Vísir - 05.04.1914, Blaðsíða 1
Keimir út alla daga. Sími 400.
Afgr. í Austurstr. 14. kl. 1 lárd.til 8 síðd.
Sunnud. 5. apríl 1914.
Pálmasiinnudagur.
Háfl. k). 12,28‘árd.ogkl. 1,13’ síðd.
j
A morgun:
Afmœli-.
Frú Guðrún Sigurðardóttir.
Pjetur Leifsson, ljósmyndari.
Sigurður Erlendsson, bókb.
Póstáœtlun:
Hafnarfjarðarpóstur kemur og fer.
Biografteater
Reykjavíkur
Nýtt, ágætt prógram
í kveld.
Úfi BÆNUM
Gefin saman i gær Einar Oríms-
son frá Torfasföðum í Biskupstung-
um og ungfrú A'ristjana Ki'istjáns-
dóttir, Skólavörðustíg 5.
Riddari af Dannebrog er nýorð-
inn Ásgeir Blöndal, fv. hjeraðslæknir
á Eyrarbakka.
Jarðarför frú Sophiu Thor-
steinson fór fram í gær að viðstöddu
fjölmenni. Húskveðju hjelt sjera
Haraldur Níelsson og líkræður í
Dómkirkjunni sjera Jóhann Porkels-
son og sjera Bjarni Jónsson.
lOmanna hornaflokkurundirstjórn
Helga Helgasonar spilaði á lúðra
meðan gengið var í kirkju og úpp
t kirkjugarð.
Kirkjan var vel skreytt.
Guðm. skáld Guðmundsson hafði
ort tvö kvaeði, var annað birt í blað-
inu í gær. Það var sungið sóló við
húskveðjuna með fögru lagi, er Árni
tónskáld Thorsteinson hefur gert og
áður hefur verið sungið við jarðar-
farir föður hans og systur. Börn
sungu í kirkjunni, en heima og
uppi í kirkjugarði söng »17. júní.«
Haraldur Níelsson prófessor
prjedikar í Fríkirkjunni í kvöld kl.
5 síðd.
Hadda Padda, sorgarleikur í 4
þáttum eftir Guðmund Kamban, er
nýkomin út á kostnaö Ólafs Thors.
— Bókin er 123 bls. í stóru 8 blaða
broti og er ytri frágangur ágætur.
Ritdómur um leikinn kemur innan
skamms.
Ceres kom í morgun kl. 71/,,
Með henni komu nokkrir farþegar
þar á meðal: Frú Flóra Zimsen,
ungfrú Elinborg Guðmundsdóttir,
ungfrú Guðrún Thorsteinsson, ung-
frú Kristín Pálsd., ungfrú Hansína
Þórðard., Þórarinn fiðluleikari Guð-
mundsson, Torfi Tómasson umboðs-
sali, Egill Jakobsen kaupmaður,
ungfrú Soffía Helgadóttir, Isebarn
og annar Þjóðverji og 1 Hollend-
ingur.
Frá Vestmanneyum: Ágústa Er«
lendsdóttir, Guðný Jónsdóttir og
Eiríkur Einarsson lögfræðingur.
Hera fer á skírdagsmorgun inn
í Hvalfjarðarbotn með Múller versl-
unarstjóra og þá skíöamennina, sem
æt!a að nota páskafríið til skíðaferða
um Þingvallasveit.
Sjálfstœðisfjelagsfundur var
haldinn í gærkveld í húsi K. F. U. M.
Til máls tóku á fundinum Sig.
►KostarJóO au. um mánuðinn. Kr. 1,80,. Skrifstofa í Austurstræti 14, (uppi),
ársfj. Kr. 7,00 árið (380-400 tbl.). í opin kl. 12-3, Sími 400.
. ■ I ' .........
Málverkasýning
»
Asgríms Jónssonar
er daglega opm frá 11 — 5 i Vinaminni.
Inngangur 50 au. fyrir fullorðna. 10 au. fyrir börn.
Vjelskorna neftóbakið í tóbaksversiun R. P. Leví telcur öllu öðru
neftóbaki fram.
Sjerstaklega má benda á 3 eiginleika, er það liefur fram yfir hið
handskorna neftóbak, er vjer höfum átt að venjast og eru þeir þessir:
1. Tóbakið er jafnara og betur skorið.
2. Tóbakið er hreinlegar meðhöndlað.
3. Tóbakið heldur sínunr rjetta ilm (Aroma).
Hverjum, sem vill, er leyfilegt að vera við þegar skorið er, til þess
að gera sjer það Ijóst, að hjer er rjett skýtt frá.
Sjálfs ykkar vegna notið því eingöngu vjelskorna neftóbakið
frá Leví.
Jónsson, Þorst. Erlingsson, Sveinn
Björnsson, Einar Arnórsson og
Jakob Möller.
Með Sterling fóru í gær til
Vesturlands: Ól. G. Eyólfsson skóla-
stjóri, Benedikt Jónasson verkfræð-
ingur,Sæmundur Halldórsson kaupm.
í Stykkishólnii, Ólafur Proppe og
Jóhannes bróðir hans.
I Stmjtjeúuý
Bær eyðist af
manndaaða.
Börnin flýa.
Þetta er símað í gærkveldi frá
Akureyri til Vísis.
Á Einhamri í Hörgárdal bjó bónd-
inn Jón Sveinsson með konu, vinnu-
konu og þrem börnum, var það
eísta á 12 ári. Fyrir skömmu dó
konan þar, en daginn, sem hún var
jörðuð, dó vinnukonan. Nokkrum
dögum síðar komu börnin 3 ein
síns liðs til næsta bæar, höfðu brot-
ist þetta áfram í illu veðri óg kaf-
snjó. Sögðu þau að faðirinn væri
dáinn.
