Vísir - 05.04.1914, Síða 2

Vísir - 05.04.1914, Síða 2
Hinar heimsfrægu vjelar .(Ítaej & ^ossmatuvs" Prjónavjelar frá 116 kr. til 450 kr. Saumavjelar fr.í 33 kr, til 145 kr. Prjónavjelarnar hafa 16 ára hjerlenda reynslu. Saumavjelarnar hafa 7 ára hjerlenda reynshi — og hafa fengið mikið lof allra, er reynt hafa. Einkasali fyrir ísland: HPVl Vefnaðarvðruverslun, I 11« I Sl» Ingóifshvoii. Morðið í París, London 21. mars 1914. Morð Gaston Calmette, rit- stjóra Figaros í París, sem frú Caillaux fjármálaráðherra framdi, hefur vakið afarmikið umtal hjer í London, en þó einkum í hinni stóru „nýlendu“ Frakka hjer í borginni. Tímanlega á þriðjudagskveldið var, reyndi jeg árangurslaast í einni búðinni eftir annari að ná í þessa dags Figaro. Mjög mörg eintök þess eru send daglega til London, en á þriðjudagskveldið var ómögulegt að fá eitt einasta eintak, hvorki fyrir fje eða vin- áttu. Frakkneskur bóksali sagði mjer, að hvert eintak hefði verið shill- ingsvirði þá um daginn, þótt eigi kosti nema hálfan poany að rjettu lagi, og nú væri blaðið með öllu ófáanlegt. Pað sem vakti einna mest eftirtekt mína í frönskum biaða- búðum, er jeg kom í, var þögn kalmannanna um þetta mál, en gremja kvennfólksins við frú Caillaux. Jeg sá að stjórnmála- skoðanir manna drógu úr glæp konu hins frjálslynda ráðherra í sumra augum. En kvennfólk- ið, — engin slík tilfinning hjelt þeim í skefjum. þær hefðu fegn- ar viljað sjá þessa konu ráð- herrans á höggstokknum, án þess að blikna eða blána. Istand erlendis. Yfirmaður á frakkneska her- skipinu „Lavoisier“, C. Brossier að nafni, hjelt í vetur fyrirlestur um ísland í ungmennafjelagi í Marseille, lýsti hann þar landi og lýð, sögu og bókmenntum, sem hann sjálfur hefur kynnt sjer þessi tvö sumur, sem hann hefur dvaldið hjer með herskipinu, og þótti áheyrendunum þetta mikill og nýr fróðleikur, þar sem fæstir þeirra þekktu land vort og þjóð, nema að eins að nafninu til, og hefur hann í hyggju að fræða landa sína þar suður frá enn frekar um vora hagi. Brossier | þessi er mikill íslandsvinur. Nú sem stendur er hann kennari á frakknesku skólaskipi. Man.akynið 150000 ára gamait. Dr. Hans Reck, þýskur vísinda- maður við jarðfræðisdeild háskólans í Bcrlín, heftr nýverið fundiö beina- grind af nitnni, er hann álítur að sje 150 000 ára gömul, í Oldoway í norðurhluta Austur-Afríku, þar sem Þjóðverjar eija land. Hann tók hauskúpuna heim með sjer, — geymdi hana í fatakistu sinni til þess að vera viss um, að hún glataðist ekki, en sjálf beinagrindin og dýra- bevnaleifar, ef þar fundust, eru á leið- inni til Norðurálfu, Fregnriti stórblaðsins »Timesi í Berlín segir þetta dásamlega haus- kúpu og furðu hina mestu, hve vel hún hafi geymst. Hún er löng og mjó, með greinilegu kjálkalagl sveri- ingja, hr.akkinn hár og breiður nokk- uð og hnakkagrófin djúp. Rifin og brjóstbeinið er e?ns og áöpum, en hauskúpan er áreiðanlega af rnanrp. Ýmislegt bendir á, að hnakka- vððvarnir bafi verið ákaflega sterkir og að maöur þessi hafi ekkí gengið alveg upprjettur. Tennurnar 36 eru allar fallegar og óskemmdar; á þeim eru rákir eins og þær hafi verið sorfnar. Augnatóftirnar og nefbein- in «• líkt því, sem er hjá lægstn villimönnutn i Suöurálfu. Beinagrindin lá á bakið, höfðinu hallaði lítið eitt til hægri hliðai höndin lá yfir andlitinu og fæturnir krepptir upp að búknum. Ðr. Reck þykist viss um, áð ekki hafi þetta verið líkstellingar, — maðurj hafi ekki verið grafinn þannig. Þar sem beinagrindin fannst, var í öndverðu vatn, er nú er horfið, og er ætlun Recks o. fl. visindamanna, að mað- urinn hafi drukknað. Beinagrindin var að mestu þakin steinlagi úr sandi og kalki, er á liðnum öldum hefur varið beinagrindina skemmdum. Fundur þessi hefur vakið óhemju eftirtekt um allan heim meðal vís- indamanna, því reynist aldurstilgátan rjett, kollvarpar hún öllum eldri kenningum um aldur mannkynsins og ótal fleiri getgátum vísinda- manna. Sendið auglýsingar “W| tmr tfmanlega. TH Öll baðmullarYara er vörduð og ódýr hjá Th. Th. Ingólfshvoli. Hvergi í borg- inni er úr jafn miklu að velja. Ljerept, Tvisttau, Flónel. Öll fóðurtau, Sængurdúkur, Morgunkjólatau. Handklæa- og þerru-dreglar. Handklæði, Rekkjuvoðir, Rúmteppi. Gardínutau og m. m. fi. er best að kaupa hjá Th.Th. Kailm.- og Drengja-Fötin okkai* fara langbest og kosta minnst. Höfuðföt—Hálslín— Slifsi. Nærfatnaður—Sokkar °* - Nýtt komið til

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.