Vísir - 16.03.1914, Blaðsíða 3

Vísir - 16.03.1914, Blaðsíða 3
V I SI R Einn þeirra kunni og frá tíðindum að segja, því hann hafði allmjög álengdar orðið sjónarvottur að .þessu voðaslysi. Samkvæmt frásögn harjs var það þannig: Þegar starfsmenn okkar og verkfræðingar voru. komnir rjett að sprengistöðvunum, ;skaust Ind verji einn undan kletti og sveiflaði ógnandi logandi blysi yfir höfði sjer. Engan grunaði enn að nokkuð íllt væri á seyði. Þá hrópaði Ind- verjinn nokkur orð til manna okk- ar, er ekki heyrðust, og stakk allt í einu blysinu til jarðar. í sama vetfangi þuju logandi eldslöngur í bugum um allt bergið og berg- göngin, jörðin brast, björgin klofn- uðu og púðurreykur og grjótdust gerði myrkt í lofti. Þegar aftur birti til, sáu hermennirnir, er þustu að, voðasjón. Ekki einn einasti þeirra manna okkar, er nálægt var kominn sprengistöðvunum, var á lífi; þar lágu 124 lík, flest tætt í sund- ur og óþekkjanleg, á víð og dreif — steinarnir og - mölin löðraði í blóði langar leiðir. Leiðin lá greið gegnum Para-Dschala fyrir útlendu innvöðsluseggina, — en dýrt var hún keypt!« Slík er skýrsla Marlings, er slapp frá þessu einsdæma fjöldamorði. Aldrei hefur upp komist, hverjir ollu því, og var þó ekkert látið ógert til þess að grafast fyrir það, enda fjekk stjórnin öðrum hnöppum að hneppa og í ftéiri horn að lít.i, því 10- maí sama ár, hófst uppreistin mikla. Það var fyrst 5. mars 1866 að fyrsta eimlestin fór braut þessa. Var þá numið staðar við Para-Dschala að boði vísikonungsins, og málm- skjöldur afhjúpaður, er greiptur var í bergið og áletrað: »Til minngar um 19. apríl 1856.« Tennur eru tilbúnarog settar inn, bæði heilir tanngarðar og einstakar tennur, á Laugavegi 31, uppi. Tennur dregnar út af lækni daglega kl. 11 — 12 með eða án deyfingar. Viðtalstími kl. 10—5 síðdegis. Sophie Bjarnarson. Claessetv. Yfrrjettarmálaflutningsmaðuiv Rósthússtræti 17. Venjulega heima kl. 10 — 11 og4 —6. Talsími 16. y Laugavegi 5. Vindlar Ss,r> Tindliagar fynr£kerts“r' M unnióbak (Nobels). Reyktóbak (fjöldi tegunda.) Neftóbak (skorið), allt þekkt fyrirað vera besta og ódýrasta í bænum. | Palladómar. ----- Frh. G. B. skipaði flokk Heimastjórn- arinanna á þingi 1905 og 1907. Þá er Uppkastið 1908 kom til sög- unnar, varð hann því fylgjandi, svo sem aðrir flokksmenn hans, Einn var hann þeirra manna, er gengust fyrir samkomulagstilraun- um um sambandsmálið, þeim er nefndar hafa verið »Bræðingur«. En skoðun sinni um sambands- málakostina frá Dönum í desember 1912, þá ersumir hafa kallað »Grút«, mun hann ekki hafa yfirlýst opin- berlega, eða þá síst svo, að fullyrt verði um það, hvort hann vilji, að vjer íslendingar' hlítum þeini kost- um eða ekki. — Sambandsflokkinn skipaði hann á þingi 1912, og skipar enn, Mun öðru nær en að Sambandsmenn telji autt þar, sem sá hnoðri húkir. Þá er rætt var um annan þing- mann, Tr. B., mun hafa verið varp- að fram einhverju á þá leiðina, að G. B. mundi líklega einna víðsýn- astur og fjölsýnastur framfaramað- ur, þeirra er sátu síðasta þing. Mundi sennilega mega finr.a orð- um þessum nokkurn stað, þótt það efni verði hjer ekki til hlítar rakið, sakir rúmleysis og annara atvika. Eri mundu þeir margir vera, núr lifandi íslendinga, er víðsýnni og fjölsýnni væru um nýtilegar fram- farir hjá íslensku þjóðinni en G. B.? Mundu þeir margir vera, er greina ger en hann, hvar skórinn kreppir að hjá þjóðinni, og greina ger en hann, hvað helst megi