Aumingja börnin, það voru bág-
ar ástæður fyrir þeim, milli vita,
að vera yfir föður sínum deyandi,
úrræðalaus, líklega svöng og köld,
en lánið þetta, að ekki var blindhríð,
eins og nú er hjer oftast.
Um skepnurnar hefur ekki frjettst,
hvort þeim hefur orðið bjargað frá
hugurdauöa.
Akureyri í gær-
Aðalfundur kaupfjelagsins er
nýhaldinn og stendur fjelagið með
miklum blóma. 35 þús. krónum
námu vörukaupin síðastl. ár.
Tóvinnuvjelunum ætlar bæar-
stjórnin að hjálpa um 5 þúsund
króna ábyrgð gegn því, að hlut-
hafar leggi til aðrar 5 þúsund kr.
t Þorsteinn Jónasson, fyrrum
hreppstjóri á Grýtubakka, andaðist
í fyrradag, 81 árs að aldri. Hann
var um eitt skeið hákarlaformaður
og mjög lengi hreppstjóri í Grýtu-
bakkahreppi. Búhöldur góður og
þótti í hvívetna hinn nýtasti maður.
Ótíð mikil í Eyafirði. Snjór orð-
inn afskaplega mikill, enda blind-
hríð lengstum.
jpl Altan aj
Langanessbrjef.
8. mars.
Hjeðan er eiginlega ekkert ann-
að að segja en harðindi og vand-
ræði; með harðindum meina
jeg náttúrlega vonda tíð og jarð-
leysi, sem búið er að standa síð-
an í lok janúarmánaðar eða um
það bil, er ákaflega mikill snjór
fallinn svo að hvergi sjer í dökk-
an díl, og bætir stöðugt á á hverj-
um degi; eru því allar skepnur á
heyum og gengur mikið upp dag-
lega, en nokkur bót er það fyrir
mig og aðra, sem búum víð sjó,
að hann helst enn auður, en hvað
lengi verður því láni að fagna?
ætli ísinn komi ekki bráðum ?
Flestir munu vera hræddir um að
svo fari og þá fer nú fyrst að
líta skuggalega út. Um heybirgð-
ir manna er það að segja, eftir
Langbesti augl.staður í bænum. Augl.
sje skilað fyrir kl. 6 daginn fyrir birtingu.
því sem jeg veit best, að allflest-
ir munu gefa inni eða endast til
sumarmála og nokkrir víst eitt-
hvað fram á sumarið, en sárfáir
munu vera aflögufærir svo að
nokkru nemi, og eru þó einstöku,
sem bráðlega þurfa hjálpar.
Með vandræðunum, sem jeg
nefndi, átti jeg helst við eldivið-
arleysi; e/s Ingólfur kom hjer í
janúar með 20 smálestir af kol-
um og e u þau nú þrotin, en
ekkert v r fyrir, og þó sama
skip eigi að vera á ferðinni um
þetta leyti, er varla að búast við
því hjer inn i þeim veðraham,
sem nú er á hverjum degi. það
er hart að jafn stöndug verslun,
og Orum & WulfFs er, skuliekki
birgja sig að kolum, ekki dýrari
vöru og reyndar að allri nauðsynj-
avöru. Nokkuð mun vera til af
matvöru,en hrekkur þó skammt
ef þarf að gefa skepnum, sem
sumir munu byrjaðir —.
Nýustu rannsóknir
á Mars.
Frh.
Það liefur verið borið fyrir sig,
sem mótmæli gegn því, að línur
þessar hinar dökku sjeu grafnir
skurðir, hve óvenju breiðar og af-
skaplega langar þær eru. Slíkir
skurðir, 500 rasta breiðir og 5000
rasta langir, vaxa oss svo í augum,
vjer getum varla gripið þá með
húganum. Þess vegna hefur sum-
um dottið í liug, að þessar dökku
línur sjeu ekki djúpir, niðurgrafnir
skurðir, heidur sljettar ræmur, er
liggja milli tveggja flóðgarða.
Slíka vatnsfarvegi væri auðveldara
að búa til, en skurði slíka sem áð-
ur getur.
En það er alveg óþarft að fall-
pst á þessa skýringu. Vatnsþurðin
á Mars, er orsakast af því, að
hnattbergið drelckur vatnið í sig
og það gufar upp á grjótinu, hef-
ur ekki myndast allt í einu, heldur
orðið smátt og smátt. Hundrað
þúsundir ára eru liðnar frá því, er
svipað var um vatnsmagn þar og
nú er hjer á jörðunni hjá oss.
Skynsemi gæddar verur á Mars, er
þurftu vatns við til áveitu á jarðir
sínar og akra, þurftu ekki að
grafa skurði þessa á fám árum,
ekki í snatri, heldur löng, löng
tímabil, — þær gátu breikkað þá
og lengt og safnað í þá vatni eftir
því sem þörf var á á því og því
tímabili. Ekki er heldur víst, og
enda mjög ólíklegt, að verur
þessar hafi grafið þá af fúsuni
vilja, heldur blátt áfram af því,
að verkið var óhjákvæmilegt að
vinna. Ef þær áttu ekki að verða
hungurmorða vegna fæðuskorts,
urðu þær að grípa til þess að noía
sjóinn til áveitu á engi sín og
akra, — til allra landbúnaðarbóta.
En óhjákvæm yfirvofandi neyð
sigrar allar tálmanir og örðug-
leika. Frh.