Vísir - 08.04.1914, Blaðsíða 2

Vísir - 08.04.1914, Blaðsíða 2
WI ■ jr-v- Htr yw* ■uawi V l»| R Fataverslun TH. THORSTEINSSON & Co. Ausiursiræti 14. PáskaYindlarnir. þessir óviðjafnanlegu, (mjög margar teg.) eru langbestir og ódýr- astir í versl. GUÐMUNDAR EGILSSONAR á Laugaveg 42. Páska-ostinn er nú sem fyr áreiðanlega langbest að kaupa f verslun EINARS ARNASONAR. Sími 49. Cá! á-'i/c- w 'O'ri'K'. Páskadag kl. 8 árd.: sr. Bjarni, kl. 12: sr. Jóhann. 2. Páskadag kl. 12: sr. Bjarni. kl. 5: S. Á. Gíslason cand. pwffl iFRÁ ÚTLÖNDUMf! Biskupinn jeiur skóna sfna. Dr. Isaac Stringer, biskup í Yukon viö Yukon-flóann, er nú að ferðast um á Bretlandi og kann frá mörgu að segja norðan úr heim- skautalanda-sóknum sínum. Með- al annars segir hann frá því, að á einni embættisferð sinni um ísauðnir í íllviðri var hann svo að- fram kominn af hungri, að hann varð guðsfeginn að jeta nýa sel- skinnsskó, er hann hafði með sjer. Hann var einn á ferð, hafði villst og var þrotinn að skotfærum og matvæli engin. Aö lokum át hann skóua og komst loks til byggða, nær dauða en lífi, eftir 5 daga hung- ur og segir hann, að selskinns- skórnir hafi forðað sjer við hung- urmorði, en annað bragðaði hann ekki þessa 5 daga og ís fyrir viðbit. Þess má geta, að biskups- dæmi hans er rúml. 200 þúsund ferrasta svæði og liggja norðurtak- mörk þess aö Norður-íshafinu. Og á svæði þessu eru aðeins 8 presta- köll. stúdexvta, (Student Volunteers.) Eftir sjera Friðrik Friðriksson. Frh. Dr. Samuel Swemer frá Kairo talaði mjög átakanlega um trú- boðið í löndum Múhameðsmanna og sýndi fram á, að Múhameðs- trúin myndi vinna stór svæði í Afríku, ef kistnir menn legði ekki fram hina fremstu krafta. Hann lýsti með sterkum rökum því tjóni, sem mannkynið myndi hljóta af því ef þessi hjátrúarfulla og ofstækisfylta trú næði að“ breiö- ast út. Dr. Robert Speer var og”einn af áhrifamestu ræðumönnum. Hann er frá New York og starf- ar þar fyir stúdentahreifinguna og þykir afburðamaður. I. A. Mc Donald, sá er gefur út „The Toronto Globe“, var og meðal ræðuskörunganna. Hann flutti heitt og snjallt erindi um hina kristilegu menning; voruþað vekjandi og hvetjandi áminningar- orð til Bandaríkja- og Canada- manna um skyldur þeirra í þessu efni. Marga fleiri mætti nefna, en rúm myndi skorta til þess. þó verð eg að minnast á einn, sem og hjelt ræðu. það var W. J. Bryart. Hann talaði í heila klukku- stund með eldf jöri, sannfæringar- festu og fyndni-kryddaðri mælsku, sem hreif alla. Hann talaði um nauðsyn heiðingja-trúboðsins og rjettmæti þess: „Jeg hef ávalt haft mætur á heiðingjatrúboði“ — sagði hann —, „og jeg hef nú ferðast 1700 mílur til þess að að ávarpa yður, sem eruð að búa yður undir að fara út til þess að frelsa sálir. Áhugi minn á trú- boðinu hefur stórum vaxið við ferð mína kring um hnöttinn, því á þeirri ferð fjekk jeg tækifæri til að að sjá með eigin augum það verk, sem trúboðar vorir vinna í hinum dimmu löndum heiðninnar." —■ Hann hrakti þar- næst með sterkum rökum mót- bárur móti trúboðinu og sagði, að meira gagn væri það fýrir þjóðina og meiri styrkur fyrir heimsfriðinn, en herskipaútvegur hennar. Hann lýsti því, hvernig Wilson forseti og hann hefði ligt að John R. Mott að verða sendi- pflT frá 12. júní 1913. JQ 1. Einar Pjetursson rær út á „skelinni“. 2. Fánabátarnir koma í land. 3. Varðskipsforinginn gengur undir íslenska fánannu 4. Mótmælasamkoman í Barnaskólagarðinum. 5. Við myndastyttu Jóns Sigurðssonar. 25 aura hvert. Öll kr. 1,00. A afgr. Vfsis. ÁgætarKaitöfhir, Gfulrófur, (julrætur, Eauðbeður, Selleri og Hvítkál fæst mjög ódýrt og gott á Klapparstíg 1 B. Sfmi 422- Vefnaðarvöruverslun TH THORSTEINSSON Ingólfshvoli. J á-i/& /

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.