Vísir - 06.04.1914, Síða 2
Af norðurför
Yilhjálms &refánssonar.
Frjettir hafa blöð flutt af norð-
urför þ,essa nafnkennda landa vors
og ágrip af skýrslu hans til Kan-
ada-st)óriiar,' ásamt* simskeýti' frá
honum, dagsett 3. februar, við
Collirison-höfða í Alaska. Segir
svo, að hann sje í vetrarbúðum
með mönnum sínum af skipunum
Mary Sachs og Alaska, og að
þeim líðí öllum vel. þegar vorar,
gerir hann ráð fyrir að skipið
Alaska bíði eftir Mackenzie-fljóts-
pósti og haldi þá til Herschel-ey-
ar og síðan til Coronation-flóa, en
Mary Sachs haldi áfram ferð sinni
til Prince Patrik-eyar og bíði þar
frera í haust.
Af skýrslu Vilhjálms, sem er
afarlöng og rækileg, getum vjer
að eins birt ágrip. Frá því er áður
sagt, er skip hans hjeldu norður
um Behrings-sund, milli Asíu og
Ameríku, og tekur hann nú að
segja frá því, er dreif á daga
skipsins „Karluk", er það hjelt í
landnorður meðfram Alaska-
strönd. Að nyrsta og vestasta
höfðanum, Point Barrow, kom
skipið þann 7. ágúst síðastliðið
sumar, tók þá straumurinn við því
og rak það í útnorður, um fjöru-
tíu mílur á degi, undan straumi,
sem stóð undan höfðanum, og var
þá samföst hella utan um það.
Skömmu síðar greiddist úr ísnum
og komu þeir þá seglum við og
eimi. Næsta hálfan mánuð sveim-
uðu þeir í ísnum, uns hellan lagð-
ist umhverfis þá og skipið varð
fast. Stórar vakir og jafnvel op-
ið haf sáu þeir, en þangað var
jafnan svo langt, að ekki voru til-
tök að sprengja ísspengurnar með
dynamite, þó að áhöld hefðu þeir
tii þess. þótti Vilhjálmi nú súrt
í broti, að ná ekki þeim stað, er
hann hafði ætlað sjer, áður veður
lagðist að, og var það hið fyrsta
óhapp leiðangursins, að ísarvoru
miklu meiri fyrir norðan Ameríku
í ár, heldur en dæmi eru til. þeg-
ar skipið var fast orðið í ísnum,
fór V. S. að hugsa fyrir vetrinum.
Hann hafði með sjer nokkra menn,
er koma þurfti á önnur skip, og
til þess hugsaði hann sjer að nota
veturinn, og einkum var sú þörf
brýn, að afla nýrra vista, einkum
kjöts, með því að veiði brást al-
gerlega þar, sem þeir voru þá
staddir. Engir voru vanir veiði-
menn á skipinu, nema Vilhjálmur
og Bartlett skipstjóri, og bauðst
hann til að fara, en með því að
Vilhjálmi var allt kunnugt fyrir á
landi, bæði fólk og landshættir,
og fór því sjálfur með nokkra
menn til næstu eyar, safnaði þar
rekavið til eldsneytis og beið
færis að komast til lands,
því að íslaust var við land.
þetta var seint í september,
og voru þá þokur tíðar og
snjókoma með köflum á þessum
slóðum. Eftir nokkra daga kom
los á ísinn, og sá Vilhjálmur skip
sitt taka til ferðar og hverfa við
sjóndeildarhring. Var þá ekki
um annað að gera, en að sækja til
V
1?
'J
fssst í
:i.
Verð: pd. 70 au.
i. ■ — !
lands, og láta auðnu ráða. Útbún- j
að höfðu þeir af skornumskammti,
með því að tilætlunin var að vera
að eins hálfan mánuð á ferðinni.'
Vilhjálmur komst til lands að lok-
um og hjelt austur með strönd og
spurðist hvervetna fyrir um skip
sitt, en enginn kunni honum af að
segja. Eftir langa ferð og erfiða
komst hann til vetrarbúða skips-
hafnanna af Mary Sachs og Al-
aska, þrem dögum fyrir jól.
það var fyrirætlun Vilhjálms í
upphafi að rannsaka hafið fyrir
vestan Banks- og Patricks-eyar.
