Vísir - 27.03.1914, Síða 2
V 1 S I R
_■ |
Leiðrjetting.
i
Út af smágrein um „Fánamálið" í Morgunblaðinu í gær, vilí
stjórn Málfundafjelags Verslunarskólans láta þess getið, að greinin \
er þangað komin án vilja og samþykkis fjelagsins, sakir |
fljótfærni og misskilnings eins fjelagsmanns.
Um málið var að vísu rætt á fundi í fjelaginu, án þess þó að f
fjelagsmenn ætluðust til, að tillaga sú, er þar var samþykkt kæmi j
fyrir almennings sjónir. það var því algjörlega án vitundar fjelags-
manna, að áðurnefnd tillaga hefur verið birt í Morgunblaðinu, og
það því fremur, sem tillagan er ekki rjett hermd, eins og hún var
borin upp til samþykktar á fundinum. það er þvi hreínasti mis-
skilningur, að fjelagsmenn hafi ákveðið að sertda áskorun til
Alþingis, og finnum við okkur skylt að leiðrjetta þetta fyrir hönd
íjelagsins.
Ofanritaða grein er Vísir beðinn að birta, þar sem Morgunblaðið
neltaði henni upptöku.
Reykjavik 25. mars 1914.
Stjórn Máifundafjelagsins.
Á 25 AU RA
fást falieg postulíns-bollapör í
VERSLUN JÓNS ÞÖRÐARSONAR.
Yerslunin Von,
Laugavegi 5 5,
auglýsir engar 2 eða 3 daga útsölur á brenndu kaffi, en selur þá vöru,
sem aðrar, með lækkandi verði, eftir því sem þær lækka í verði
> erlendis, og heldur ekki sama verði á brenndu kaffi allt árið,
þó að óbrennt kaffi falli í verði um 15—20°/0.
Nú sem stendur, selur verslunin Von brennt kaffi, sem vel þolir
samanburð við kaffi annara verslana, að dómi neytenda, fyrir Kr. 1,08
pundið og að sjálfsögðu ódýrara seinna, ef óbrennt kaffi lækkar í verði
frá því, sem nú er.
Munið það, að í Von er kaffið ódýrast og jafngott 125 aura kaffi
annarsstaðar-skrumlaust.
Presturinn í Næstved.
Sjera Hansen, danskur prestur í
Nœstved, er sekur orðinn um svik.
Hann Ijet fógeta krefja inn með lög-
taki hærri gjöld, en þeim bar að
greiða. Áttu þar mest fátæklingar í
hlut, er hann gaf 10, 20 til 30 kr.
hærri reikning, en hann átti rjett á.
Enn fremur hefur hann beitt kjör-
lista-fölsun við kosningar sjer í hag.
Mælt er að klerkur hafi áður verið
auöugur maður, en harin kunni ekki
með fje að fara, eyddi ogsóaði á báða
bóga, svo nú er hann fátækur orð-
inn. Auk þess hafa kunn-
ingjar hans svikið fje út úr hon-
um og ýms fjármálaóhöpp hafa
gert honum tjón, Klerkur er sjúkur
á sál og líkama og grunur á, að
hann sje ekki með rjettu ráði. Er
hann nú í geðveikrahæli til athug-
unar.
Vindlingurinnn hættufegi.
í Rússlandi varð r.ýlega einn vind-
Iingur 24 manna bani. Vinnumaður
nokkur í Orlovo-námunum í Jelo-
novka kveykti sjer í vindling niðri í
námunni 8. þ. m., en við það varð
jafnskjótt gassprenging, er varð 24
mönnum í námunni að bana.
Nau^synjavörusála fyrir
bæarreikning
er mjög að verða uppi á teningun-
um í Ungverjalandi. Margir bæii;
eru farnir að reka kjötverslun fyrir
reikning bæarins og við það hefur
kjötverðið lækkað 20% fyrir neyt-
endur.
f Buda-Pest eru mörg brauð-
gerðarhús rekin fyrir bæarreikning
og búinn til í þeim % hluti af
brauðforða þeim, er bærinn þarfnast.
Svínum og sauðfje er þar slátrað í
Næstu viku, alla dimbilvikuna og vikuna þar á eftir seljum við’
Melís í toppnm á 23 aura pundið og Melís í kössum á 23 aura-
pundið. Þetta ágæta kaffi tölum við ekki um; það vita allir, að
það er hvergi eins ódýrt; svo eru aðeins nokkrir belgir eftir af
þessari ágætis kæfu, sem verður ennþá nokkra daga seld á 45
aura pundið. Flýtið ykkur, áður en hún þrýtur, en fyrir alla
muni gleymið ekki, að spyrja um aðrar vörur um leið og þið
kaupið það, sem hjer er talið.
Virðingarfyllst,
Jón Jónsson frá Yaðnesi,
Tilkynning.
Frá þessum degi verður
baðhúsið á Hverfisgötu 4 Ð.
ekki opið á laugardögum frá
6—10 síðdegis, eins og verið
hefur.
Einstök böð fást þó eftir
pöntun.
Stcinunn Guðmundsdóttir.
u
Atvinnu við mjaltir
getur ein stúlka fengið í Viðey.
Upplýsingar í
K ATJP AIG-I.
slátrunarhúsum bæarins, er kaupa
dýrin til frálags, og alifuglasölu hef-
ur bærinn líka. Þessi nýlunda í
Buda-Pest hefur víða vakið athygli
mikla og fjöldi annara bæarstjórna
er að kynna sjer málið, fyrirspurnir
hafa komið um það frá Moskva og
Augsburg, en Strassburg, Belgrad
og margir bæir í Austurríki hafa
sent þangað fulltrúa, til þess að
kynna sjer fyrirkomulag á bæarsölu
þessari, ekki síst brauðsölunni.
Maðurinn
með iilbúna andlitið.
í sjúkrahúsi í Baltimore hafa læknar
gert meistaraverk á manni, Ross Allen
að nafni. Hann missti nef og varir
við slys fyrir 5 árum, en þóttist
ekki smáfríður eftir og kváðust lækn-
ar mundu geta bætt úr þessu. Fyrir
nokkrum mánuðum var hann svo
lagður í sjúkrahús og skurðirgerðir á
andliti hans og handlegg, er var
bundinn upp að munni hans þang-
að til andlitsvefirnir, þar sem var-
irnar höfðu áður veriö, fóru aö gróa
saman við vefina í handleggnum.
Að nokkrum vikum liðnum voru
nýar varir skornar út úr handleggn-
Hinir heimsfrægu
indversku vindlar,
Flor de Dindigul,
fást aöeins í versl.
Nýhöfn
og í versl.
Vegamót
Laugav. 19.
um, lagaðar til og húð Iátin vaxa
á við yfirfærslu frá handleggnum
jafnframt. Tókst þetta svo vel, að
maðurinn fjekk nokkurnveginn eðli-
legar varir. Nú var eftir aö búa til
nýtt nef á manninn, en þaö ergert
þannig, að skornar eru flísar af rifja-
brjóski úr manninum, beygðar til
og lagaðar, svo þær fái sömu lög-
un og nefbrjósk og látnar gróa
við andlitsbeinin, en hold og húð
grætt á með yfirfærslu á sama hátt
og varirnar. Svo ef að sjá sem
þetta muni takast vel, en útsjeð er
ekki um það enn að fullu.