vinna bót á skókreppunni? Og mundu þeir aílmargir vera, er meiri væru hug- kvæmdarmenn en hann og honum fjölsýnni á framfararáðin? Sá fær sjaldan lof, sem á ljósinu heldur. Og ekki þarf heldur að búast við því, að jafn hugfullur framfaramaður og umfangsmikill sem G. B. geti gert svo öllum Iíki, hljdti allra Iof. Pann dul mun hann ekki heldur ætla sjer, að hann fa'i eiriróma lof og þakkir fyrir alla framfaraviðleitni sína í orði og verki. G. B. er læknir — Iandlæknir i að embættisnafni. Það er því að vonum, að fastast hafi hann lagst á framfarirnar um öll þau mál, er undir þá grein heyra, sem nefnd eru heilbrigðismál. Hann hefur líka í þeim málum búið stjórn og þingi í hendur mikið og margt, sem í hafa falist nýungar, breytingar og bætur frá því, sem áður var. Hafa því heilbrigðismálin síðan tekið all- miklum stakkaskiftum, og þeim láng- flestum til stórra bóta. Langt yrði að telja allar tillögur G. B. uni heilbrigðismálin. Eitt það fyrsta af því tagi, munu hafa verið afskifti hans af holdsveikra- málinu um 1897. Svo rak hvað annað, sóttvarnarlög, læknaskipun, J, læknataxti, geðveikrahælið, sjúkra- samlögin o. fl. o. fl. Þá má nefna j síðast, en eklci síst, starf hans í heilsuhælismálinu, það starfið, er komandi kynslóðir sennilegast þykj- ast ekki fá honum nógsamlega þakkað. Og eitt mætti nefna enn £at\dsms stærsta og besta Einars Árnasonar. Sími 4 9. Aðalstræti 8. um Ieið og látið er staðar nema um þessa hluti. Það er vatnsveita Reykjavíkur. Hver var þar frum- mælandi og brautryðjandi annar en hann? Og hvers virði er vatnsveit- an fyrir Rvík nú og í framtíðinni? Líklega íllt að telja það tölum. Frh. ■ aiifiskur. Reykt kjöt Kæfa. Nýtt ísl. sinö r. Jón*ráVaðnesi. LítíB fyrst inn, þegar á fatnaði eða vefnaðarvöru þurfið að haida, Ásg. G. Gunnlaugsson & Co. Austurstræti 1. — bæði heill og malaður — er áreiðanlega bestur og ódýrastur hjá JÖn FRA VAÐIESI o rt? /n [Efni til að varna l\HiSQ« steinmyndun í gufukötlum. Er uppl. í vatninu í hæfilegu hlut- falli.] Ætíð tii í Vöruhúsinu. Nauðsynlegt hverju gufu- skipi. | Magdeborgar-Brunabótafjelag. | j| Aðalumboðsmenn á íslandi: » p O. Johnson & Kaaber. ® t' Vöruhúsið hefur einkasölu á fortepíanóum frá Sören Jensen, píanóverksmiðju f Kaupm.höfn. Til sýnis í Vöruhús r»u. Violanta. Framhald af Cymbeífnu. ---- Frh. »Uss,Iáttu ekki svona, kona! Vístertu fangi, þótí — þú sjert ekki í fjötrum. Þú mátt fara heim,— þú niátt fara hvert sem þú villt, en »Rauða aug- að« hvílir á hverju spori þínu, hverri hreyfingu hjeðan í frá!« Giovanna stillti sig nokkuð, — hún beit á vörina og hugsaði ráð sitt. Hjer er ekkert undanfæri, — hún þekkti atferli fjelagsins; hún vissi að því einu átti hún líf sitt að þakka, að hún var móðir Rubeoli’s, ella hefði hún verið skotin umsvifa- laust. Allt var þetta auðvitað gert að skipun sonar hennar, — nú var Vioianta á valdi hans. Hjer voru góð ráð dýr. Hún vissi ekkert hvert hún yrði nú flutt. Ög þó svo ólíkíega gæti skeð, að sjer tækist að bjarga henni, eins og nú var komið, — þá varð það ekki fram- kvæmt nema á einn veg: að'fórna syni sínum og sjálfri sjer fyrir hana. Giovanna stóð lengi í sömu spor- utn niðurlút. Og er hún leit upp, voru grímumennirntr horfnir og höfðu tekið lík fjelagá sir.na með sjer. Hún var alein. En jafnviss vár hún um það, að sín væri gætt, — að hvert spor sitt yrði rakið. Violöntu var enginn vegur að

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.