Enginn hefur komið þar áður, og
vita menn ógerla, hvort þar er
haf eða land. Vilhjálmur ætlar
sjer að fara þangað sleðaferðir í
vetur, svo langt sem ísar leyfa.
þangað skal öðru skipi hans hald-
ið þegar vorar, en hitt áað rann-
saka ósa Mackenzie-fljótsins, sem
er stærst allra fljóta í Norður-
Ameríku og skipgengt óra langan
veg. það kemur úr Great Slave
Lake, en í sambandi við það vatn
eru'bæði Peace og Athabasca-fljót;
væri það þýðingarmikið að vita,
hvort ósar fljótsins eru færiir stór-
skipum. Ekki er Vilhjálmur
hræddur um líf manna sinna á
Karluk, segir þá hafa útbúnað
ágætan bæði til ís- og sjóferða.
Hangikjet
fæst í
Kaupangi
Verð: pd. 48 au.
VINNA
Stúlka óskast í ársvist á fámennt
Dg barnlaust heimili. AFgr. v. á.
Áreiðanlegur og reglusamur
piltur óskar eftir atvinnu við
zerslun nú þegar. Tilboð merkt:
„A 25“ sendist afgr. Vísis.
Stúlka, vön eldhúsverkuro, ósk-
ist 14. maí til Sveins Hallgríms-
sonar, Vesturg. 19.
I
' KAUPSKAPUR
Tll sölu nú strax: Ný sauhia-
vjel, reiðföt, yfirfrakki, ýms hús-
gögn. Allt með tækifærisverði.
Afgr. v. á.
8 TAPAЗFUNDIÐ
Peningabudda fundin hjá böggla-
pósthússgrunninum. Geymd á afgr.
Vísis.
Silfurdósir hafa tapast í mið-
bænum, merktar: Símon Símonarson,
Skilist á Laugaveg 51 gegn fundar-
launum.
0stlunds-smiðja.
i allskonar
°g
ka rí man n sfatnaðir
ft.S. fc i AKf t>ti ií jiOl ,« fc ’ i'vrf', t.
Og
drengjaföt af öllum
stærðum, þar á meðal fermingarföt, eru
m\V\8
í
K A U P A N G I
en annarsstaðar.
Gæðin vita allir um, sem reynt hafa.
Brennt kaffl Gott ís,enskt smjör
fæst í Kaupangi.
kostar í
Kaapangi
Kr. 1,05. pr. pd.
Verslunin Hlíf,
Grettisgötu 26.
(á horninu á Frakkastíg og
Grettisgötu).
Brennt og malað
ódýrast og best í
verslun
Asgríms Eyþórssonar,
Austurstræti 18.
Magnús Sigurðsson
Yfrirjettarmálaflutningsmaður.
Kirkjustrœti 8.
Venjulega heima kl. 10—11.
Margaríne
best og ódýrast
* i-fá «. .íV
f versiun
Ásgríms Eyþórssonar
Sím 116. Austur9træti 18.
Verslunin Hlíf
er ódýrasta verslunin á Grettisgötu.
Vitið, hvórt ekki er satt
Útgefandi:
Einar Ounnarsson cand. ohil.
Verð: pd. 95 au.
K. F. U M.
Kl. 61/? Væringjaæfing. Áríðandi
auglýsingar.
Heilræði.
Eins og þiö vitið nálgast pásk-
armr óðum, Vil jeg því minna
ykkur á að skoða í snatri spariföt-
in ykkar, því skeö getur að komnir
sjeu blettir í þau eöa Ijótar hrukkur,
svo þið varla getlð verið í þeim á
hátíðinni (í þessu glaða sólskini sem
þá verður áreiðanlega). Mjer þætti
náttúrlegt að svo væri, þó þið feng-
uð þau nú svona ágætlega vel hreina-
uö og pressuð rjett fyrir jólin þarna
á Laufásvegi 4, hjá henni Sæunnl
Bjarnadóttur, og þá uröu þau alveg
eins og ný. En það er svo langt
síðan, því vil jeg nú ráöleggja ykkur,
að koma þeim aftur til Sæunnar og
það sem allra fyrst, því annríki er
i
þar mikið og margir hafa þegar
farið aö mínum ráöum og eru því
vissir um að verða í alveg. nýum
fötum á páskunum.
Ráðhollur.
dassen.
Ytirrjettarmalaflutningsmáður,
Pósthússtræti 17.
Venjulega Heimákl. 10—1 log 4—7.
Talsími 16.