Vísir - 06.04.1914, Blaðsíða 3

Vísir - 06.04.1914, Blaðsíða 3
V 1 S 1 R Fyrstan er þá að telja John R. Mott, hinn heimsfræga forgöngu- mann hinnar kristilegu stúdenta- hreyfingar. Hann talaði mjög blátt áfram,en ræður hans voru þrungn ar af heilögum krafti og alvöru. það var einsog sterkur rafmagns straumur gengi í gegnum alla, er hann lýsti neyðinni í heiðingja- löndunum, hinum opnu dyrum, sem nú væru þar nálega allstað ar, og skyldum kristninnar til að beita nú öllum krafti og nota hinn hentuga tíma. þarnæst var G. Sherwood Eddy, sem vakið hefur afarmikla hreyf- ing meðal stúdentalýðsins á Ind- landi og Kína. Hann talaði meðal annars um það að „vinna sálir“ fyrir Krist og trúboðið meðal stú- dentannavið háskólana. Hann tal- aði blátt áfram með þýðum mál- róm, sem þó náði út í hvert horn á salnum. það var eins og hann ætti eitthvert töfravald, sem gagn- tók alla og fyllti þá í einu bæði með alvöru og með gleðifyíltri eftirvænting. Frh. .. iVBmajgr.WTV.m matm ni ■' —> Havana Og Patti ásamt ýmsum öörum ágsetuni vindlategundum, fást með gjafverði fyrir páskana í Laugavegi 63. Jóh. Ögm. Oddsson. Takið eftir! Til páskanna faest allt, sem nauðsyplegt er, í H|f versl. BREIÐABLIK 3 oli. 6 Ö 4 Laugaveg 63. Sími 339* Með % Sterling komu Páskavörurnar til H|f versl. Breiðablik" »» • OLSENS NAUTICAL ALMANAC 1914 , (kostar T kr.), «em ef' alv'eg ómisscndi eign fyrir útgerðarmenn og sjómenn, fæst alltaf í Békaverslun Sigfásar Eymundssonar. Skósmiðir! Söðl asmiðir! Undirritaður útvegar ykkur aílt leður og allt annað tilheyrandi handverkinu með innkaupsverði. Sýnís! orn og verðllsti sendist ókeypis þeim, sem óska. Virðingarfylst jr* IJielsen, Austurstræti IO. Nokkrar duglegar stúlkur 3f vanar fiskverkun, geta fengið atvinnu um lengri tíma * á Austurlandi. Hátt kaup í boði! Semjið strax við JÓN ÁRNASON, Vesturgötu 39. . . ■ ■ W* I & J N Ý T T í S L. S M J Ö R, R E Y K T U R L A X o. fl. FÆST í HþF V E R S L. Vel verkuð sauðskinn fást í Versluninni Hiíf. UTS VARSKÆRUR fást samdar á Bergstaða- stæti 20 kl. 5—6 síðd. Góðar og ódýrar matvörur í Versluninni Hlíf. Eftir Rider Haggard. ---- Frh. »Þú segir að þú og húsbóndi þinn hafi bjargað lífi mínu,« sagði hann. »Gott er það, fjelagi, en hvers vegna miðaðir þú ör þinni á mig skömmu áður? Sje jeg að bogi þinn er gerður af Austurlanda við,« hann starði á bogahylkið, en í því var boginn. Var sem hann sæi bogann gegnum leðrið. »Svara þú ekki; mun jeg segja þjer af hverju þú vildir skjóta mig. Þú varst hræddur við mig, og hræösl- unni fylgir grimd, eins og þú veist. En þá vildi þetta til, sem aldrei hefur viljað til áður með örvar þín- ar. — Satt var það, að þið rákuð þessa ítölsku morðinga á flótta, °g er jeg ykkur mjög þakklátur fyrir það. En hvers vegna brotnaði örin á bogastreng þínum?« Og brosti hann aftur með hinum hræðilegu augum sínum. Gráa-Rikka varð orðfall í annað sinn þá um kvöldið, og hann sett- ist aftur niður á steinstólpan á bryggj- unni. Þessi maður talaði Suður- fylkis-ensku fullkomlega rjetta. Rikki var svo gagntekinn af undrun yfir öllu þessu, að hann hugði að sín síðasta stund væri í nánd. Allt var nú aftur kyrt um stund. Þá snjeri maðurinn sjer hægt að Huga og horfði fast á hann snöggv- ast. . »Hvert er nafn þitt, minn hug- prúði hjálparmaður, og hvert er ættland þitt?* spurði hann Huga. Mælti hann enn á enska tungu, en á þann hátt er heldri menn mæltu sín á milli, við hirð konungs og höfðingjar allir, »Jeg er Hugi riddari frá Krossi í Suðurfylki á Englandi,« svaraði Hugi rólega. »England. Jeg þekki það land, og jeS kannast einnig við Dúnvík. Hef jeg í hyggju að fara þangað og finna gamlan vin, er jeg á þar.« Það mátti sjá þaðá andliti Huga, að hann var að byrja að álta sig á því, hver maðurinn mundi vera.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.