar. Ennfremur fóru til útlanda:
Þórhallur Daníelsson, kaupmaður,
Mattías Þórðarson, útgerðarstjóri,
Sigurður Pjetursson (frá Hrólfsskála),
skipstj., Jón Erlendsson, stýrim.,
kona Magnúsar Magnússonar, kenn-
ara.
Hödd, norskt botnvörpuskip,
kom inn í gærkveldi.
Tunglmyrkvi, hinn eini er sjest
hjer á landi í ár, verður í nótt.
Stendur hann yfir frá kl. 1,42’ til
kl. 4,44’ (árd. þann 12.) og er
mestur kl. 3,13’ og nær yfir níu
tíundu hluta af þvermáli tungl-
hvelsins.
Friðrekur krónprins er 15 ára
í dag, oger flaggað á nokkrum stöng-
um í bænum í minningu þess.
Kolaskip kom í morgun tit
frakknesku verslunarinnar.
—g—w—p—aww—mm•
Ig rRÁ ÚTLÖNDUM
wm
Leikhús lokað f 2000 ár.
í borginni Siragosa, sem í forn-
öld hjet Syracusa, á Sikiley er leik-
hús frá dögum Forn-Grikkja. Þar
hefur ekki verið leikið í 2000 ár.
En nú á að fara að leika þar sjón-
leikinn »Agamemnon« eftir gríska
skáldið Aiskylos, á gamla leiksvið-
inu. Ettore Romagnoli, prófessor í
Padua, sjer um leik og búninga, er
gerðir eru eftir myndum á göml-
um kerum í safninu í Siragosa.
Leiksviðið er jafngott að kalla má
eftir allan þennan tíma, er það hef
ur verið ónotað.
fLeíðinieg misgrip.
Lútzhöft, stiftsprófasturíOdense,
jarðsöng 2 lík, konu og karlmann,
eftir guðsþjónustu í kirkju hins
heilaga Knúts konungs, 15. f. m.
Bröttugötu 3. og ym. Þóra Jórvs- j En er hann hjelt líkræðuna yfir
dóttir s. st. - fyrra líkinu, skjöplaðist honum ílla: j
Föstumessur eru bæði í dóm- hann hjelt að sá framliðni væri
K F. U.M
Kl. 8V2. Fundur í U.-D. Guðm.
Bjarnason og Þorv.Guðmundssori
lesa upp sögur. Allir piltar,
14 — 17 ára, velkomnir.
karlmaður. Hagaði hann svo máli
sínu sem um dugnaðarmann væri
að ræða, sem mí liefði hvílt sig frá
erfiðu og löngu dagsverki og tók
ekki eftir því, hve mjög líkfylgd-
inni og einkum ættingjum kon-
unnar fór að verða órótt undir
ræðunni. Honum var berit á mis-
gripin áður en hann hóf hina lík-
ræðuna og varð hann þegar að
biðja ættingja konunnar afsökunar.
Fiskiveiðarnar við Lo-
foten.
Ágætur afli hefur verið við Lo-
foten í vetHr. Þar eru að veiðum
700 fleiri bátar en í fyrra á sama
tíma, eða alls [3373 bátar. Á þá
hafa aflast 1 200 000 þorskar eða
hálfri miljón fleiri en í fyrra. Yfir-
leitt er aflinn jafn á bátana. Verðið
er hátt, hærra en í fyrra. 26. f. m.
voru gefnar 40—48 kr. fyrir 100
af hnakkakýldum þorski, 12—24
aur. fyrir pottinn af lifur.
Eimlest sprengd í loft
upp.
Hinn 23. f. m. var hermanna-
eimlest, er flytja átti fótgönguliðs-
sveit frá Jalapa i Mexiftó til Litna,
sprengd í loft upp af uppreistar-
mönnum. Biðu þar bana 55
herinenn og eímlestarstjór-
inn sjálfur. Uppreistarmenn
skutu í ákafa á eimlest, er flutti
ferðamenn og kom á eftir þessari,
en hún fór á hraða ferð aftur á
bak og tókst þannig að forða far-
þegum frá líftjóni.
Voðasprenging
varð í Ruminelsb'urg við Berlín 26.
f. m. í anilínverksmiðju; biðu 12
menn bana en 8 særðust hættulega.
Grutiur var á, er síðast frjettist, að
fleiri væru særðir eða iátnir undir
rústunum.
•
Slys mikil
urðu 27. f. m., — annað í Kpn-
siantinopel, — þar hrundi múr ofan
á menn er voru að vinnu í garði
kvennabúrs soldáns; urðu 20 menn
undir og biðu 5 bana en 2 meidd-
ust mikið. Hitt slysið varð í Budtt-
Pest; þar var verið að leggja raf-
magnsbraut, en straumurinn snerti
járnstöng og urðu -7 vinnumenn
fyrir honum, — dóu þeir allir sam-
stundis.
Grímudansleikur Iðnaðarmanna
verður laugardaginn 21. þ. m. Nánar síðar.